Tíminn - 04.11.1970, Síða 3

Tíminn - 04.11.1970, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 4. nóvember 1970. TÍMINN 78 ARA LISTAKONA HELÖ- UR MÁLVERKASÝNINGU SB—Reykjavík, þriðjudag. | 78 ára gömul kona, Ásrún Jón- asdóttir heldur nú málverkasýn- ingu í kaffistofu Landsímahúss- ins við Sölvhólsgötu. Þetta er fyrsta málverkasýning Ásrúnar og' myndirnar málaðar á síðustu 10 árum. Sýningin ver'ður opin til 13. þ.m. Tólf myndir eru á sýningu Ás- rúnar 0g tjáði listakonan blaðinu í viðtali, að hún hefði ekki get- að málað í tvö ár, vegna lasleika í hendi, en myndi hefjast handa á ný ucn leið og henni batnaði nóg til þess. Aðspurð sagðist Ásrún ekkert hafa lært að fara með olíuliti, en lítillega lært að teikna á unga aldri. Hún er afskaplega áhuga- söm um myndlist og fer á allar sýningar, sem haldnar eru hér og hefur meira að segja farið á Rembrandt-sýningu í Hollandi. Ásrún er frá Halldórsstöðum í Reykjadal í SuðurÞingeyjarsýslu en hefur verið búsett í Reykjavík s.l. 53 ár. Olíubíll rann stjórn laust á bílstjórann SE—Þingeyri, þriðjudag. í gærkvöldi varð það óhapp á Þingeyri, að olíuflutningabíll, sem verið var að afferma, rann af stað í halla, og varð bílstjórinm fyrir bílnum og slasaðist. Stóð bíllinn í brekku, og hafði bílstjórinn sett handhemlana á og einnig sett steina fyrir hjólin, en ekki var hægt að hafa bílinn í gír, þar sem vélin verður að vera í gangi þegar olíunni er dælt úr tanknum. Stóð bílstjórinn rétt við Elzti íslendingur- inn látinn f.B—Reykjavík, þriðjudag. txUðión .Tónsson frá Finnastöð- iwh i Eyjafirði lézt á Kristnes- næli á laugardaginn. Guðjón varð tæplega 103 ára og mun hafa verið elztur íslendihga. Hann var heilsugóður alla ævi og var á fótum fram á síðasta dag. Guðjón verður jairösettur að Grund í Eyia firði á laugardaginn. bílinn er hann rann af stað. Reyndi hann að komast upp í bílinn til rð stöðva hann, en tókst svo til, að hann varð fyrir annarri burðinni og marðist allmikið á hendi og síðu. Bíllinn rann áfram og valt. Er hanm stórskemmdur og jafnvel tal- inn ónýtur eftir veltuna. — Olían rann úr tanknum. Ekki urðu önnur slys á mönnum, er bíllinn rann stjórnlaus áfram. Er það talin mikil mildi, því at- burðurinn átti sér stað nálægt leik- velli og eru venjulega mörg börn nærri á þeim stað, er slysið varð. Umferðarþættir í sjónvarpinu - bók fylgir KJ—Reykjavík, föstudag. Á næstunni verða sýndir nokkr ir fræðsluþættir um akstur og umferðaröryggi í Sjónvarpinu, og eru þeir danskir. í sambandi við þessa þætti hefuæ verið gefin út bók, Bílabók BSE, en hún gerir ekki aðeins sjónvarpsþættina fyllri, heldur er rnjög fróðleg og aðgengileg aflestrar fyrir hvern einasta bifreiðaeigenda. Bókin er þannig upp sett, að almenningur geti haft sem bezt not af henni. Veitir hún upplýs ingar um öryggisbúnað bílsins, hvað sé helzt að athuga í sambandi við v hann, og hvernig bregðast skuli við ef eitthvað er ekki eins og það á að vera. Þá eru gefin ráð við ýmsu í sambandi við um hirðu bflsins. í bókinni eru lika gefnar leiðbeiningar um bilanir, og hvernig bregðast skuli við í þeim tilfellum. ' Umferðarráð Dantnerkur gekkst fyrir útgáfu bókarinnar þar í landi, og hér á landi hafði Um- Framhald á bls. 14. Sambandsverksmiðjur selja ullarvörur til Sovétríkjanna fyrir 72,4 milljónir króna KJ—Reykjavík, þriðjudag. Um nokkurra ára skeið hafa verksmiðjur Sambands ísl. sam- vinnufélaga á Akureyri, Gefjun og Hekla, selt á íslenzkan mælikvarða mikið magn af ullarvörum til Sovétríkjanna, og í lok október var enn gerður samningur um sölu á slíkum vörum, og hljóðar þessi samningur upp á 72,4 milljónir króna. Hér fer á eftir fréttatilkynning frá Iðnaðardeild Sambands ísl. samvinnufélaga um undirritun þessa samnings. Haraldur M. Sig- urðsson, formaður Framsóknarfélags Akureyrar SB—Reykjavík, þriðjudag. AÖalfundur Framsóknarfélags Akureyrar var haldinn á fimrntu- daginn var í félagsheimilinu að Hafnarstræti 90. Haraldur M. Sig- urðsson var endurkjörinn formað- ur. Kosin var stjórn og fulltrúa- ráð og auk þess 12 fulltrúar á kjör- dæmisþing. Lesin var upp skýrsla og reikningar félagsins. Sigurður Óli Brynjólfsson var kosinn ritari, Ingiimar Friðfinnsson, gjaldkeri, og meðstjómendur Jón Aspar og Haukur Árnason. Ráðherrafundur EFTA í Genf 5. og 6. nóvember koma ráðherr- ar EFTA-landanna saman til fund- ar í Genf, en slíkir fundir eru haldnir tvisvar á ári, vor og haust. Af íslands hálfu munu sitja fund- inn Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta- málaráðherra, Þórhallur Ásgeirs- son, ráðuneytisstjóri, og Einar Benediktsson, sendiherra Islands hjá EFTA. Ráðherrann og ráðu- meytisstjórinn fóru utan í morgun og koma aftur um helgina. Reykjavík, 3. nóvember 1970. Viðskiptaráðuneytið „Hinn 29. október s. 1. voru í Moskvu undirritaðir samningar við fyrirtækið V/O Raznoexport um kaup á ullarábreiðum frá Ullar- verksmiðjunni Gefjuni og á prjóna peysum frá Fataverksmiðjunni Heklu. Samningsupphæðin er 72,4 milljónir króna. Ullarvörurn ar má afgreiða á fyrri hluta árs- ins 1971, og er gert ráð fyrir við- bótarsamningi um n. k. áramót til afgreiðslu á seinni hluta ársins 1971. Samningana geirðu fyrir hönd Sambandsins Harry Frederiksen, framkvæmdastjóri, Andrés Þor valdsson, fulltrúi, Ásgrímur Stef ánsson, verksmiðjustjóri og Hjört ur Eiríksson, ullarfræðingur." OKTÓBERBLAÐ ÆSKUNNAR EB—Reykjavík, þriðjudag. Októberblað Æskunnar er ný- lega komið út. BTaðið flytur að þessu sinni m. a.: „Ungmenni á upplcið" — viðtal við Kristínu Ólafsdóttur. Er hér um nýjan þátt að ræða, sem byggir á viðtölum við unga og efnilega einstaklinga, Óður til vorsins, sem er ljóð eftir Skúla Þorsteinsson, smásagan Ein kýr er nóg, ævintýrið Systurnar þrjár, Saga úr sumarleyfinu, þátt ur í umsjá Ásmundar Matthíasson ar er nefnist „Lögreluþjónn hef ur orðið", smásagan Fermingardag ur eftir Lilju Bergþórsdóttur, fræðslugrein um áhrif áfengis eft ir Sigurð Gunnarsson, sagan Villi ferðaTangur. og fíllinn hans, nýr þáttur um póstmál, frásögn eftir Sigurð Gunnarsson um víkinga- skip. Þá segir frá ferð verðlaunahaf anna tveggja til London í s.l. júní mánuði. Ennfremur má geta hinna mörgu föstu þátta, sem verið hafa í biaðinu undanfarið og undirstrik ar fjölbreytni þess — og ekki má gleyma, framhaldssögunum eins og t. d. um Tarzan og Tuma þumal. — Blaðið er nú gefið út í 17 þúsund eintaka upplagi. Rit- stjóri er Grímur Engilberts. Fimdur um hafnar- gerb við Dyrhólaey SJ—Vík, sumnudag. Byggðasamband Veistur-Skafta- fellssýslu gekkst fyrir almennum fundi í Vík í gær, þar sem rædd var hafnargerð við Dyrhólaey. Fjöldi fólks sótti fundinn, og er það mál manna, að sjaldan hafi fundarsókn verið betri hér í sýslu. Þingmenn Suðurlandskjördæmis, þeir Ágúst Þorvaldsson, Ingólfur Jónsson ráðherra, Karl Guðjóns- son og Steinþór Gestsson komu á fundinn auk vitamálastjóra, Aðal- steins Júlíussonár. Fundarstjórar voru tilnefndir Loftur Runólfsson og Gunnar Stefánsson, og fundarritari Björg- vin Salomonsson. Þórarinn Helgason í Þykkvabæ, formaður Byggðasambandsins, setti fundinn, lýsti aðdraganda að stofnun sambandsins og markmið- um þess. Reifaði hann síðan hina tæplega hundrað ára gömlu hug- mynd er til umræðu var, þ. e. hafn argerð við Dyrhólaey, og drap eirmin á vegamál sýslunnar o. fl. Reynir Ragnarsson flutti stutt framsöguerindi, en því næst tóku til máls ráðherra og þingmenn kjördæmisins. Miklar og almenn- ar umræður urðu á fundinum og margar fyrirspurnir gerðar til þingmanna og vitamálastjóra. í lok fundarins var eftirfarandi áskorun samhljóða samþykkt: „Almennur fundur haldinn af Byggðasambandi Vestur-Skaftfell- inga í Vík 31. október 1970 telur, að bygging hafnar við Dyrhólaey sé undirstaða atvinnuþróunar ná- lægra héraða. Þess vegna skorar fundurinn á samgön^umálaráð- herra og vitamálastjóra, að ljúka áætlunum að hafnnrgerðinni á sem allra stytztum tíma svo að dráttur á þeim hindri ekki fram- gang málsins. enda tryggi Alþingi nægilegt fjármagn til þess. Felur fundurinn alþingismönnum Suður- landskjördæmis að fylgja þessu máli fast eftir.“ 3 AVÍDA meh Kjósendur og kjördæmaskipan í grein, sem Björn Fr. Björnsson, alþingismaður, rit- aði hér í blaðið fyrir nokkru, ræddi hann um kosningafyrir- komulag og kjördæmaskipan, galla á núverandi kosninga- og kjördæmakerfi og flokkaskipan á íslandi. lljörn sagði m.a.: „Því er ekki að leyna að margir meðal þingmanna ekki síður en fjöldi annar.-a. eru þeirrar skoðunar, að með til- Ikomu stóru kjördæmanna frá 1959 hafi sízt skipazt mál til hins betra. Á framboðslistum má segja að margir, Já fjöl- margir frambjóðendur, séu sjálfkjörnir og um þá fái al- menningur engu þokað. Þessi kjördæmi valda svo oft á tíðum erfiðleikum fyrir þá sök, að eigi verður við kom- ið að kynnast mönnum og mál- efnum á hverjum stað svo sem bæri og nauðsynlegt væri. Sér- staklega á þetta við um kjör- dæmin utan Reykjavíkur. Lengi hefur sú skoðun verið uppi og sýnist hafa fengið auk- inn byr á síðustu timum, að breyta eigi til í þessu efni og stefna að einmenningskjördæm um. Að sjálfsögðu við það mið- að, að kjósendatala verði sem jöfnust innan hvers kjördæmis. Ef að þessu skipulagi yrði horf ið er í»|iðsætt, að það mundi leiða fyrr éða síðar til tveggja flokka kerfis. Og því fyrr ef krafizt væri meiri hluta at- kvæða til þingmannakjörs. Einmennings- kjördæmi og tveggja flokka kerfi ÍSamsteypustjórnir allavega á sig komnar eftir Iangvarandi samningamakk hyrfu úr sög- unni. Ríkisstjórn, sem einn | flokkur stæði að, stendur og fellur með stefnu sinni og stjórnarathöfnum. Hún gæti ekki skotið sér undan ábyrgð og komið henni á samstarfs- flokkinn. Stjórnarandstaðan yrði einnig ábyrgari en ella. Hún yrði að gæta ádeiluefua og vanda loforð sín og standa við þau þcgar hennar stjórnar- tími kæmi. Þá þekkist meðal nágranna- þjóða okkar, að kjósendum sé frjálst val á einstökum fram- bjóðendum innan stórkjör- dæma. Hvað sem öðru iíður verður að telja persónulegar kosningar eðlilegar í okkar fámenna og strjálbýla landi. Samband milli þingmanns og kjósenda yrði nánara og samvinnutengslin bá'ðum aðilum til góðs. Þing- maðurinn yrði að duga til þess að halda velli og kjósendu" hefðu framtíðarsetu hans bet- ur á valdi sínu. Þannig yrði ábyrgð hans enn ríkari og hon- um ljósari en annars. Kosningarétturinn og kjör- Idæmaskipan eiga að þjóna því hlutverki að sameiginlegra hagsmuna fólksins sé sem bezt gæít og lýðræðiíi t&i no#-~ itn. Þióðin búi við þá stjórn og það stjórnarfar, sem meirililuti hennar kýs sér svo ekki verði um villzt. Framhald á bls. 14

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.