Tíminn - 16.10.1970, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.10.1970, Blaðsíða 6
/ TIMINN FÖSTUDAGUB 16. október 1970 MfUGFRETTIR Ólafur Jóhannesson, form. Framsóknarfl. Gerbreyta verður um stefnu ef tryggja á framfarir í atvinnu- og efnahagslífi Framhald af bls. 1 6. Endurbætur í endurskoðun stjórnsýslukerfisins og umbætur i stjórnarfari. 7. Landgrunnsmálið og stækkun landhelginnar. Framsóknarflokk- urinn lcggur áherzlu á, að ný og undanbragðalaus sókn sé hafin í þeim málum. 8. Ileilbrigðismál, vegamál, raf- orkumál og tryggingamál. — Fram sóknarflokkurinn telur þörf stórra átaka og mikilla endurbóta í þeim málum. Ólafur Jóhannesson sagði í upp hafi ræðu sinnar á Alþingi í dag, að þar sem ríkisstjórnin myndi framhalda óbreyttri „viðreisnar- ,stefnu“ væri afstaða Framsóknar- flokksins til ríkisstjórnarinnar sú sama og áður. FramsóknarfTokk- urinn væri í stjórnairand&töðu og myndi rækja hlutverk stjórnar- andstöðu, veita stiórninni aðhald og halda uppi gagnrýni eftir því sem þörf krefur og efni standa til. Kvaðst Ólafuir eklci efa, að þeir menn, er nú sitja í ráðherra- stólum vildu láta gott af sér leiða, en stundum væri æði mikið I því. að góð meining geri enga stoð. — Við framsóknarmenn höfum ekki trú á því, sagði Ólafur, að þessi ríkisstjórn ráði við þau verk efni sem úralusnar þíða. En þau verkefni eru vissulega vandasöm, ég vil ekki á neinn hátt gera lít- ið úr þeim. Þá minntist Ólafur Jóhannes- son á yfirlýsingu forsætiráðherra um endurskoðun stjórnarskrárinn ar. Kvaðst Ólafur geta tekið und- ir það með forsætisráðherra að ástæða væri til þess að endur- skoða stjórnarskrána, enda sú skoðun komið fram hjá sér áður. TaTdi Ólafur mjög skynsamlegt að leitazt væri við að hafa sem viðtækast samstarf við endurskoð- unina, en þvj miður hafði á und- anförnum árum ekki alltaf tek- ist að ná samkomulagi um það efni. — Ólafur Jóhannesson minnt ist á sitthvað fleira sem fram kom í ræðu forætisráðherra og þá eðlilega verðstöðvunarmálið og sagði að það þyrfti að verða á traustari grundvelli en var 1967. Nánar er skýrt frá þessu í annarri þingfrétt í blaðinu í dag. Því næst vék Ólafur Jóhahhes- son að þeim málum sem Fram- sóknarflokkurinn mun leggja áherzlu á, á þessu þingi, og sagði m. a.: Já, þetta er leikritið... .... sem var flutt á vegum Grímu, undir stjórn Eyvindar Erlendssonar í Tjarnarbæ fyrir fjórum árum .... Upplagið er takmarkað. Fæst í bókabúðum eða beint frá útgáfunni. Bókaútgáfan Þing, pósthólf 5182. Atvinnumálin. Atvinnumálin verða að ganga fyrir öílu öðru, vegna þess að þlómlegt atvinnulíf er forsenda fyrir bættum lífskjörum og und- irstaða framfara á öllum sviðum þjóðlífsins. Leggja verður höf- uðáherzlu á alhliða uppbyggingu atvinnuveganna. Sú uppbygging kemur ekki af sjálfu sér, heldur verður að vinna að slíkri upp- byggingu skipulega og á mark- vissan hátt. — Framsóknarflokk- urinn hefur markað ákveðna stefnu hvernig að uppbyggingunni er staðið og hvernig að henni er unnið — sem sé þá, að þar eigi hið opinbera, ríki ogv sveitafélag að fá að hafa vissa forystu — Framsóknarmenn telja að vísu at- vinnureksturinn almennt bezt kom inn í höndum einstaklinga og fé- laga, ep ríki og sveitafélög verða að koma inn í atvinureksturinn ef á þarf að halda. — Uppbygg- ing atvinnuveganna þarf að byggja á þjóðfélagslegiri yfirsýn. Framsóknarmenn leggja áherzlu á nauðsyn ítarlegrar áætlunargerð- ar um dtvinnhþráúnina. FjármálrMsiflsn j ^ ú*uí jaíí i Taka þarf upp breytta stefnu í fjármálum rikisins. Annars veg- ar að hamla gegn sívaxandi út- þenslu ríkisútgjalda og hins veg- ar að taka tekjuöflunarleiðir rík- issjóðs til gagngerðar endurskoð- unar, og þá sérstaklega með það fyrir augum, að álagningarnar komi sanngjarnar niður en nú er, og skili sér betur. Minnti Ólaf ur á að útgjöld ríkisins hafi nú á 'undanförnum árum vaxið um 1 milljarð að meðaltali á ári. Dýrtíðarmálin. Að dómi Framsóknarflokksins þarf að taka þau mál allt öðrum og betri og árangsríkari tökum, en gert hefur verið undanfarið. Þarf að stefna að stöðugri verð- lagsþróun og setja skorður við dýrtiðarreksturinn. Skólar og menningarmál. Leggja beri áherzlu á að tryggja öllum, sem iafnasta og bezta að- stöðu til menntunar og má í því sambandi <minna á frumvarpið um námskostnaðarsjóð sem Fram- sóknarmenn hafa nú endurflutt á Alþingi. Jafnframt það að endur- skoða og endurskipuleggja allt skólakerfið með tilTiti tii breyttra aðstæðna og nýrra tíma og nýrra þarfa. — Ólafur Jóhannesson benti m. a. á hörmungarástand það sem nú ríkir á barna- og ungl ingastiginu svo og i iðnfræðslunni í landinu. Benti hann á frumvarp Framsóknarmanna um fiskiðnskóla sem nú er einnig endurflutt á Alþingi. Byggðarjafnvægismál. Framsóknarflokkurinn leggur sérstaka áherzlu á þennan mála- flokk. Hið opinbera á að stefna markvisst að því að auka jafn- vægi í byggð landsins, ekki ein- göngu með efnahagsTcgum að- gerðum heldur og félagsiegum. og stjórnsýslulegum ráðrföfunum. Skapa á möguleika fyrir ungt fólk úti á landsbyggðinnj svo að það hverfi ekki eins og nú er úr dreifbýiishéruðunum. Þá rakti Ólafur Jóhannesson einnig ítarlega stefnu Framsókn- arflokksins til landgrunnsmálsins og stækkun landhelginnar, enn- fremur í heilbrigðismálum, vega- málum, raforkumálum og trygg- ingamálum. Sagði Ólafur að vega málin mættu heita í algerri sjálf heldu t.d. viðhald veganna, sem væru í hinu mesta ófremdar- ástandi. Stefna Framsóknarflokks ins væri sú, að verja meiru af tekjum af umferðinai til vegamál anna. Þá nefndi Ólafur, að Fram- sóknarmenn hefðu flutt og myndu væntanlega flytja á þessu þingi frumv. um lagningu hraðbrauta um landið. Ennfremur minntist Ólafur á læknaskortinn, og lagði á það mikla áherzlu að úr því vandamáli yrði að bæta, hvað sem það kostaði. — Ræðu Ólafs Jó- hannessonar verður gerð ítarlegri skil í blaðinu á næstunni, einkum hvað varðar stefnu Framsóknar- flokksins í fyrrgreindum mikilvæg um málum. En í lok ræðu sinn- ai- minnti Iiánn á þá miklu- þörf sem^væri jáu fev.ú, að,.þæta starfs- skiiyrði alþingismanna og lagði áherzlu á samstöðú allra flokka i því efni. Jóhann Hafstein lýsti í upphafi ræðu sinnar yfir því að fram yrði haldið meginstefnu ríkisstjórnar- innar. Því næst vék hann að við- ræðum ríkisstjórnarinnar við samningsaðila vinnumarkaðsins, sem nú eru á tímamótum, og frá greinir á öðrum stað í blaðinu í dag. Þá vék forsætisráðherra að hugsanlegri verðgæzl'a. Fram kom í ræðu forsætisráð- herra að rikisstjórnin telji hagsmunagæzlu íslendinga og réttarvemd á landgrunninu eitt veigamesta viðfangsefnið á næts- unni. Þá minntist hann á stórvirkj unarkappsmál ríkisstjórnarinnar og sagði að fyrir þingið verði lögð frumvörp til laga um virkjun Sig- öldu oa Hrauneyjarfossa í Tungnaá, um virkjuh Lagarfoss, og til athugunar væri virkjunarmögu leikar fyrir Norðurlandskjördæmi vestra, og ennfremur ný rafvæð- ingaráætlun sveitanna. Þá minnt- ist forsætisráðherra á endurflutt frumv. ,til laga um olíuhreinsun- arstöð á íslandi. (Sjá ennfremur ræðu forsætisiráðherra í Víða- vang — bls. 3). Lúðvík Jósepsson Ikvað Alþýðu- bandalagið vera mótfallið ríkis- stjórniani og minnti í því sam- bandi m.a. á NATO og hersetana í landinu, og framkvæmdir er- lendra manna í landinu. Þá gat Lúðvík þess, að hann ásamt öðr- um þingmönnum Alþýðubandalags ins væru búnir að leggja fram frumv. til laga um verðstöðvun, og kvað það skoðun flutnings- manna, að jafnhliða tímabundinni verðstöðvun þyrfti að hefjast handa um að ná víðtækustu sam- starfi um eftirtaldar ráðstafanir Framhald á bls. 18. Verðstöðvun nú má ekki verða endurtekning á blekkingunum fyrir Alþingiskosningarnar 1967 EB-Reykjavík, fimmtudag. í ræðu sinni á Alþingi í dag minnti Ólafur Jóhannesson, form. Framsóknarflokksins á, í sambandi við kappsmál ríkis- stjórnarinnar að koma á verð- stöðvun, að slík ráðstöfun gæti verið skynsamleg og réttlætan- ieg ráðstöfun, væri hún byggð á rcttum grundvelli. — En nú væri reynslan af verðstöðvun þeirra fyrir hendi. Það var framkvæmd verðstöðvun hér á landi fyrir síðustu alþingiskosn ingar. Framsóknarmenn voru þá fylgjandi því að reyna verð stöðvun. iiann var eini flokkur inn, sem mælti með því frv. óbreyttu sem ríkisstjórnin í öndverð-i lagði fyrir þingið. En Framsóknurmenn sögðu þá, að tfl þess að verðstöðvun kæmi að gagni og til þess að hún bæri árangur, þá þyrftu tiltekn ar forsendur að vera fyrir hendi, og hún þyrfti að vera bygg'ð á réttum grundvelli. — En það var sú verðstöðvun ekki, sem þá var framkvæmd, ekki að okkar dómi, sagði Ólaf ur Júhannesson. — Við sögð- um aö hún væri byggð á víxl- um, sem framtíðin þyrfti að greiða. Þa'I reyndist rétt. Víxl arnir féllu í gjalddaga í nóvem ber það kosningaár, og þá var gerð gengisfelling. Að síðustu minnti Ólafur á, að reynaar hefði fyrr verið gripið til verðstöðvunar, og þá líka nálægt kosningum, sem sé 1959. Kvað Ólafur þáð ein- kennilega tilviljun, að þessar verðstöðvanir skyldu einkum koma til álita þegar líður að kosningum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.