Tíminn - 12.11.1970, Qupperneq 16
iWMWY'f'T V’V-l
Mmmhjdagur 12. nóvsmber 1970.
Togskip meö ólögleg veiöarfæri
á miðunum umhverfis Island
2 AF10 FEGURÐARDÍSUM
REYKJAVÍKUR valdar
SB—Reykjavík, miðvikudag.
Hvorki meira né minna en
10 fegurðardísir úr Reykjavík
verða á næstunni valdar til
að taka þátt i „Ungfrú ísland
1970“ kcppninni í vor. Tvær
þær fyrstu voru kosnar á dans
leik í Veitinghúsinu við Lækj-
arteig í fyrri viku og tvær þær
næstu verða kosnar þar
annað kvöld, fimmtudags-
kvöld.
Það voru þær^ Þorbjörg
Magnúsdóttir og Ásta Benný
Hjaltadóttir, sem kosnar voru
á fimmtudagskvköldið var. Þor-
björg er 18 ára og vinnur á
Fæðingarheimili Reykjavíkur.
en Ásta Benný er 19 ára og er
skrifstofustúlka hjá Sanitas.
Annað kvöld verða tvær döm
ur í viðbót kosnar á dansleik í
veitingah. í Lækjarteig, og síð
an hinar 6 á dansleikjum
á næstunni. Allar tíu stúlkurn-
ar munu síðan koma fram, sem
eitt dagskráratriða á miklum
jóladansleik í Laugardalshöll-
inni á annan í jólum.
Nú er lokið við að kjósa
fegurðardrottningar sýslnanna
og verður það dálaglegur hóp-
ur, sem keppir um lókatitii-
inn í vor.
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Landhelgisgæzlan kannaði ný-
lega botnvörpu, sem togarinn
Harðbakur fékk í trollið út af
Stafnnesi í sept. s-1- Er talið að
varpan hafi rifnað frá skuttog-
ara, en innan á pokanum er net
sem er miklu þéttriðnara, en
sjálf varpan og er möskvastærð-
in langt undir því lágmarki sem
löglegt er. Þetta er ekkert eins-
dæmi því í fyrra drógu Vestfjarða
bátar stórar vörpur úr sjó, sem
voru útbúnar á svipaðan hátt.
Þeir fiskimenn sem notast við
slík veiðarfæri gera sig seka um
alvarlegt lögbrot og rányrkju, en
leikurinn er til þess gerður að
smáfiskur, scin kemur í vörpuna
sleppi ekki. Hins vegar er smá-
fiskurinn sem þannig veiðist tæp
lega notandi lilannars en í bræðslu
og mjölvinnslu og því hvergi
nærri eins verðmætur og stærri
fiskur.
Pétur Sigurðsson, forstjóri Land
helgisgæzlunnar, sagði Tímanum,
að skipverjar á Harðbaki teldu
vörpuna vera frá skuttogaj-a, en
ekki er hægt að sjá á vörpunni
hver verið hefur með hana, hvort
hún er frá erlendum togara eða
íslenzkum. Pétur sagði að það
væri ekkert einsdæmi að poki í
vörpu er þrengdur á þennan hátt
frá löglegum möskvastærðum.
Ilafa bæði íslenzk og útlend tog-
skip gert þetta. Iíefur Landhelg-
isgæzlan staðið sjómenn að þessu
athæfi, aðallega á minni skipum.
En mjög er erfitt að sanna slík
Nýlunda í atvinnulífi Borgarness:
VINNSLA A HORPUDISKI
HJÁ KB í BORGARNESI
lögbrot, nema beinlínis að standa
menn að verki.
Verið er að koma á samkomu-
iagi milli allra fiskveiðiþjóða við
Norður-Atlantshaf, að eftirlits-
menn frá hverri þjóð megi skoða
veiðarfæri skipa frá hinum þjóð-
unum á úthafinu. Sagði Pétur, að
þegar mætti athuga veiðarfæri
skipa að nokkru leyti, en eftir er
að ganga frá einhverjum formsat-
riðum þannig að þetta eftirlit
komi að fullu gagni. En við erum
tilbúnir að hefjast handa um að
skoða veiðarfæri fiskiskipa, sem
Strokufanginn
laus í viku
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Lítið hefur frétzt til strokufang-
ans sem gekk út úr biðstofu rann-
sóknarlögreglunnar við Borgartún
miðvikudaginn 4. nóvember sl. kl.
2,45 e.h. Lögreglan hefur leitað
mannsins, sem er 26 ára gamall,
og myndir og lýsing á honum send
lögreglustöðvum úti um land, en
v 111 kemur fyrir ekki. Maðurinn er
enn .'aus. •—-— —.
Hans hefur verið leitað á þeim
stöðum sem líklegt þykir a0 hann
komi á, en árangurslaust. Maður-
inn var að afplána fangelsisvist í
Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg. Tiltekinn miðvikudag var
hann sóttur og átti að yfirheyra
hann á skrifstofum rannsóknarlög-
reglunnar vegna gruns um ávísana
fals. Þar beið hann frammi á gangi
eftir að yfirheyrzlan hæfist, en
þegar a® honum kom var fanginn
strokinn. í húsnæði sakadóms við
Borgartún er engin aðstaða til að
loka fanga inni. Á meðan þeir eru
ekki í yfirheyrs,'u verður að láta
þá bíða frammi á gangi og treysta
því að þeir bíði rólegir en gangi
ekki niður stigann og út.
fiska á hafinu umhverfis ísland.
Hafa veiðarfæri útlendra skipa
oft verið athuguð í höfnum og
innan landhelgi, en ekki á úthaf-
inu og verður það ekki gert fyrr
en öll formsatriði í samkomulag-
inu eru komin j lag.
Guðmundur Sveinsson, neta-
gerðameistari á ísafirði, sagði
blaðinu að í fyrra hafi togbátar
fundið út af Vestfjörðum stór
skuttogaratroll og var poki þeirra
klæddur innan með mun smáriðn-
ari riðli en leyfilegt er. Löglegur
riðill er 120 mm möskvi, en inn-
an í þessum pokum var 80 mm
möskvi. Fundu Vestfjarðarbátarn-
ir fleiri troll með þessum búnaði.
Eru troll þessi auðsjáanlega af
útlendum togurum, er efni þeirrg
greinilega frá Portúgal.
Hörpukonur
Harpa, félag Framsóknarkvenua
í Hafnarfirði, Garða- og Bessastaða
lireppi heldur fund, fimmtudaginn
12. nóv. kl. 20,30 að Strandgötu 33
Hafnarfirði. Fundarefni: Rætt um
vetrarstarfið, Bingó og kaffi. Mæt-
ið vel, og takið með ykknr gesí-
og nýja félaga. Stjórnin.
FUF á Akureyri
Félag ungra fram
sóknarmanna á
Akureyri heldnr
almennan félags-
fund að Hafnar-
stræti 90 sunnu-
daginn 15. nóvem
ber kl. 3 e. h.
Friðgeir Björns
son, lögfræðing-
ur og stjórnarmaður í SUF„ mæt-
ir á fundinum, kynnir starfsemi
SUF og ræðir um baráttumál
ungra manna.
Almennar umræður verða um
þjóðmálin og félagsmálin.
SEIÐIN HORFIN AF
RÆKJUMIÐUNÚM
KJ—Reykjawk, miðvikuðag.
f gær hófst vinnsla á hörpu-
diski hjá KB í Borgarnesi, og
er þetta í fyrsta skipti í mörg ár,
sem þar fer fram verkun sjávar-
afurða, þótt staðurinn liggi að
sjó.
Ólafur Sverrisson kaupfélags-
<;tjóri Kaupfélags Borgfirðinga
sagði fréttamanni Tímans í dag,
að þetta væri algjör nýlunda í
atvinnulífinu í Borgarnesi. Hörpu-
diksurinn er sóttur frá Borgamesi
til Stykkishólms eða Grundarfjarð-
ar en vinnslan fer fram. í hinu
nvlega sláturhúsi KB j Borgar-
nasi.
Ólafur sagði, að það væru imest
húsmæður, sem ynnu við hörpu-
diskinn í Borgarnesi, og vinna þær
> ikvæðisvinnu. Á fyrsta degi
\ oru sumar, þegar komnar vel
unp á lagið með að ná vöðvan-
m úr skelinni, og höfðu meira
-n tímakaup fyrir vinnuna.
.ÓPAVOGUR
Vðalfundur Framsóknarfélags
opavogs verður haldinn að
ðstutröð 4, Kópavogi, fimmtu-
íinn 19. nóvemher kl. 20.30.
anar auglýst síðar. — Stjóriún.
Kaupfélagið kaupir aflann af
bátum á Snæfellsnesi, en Sjávar-
afurðadeild SÍS sér um söluna á
hörpudiskinum til útlanda. Sagð-
ist Ólafur gera ráð fyrir að þessi
vinnsla gæti staðið fram í febrúar,
eða þar til vetrarvertíð hefst á
Snæfellsnesi. _
Þá sagði Ólafur að vel gæti
komið til greina að Kaupfélag
Borgfirðinga tæki upp rækju-
vinnslu, en aðstaða til vinnslu á
hörpudiski og rækju er góð í hinu
nýlega og glæsilega sláturhúsi KB
JK-Egilsstöðum, miðvikudag.
Sjávarafurðadeild SÍS hélt fund
í Valaskjálf í dag með fram-
kvæmdastjórum og verkstjórum
frystihúsanna á Austurlandi. Mætt
ir vora fulltruar frá öllum frysti-
•húsunum, sem selja í gegnum
sjávarafurðadeild SÍS, nema frá
Vopnafirði ,en þeir komust ekki
þaðan vegna ófærðar. Einnig voru
mættir fjórir fulltrúar frá sjávar-
í Borgarnesi.
20—30 manns vinnur við hörpu-
diskinn í Borgarnesi, og er þetta
atvinnubót nú, þegar sláturtíð er
lokið, en að jafnaði hefur margt
fólk vinnu í sláturhúsinu á haustin.
í Borgarnesi var slátrað um 60
þús. fjár í haust hjá KB. en það
er 25% minna en haustið 1969,
þegar slátrað var 80 þúsund fjár.
Meðalfallþungi mun hinsvegar
vera um kílói meiri nú en í fyrra,
og losa 14 kg. núna.
afui’ðadeild SÍS.
Ræddar voru horfur í fisksölu-
málum, og fram kom á fundinum
eindreginn vilji fundarmanna, að
framleiðsla húsanna eftir 1. júlí
yrði afreiknuð á hærra verði. þar
sem fiskverð til húsanna hækkaði
þá, og kaupgjald allt. Ekki væri
nein sanngirni í því, að þau hús,
sem fratnleiddu alla sína fram-
leiðslu á vetrarvertíðinni nytu
GS—ísafirði, miðvikudag.
Þorsk- og ýsuseiðin eru nú horf-
in af rækjumiðunum í Djúpi. Voru
seiðin á vissum svæðum og fengu
verðhækkana til jafns við hús,
sem framleiddu síðari hluta árs-
ins við miklu óhagstæðari skil-
yrði.
Talað var um mismun á raf-
magnsverði fyrir austan og sunn-
an, og margt annað, setn snertir
hagsmuni fiskkaupenda. Einnig
var rætt um vinn /hagræðingu í
frystihúsunum fyrir austan.
rækjuveiðibátarnir mikið af þeim
í veiðarfærin um tíma.
Fá rækjubátarnir nú aðeins vott
af loðnu með rækjunni, en svo
hefur lengi verið. Með kólnandi
veðri og breyttri átt hafa nú fiski-
seiðin farið af rækjumiðunum.
Framsóknarkonur
Reykjavík
Félag framsóknarkvenna heid-
ur fund að Hallvcigarstöðum,
finimtudaginn 19. nóvember, kL
8.30.
Margrét Fredenksen kynnir nug
myndabankann, Ingibjörg Tryggva
dóttir talar um jurtalitun.
Konum er vinsamlegast bent á,
að tekið verður á móti bazarmun-
nm á fundinum. Konur fjölmenn-
ið og takið með ykkur gesti.
— Stjórnin.
FRAMLEIÐSLA FRYSTIHUSANNA EYSTRA EFT-
IR1. JÚLl VERÐIAFREIKNDÐ Á HÆRRA VERÐI