Tíminn - 12.11.1970, Qupperneq 13
— iék með Fram gegn unglingalandsliðinu
í fyrrakvöld. Fram vann leikinn 3:2.
Gjafir til knattspyrnudómara
HiS heimsþekkta -fyrirtæki, ADIDAS, sem framleiSir hverskonar íþróttaskó o.fi., hefur sent milliríkjadómurum
okkar í knattspyrnu gjafir, þ.e. hverjum þeirra dómaraskó af beztu gerS, ásamt forláta tösku fyrir dómarabún-
inginn. Dómarar þeir, sem hér um ræSir eru: Hannes Þ. SigurSsson, Magnús Pétursson, Einar Hjartarson,
GuSmundur Haraldsson, GuSjón Finnbogason, Akranesi og Rafn Hjaltalin, Akureyri. Gjafir þessar voru afhentar
dómurunum í gær af Björgvin Schram, umboðsmanni ADiDAS á íslandi. Myndin sýnir þá Einar, Guömund,
Hannes og Magnús með gjafirnar, en þeir GuSjón og Rafn munu fá þær sendar til sia.
annan hálfleikinn með Fram, og
eru allar líkur á því, að hann
leiki með Fram í úrslitaiei'k bik-
arkeppninnar gegn Vestmannaey-
ingum n. k. laugardag.
Leikur unglingalandsliðsins og
Fram í fyrrakvöld var mjög þóf-
kenndur. Unglingalandsliðið náði
forustu, en Fram jaínaði og skor-
aði sigurmark í síðari hálfleik.
— alf.
í fyrakvöld lék unglingalands-
liðið í knattspyrnu gegn Fram.
Leikurinn fór fram á Valsvellin-
um og var leikinn í flóðljósum.
Lauk honum með sigri Fram, sem
skoraði 3 mönk gegn 2 mörkum
unglingalandsliðsins.
Athygli vakti, að Þorbergur Atla
son, landsliðsmarkvörður, sem
meiddist í leiknum gegn KR, lék
Leikur FH og Fram í kvöld:
Forleikur fyrir
átökin í
íslandsmdtinu
Ómar Ragnarsson, fyrirliði íþróttafréttamanna í pokahlaupinu í kvöld.
Myndin var tekin á æfingu i gær.
í kvöld gefst fólki kostur á
aS sjá FH og Fram leika sam-
an í fyrsta skipti á þessu
keppnistímabili. Má skoSa
leikinn sem eins konar for-
leik fyrir hin miklu átök í
íslandsmótinu í vetur, en
þessi tvö liS hafa skipzt á ís-
Ársþing
Fimleika-
sambandsins
Ársþing Fimleikasambands ís-
lands verður haldið n. k. laugar-
dag, 14. nóvember, í Snorrabúð
á Hótel Loftleiðum. Hefst þingið
Mukkan 14.00.
Námskeið
fyrir hand-
knattleiks-
dómára
Síðar í þessum mánuði, nánar
tiltekið 23. nóvember, hefst dóm-
ararnámskeið á vegum Handknatt-
lefksráðs Reykjavíkur. Verður
Hannes Þ. Sigurðsson kennari á
námskeiðinu, sem eingöngu er ætl
að verðandi handknattleiksdómur-
um í Reykjavík.
landsmeistaratitlinum undan-
farin 10 ár, og ef að líkum
lætur, verSur baráttan einnig
á milli þeirra um næsta meist
aratitil.
Enda þótt Fram hafi ekki sýnt
mjög góða leiki að undanförnu,
er ómögulegt að spá um úrslit
leiksins, því að jafnan hefur það
verið svo, að bæði liðin, Fram og
FH, hafa tvíeflzt, þegar þau mæt-
ast. Er ekki ólíklegt, að Fram
gefi yngri leikmönnum sínum
tækifæri til að spreyta sig, en þeir
hafa þó Ingólf, Guðjón og Sigurð
Einarsson til trausts og halds.
í hálfleik fer fram keppni í
pokahlaupi ,eins og áður hefur
verið skýrt frá. Eigast þá við
íþróttafréttamenn annars vegar og
handknattleiksdómarar hins vegar.
Má búast við, að handagangur
verði í öskjunni, þegar þessir að-
ilar mætast á „skeiðvellinum“ og
víst er um það, að dómarar hugsa
gott til glóðarinnar, því að ekki
eru þeir alltaf sammála gagn-
rýni blaðmanna, sem stundum er
óvægin í þeirra garð. íþrótta-
fréttamenn hafa tryggt sér það,
að ekki verður níðzt á þeim með
óhagstæðum dómi, því að dómar-
inn í hlaupinu verður maður úr
þeirra stétt, Sigurður Sigurðsson,
hin kunni og vinsæli útvarps- og
sjónvarpsmaður.
Leikurinn milli PH og Frarn í
kvöld hefst stundvíslega klukkan
20.1S.
ísland
vióurkennir
kvenna-
knattspyrnu
KnattspyTrnusamhand Evrópu,
UEFA mun á fundi sínum í lok
þessa mánaðar, sem haldinn verð-
ur í París ræða knattspyrnu
kvenna, sem mikið er að ryðja
sér til rúms í Evrópu.
f fréttum frá sambandinu seg-
ir að samkvæmt athugun sé knatt-
Framhald á bls. 14.
Vilja helzt
ekki fá
íslenzka
dómara í
heimsókn
klp—Reykjavík.
Nær allur hagnaður norsku
meistaranna í handknattleik,
Oslo Studentene, í síðari leikn-
um gegn UK 51 í Evrópukeppn-
inni í handknattleik karla, fór
í að greiða kostnað við dómara
leiksins, sem voru íslenzkir,
segir norska Dagbladet í grein
fyrir skömmu.
Aðeins ferðakostnaðurinn fyr
ir þá var um 3000 kr. (norsk-
ar) og var það nær allur hagn-
aðurinn, sem OS hafði af leikn-
um.
Dómararnir íslenzku voru
ekki komnir til leiksins
30 mín. áður en hann átti að
hefjast, vegna lélegs flugveð-
urs frá íslandi, og voru forráða
menn OS farnir að eygja mögu-
leika á að spara þessa peninga,
þegar þeir foks birtust.
Blaðið segir, að norska hand-
knattleikssambandið sé búið að
snúa sér til alþjóðahandknatt-
leikssambandsins, vegma þess,
að félögin í Noregi hafi ekki
efni á að fá „dýra dómara" og
óski hér eftir að fá dómara á
alla landsleiki og Evrópuleiki,
sem fram fara í Noregi, frá
löndum, £ém eru nær en ísland.
Þorbergur leikur
með Fram gegn ÍBV
FIMMTUDAGUR 12. nóvember 1970
ÉiiIUiilXi
TIMINN
Danska landslid-
ið svipað og í HM
Meðal landsleikja íslands í hand
knattleik karla í vetur, verða tveir
leikir við Danmörku. Danska lands
liðið mun fyrir þá Ieiki ijúka um
12 landsleikjum, og verða þrír
þeirra fyrir áramot, við Noreg,
Svíþjóð og Sviss.
Fyrsti leikurinn af þeim verð-
ur við Noreg þann 22. þ.m. í
Osló, og hefur danska liðið verið
valið fyrir þann iei'k. Er fróðlegt
að sjá hvernig Danirnir velja í
liðið, því varla verður mikil breyt-
ing á því fyrir leikina við ísland.
Liðið gegn Noregi verður þannig
skipað:
Kay Jörgensen, Bent Mortensen,
Arne Andersen, Iwan Christiansen,
Jörgen Frandsen, Hans Jörn Grav-
ersen, Jörgen Heidemann, Bent
Jörgensen, Jörgen Vodsgaard,
Jörgen Petersen, Klaus Kaae o*
Tom Lund.
Þeir tveir síðastnefndu voru
elcki með í HM-keppninni í Frakk
landi, en allir hinir léku þar. Að-
eins einn HG-maður er í liðinu
að þessu sinni, Bent Mortensen.
en einnig einn fyrrverandi HG-
maður, Jörgen Petersen, en hann
gaf þá yfirlýsingu í haust að hann
léki ekki framar með landslið-
inu, en honum hefur sýnilega snú-
izt hugur.