Tíminn - 31.07.1970, Blaðsíða 14

Tíminn - 31.07.1970, Blaðsíða 14
14 ■V .... \ —.............■■■ MJÚKUR - STERKUR Sérstaklega þægilegir og sterkir barnaskór í brúnum lit. — Póstsendum. — Skóverzlun ÞórSar Péturssonar við Austurvöll, sími 14181, Póstn. 51 EVINRUDE U tanborðsmótorar StœrÖir 1,5 ha. til 115 ha. HEIMSFRÆGIR FYRIR GÆÐI. Útvegum einnig hentuga báta af öllum stœrðum. ÞQRHF REYKJAVÍK SKÓLAVÖROUSTÍG 25 TAPAZT hefur rauð hryssa, með litla stjörnu í enni, 4ra vetra, járnuð með Y F klippt í vinstri síðu, á leið frá Skógarhólum niður 1 Mosfellssveit Vinsamlegast látið vita í síma 66130. Mósóttur hestur er í óskilum hjá lögreglunni í Kópavogi. Mark líklega biti framan — fjöður aftan vinstra. Lögreglan í Kópavogi. Þökkum innilega auðsýnda samúð v!8 fráfall eiginkonu mlnnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu SigríSar Bjarnadóttur. Jón Hafiiðason, Stefán Jónsson, Gyða Grímsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Bjarni Jónsson, Borgþór H. Jónsson, Rannvelg Árnadóttlr, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðlr, afi og langafl Sigurður íshólm, Njálsgötu 4B verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni 1. ágúst kl. 10,30. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. TÍMINN FÖSTUDAGUR 31. Júlí 1970. Ilraðbrautir Framhald af bls. 1 anlegu slitlagi til Selfoss 1972 eins og fyrr .segir. Þá verður einnig boðin út í haust lagning vegar frá Korpu upp í Kollafjörð. Sá vegur á að fylg.ja þeim gamla á kafla, en verður lagður neðar annars stað ar. Verður t. d. byggð ný brú á Leirvogsá. Enn síðar er áætlað að Vesturlandsvegur gegnum Mos- fellsveit verði iagður enn neðar, eða allt niður undir sjó. Á næstu vegaáætlun er gert ráð fyrir að leggja vegi með varan legu slitlagi um Hvalfjörð og upp í Borgarfjörð og út frá Akureyri. í sumar eru nokkrar vegafram kvæmdir í Ilvalfirði, en bar er verið að leggja nýjan vegarkafla við Skeiðhól og er vonazt ttl að sú framkvæmd klárist í sumar. 90% afttúnum Framhald al bis 1 að beirri niðurstöðu, að reynandi væri að fara út í Skálavík og heyja bar á útengjum, sem líta miklu betur út en túnin. Kartöfiugrös hafa hríðfallið hér um slóðir, og má gera ráð fyrir lítilli sem engri kartöfluuppskeru betta ár. Leikför á Strandir Framhald af bts 16. valdið í nærliggjandi sveitum brugðu sér á leiksýninguna, en ungbörnum, gatnalmennum og öðrum, sem ekki voru ferðafærir, var safnað saman á þrjá fjóra bæi, og hafði þar hver ofan af fyrir öðrum. Leikararnir létu mjög vel af viðtökum þeirra Strandamanna. Nasser Framhald af bls. 9 öllu að viðurkenna að ísrael hafi tilverurétt. Mikilvægast er þó, að sam- þykki Arabar og írraelsmenn að hætta að skiptast á skotum og hefja viðræður yrði komið í veg fyrir frekari útbreiðslu hinna hernaðarlegu átaka og 'komizt yrði hjá þeim árekstri ofurve.'danna, sem yfir hefir vofað og virzt þokast nær og nær. Golf Framhald af bls. 12 2. flokkur. 1. Pétur Elíasson 390 2. Donald Jóhannesson 391 3. flokkur. 1. Ólafur Ólafsson 400 2. Jón V. Karlsson 434 Unglingaflokkur (14 til 18 ára) 36 holur. 1. Jón Sigurðsson 1841 2. Ægir Ármannsson 191 Drengjaflokkur (14 ára og yngri) 36 holur. 1. Sigurður Thorarensen 166 2. Sturla Frostason 180 —klp. Símamorð Framhald af bls. 3. Costeraste að fá tæpa milijón króna. Ákærandinn sagði, að Harlette og Padoyanni hefðu staðið við veginn og gefið bílstjóranum merki, þegar Lucia nálgaðist. Fyrir réttinum sagði Ilarlette: — Eg var bara að reyna að fé greifann til að selia mér höllirr- og ég lofaði að gæta hans og sjá um hann, það sem hann ætti eftir óliíað. Vitni lögreglunnar sögðu fyrir réttinum, að Harlette hefði verjð símavændiskona á árunum 1954— 64. Þá svaraði Harlette brosandi: — Því ekki lengur? Ég hef alltaf átt elskhuga. Þau þrjú voru öll sek fundin um samsærið, sem kostaði Luciu lífið. Harlette var dæmd í 12 ára fangelsi og Costeraste og Pado- vanni í 8 ára fangelsi hvor. Stöðuveitingar Framhald aí bls. 16 mannafundurinn, sem félagið boðar til. Þótt rnörg mál séu þess verðug að vera tekin til umræðu, er það þó' eitt, sem er sérstaklega tilefni þessa fundar, I gær, hinn 29. júlí, birtist í Lögbirtingablaði auglýsing um tvær prófessorsstöður og fimm dósentsstöður við Verk- fræði- og raunvísindadeild há- skólans. Umsóknarfrestur ucp stöður þessar rennur út 10. ágúst. Nú eru skýr ákvæði í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfstnanna, sem kveða svo á, að venjulega skuli auglýsa stöður með fjögurra vi'kna fyrirvara. Sú málsmeð- ferð, sem nú er viðhöfð, er því greinilega ekki í anda laganna. Að okkar mati er það full- komin óhæfa, að umræddar stöður skuli ekki hafa verið auglýstar miklu fyrr. Þar sem væntanlegum umsækjendum er ætlað að hefja kennslu í byrj- un september, yrði undirbún- ingstími þeirra augljóslega allt of skammur. Auk þess verður að gera ráð fyrir því, að viðkomandi menn þurfi nokkurn tíma til að losa sig úr öðru starfi. f þessu sambandi viljum við sérstaklega minna á þá fjölmörgu íslenzku vísinda menn, sem nú starfa erlendis, en hefðu vafalaust hug á að hverfa heim, ef tækifæri byð- ist. Þess má geta, að fimm stöð- ur af þessum sjö voru í raun- inni stofnaðar á síðastliðnum vetri, og voru þá menu settir til að gegna þeim. Sá dráttur sem orðið hefur á auglýsingu þeirra er því tæplega afsakan- legur. Með veitingu þessara sjö em- bætta verður fjöldi fastráðinna kennara við Vcrkfræði- og raun- vísindadei.'d tvöfaldaður. Það ætti að vera yfirvöldum kapps- mál, að undirbúningur þessara stöðuveitinga sé sem beztur, svo að tryggt sé, að í sföðurnar veljist hæfustu menn, ,em völ 'r á. í auglýsingunni er tekið fram, að tveimur dósentanna séu ætl- uð sérstök verkefni innan sér- greina. Með þessu . a® sjálf- sögðu verið að þrengja hóp hugsanlegra umsækjenda, en þar að auki eru ákvæðin ekki í samræmi við ályktanir háskóla- ráðs um þessi embætti. Við vi.'j- um ekki draga dul á þær grun- semdir okkar, að bak við þá formgalla, se./i hór hefur verið lýst, liggi óskir um, að fyrir- fram ti”''knir menn venði skip- aðir í umra*ddar stöður, og að hásk 'linn . ilji hlífast vi' að ber° þá saman við aðra, Félag okkar hefur áður sent yfirvö.’dum gagnrýni á fram- kvæmd við stöðuveitingar inn- an háskólans. Hingað til hefur ' þu ekk- verið ’alin ástæða til b/S setja slíka gagnrýni fram opinberiega. því ið stöðugt het ur v,"''ð .'ona7* eftir úrbótu'n í peöiir, má'um Þess má geta. að fvrii ..okkrum vi’rum sam- 'khli (v' ' nráð ályktun, þar ■ •dur var sá háttur ao -etja i.ienn í kennarastöður á síðustu stundu. Er tú ályktun mjög í samræmi við þær skcð- anir, sem féfag okkar hefur sett. fram. Við vonumst að lokum til þess, að almenmingur láti sig þetta mál skipta og stuðli að sjálfsögðum og réttlátum um- bótum. Úr því sem komið er, er það eðlileg krafa, að umscknar- frestur fyrir umræddar stöður verði framfengdur til 1. októ- ber, að ákvörðun um stöðuveit- ingu liggi fyrir eigi síðar en í febrúar n.k., og stöðurnar verði síðan veittar frá og með 1. júlí næsta ár. Ef tilefni gefst, erum við reiðubúnir að kynna þessi mál- efni og önmur þeim skyld á opin berum vettvangi.“ Stjórn „Félggs vísindalega menntaðra starfsmanna við Raunvísindastofnun Háskólans“ skipa Þorsteinn Sæmundsson, stjörnufræðingur, Þorvaldur Búason, eðlisfræðingur, og Þor- steinn Vilhjálmsson, eðlisfræð- ingur. Ríkarður Framhald af bls. 8 urspeglaði nostursemi og ást listamannsins á hverju einasta viðfangsefni. T.d. mannamynd- irnar, hvort heldur þær voru úr steini, tré eða á pappír, þær blátt áfram endurspegla meira líf og innri tilfinningar heldur en nokkurri Ijósmyndatækni er fært __ að sýna af lifandi manni. Eg nefni_ t.d. höggmynd irnar af séra Árna Þórarins- syni, Jónasi frá Hriflu og Jör- undi Brynjólfssyni. Einnig höfúðmyndir tveggja drengja. Þessar myndir eru hreint og beint lifandi. — Svona mætti lengi telja. Ég hefi reyndar „óupplýstan“ smekk og „ólærða“ þekkingu til þess að . dæma um bessi verk. „Handbragð" listamannsins er þeim töfrum slegið, að eigi er svo stafkrókur skorinn að ekki sýni hann umhyggju lista mannsins fyrir áferðinni ásamt hinni hugfrjóu túlkun. Hann leiðir okkur inn í heim hinnar þjóðlegu vitundar með rúnaristum sínum og stafaflúri. — Mér varð starsýnt á stofu- bekk í gömlum stfl, sem lista- maðurinn hefur smíðað undir mynd á veggteppi, sem mjög var í tízku fyrir þrjátíu árum. Er það mynd af móður, sem hagræðir barni sínu í vöggu. Þessi mynd er saumuð með ull-. arþræði í dúk á svörtum grunni. En í staðinn fyrir myndir, sem annars staðar var tízka að skreyta þessi vegg- teppi með, er í það saumu® hugnæm vögguvísa með rúna- letri: „Sofðu, sofðu góði, sefa igrát inn þinn. Kveð ég Ijúflings- ljóði litla drenginn minn“. Hef ur þetta gert dóttir listamanns ins árið 1948, sennilega með ráði föður sins. Það mætti lengi telja upp bau verk listamannsins, sem þarna eru og ólýsanlegum hug hrifum valda. en ég læt hérr staðar numið. — Ég vil hér einungis taka undir orð Ás- geirs Bjarnþórssonar í Timan- um þ. 12. júní s.l. bar sem hann hvetur til þess að koma upp fullkomnu safni eftir- mynda af verkum Ríkarðs Jóns sonar áður en bað verður of seint. í von um að forusta menn- ingarmála vorra sjái hina bráðu nauðsyn þessa máls, enda ég þessar línur með þakk læti til bessa listfrömuðar ís- lenzkrar alþýðu fyrir þau ómet anlegu verk sem hann hefur skapað. Reykjavík 12. júní 1970. Ragnar V. Sturluson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.