Tíminn - 04.11.1970, Side 9
fflÐVIKUDAGUR 4. nóvember 1970.
TÍMINN
9
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Fram'kvæmdastjóri: Kristjám Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsison (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgiason og Tómas
Karlsson. Auglýsinigastjóri: Stemgrímur Gísiason. Kitstjórnar-
skrifstofur í Edduhúsinu, símar 18300 —18306. Skrifstofur
öankastræti 7 — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingasími: 10523.
ASrar sikrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 105,00 á mánuði,
mnanlands -- f lausasölu kr. 12,00 eint. Prentsmiðjan Edda hf.
Atvinnumálastofnun
Framsóknarmenn hafa nú lagt fram á Alþingi frum-
varp um Atvinnumálastofnun, en í þessu frumvarpi er
bundinn kjarni þeirrar efnahagsmálastefnu, sem Fram-
sóknarmenn vilja að upp verði tekin á íslandi, þ.e. efna-
hagsstefna á grunni áætlunarbúskapar og skipulags-
hyggju. Komið verði á opinberri forystu í atvinnumálum
í samstarfi við leiðandi menn á sviði atvinnulífsins og
tekin upp heildarstjórn fjárfestingarmála með það fyrir
augum að stefnt verði að sem mestri hagræðingu fjár-
magnsnotkunar í landinu.
Samkvæmt frumvarpinu skal hlutverk Atvinnumála-
stofnunarinnar vera fjórþætt:
1) Að semja áætlanir til langs tíma um þróun at-
vinnuveganna og marka stefnu í atvinnumálum
þjóðarinnar. v
2) Að hafa forgöngu um gerð framkvæmdaáætlana
á sviði atvinnulífsins, þar á meðal um uppbygg-
ingu einstakra landshluta.
3) Að beita sér fyrir ráðstöfunum til að auka at-
vinnuöryggi í öllum byggðarlögum landsins.
4) Að hafa á hendi heildarstjórn fjárfestingarmála
og þá einkum með því að setja um þau almennar
reglur.
0» 3294 ití aaamc.
Atvinnumálastofnunin skal semja áætlanir til langs
tíina um þróun atvinnuveganna, marka stefnú í át-
vinnumálum þjóðarinnar og hafa forgöngu um gerð
framkvæmdaáætlana í atvinnumálum. Er gert ráð fyrir,
að hún beiti sér fyrir því að haldnir verði fundir eða
ráðstefnur og að þangað verði boðaðir fulltrúar þeirra
og svo framvegis Kveðið er á um, að áætlanir Atvinnu-
málastofnunarinnar um atvinnumál verði afhentar ríkis-
stjórninni og að hún leggi þær ásamt framkvæmdaáætl-
unum ríkisins fyrir Alþingi til staðfestingar.
Það er ekki ofsagt að undanfarið hafi mjög skort um-
sjón með því, að þær framkvæmdir. sem þjóðinni er
mest þörf á, sitji fyrir fjármagni og vinnuafli. Fjárfest-
ingin hefur verið stjórnlaus. Þess vegna hefur mikið ver-
ið framkvæmt, sem að skaðlausu hefði mátt dragast en
hins vegar skort fjármagn og vinnuafl til ýmissa bráð-
nauðsynlegra framkvæmda.
T greinargerð með frumvarpinu segir ennfremur um
sta^fsaðferðir Atvinnumálastofnunar og þær stofnanir,
sem hún skal koma í staðinn fyrir:
,,Eðlilegt má telja, að það sé í einstökum atriðum að
verulegu leyti á valdi Atvinnumálastofnunarinnar sjálfr-
ar, með hvaða aðferðum hún framkvæmir það hlutverk,
sem henni er falið. Gert er ráð fyrir, að hún beiti valdi
sínu einkum til útgáfu á almennum reglum og fyrirmæl-
um, sem bankar og aðrar lánastofnanir svo og aðrir að-
ilar, sem hlut eiga að máli, fari eftir. enda veitir frv..
ef að lögum verður, þeim mikið aðhald í því efni. En í
frv felast heimildir til frekari ráðstafana. ef Atvinnu-
málastofnunin telur þeirra þörf.
Frv. gerir ekki ráð fyrir því, að komið verði upp sér-
stökum nýjum skrifstofum fyrir stofnunina. heldur verði
starfandi ríkisstofnun á sviði efnahagsmála. sem hefur
sérfróðu og þjálfuöu starfsliði á að skipa. látin annast
skýrslu- og áætlanagerð og skrifstofustörf fyrir hana og
leggja henni þau gögn í hendur. sem hún þarf á að halda
og óskar eftir. Ekki er þó að svo stöddu gerð grem fyrir
þvi írekar, hvaða stofnun það skuli gera. enda telja flm
mikla nauðsyn á gagngerri endurskipulagningu samein-
ingu og samræmingn þeirra mörgu opinberu aðila og
stofnana. sem annast verkefni þessu skvld. og hafa þeir
í undirbúningi tillögur í þvi efni.“ .— TK
NGO CONG DUC, ÞINGMAÐUR:
Hernaður Bandaríkjanna veldur
ægilegum hörmungum í Vietnam
Bandaríkjamenn verSa stöSugt óvinsælli
Höfundur þessarar greinar,
Ngo Cong Duc, er foriiigi jafn
aðarmanna, sem eiga sæti á
þingi SuðurVíetnam og eru í
andstöðu við ríkisstjórnina.
Þessi grein hans birtist ný-
lega í New York Times:
STYRJÖLDIN eyðir meiri
mannafla og öðram verðmæt-
um í Suður-Víetnam en tölu
verði á komið. í her lýðveldis-
ins Vietnam er ein milljóa
cnanna, en þar við verðar að
bæta annarri milljón, sem er
í heimavarnarliðinu, og 100
þúsundum, sem eru í lögregl-
anni. Hér era hersveitir Þjóð-
frelsisfylkingarinnar ekki tald-
ar með.
Það eru með öðrum orðutn
2 milljónir angra manna, sem
eru knúnar til að taka sér vopn
í hönd til að hjálpa heimsvalda
sinnum í Bandaríkjunum að ná
takmarki sína í Saðaustur-Asíu
í stað þess að halda áfram námi
eða standa nytsama vinnu.
f her Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra f Víetnam
eru fast að 500 ..úsundum
manna og þessi herafli starfar
: að. því daginn út og daginn inn
' að deyða saklausa ættjarðar-
vini í landinu. Atburðir eins
og þeir, sem gerðust við Ky
Lai-Son My, eru ekki undan-
tekningar, og fórnarlömbin eru
venjulega 500—600 talsins.
BANDARÍKJAMENN hafa
varpað meira en tíu smálestum
af sprengjum yfir land okkar,
dreift ómældu magni af eitur
efnum og einnig nálega 100
þúsund smálestum af gróður-
eyði' á ræktarland okkar og
hrísgrjónaekrur. Af þessu hef-
ur leitt eyðing allrar uppsker-
unnar. Suður-Víetnam var áð-
ur auðugt að hrísgrjónum. en
nú eru landsmenn farnir að
neyta bandarískra hrísgrjóna.
Ókenndir sjú'kdómar hrjá Suð-
ur-Víetnama vegna dreifingar
eiturefnanna. Konur fæða af
sér vanskapninga og þeim kon-
um fjölgar sífellt, sem truflast
á geðsmunum.
Sé á stjórnmálahliðina litið
verður Ijóst, að efling Víet-
nama sjálfra til styrjaldarátaka
er ekkert annað en tilraun
Bandaríkjamanna til að við-
halda völdum hernaðarsinn-
anna og draga styrjöldina á
langinn.
Ríkisstjórn Nguyen Van
Thieas er einræðisstjórn sem
ofsækir þá, sem berjast í'yrir
friði og sjálfstæði, og hneppir
snklaust fólk í fangelsi. Ég er
þingfulltrúi fyrir byggðarlagið
Vinh Binh, en i því héraði einu
voru rúmlega 300 manna hano-
teknir með gerræði og hneppt-
ir í fangelsi árið sem leið. Ár
ið 1969 fullyrta Bandaríkja
menn. að ekki væru nema utr
20 þúsund skipulagðir hópar
kommúnista í Suður-Víetnam
Samt var ríkisstjórnin oúin
láta handtaka yfir 70 þúsund
manns í árslok. Svo er að siá
sem starfshópum kommúnista
hafi ekki farið fækkandi. -
Þessar tölur sanna kúgunar-
Thieu, forseti Suður-Víetnam
stefnu ríkisstjórnarinnar í Sai-
gon.
RÍKISSTJÓRN Nguyen Van
Thieus berst ákaft gegn allri
Stjórnarándstöðu. Nokkur
hundruð fórnarlömbum styrj-
aldarinnar er haldið í fangelsi
og nokkur hundruð ungra
námsmanna hafa verið fluttir
til æfingastöðva hersins. For-
seti stúdentasambandsins i Sai-
gon-Hue situr í fangelsi Beitt
hefur verið grimmilegustu mis
þyrmingum við alla þessa
menn.
Þessi barátta hefur verið
mjþg áköf andangengna sex
mánuði og hefur ekki einungis
bitnað á stjómarandstöðuhrevf
ingum. Blöðin hafa sætt sömu
örlögum. Þau hafa ekki ein-
ungis verið svipt pappír. sem
var þeim bráðnauðsyn'egur
heldur hafa blöð verið gerð
upptæk meira en t.vö numiruð
sinnum Dagblaðið Tin Sang
(morgunfréttir) hefur til dæm-
is verið gert upptækt 75 sinn-
um og útkomu þess frestað átta
sinnum á sex mánuðum.
Efling Víetnama til styrjald
arátaka er ekkert annað en út-
færsla bandarísku styrjaldar
innar. Bandaríkjamenn hafa
fallizt á að taka þátt í friðar-
viðræðunum í París, en óska í
raun og veru alls ekki eftir
friði og knýja ríkisstjórn Nguy-
en Van Thieus til að stefna að
hernaðarsigri,
ÁSTANDIÐ á efnahagssvið-
inu i Suður-Víetnam er von-
laust. Útgjöld á fjárlögum eru
um 210 milljarðar piastra ur
tekjurnar eru ekki nems /0
milljarðar piastra. Verðbólgao
gleypir árlega um 80 miníarðe
piastra auk þeirra áhrifa seni
bandaríska fjárhagsaðstoðin
hefur
Megintilgangur bandarískj
aðstoðarinnar er að sundrv
Víetnömum Bandarík'iamenn
hafa gert markaðinn í Viet.nam
að nevtendamarkaði einungit
Bönnuð bandarísk matvars hef
ur flætt yfir Suður-Víetnam
fbúar Suður-Víetnam aru nú
í Suður-Víetnam
um 17 milljónir og af þeim lifa
um tvær milljónir á tekjum ef
styrjöldinni með því að þjóna
hagsmunum Bandaríkjamanna.
Af þessu er ljóst, að aðstoð
Bandaríkjamanna hefur elcki
þ’ann tilgang að bæta lífskjörin
í landinu. Öðru nær. Hún veld-
ur íbúum landsins síauknum
hörmungum. Til dæmis má
nefna, að tuttugu ára laun for-
ingja í her Víetnama — for-
ingja, sem er kvæntur og á
fimm börn, — hrökkva ekki til
að kaupa Peugeot 404 eins og
nú standa sakir.
SUÐURVÍETNAMAR hafa
dregið þá ályktun af reynslu
sinni undangengin ár, að til-
gangur bandarísku aðstoðarinn-
ar sé að gera ibúa landsins ger-
samlega háða Bandaríkjunum.
Markmið Bandaríkjamanna
bæði í stjórnmálum og efna-
hagsmálum hafa gerbreytt
þjóðfélaginu í Vietnam. Banda-
ríkjamenn hafa notað fé sitt til
þess að egna byegðarlög lands-
ins hvert gegn öðru, spilla arf-
leifð landsmanna og andlegum
og siðferðilegum verðmætam
þeirra. ^Vændiskonum fjölgar
með hverjum. Yfir fiogur
hundruð þúsund víetnamskar
konur stunda þessa auðmýkj-
andi iðju. Bandaríkjamenn
reyna líka að auka á spiiling-
una til þess að geta notfært
sér áhangendur sína við að ota
sínum heimsvalda tota í Suður
Víetnam
Á menningarsviðinu reyna
Bandaríkjamenn að koma á
bandarísku þióSfélagi i Suður
Víetnam með því að sópa burtu
Öllu því jákvæða í víetnamskn
arfleifð Milljónum ungmenna
er meinað nám. 9—10 ára börn
stunda ekki skóla, heldur sinna
nautum. vinna á hrisgrjónaekr
unum bursta skó eða selja
blöð. Það er stefna Bandaríkja
manna að móta víetnömsku
þjóðina að bandarískri fyrir-
mynd, breyta víetnömum í út-
lendinga í sínu eigin landi
gera þá að fávísum skepnum.
firrtum öllum virðuleika
ÍBÚAR Suður-Víetnam eru
að rísa upp til andspyrnu þar
sem þeim er orðið ljóst, hvaða
heimsvaldastefnu Bandaríkja-
menn vilja koma á í Víetnam,
og ganga þess heldur ekki duld
ir. hve háð ríkisstjórn Nguyen
Van Thieus er Bandarikjunum.
Nú er svo komið. að flokks-
menn Þjóðfrelsishreyfingarinn
ar eru ekki einir um að rísa
gegn Bandaríkjamönnum og
hershöfðingjunum Nguyen Van
Thieu og Nguven Cao Ky, held
ur hefur öll þjóðin snúizt til
andstöðu Suður-Víetnamar
verða að lifa og hrærast með
Banriaríkjamönnanum eða '
nánum tengslum við þá og
skilja þv) betur en flestir aðrir.
hve ill áhrif stefna þeirra hef
ur ÞeiT sem hafa unnið eða
vinna með Bandaríkjamönnum
eða rikisstjórn Nguyen Van
Thieus gera sér grein fyrir
þessum spillandi áhrifum, hvað
bá aðrir