Tíminn - 04.11.1970, Page 16

Tíminn - 04.11.1970, Page 16
Mi8vikudagi. r 4. ndvember 1970. Menntun - lífsþægindi? - Sjá bls. 7 RANNSAKA NORÐUR- LJOSIN EJ—Reykjavík, þriðjudag. Norska blaðið Bergens Tid- ende skýrði frá því fyrir nokkr um dögum, að næsta sumar fasru fram athuganir á norður liósum. og yrðu loftbelgir send ir upp frá ýmsum stöðum í Noregi og á íslandi. Rannsóknir þessar eru á veg um Fysisk Institutt í Björgvin og University of California í Bandarikjunum. Verður um loftbelgjaathuganir að ræða. Á sama tíma næsta sumar verða loftbelgir sendir upp frá 3—4 stöðum í Norður-Noregi oe firá Reykjávík. Einnig sé í athugun að senda lofthelgi upp frá Grænlandi og Japan. Hér mun um að ræða geisla mælingar í því skyni að fá nánari upplýsingar um eðíi norðurljósa. Tunglsteirm- inn sýndur á laugardag SB—Reykjavjk, þriðjudag. Steinn frá tunglinu verður til sýnis í Þjóðminjasafninu í Réykjavik á laugardaginn. Þarná er um að ræða stein. sém Neil Armstrong hafði á brótt með sér frá tunglinu. Steinninn héfur verið á ferða lági um heiminn undanfarið og hingað kemur hann á föstudag inn frá Noregi. Að sjálfsögðu er steinn þessi ákaflega mikils virði, því ekki eru margir slík- ir til, og þess vegna er hans jafnan vandlega gætt. BAZAR Félag Framsóknarkvenna held- ur bazar að Hallveigarstöðum laug ardaginn 28. nóv. Þær konur, sem vilja gefa muni eða vinna fyrlr bazarinn vinsamlegast hringi í Síma 16701 — 34756 — 30823 og 13277. Freyjukonur Kópavogi Aðalfundur félagsins verður að Neðstutröð 4, fimmtudaginn 12. nóvember kl. 8,30. Dagskrá aug- lýst síðar. Stjórnin. Brenndu pen- ingana - köstuðu kveikjurunum i sjomn Vinstri beygjur bann- aðar á árekstra- hornum í tilraunaskyni Hata tvær vinstri beygjur veri8 bannaðar á gatnamót. um Kringlumýrarbrautar, Háaleitis- braútar og Skipholts. Er bannað að aka úr Skipholti og taka vinstri beygju inn á Kringlumýrarbraut, og ennfremur er bannað að taka vinstri beygju af Háaleitisbraut og inn á Kringlumýrarbraut. Hins vegar má eftir sem áður taka vinstri beygjur af Krlnglumýrarbraut og inn á þess- ar götur. Ef ökumenn aka með for- sjálni, koma þessi bönn ekki að sök. heldur þvert á móti“greiða þau fyr- ir umferðinni á þessum gatnamót- um, þar sem allt of mörg umferðar- slys hafa orðið siðan þau voru opn- uð. Myndin var tekin í Skipholti, og gefur til kynna bann við vinstri beygju, en inn í aðalmyndina er felld mynd af leiðbeiningaskittum, sem komið hefur verið fyrir í grennd við gatnamótin. (Tímamynd Gunnar) ENGIN HATIDAHOLD VIÐ OPNUN MESTU VEGAMANNVIRKJA HÉR KJ—Reykjavík, þriðjudag. Það var hvorki klippt á borða ná fánar dregnir áð hún, þegar hin miklu vegamannvirki við EU- iðaár voru opnuð í dag klukkan 14,12 með þvj að vegamálastjóri og borgarverkfræðingur óku ásamt tveim vegagerðarverkfræð- ingum eftir nýja Vesturlandsveg inum og yfir Elliðaárbrúna nýju. Þetta munu vera ein mestu vega mannvirki á landinu, ef undan er skilinn Keflavíkurvegurinn, en þá var heldur hvorki klippt á borða né fánar dregnir að hún, enda loft þá lævi blandið vegna vega gjaldsins margumtalaða. Fyrir nokkrum dögum var hleypt umferð á austasta hluta Miklubrautar og vestasta hluta Vesturlandsvegar og þar með yfir umferðarbrúna vestan við Elliða árbrúna. í dag var svo umfcrð hleypt á brúna og brekkuna, ef brekku skyldi kalla, í samanburði við göml'u Ártúnsbrekkuna, þar sem margur bíllinn hefur erfiðað upp um dagana. Umferðariögregluþjónar, vega- gerðarmenn og borgarstarfsmenn voru önnum kafnir við að undir- búa opnunina eftir hádegið, en færa þurfti til umferðarskilti, loka bráðabirgðavegum o. s. frv. Um klukkan tvö var komin tölu verð bílaröð á Vesturiandsveg og Miklubraut og í bílnum sem fremstur beið, voru vegamálastjóri Sigurður Jóhannsson, Helgi HalT- grímssoin, deildarverkfræðingur hjá Vegagerðinni ásamt borgar- verkfræðingi Gústaf A. Pálssyni. Margir bílar voru búnir að fara yfir brýrnar áður að sjálfsögðu, en þeir voru í fyrsta bílnum. sem fór foirmlega yfir, ef orða má það svo. Strax á eftir fylgdi bíla lest, sem hvarf í rykmóðu á brekkubrúninni. Varð mörgum að orði, hvort við værum ekki lausir við rykið með tilkomu þessa vegar, en skýringin á ryk- inu var sú, að í blíðviðrinu undan- farið hefur ryk setzt á veginn, og það þyrlaðist upp þegar fyrstu bílarniir fóru eftir honum. Vegar kaflinn, sem tekinn var í notkun er einn kílómetri á lengd, og tengist við annan steyptan kíló- metra Vseturlandsvegar sem opn aður var til umferðar í fyrtra. í fréttatilkynningu frá Vegagerð rlk isins um opnunina segir m.a.: Á þessum nýja hluta eru tvær brýr, vegbrú yfir Elliðavog- Reykjanesbraut og brú yfir Ell- iðaá. Slitlag er bæði malbik (400 m) og steypa 600 m). Vegna verkfalls snemma sumars eru allar framkvæmdir um mán uði á eftir áætlun og þótt vegur inn sé nú tekinn í notkun er ýms u-m verkhlutum enn ólokið, t. d. vantar lýsingu vegna afgreiðslu tafa á staurum, ekki tókst að máia nema hluta akreinalína vegna árs tíðar og lokafrágangur kanta og fláa fyllinga svo sem sléttun og sáning verður að bíða næsta sum ars. Heildarkostnaður við fram- kvæmd þessa verður um 90 millj. Framhald á bls. 14. FB—Reykjavík, þriðjudag. Brezku sjómennimir, sem sitja í gæzluvarðhaldi á Seyðis- firði, voru yfirheyrðir í dag, og hafa tveir þeirra nú játað að hafa brotizt inn í Kaupfélagið á Seyðisfirði, sömu nóttina og þeir brutust inn í verzlunina Turninn. Þessir tveir voru sett- ir í gæzluvarðhald, eftir' að sannaðist að þrír þeir fyrstu, sem settar voru í varðhald, höfðu brotizt inn í Turninn. Starfsmenn kaupfélagsins telja, að þaðan hafi verið stol- ið vörum og peningum allt að 25 þúsund kr. virði. Bretamir hafa hins vegar ekki viTjað við- urkenna, að þeir hafi stolið svo miklu. Rey-ndar eru þeir búnir að játa, að þeir hafi stolið nokkru af peningum, en þá brenndu þeir, og sígarettn- kveikjurum, sem þeir stálra, köstuðu þeir í sjóinn, og hefnr hvorugt fundizt, sem eðKTegt má teijast. Enn er verið að yfirheyra Bretana vegna innbrotsins í vð,- bátin-n, sem iá við bryggju á Seyðisfirði þessa sömu nótt, en þeir hafa neitað til þessa, að hafa komið í bátinra. Kjördæmisþing í Norðurlands- kjördæmi eystra Kjördæmisþing Framsóknar- manna í Norðurlandskjördæmi eystra, verður haldið að Hótel Varðborg, Akureyri, laugardaginn 7. nóvember og hefst kl. 10 ár- degis. Fulltrúar eru beðnir að mæta stundvíslega. Stjóimm. FRAMSÓKNARVIST A FAXI VE brann á miðun- um - áhöfninni bjargað OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Vélbáturinn Faxi VE-282 brann skammt vestan við Vestmannaeyj- ar i kvöld. Skipverjar komust all- ir heilir á húfi um borð í tvo nær- stadda báta. Faxi var á togveið-um er eldur- inn kom upp. Magnaðist hann í'. ót- lega og fengu skipverjar ekki við neitt ráðið Tveir bátar voru þarna nærri og komu fljótlega á vett- vang Var áhöfninni bjargað um borð í bátana og sakaði engan. Faxi var 38 rúmlestir að stærð, smíðaður árið 1917. I- SÖGU Á FIMMTUDAG Framsóknarfélag Reykiavík ur neldur Framsóknarvist að Hótel Sögu á fimmtudaginn. 5. nóvember og hefst hun kl. hálf níu. Stjórnandi vistarinnar verður Markús stefánsson. en Einar Ágústsson albingismað ut flytur ræðu Að Tokinni Framsóknarvistinm mun hliom sveit Ragnars Bjarnasonar leika fyrir dansi Miöa alæsi leg verðlaun verða veitt a bessu spilakvöldi Aðgöngumiða er hægt að fá á skriísofu Framsóknarflokks ins. Hringbraut 30. stmi 24480. Einar Markús

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.