Tíminn - 30.09.1970, Qupperneq 14

Tíminn - 30.09.1970, Qupperneq 14
14 TÍMINN MroVTKUDAGUR 30. september 1970 Frá Mýrarhúsaskóla Innritun í 6 ára deildir fer fram fimmtudaginn 1. október kl. 13—16. Nemendur gagnfræðaskól- ans mæti sama dag kl. 10. Skólastjórinn. Utanmál: 24,6x17,5x17,4 cm. Þetta er nýi, hvíti 12 volta 53 amp SÖNNAK rafgeymirinn i V W., Opel o.fl nýia þýzka bíla. Fjölbreytt úrval SÖNNAK-rafgeyma ávallt fyrir Iiggjandi. S M Y R I L L , Ármúla 7. — Simi 84450. Tvö á sjúkrahús Framhald af bls. X. hún Pál hina erfiðu ferð niður af fjallinu og tíl byggða. Sagði Örn að reyndar hefðu allir sem tóku þátt í björgunarstarfinu, unn ið erfitt og þafekarvert starf. Hús íbúa í Mykinesi stóðu öllum opin og spöruðu íbúarnir, sem flestir eru komnir á efri ár, ekkert til aö sem bezt mæti fara um far- >ega og björgunarmenn. Sama er að segja um björgunarsveitirnar, sem fóru á slysstaðinn, svo og dönsku sjómennina og lækna og hjúkrunarlið. Hvað mesta ósér- hlífni sýndi flugmaðurinn á þyrlu Hvítabjarnarins, en hann fór marg ar ferðir milli lands og skips á lítilli þyrlu með slasað fólk. Veð- ur var slæmt og aðstæður allar hinar erfiðustu, en flugmaðurinn lét það ekki á sig fá og flaug sleitulaust í rúmlega hálfan sól- arhring. Rannsókn slyssins heldur enn áfram á vegum danska loftferða- eftirlitsins. Niðurstöður liggja ekki fyrir, en telja má öruggt að flugstjórinn hafi verið hættur við lendingu og verið að hækka flug- ið þegar vélin rakst á fjallið. Nokkrir íslendingar eru enn í Fær eyjum og fylgjast þeir með starfi rannsóknamefndarinnar. Þeir eru Grétar Óskarsson, frá loftferðaeft- irlitínu og flugmennirnir Henning Bjamason og Jón R. Steindórs- son. Aðalfundur Framhald af bls. 3 settur verði á stofn ríkisleikskóli, og skorar á ríkisvaldið að hraða undirbúningi að stofnun slíks sikóla. Þingið heimilar stjórninni að taka þátt í undirbúningi að stofn- un samtaka félagsheimila í byggð- um landsins. — Þingið heimilar ennfremur að væntanleg lög þess gera ráð fyrir þátttöku þess og annarra landsambanda eigenda félagsheimilanna að fyrirhuguð- um samtökum. Eftirtaldir eiga nú sæti í stjórn B. í. L. auk formanns Guðna Ás- mundssonar: Hannes Friðriksson. Sigurður Jóhannsson, Gunnhild- ur Guðmundsdóttir, Sigrún Sturlu dóttir, Cesil Haraldsson, Hinrik Konráðsson og Dagbjartur Stígs- sön. Enginn sótti um Framhald af bls. 16. fyrrnefndi hefur að baki sjö ár í háskóla, hinn síðarnefndi þrjú. Menntaskólakennarar eru þó ekki ofsælir af sínum lágu launum, sem eru lægri en flestra annarra starfsmanna méð sambærilega menntun“. Segir einnig, að samkvæmt i drögum að starfsmatskerfi sé I ætlunin að auka enn ranglætíð og vitleysuna. í lok greinarinnar segir. að „við horf ráðamanna í menntamálum og fjármálum til vandamála á þessu skólastigi hafa því miður oft mótazt af því, að 'f ta allt reka á reiðanum. Eina ráðið gegn hin- um gífurlega skorti á háskóla- menntuðum kennurum á gagn- fræðastigi, er að launa eftir mennt un og réttindum í mun ríkara mæli en nú er gert og greina milli skólastiga fyrst og fremst með mismunandi kennsluskyldu". Landgrunnið Framhald af bls. 16. einum orðum afstöðu rikisstjórnar fslands, sem hér segir: 1. Ríkisstjórn íslands er því samþykk, að kvtidd verði saman alþjóðaráðstefna varðandi réttar- reglur á hafinu, enda verði verk- svið hennar nægilega vjðtækt til að fjalla um öll atriði varðandi réttindi strandríkisins á svæðum, sem liggja að ströndum þess. 2. Það er skoðun vor, að strand- ríki eigi rétt á að ákveða tak- mörk lögsögu sinnar innan sann- gjarnra takmarka með hliðsjón af landfræðilegum, jarðfræðilegum, efnahagslegum og öðrum sjónar- miðum er þýðingu hafa. 3. Vér erum þess áskynja, að mörg rí'ki telja að 12 mílna mörk séu fallnægjandi til að tryggja hagsmuni þeirra, enda þótt ,'ög- saga strandríkja sé í reynd allt frá 3—200 sjómílur. 4. f sérstökum tilvikum, þar sem þjóð byggir afkomu sína á auðlindum undan ströndum sínum, eru 12 mílna mörk ekki fullnægj- andi. 5. Að því er ísland varðar, eru lögsaga og umráð yfir landgrunni þess og hafinu yfir því, sann- gjörn og réttlat. og verðskulda viðurkeíiningu samfélags þjóð- anna.“ Ritgerðasamkeppni Framhald af bls. 16. 3. verðlaun hlaut Pétur Krist- jánsson, Garðahreppi, 4 verðlaun Kristín Hallgrímsdóttir, Garða- hreppi, 5. verðlaun, Jóhann Tryggvi Sigurðsson, Eyjafjarðar- sýslu og Bragi Guðmundsson. Austur-Húnavatnss. hlutu 6. verð laun. Fengu allir þessir verðaluna hafar veglegar bækur að gjöf. — Þá voru ein aukaverðlaun veitt og hlaut þau Sverrir Ólafsson, Reykjavík, voru það bókaverð- laun. Fjögurra manna dómnefnd | dæmdi ritgerðirnar, og áttu sæti i í henni: Grímur Engilberts ritstj.! Æskunnar, dr. Gunnar Schram, I formáður Félags S. þ. á íslandi, j Sigurður Magnússon blaðafulltæúi. I oftleiða og Helgi Elíasson fræðslu | málastjóri. I Verðandi >amhald af bis. 3. 26. Sigurður Tómasson, stud. ’ scient., MH ’70. 27. Skúli Thoroddsen, stud. jur., í MH ’70. 28. Viðar K. Toreid. stud. med Rjukan ’67. Allir stúdentar innritaðir við H. í. hafa atkvæðisrétt í prófkjör- inu. Á VIÐAVANGI Framhald af bls. 3 á fiskimiðin fcr vaxandi og auðlin-iir hafsins við strendur, Iandsins eru sópaðar með stór- felldri tækni af fjölda þjóða, ekki aðeins nágrannaþjoða, heldu:- einnig sendir á mið okk ar skipaflotai úr fjarlægum lieimshlutum. íslenzka þjóðin verður áreiðanlega að heyja á næstu árum nýja sjálfstæðis- baráttu, þar sem reyna mun á þrek, vitsmuni, ættjarðarást og þjóðerniskennd. Baráttu fyrir lífinu. Baráttu fyrir að fá rétt- iim til að eiga ein auðlindir landsins. Stjórnmálabarátta næstu ára mun markast og mót- ast í verulegum atriðum af þessum viðfangsefnum. Ef ekki tekst á næstu árum að ná fullum rétti á öllu lanil- grunninu xit frá ströndum fs- lands og síðan að verja þetta hafsvæði fyrir veiðum útlend- inga, þá verður erfitt eða jafn vel ómögulegt fyrir þjóðina að búa i landinii, nema þá að eitt- hvað nýtt komi til að veita henni lífsskilyrði. Við munum að vísu nýta vel gróðurmold- ina og orkulindimar, jarðvarm ann og vatnsaflið. En ef fiski- miðinn og uppeldisstöðvar nytjafiska við strendur lands- ins verða eydd eða eyðilögð, þá mun þjóðin ekki hafa hér fullnægjandi framtíðarverkefni. Þjóðin öll, stjóramálaflokkar og fulltrúar á Alþingi og í ríkisstjórninni verða að beita sameinuðu afli til að verja þennan höfuðþátt náttúrugæð- anna, svo að landið verði fært um að fóstra þjóðina.“ TK Tvær óperur Framhald af bls. 2 Girimes“ samdi hann eftir heim- komuna til Englands 1942 og skip- aði hún höfundi sínum á bekk meðal helztu óperutónskálda ald- arinnar. Meðal annara ópera Britt ens má nefna „The Rape of Luc- retia“, „Albert Herring" „Billy Budd“, „The turn af the Schrew",' „A Midsummernights dream“ og „Let’s make an Opera. Britten hefur einnig samið margs konar annars háttar tón- list. sönglög, kórverk, strengja- kvartetta, fiðlukonsert og sin- fónki. Hann hefur stjórnað flutn- ingi verka sinna, á leiksviði, í kirkju og konsertsal og á hljóm- plötum (Decca). Samvinnuþjóðfélag Framhald at bls. 7 um allar framkvæmdir og til þess ber að sækja um allar breytingar á kaupgreiðslum milli stétta og starfshópa, sem gera má ráð fyrir að komið geti fram, því ekki er þess að vænta, að sú upphaflega tekju skipting verði óumbreytanleg. Sjálfsagt gæti komið til mála að skipa þyrfti yfirdóm til að skera úr slíkum málum. Segja má. að nú þegar hafi að verulegu leyti verið farið inn á þá braut að ákveða kaup stétta og starfshópa. Bændum er ákveðið kaup með hliðsjón af tekjum annarra vinnandi stétta. Starfsmönnum ríkis og bæja er ákveðið kaup, einnig sjómönnum að verulegu leyti. Ekki verður sagt að viðkom- andi stéttir hafi alltaf verið ánægðir með sinn hlut. Með áorðnum þeim breytingum, sem ég hef lagt til hér að framan horfir þetta mál allt öðru vísi við Þar er lagður fastur grunnur tii að byggja á. Að vísu getur komið fram, eins og bent hefur verið á, ágreiningur um tekjuskiptingu milli stétta og starfshópa, en slíkt raskar ekki sjálfri undir- stöðunni. það getur hvorki leitt af ser verðbólgu né óraunhæf- "■ ótíma'u' ar kaunkröfur. Eitt langar mig til að minn- j.-it a enn, þar sem ég tel að þróunin sé varhugaverð fyrir efnahagslíf þjóðarinnar, og samrýmist ekki okkar aðstæð- um, en það er hinn linnulausi áróður og þunga sókn um stutt an vinnudag og löng frí. Má vera að háþróaðar iðnaðarþjóð- ir með fjölbreytt atvinnulíf geti veitt sér þann munað, en hjá okkur íslendingum, sem svo rnafgt höfum að vinna, er það alls ekki tímabært. Það er heldur ekki víst, að það sé svo eftirsóknarvert. Iðjuleysið skapar mörg vandamál. „Eitt- hvað þarf iðjulaus hönd að vinna“, segir gamall málshátt- ur, og vill þá oft fara svo. að það sem höndin vinnur er mið ur þarft. f þeim löndum, sem langt eru komin ,á þessari braut, er þetta mikla iðjuleysi að verða alvarlegt vandamál, vaxandi áfengis- og eiturneyzla, óknyttir og siðleysi fylgir í kjölfarið að ógleymdri eyðsl- unni, sem er stór löstur og þjóðfélagslegt mein. Mun þetta einnig vera að byrja að segjg til sín hér. Ein helzta röksemda færslan fyrir þessu iðjuleysi hefur verið sú, að það væri aðalforsenda þess að geta lifað „mannsæmandi lífi“. Að það í mörgum tilfellum verkar al- gerlega öfugt, hefur verið sýnt fram á hér að framan. Við megum ekki vera of veikir fyrir að apa allt eftir öðrum þjóðum heldur fara að haga okkar málum eftir því, sem á við okkar aðstæður og þjóðarhagur krefst, því aðeins mun okkur takast að halda efnalegu og stjórnarfarslegu sjálfstæði til frambúðar. Ein er sú stétt, sem alger- lega sker sig úr í því efni, sem rætt var nú síðast, en það er sveitafólkið. Það þarf að vinna alla daga ársins, einnig sunnu- daga, þó reynt sé þá að stilla vinnu í hóf, eftir því sem unnt er en sum störf verður að vinna alla daga jafnt eins og t.d. skepnuhirðingu. Oft er vinnudagurinn langur og um sumarfrí er varla að ræða. Auk þess hefur sveitafólkið sam- kvæmt útreikningi hagstofunn ar borið minna úr býtum en aðrar stéttir. Að bændurnir hafa þrátt fyrir það gert svo miklar framkvæmdir, sem raun ber vitni. byggist eingöngu á vinnusemi þeirra og hófsemi um eyðslu. Ætla mætti að þetta fólk væri orðið hálfgerð ir skrælingjar eða nátttröll í nútíma þjóðfélagi samanborið við fólkið með stutta vinnu- daginn og löngu helga- og sum arfríin. Sé ekki svo, sannar Það svo augljóslega sem verða má þau sjónarmið, sem haldið var fram hér að framan. Yfirskriftin yfir erindi þessu er „Samvinnuþjóðfllag". Því ætti ekki að vera hægt að reka þjóðfélag og þá einkum lítið þjóðfélag á samvinnugrund- velli? Samvinnufélagsskapur- inn er rekstrarfyrirkomulag, þar sem stærri eða smærri hóp ar, sem sameiginlegra hags- muna hafa að gæta, slá sér sanran. Þjóðfélagið er einn slíkur hópur. í samvinnufélög- unum skiptist árlegur hagnað ur félagsins hlutfallslega jafni milli félagsmanna, sem í þessu tilliti yúðu begnarnir. Geta ekki allir orðið sammála um að þetta fyrirkomulag nundi verða hagkvæmara fyrir þjóð arbúið, og líklegra til að lær? þjóðinni batnandi lifsafkomt heldur en það fyrirkomulag sem við höfum búið við undan farið. þar sem verkföll hafi verið aðal hagstjórnartæki og hæstiréttur? Ættum við ekk að taka það mál til rækiiegra athugunar, og raunhæfra a? gerða? Stefán Kr. Vigfússon. Þökkum hjartanlega vináttu og samúð við andlát og útför Stefáns Jónssonar, Hlíð í Lóni. Kristín Jónsdóttir og aðrir aðstandendur. Þökkum Innilega auðsýnda samúð og vinarhug vlð andlát og jarð- arför Einars Guðmundssonar, vélgæzlumanns, Blönduósi. Davia Guðmundsson, Guðmundur Einarsson, Hrafnhildur Reynisdóttir, Harry Einarsson, Krlstín Hólm, Herdís Einarsdóttir, Jóhannes Þórðarson, og barnabörn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.