Tíminn - 16.10.1970, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 16. október 1970
TÍMINN
Böðvar Steinþórsson:
á ströntíinni mun
þessa skips“
„Fdlkiö
bíða
Ofangreind fyrirsögn er tekin
orðrétt úr Alþýðublaðinu, mánu-
daginn 5. okt. sl., en verið er að
rita um sjósetningu síðara strand-
ferðaskips Skipaútgerðar ríkisins,
sem SÚppstöðin á Akureyri hefur
tekið að sér að byggja, en fyrir-
sögnin muin vera fengin úr ræðu,
er Ingólfur Jónsson, samgöngu-
máiaráðherra, flutti af því tilefni.
Af þeim blöðum úr Reykjavík,
sem ég hef séð, og rætt hafa um
sjósetningu þessa strandferða-
skips, er ekki að sjá, að neitt
blaðanna, að Alþýðub.'aðinu und-
anski.'du, hafi talið rétt að verkja
athygli á þessum orðum ráðherr-
ans. Þar sem ég tei mig hafa að
baki það langan starfstíma og
reynslu við störf á strandferða-
skipum, þarf ekkert að vera und-
arlegt, þó að ég veiti þessum orð-
um og þessari fyrirsögn athygli
öðru fremur. Ég tel mig hafa á-
stæðu til að ætla, að fólkið á
ströndinni bíði frekar og voni eftir
öðru skipi en þessu, því hið sanna
er, að afturför hefur orðið varð-
andi strandferðaþjónustuna.
Mig furðar einna mest, að Al-
þýðub.'aði'ð skuli verða til að setja
þetta mál þannig fram. Alþýðu-
biaðið ætti að þekkja viðleitni
þingmanna og ráðherra Alþýðu-
flokksins á árum áður til efl-
ingar þessari þjónustu og þann
skilning á þörf og nau'ðsyn henn-
ar, sem nú kemur ekki fram
og virðist að ritstjórn þess muni
ekki hafa neina þekkingu á. Al-
þýðublaðið ætti að fá upplýsingar
hjá Emil Jónssyni, ráðherra, um
þessi má’, svo sem frá samgöngu-
málaráðherratíð hans á árinu 1945,
þegar að tilhlutan hans var lagt
fram á Alþingi 5. nóv. 1945 frum-
varp til laga um kaup á nýjum
strandferðaskipum, sem honum
tókst að fá afgreidd gegnum báð-
ar dei.'dir Alþingis á fjórum dög-
um, þannig að frumvarpið varð að
Böðvar Steinþórsson
lögum 9. sama mánaðar. Þetta
frumvarp var samið af milliþinga-
nefnd, er fyrirrennari hans í ráð-
herrastóli samgöngumála, Vil-
hjálmur Þór, skipaði samkvæmt
á.Vktun Alþingis frá 12. apríl 1943.
Strandferðaskip þau, er Slipp-
stöðin á Akureyri hefur tekið að
sér smíði á, hafa ekki verið smíð-
uð eftir jafnmikla og gagnmerka
athugun á strandferðakerfinu, eins
og átti sér stað í ráðherratíð Em-
ils og Vilhjálms Þór á árunum
1943 til 1945, og ekki hefur einu
sinni verið athugað svo teljandi sé,
hver sé hin raunveru.'ega þörf
fólksins á ströndinni varðandi
strandferðaþjónustuna, því síður
á hvern hátt með hverjum
hætti sú þiónusta verði bezt af
hendi leyst. Hins vegar munu yf-
irvöld landsins hafa gert sér ýms-
ar hugmyndir um þessi mál, sko©-
aðar af mjög takmarkaðri þekk-
ingu á þörfum þess fólks, sem í
strjálbý.'inu býr.
Ég lít svo á, að sú þjónusta, sem
hinum tveimur ■ strandferðaskipum
er ætlað að veita þegnum þjóð-
félagsins í framtíðinni, sé of ein-
hæf, fullnægjandi á þann eina hátt,
en að öðru leyti er þjónustan van-
metin, hvað sem því ve.'dur. Fram-
tíðarfyrirætlanir varðandi strand-
ferðaþjónustuna virðast því vera
talsvert óraunhæfar, t. d. virðist,
sem óskir og þarfir fólksins á
ströndinni, um öruggar samgöngur,
hafi um of verið sniðgengnar.
Mér finnist miður, að ' Alþýðu-
blaðið skuli ekki lengur ‘vera sá
af.'gjafi til styrktar þessum mál-
um, sem það áður var og þá mun-
aði um.
Ég hef með línum þessum talið
rétt að vekja athygli á þessu, og
vil nota þetta tækifæri til a® láta
í ljós harm rpinn yfir því, að hinu
síðara strandferðaskipi hafi verið
va.’ið nafn, sem tvö strandferða-
skip hafa áður borið, en þau tvö
skip höfðu í um hálfrar aldar skeið
veitt fólkinu á ströndirini þá full-
komnustu þjónustu, sem á þeim
tírnum var hægt að veita, oft við
hinar erfiðustu aðstæður. Ég hefði
talið rétt að heiðra minningu þess-
ara tveggja skipa, starfa þeirra og
þjónustu á þann hátt, að láta nafn-
ið geymast eða hverfa alveg, ef
hliðstæða þjónustu er ekki fyr-
irhugað að veita um sinn, eða um
ókomna framtíð. Ég tala hér fyrir
hönd mikils f jölda manna, sem ósk-
að hefðu þess sama varðandi þessa
nafngift.
Að lokum óska ég, að reynslan
af störfum þessara tveggja strand-
ferðaskipa muni fremur fyrr en
seinna íeiða í ljós á ótvíræðam hátt,
hvaða skipi fólkið á ströndinni er
nú að bíða eftir, og að þá, þótt
kanmski seint verði, verði yfirveg-
að með raunsæi, og að fólkið á
ströndinni fái þá sanngjama leið-
réttingu, eftir því, sem strandferða
kerfið mun þá þarfnast.
Málmar
Kaupi allan brotamálm,
nema jám,
allra hæsta verði.
Staðgreitt.
Opið alla virka daga
kl. 9—12 og 1—5 nema
laugardaga kl. 9—12.
A R I N C O
Skúlagötu 55.
Símar 12806 og 33821.
ENSKIR
RAFGEYMAR
LONDON BATTERY
fyrirliggjandi.
Lárus Ingimarsson,
heildverlun,
Vitastíg 8a Simi 16208.