Tíminn - 16.10.1970, Síða 7
FÖSTUDAGUR 16. október 1970
r
i
Úfgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjámsson, Jón Helgason og Tómas
Karissoin. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Ritstjórnar-
skrifstofur í Edduhúsinu, símar 16300—18306. Skrifstofur
Bankastraeti 7 — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523.
Aðrar skrifstofur simi 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuði,
lnnamlands — í iausasölu br. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf.
8 punktar
Á Alþingi í gær lýsti forsætisráðherra stefnu ríkis-
stjómar sinnar og kom fram eins og vænta mátti, að
stefna ríkisstjómarinnar er óbreytt.
Ólafur Jóhannesson, form. Framsóknarflokksins lýsti
stefnu Framsóknarmanna og viðhorfi til þjóðmálanna.
í örstuttu máli taldi Ólafur kjarnann 1 stefnu Fram-
sóknarflokksins og þau helztu mál sem flokkurinn legði
mesta áherzlu á nú, vera þessi:
1. Framsóknarmenn vilja láta eflingu atvinnulífs-
ins ganga fyrir öðru. Þeir telja, að leggja beri áherzlu
á að treysta grundvöll atvinnuveganna, auka hagræð-
ingu í rekstri þeirra og byggja upp nýjar atvinnu-
greinar. Fjárfestingu og framkvæmdir þarf að skipu-
leggja með það fyrir augum.
2. Framsóknarmenn telja, að taka verði upp breytta
stjórn á fjármálum ríkisins. Það þarf annars vegar
að hamla gegn hinni sívaxandi útþenslu ríkisútgjalda.
Hins vegar þarf að taka tekjuöflunarleiðir ríkissjóðs
til gagngerrar endurskoðunar og þá sérstaklega með
það hvort tveggja fyrir augum, að álögurnar komi
réttlátar niður en nú, og þær skili sér betur.
3. Það þarf að stefna að stöðugri verðlagsþróun og setja
skorður við dýrtíðarvextinum. Það þarf að taka þau
mál allt öðrum og betri tökum en gert hefur irerið.
4. í skóla- og menningarmálum þarf að leggja áherzlu
á, að tryggja öllum, sem jafnasta og bezta aðstöðu til
menntunar. Jafnframt þarf að endurskoða og endur-
skipuleggja allt skólakerfið með tilliti til breyttra
aðstæðna og nýrra þarfa.
5. Það þarf að stefna að því ákveðið og markvisst, að
auka jafnvægi í byggð landsins með efnahagslegum,
félagslegum, menningarlegum og stjórnsýslulegum
ráðstöfunum.
6. Það þarf að leggja áherzlu á endurskoðun stjórn-
sýslukerfisins og endurbætur í stjórnarfari.
7. Framsóknarmenn leggja áherzlu á, að ný og undan-
bragðalaus sókn sé hafin í landhelgismálinu og stækk-
un iandhelginnar.
8. Þörf er nú þegar stórra átaka í heilbrigðismálum,
vegamálum, raforkumálum og tryggingamálum.
Ólafur gerði svo í ræðu sinni grein fyrir því í ein-
stökum atriðum, hvernig Framsóknarmenn vilja að þess-
um málum standa.
Verðstöðvun
Um verðstöðvun sagði Ólafur, að hún yrði að vera
byggð á réttum grunni. Það hafi sú verðstöðvun, sem
gripið hefði verið til fyrir kosningamar 1967 ekki verið.
Hún var byggð á víxlum, sem áttu að falla eftir kosn-
ingar. Þeir féllu á þjóðina og íslenzka krónan féll líka
í nóvember. Það væri einkennileg tilviljun að gripið
skyldi til verðstöðvunar rétt fyrir kosningar. Það var
ástæða til að grípa til hennar í sumar og koma í veg fyrir
að öll áhrif kauphækkunarinnar færu út í verðlagið, þótt
auðvitað hefði ekki verið hjá því komizt að bændur
fengju sambærilegar kjarabætur og aðrar stéttir með
einhverjum hætti. Verðstöðvun getur verið nauðsynlegt
tæki til að stöðva sig í dýrtíðarflóðinu í bili, en hún
rennur út í sandinn og getur jafnvel hefnt sín, ef hún
er ekki byggð á réttum grunni, og ekkert er gert til að
ganga í rætur þeirra meinsemda, sem mestu hafa um
verðbólguþróunina síðasta áratug ráðið — TK
TÍMINN
ERLENT YFIRLIT
Byltingarnar í Bolivíu geta haft
mikil áhrif í Suður-Ameríku
Bylting hægri manna leiddi til gagnbyltingar vinstri manna
FLEST bendir til þess, að
misheppnuð bylting, sem hægri
menn í Bólivíu höfðu undirbú-
ið með vitund bandarísku leyni
þjóaustunnar, muni verða til
þess, að Bólivía fái mjög rót-
tæka vinstri sinnaða stjórn,
sem skipi Bólivíu við hlið
Perú og Chile í acidstöðu
gegn hinni bandarísku drottn-
unarstefnu i Suður-Ameríku.
Bólivia er harðbýlasta og fá-
Itækasta land Suður-Ameríku.
Alþýðumenning er hvergi á
lægra stigi. Milli 69—70% fbú-
anna eru taldir ólæsir. Um
70% fbúanna, aðallega Indíán-
ar, stunda landbúnað, og búa
við hin frumstæðustu kjðr.
Tekjur á mann í Bólivíu eru
taldar um 120 dollarar á ári.
Landið hefur talsverða námu-
vinnslu. Þekktastar eru tin-
námurnar, eh í Bólivíu er unn
ið um 12% alls tins, sem er
framleitt í heimimim. Kjör tin-
námumanna hafa löngum þótt
hin verstu, og leiddu þau til
uppreisnair verkamanna 1962.
Herian beið þá ósigur og komst
tii valda róttæk stjórn, sem
þjóðnýtti helzíu tinnámurnar.
Um líkt leyti féll tin á heims-
markaðinum og gekk rekstur-
inn því iila um skeið, en hefur
farið batnandi á síðari árum.
Verkamenn hafa löngum átt í
deilum við hin ríkisreknu fyr-
irtæki, þótt kj6r þeirra hafi
mjög batnað frá því, sem áður
var. Annar námurekstur er að
mesfcu í höndum erlendra auð-
félaga, en auk tinsins, eru unn-
in ýms verðmæt efni úr jörðu,
m.a. olía.
Bólivía er á hásléttu, sem
liggur milli hæstu fjallgarða
Andesfjallanna. Landið er um
424 þús. fermílur að flatarmáli
og hefur um 4.5 millj. ífoúa.
Helmingur þeirra er Indíánar,
en um 15% hvítir menn, en
hinir eru blandaðir. Frægt er,
að höfuðborgin þar, La Paz, er
í 12000 feta hæð yfir sjávar-
máli.
BYLTENGAR hafa löagum
verið tíðar í Bolivíu. Rétt 145
ár eru síðan Bólivía fékk sjálf-
stæði, en byltingar þar hafa
orðið nokkru fleiri. Che Gue-
vara ályktaði af því og mörgu
öðru, að Bólivía væri það ríki
á meginlandi Suður-Ameríku,
þar sem auðveldast væri að
gera byltingu. Tilraun hans mis-
heppnaðist, eins og frægt er
orðið, en atburðir síðusfcu viku
bendir þó á ýmsan hátt til
þess, að ályktun hans hafi ver-
ið rétt.
Forsaga þessara atburða er
í höfuðatriðum þessi: Fyrir
rúmu ári gerði Alfredo Ovando
hershöfðingi byltingu í Bóli-
víu og gerði sjálfan sig að for-
seta. Ovando hafði verið talinn
hægri sinnaður, en naut stuðn-
ings /instri manna, og báru
fyrsti stjórnarathafnir hans
greinilegan vott þess. Hann
þjóðnýtti eitt stærsta erlenda
námufyrirtækið, Gulf Oil Com-
pany, sem Bandaríkjamem
áttu, en eignir þess hafa verið
metnar á 150 millj. dollara.
Hann veitti bæði verkalýðsfél-
ögunum og samtökum stúdenta
aukið frjálsræði. Þá tók hann
upp stjórnmálasamband við
Sovétríkin og fleiri ríki Aust-
ur-Evrópu, en ekki við Kúbu.
Hægri menn í hernum höfðu í
hótunum við Ovando, ef haun
héldi þessari stefnu áfram, og
vafalaust hafa Bandaríkin og
aðvarað hann. Síðustu mánuð-
ina fengu stjórnarathafnir hans
líka vaxandi hægri svip, og þó
einkum þegar hann vísaði fimm
prestum úr landi fyrir samstarf
við byltingarmenn. Róttækir
stúdeutar svöruðu með því að
taka fjóra lögregluþjóna sem
gísla. Bæði samtök stúdenta og
verkamanna tóku að láta meira
á sér bera og virtust njóta
verndar verkalýðsmálaráð-
herrans, Samuels Gallardos,
hershöfðingja, sem ýmsir töldu
hinn sterka mann stjórnarinn-
ar. Hægri menn fóru að óttast,
að hin róttæku öíl kynnu brátt
að láta til skarar skríða. Því
gerðist það i byrjun síðustu
vikra, að leiðtogi þeirra, Ro-
gelio Miranda hershöfðingi,
ákvað að gera byltingu og mun
leyniþjónusta Bandaríkjanna
hafa verið kuanugt um áform
hans. f fyrstu virtist, að bylt-
iug hans hefði heppnazt.
Ovando forseti sagði af sér og
ráð þriggja hershöfðingja tók
sér vald forsetans'. En völd
þess stóða ekki nema í tvo
Framhald á ois 11