Tíminn - 14.10.1970, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 14. október 1970
TÍMINN
Sebasfien Japrisot:
Kona, bíll, gleraugu og byssa
15
ætti þá einhver að hafa ráðizt á
þig? _
— Eg sagði aldrei, að einhver
hefði ráðizt á onig.
— Þú gafst það berlega í skvn,
hreytti Baulu út úr sér.
Hann hafði þokazt nær stúlk-j
unni. Allt í einu varð Manuel
ljóst, að hún þrengdi sér af mætti
upp að stólbakinu. Hún var
hrædd. Síðan sá hapn tvö tár
eitla undan dökkum glerjunum.
og þau sitruðu niður vangann.
Hún virtist ekki eldri en tuttugu
og fimm ára. Hið innra fann
Manuel tvinnast saman æsing og
kvíðni. Hann langaði einnig að
koma nær henni, en hann þorði
það ekki.
— Taktu ofan gleraugun til að
byrja mcð, sagði Baulu. Mér fell-
ur ekkj að tala við fólk, ef ég
sé ekki í því augun.
Manuel hefði getað svarið fyrir,
að hún gerði það, og máski fast-
eignasalinn líka og jafnvel Baulu
sjálfur, sem öfgaði í sér reiðina
til að gagntaka áheyrendur. En
stúlkan hlýddi umyrðalaust. I-Iún
.gerðj það samstundis, eins og hún
óttaðist, að þeir mundu neyða
hana til þess með valdi. Manuel
þótti engu líkara en hún hefði
varpað af sér klæðum. Augu henn
ar voru stór og dökk. og úr þeim
las hann ugg og vanmætti, en
glitti í tár við augnkrókana. Það
fór ekki milli' mála. Af einhverri
djöfuls ástæðu Var húií- fallegri
svona og næstum nakin.
Hinir tveir hlutu einnig að
finna þelta, því að aftur ríkti
löng þögn. Þá lyfti stúlkan bólg-
innj hendinni og sýndi þeim hana
án þess að mæla orð frá vörum.
Manuel steig áfram eitt skref og
bandaði Baulu til hliðar.
— Hvað á nú þetta að msrk.ia.
sagði hann. —Nei góða mín, þú
ætlar þó ekki að halda því fram,
að þú hafir fengið þessi meiðsii
í skúrnum hjá mér. Höndin á þér
var svona í morgun.
Tæpast hafði hann sleppt orð-
inu, en skaut upp kollinum þeirri
hugmynd. að þetta virtist eintóm
endaleysa. Hér voru óefað maðk-
ar í mysunni, og hann hélt hann
hefði séð í gegnum látalætin, en
nú tók að rofa fyrir veilu, sem
ruglaði öJiu samhengi. Ef hún
ætlaði til dæmis að telja honum
trú um, að hún hefði slasazt í
skúrnum, og kría síðan út úr hon
um peninga í stað þess að fara
til lögreglunnar, hvers vegna í
andskotanum var hún þá hérna í
morgun með lemstraða höndina.
—Það er ekki satt!
Ilún hristi ákaft höfuðið og
reyndi að standa á fætur. Baulu
varð að hjálpa Manuel að halda
henni f skefjum. Niður gegnum
hálsmálið á jakkakjólnum sáu
þeir, að hún var ekki j öðru innst
klæða en hvítum, blúnduofnum
brjóstahöldum og barmurinn var
gulbrúnn. Hún róaðist smám sam
an, og þeir viku eilítið frá stóln-
um. Um leið og hún setti upp
gleraugun, endurtók hún, að
bað væri ekki satt.
— Hvað? Hvað er ekki satt?
Höndin á mér var ekki lemstr-
uð í morgun. Ef hún hefði verið
lemstruð, þá munduð þið ekki
einu sinni hafa getað séð það, því
að ég var í París.
Ilún tafaði aftur með hljóm-
lausri rödd, og vottaði fyrir lítils-
virðingu í svip hennar. Þó fannst
Manuel það vera öllu fremur til-
gerðarhroki, eins ng hún reyndi
að bæla niður ekka og halda kven
legrj reisn. Hún gaumgæfði á sér
vinstri höndina og bláleitt hrufl-
ið við hnúana.
— Þú varst ekki í París, mad-
ame, saí>ði Manuel sefandi. —Þú
getur ekki talið mér trú um það.
Eg veit ekki, hvað þú hugsar þér
að gora, en enginn hérna í ná-
grenpinu mundi nokkurn tímann
væna mig um lygi.
Hún leit upp, en ekki á Man-
uel. Hún horfði út um gluggann,
þangað sem Minette var að dæla
bensíni á lítinn vörubíl,
—Ég gerði við afturljósin á
Thunderbirdinum, sagði Manuel.
— Ég gerði við þau í morgun.
Þau höfðu farið úr sambandi.
— Það er ekki satt.
— Ég beitj ekki fyrir mig lyg-
um.
Hún hafði komið í dögun.
Hann heyrði hana banka, þegar
hann var að fá sér duftkaffj í eld
húsinu. Hún hafði verið nákvæm-
lega eins og hún var nuna. Hæg-
lát í fasl og jafnframt óstyrk, al-
búin að gráta út af engu og al-
búin aö snúast til varnar, ef þör*
krefði. Hann girti, náttjakkanp y,
an í buxurnar og meðar. horfí-i
hún á. hann gegnum dökk gfer-
augun. — Fyrirgefðu. Ilvað viltu
mikið, hafði hann sagt, af því að
hann hélt hana vantaði bensín.
Hún hafði svarað bví einu til, að
áfturljósin væru biluð og hún
mundi sækja bilinn eftir hálf-
tíma. Hún hafði náð j sumarkápu
úr framsætinu. hvíta sumarkápu,
Síðan fór hún.
—Þú villist á méir og einhverri
annarri, áagðj stúlkan. — Ég var
í París.
— Á þessum bíl? sagði Manuel.
Ég villist á þér og einhverri konu.
sem var engin önnur en þú sjálf.
— Þú getur ruglazt bilum.
— Þegar ég hef gert við ann-
an þeirra? Nei. það gæti aldrei
komið fyrir. Ekkj einu sinni, þó
að bílarnir væru nauðalíkir. Þú
villist á Mar.uel oa einhverjum
öðrum madame. Ég skipti meira
að segja um skrúfur í festingun-
um, og ef þú lítur á þær, sérðu
sta-ax, að það eru skrúfur frá
Manuel.
Hann vatt sér að dyrunum, en
Baulu þreif í hann og stöðvaði
hann.
— Þú hlýtur að hafa skrifað
eitthvað hjá þér maður.
— Ég hef engan tíma til þess i
að standa j bókhaldi, sagði Man-|
uel. og þar sem hann viidi hafa j
alit á hreinu. bættj hann við til
skýringar:
— Það er sosum óþaríi að
þegja yfir því. Ég hef ekki hugs
að méir að telja fram tvö þúsund
franka, svo að Ferrantc geti læst
í þá klónum.
— Ferranlc var skattheimt«-
stjóri. Hann bjó í þorpinu og
drakk með þeim kvöldhressingu á
kránni. Manuel hefði ekkj hikað
við að segja þetta í návist hans.
— En ég fékk henni kvittun.
— Reikning?
—Eitthvað í þá áttina, já.
Pappírsblað með stimpli og undir
skrift. Ég reif það úr vasablokk-
inni.
Stúlkan horfði til skiptis á
Baulu og Manuel. Hún greipaði
bólgna höndina. Máski fcenndi
hún til. Það var erfitt að ráða
í hugsanir hennar bak við gler-
augun.
— En hvað sem því líður, sagði
Manuel, þá hef ég vitni.
— Ef hún ætlar að ota þér í
klandur, sagði fasteignasalinn, er
ekkert gagn i vitnisburði konu
þinnar og dóttur.
— Minnztu ekfci á dóttur mína
í þessu sambandi. Ef bú heldur,
að ég ætlj að blanda telpunni í
©AUGUÝSINGASTOiaN
mouiu
Yokohama snjóhjólbarðar
Meff eða án nagla
Fljót og góð þjónusta
HJÓLBARÐAViÐGERÐIN
GARÐAHREPPI
er miSvikudagur 14. okt.
— Kalixtusmessa
Tungl • hásuðri kl. 0.27.
Árdegisháflæði í Rvík kl. 5.39,
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan í Borgarspítalan-
uin er opin allan sólarbringinn.
Aðeins móltaka slasaðra. Sími
81212.
Kópavogs Apó'lck og Keflavíkur
Apótek eru opin virka daga kl.
9—19, laugardaga kl. 9—14,
helgidaga k*’. 13—15.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir fyr-
ir Reykjavík og Kópavog, sími
11100.
Sjúkrabifreið í Hafnarfirði, sími
51336.
Almemiar upplýsingar um lækna-
þjónustu i borginni eru gefnar í
símsvara Læknafélgs Reykjavík-
ur, sími 18888.
Fæðingarheimilið i Kópavogi,
Hlíðarvegi 40, sími 42644.
Tannlæknavakt er í Heilsuverndar-
- stöðinni, þar sem Slysavarðsst f-
an var, og er opin laugardaga og
sunnudaga kl. 5—6 e. h. Simi
22411.
Apótek Hafnarfjarðar er opið alla
virka daga frá k,\ 9—7, á laug-
ardögum kl. 9—2 og á sunnu-
dögum og öðrum helgidögum er
opið frá kl. 2—4.
Kvöld- og helgidagavörzlu apóteka
í Rcykjavík, vikuna 10. til 16.
okl., annast Vesturbæjar apótek
og Háaleitisapótek.
Næturvörzlu í Keflavík 14. okt.
annast Guðjón Klemenzson.
SIGLINGAR
Skipadeild S.Í.S.:
Arnarfell væntanlegt til Svend-
borgar á morgun, fer þaðan ti!
Rostock, Rotterdam of Hufl. Jökui-
fell væntanlegt til Sauðárkroks á
morgun. Disarfel! væntanlegt til
Austfjarða á morgun. LitJafell er
í Rvík. Helgafcll losar á Norður-
!andshöfnum. Stapafell væntan-
legt ti’ Rotterdam á morgun. Mæli-
fell losar í Hollandi. Coo! Girl fer
vænlanlega frá Grimsby í dag ti!
Bremerhaven. G.'acia fór 11. þ.m.
frá Hofsósi til Gloucester. Keppo
!estar á Norðurlandshöfnum.
FLUGÁÆTLANIR
Flugfélag íslands h.f.:
Miliilandaflug.
Gu.’lfaxi fór til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:30 í morgun og
er væntanlegur aftur til Keflavík-
ur k!. 18:15 i kvöld.
Gullfaxi fer ti; Oslo og Kaup-
mannahafnar kl. 08:30 í fyrramál-
i«.
Fokker Friendship vél félagsins
fer til Vága, Bergen og Kaup-
mannahafnar kl. 12:00 í dag.
Innanlandsflug.
í dag er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir) til Vestmanna-
eyja, ísafjarðar, Patreksfjarðar,
Húsavíkur, Egilsstaða og Sauðár-
króks.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir) ti; Vest-
mannaeyja (2 fei'ðir) til ísafjarð-
ar, Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar
ofe Egilsstaða.
Loftleiðir h.f.:
Snorri Þorfinnsson er væntanleg-
ur frá New York kl. 0730. Fer til
Luxemborgar k'. 0815. Er væntan-
,'egur til baka kl. 1630. Fer til
NY kl. 1715.
Eiríkur rau.ði er væntanlegur frá
NY kl. 0900. Fer til Luxemborgar
ki. 0945. Er væntanlegur til baka
frá Luxemborg kl. 0045. Fer til
NY kl. 0130.
ORÐSENDING__________________
Mænusóttarbólusetning fyrir full-
orðna fer fram ! Heilsu venjdarstöð
Reykjavikur, á mánudögum kl.
17.—18. Inngangur frá Barónsstís
yfir brúna.
W<—i ti’. ' Sievri
ardaufum börmim fást á eftirtöld
um stöðum:
Ðomus M?djca.
Verzl Egill Jacobseu,
Hárgreið lustof’ irbs jar
H'wrnleysingjaskólanum.
HevTnarh.iálp Insólfsstræti 16
Minmngarspjöld irukknaðra fré
Olafsvík fást á efrirtöldum stöð
um. Töskubúðinm Skólavörðu-' :
Bökab'iðinn) Vedu Digranesvegi
Kópavogi Bókabi ðinni Alfheimum
6 i)” a Olafsfirði
FÉLAGSLÍF
Orlofskonur Kópavogi.
Myndakvöldið verður fimmtudag-
inn 15. okt. kl. 8,30 í félagsheim-
ilinu 2. hæð.
Kvenfélag Hallgríinskirkju.
Fundur fimmtudaginn 15. októ-
ber k!. 8.30 í Félagsheimilinu.
Rætt vetrarstarfið. Egill Sigurðs
son sýnir myndir frá fögrum
stöðum innanlands. Dr. Jakob Jóns
son segir frá starfi norrænna
sjúkrahúspresta. Kaffiveitingar.
Nýir félagar ve.'komnir.
Kvenfélag Ásprestakalls.
Fyrsti íundur ic!agsins á þessum
vetri verður miðvikudagskvöld 14.
október í Ásheimifinu Hólsvegi 17,
k!. 8. 1. Rætt verður um vets'arstari'
i'ð. 2. Frú Margrét Jakobsdóttir
handavinnukennari sýnir ýmsa
handavinnu, sem hún mun kenna
á vegum félagsins á væntanlegu
námskeiði. 3. Sýndar myndir frá
safnaðarferð 'il Vestfjarða á s.L
sumri. Kaffi. Nýjir félagar vcl-
komnir. Stjórnin.
Kvenfclag Óháða safnaðarins.
sýnikennsla i blómaskreytingu a
fimnitudagskvöld 15. b.m. kl. 8.30.
Takið ,með ykkur gesti. Kaffiveit-
ingar.
GENGISSKRÁNING
Nr. 115 — 1. október 1970
i Sandai dollai 87,90 88,10
1 Sterlingspund 209,70 210,20
1 Kanadadollar 86,30 86.50
100 Danskai fcr. ia71,80 1474,46
100 Norskai fci ■ 1.230,60 1.233,40
100 Sænskar kr. 1.691,30 1.695,16
aOC Flnnsk Dörk 2.109,42 2414,20
iOö Fransfclr fr 1.592,90 L596.50
!O0 8ets franfcai 17740 177.60
Í00 Svlssn. f>r. 2.031,30 2.035,96
i0O GyUlru 2.44240 2.447.60
100 V.-þýzk mörk 2.418,58 2.424,00
100 Lírur 14,10 14,14
KX, Austun scft 540,57 541,35
100 Escudos 307,25 307,95
100 Pesetai wjn 126 J55
ioo Retfcnlngsfcrömu —
Vöruskln’alönd 99.86 1004«
i RetkningsdoUai
VörusldptaJðno 87,90 8840
i Retkningspuno —
Vörusklptalömi 210,95 211,45
MJF * ■
E 1 'b |v — gg| nrossgaia
i $' I , » t Nr. 645
W * i r Lóðrétt: 1) Fljót 2) Eins 3) Fitl 4) Fiska 6) Fugdnn 8)
\u H'D Blása 10) Skakkt 12) Há 15) Siða 18) Slagur.
* /L Ráðning á krossgátu no. 644:
K n T — Lárétt: 1) Banana 5) Sló 7) Of 9) Snar 11) Kór 13) Inu
i i 14) Kram 16) NN 17) Sleit 19) Ósigra. Kall Lóðrétt: 1) Blokka 2) NS 3) úkju- Nóni 6) Trunta S) igj Fór 10) Annir 12) Rass 15) MLI 18) Eg.
Lárétt: 1) Dimmar 5) Reik 7) 9) Hálfræktuð svæði 11) Sr dýr 13) Kraítur 14) Stelpa Eins 17) Tjón 19) Snarhalli.