Tíminn - 29.11.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.11.1970, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 29. nóvember 1970 TÍMINN útbreiddustu og vinsælustu orkugiafar til sveita, fyrir sumarbústaði og víðar. Stöðvarnar afgreiðast tilbúnar til notkunar með nauðsynlegum búnaði, svo sem: Mælatöflu, höfuðrofa og fjarstýrðri stöðvun frá íbúð. Samstæðurnar eru á gúmmipúðum, þýðgengar og öruggar. Höfum á lager: 3 kw, 4 kw, 6 kw og 10 kw stöðvar Stærri stöðvar útvegum við með stuttum fyrirvara. Veitum alla fyrirgreiðslu í sambandi við útvegun og frágang lána úr Orkusjóði. Hringið, skrifið eða komið. — Upplýsingar veittar um hæl. Vélasalan hf. Garðastræfi 6, Reykjavík — Simar 15401 og 16341. n Við velium imnlal ,n. i IFLUM OKKAV i i það borgar sig Í&¥: ; ; i í HEJMABYGGÐ J 1 "" ' «■>.nmjMv" '• 1 i i ★ ’ ■ - niRnvæl K n _ P«ilUCll - OFNAR H/Ft i 1 SKIPTUM VIÐ v í Sföumúla 27 . Reykjovik ' ! 1 SPARISJÓÐINN J Símar 3-55-55 og 3-42-00 iiy ! ; SAMBANO ISL SPARISJOÐA ' ■ ■ - Íwi MTTUR KIRKJUNNAR Hvernig sýnir þú trú þína? Mikið er rætt o? ritað um trú og trúarbrögð. Þúsundir predikara flytja kenningar sínar í kirkjum og á torgum og vísa veginn. Og fæstum ber saman um þann veg, sem til lífsins liggur. Einn segir þessi trúarbrögð, þessar kenningar, þessar játn- ingar hið eina rétta, annar hitt. Og fátt hefur valdið meiri sundrung í samfélagi manna en trúarbragðadeilur. Öldum saman hafa menn og konur látið lífið fyrir þann rétt að mega trúa því, sem þeim sýndist. Og aðrir hafa dáið fyrir að afneita trú og trúarsiðum. Og hvað sem segja skal um trúarboðun og trúarskoðun slíks fólks þá er ekki annað hægt en dást áð trúarlegum styrk þess og þroska. í þessum skilningi getur svokallað trúleýsi og vantrú verið jafnsterk trúarsann- færing og það, sem nefnt er trú. A’llir trúleysingjar svo- nefndir, hafa sterka trúar- kennd, annars mundu þeir ekki leggja neitt á sig til af- neitunar öðrum trúarsicmm. Og um ótal margt af slíkum afneitunum og marga af slík- um „guðleysingjumj' má segja það, sem haft er eftir katólsk- um heimspekingi, Jaeques Maritainum guðsafneitara: „Fólk sem trúir bvi, að bað trúi ekki á Guð, en trúir þó á hann. án þess að gera sér þess grein af því að sá Guð eða sú guðshugmynd, sem það afneitaði, var ekki Guð heldur eitthvað annað. „Það er ekki allt gull sem glóir“. og það er ekki allt Guð, sem svo er nefnt jafnvel ekki i hinni kristnu kirkju. samanber guðshugmynd þeirra cem predika einhvern hefni- •fjarnan hatursfullar, einvaid wvpi á himnum, sem steypir 'ilum vanþóknanlegum og „vondum“ í eilífan hvalaloga öllum útrýmingarstöðvum jarðneskra hitlera 'ærri Síðustu tímar hafa boðað ný trúarbrögð. trúarbrögð borin fram með vaidi og kúgun, trúarbrögð stjórnmálanna, þar sem tignun vissra hugmynda og sérstakra foringja á að veita öllum áhangendum og raunar öllum mannheimi gull og græna skóga. Guðina eða goðin má nefna eins og Stalin, Mussolini, Hitler og Mao. En lítt hafa slík trúarbrögð svalað innri trúarþört manns- hjartna og mannkyns, jafnvel þótt milljónaþjóðir hafi látiB blekkjast. Að sjálfsögðu má eitthvað gott hafa leitt að fylgd millión anna við þessgr kenningar, sem oft eru fersnar að láni og undir fölskum forteiknum frá viðurkenndum trúarbrögðum, einnig í blekkingarskyni. En , hins vegar má skrifa heimsstyrjaldir og helvfti á stórum svæðum jarðarinnar á reiking þessara stjórnmála- legu gervitrúarbragða. Það ættu allir hugsandi menn, já, allir að gæta sín gagnvart því, að láta stjórn- málahugmyndir stundarfyrir brigða villa um fyrir trúartil- finningu sinni. Þar fara jafn- vel flatt hinir beztu. En innst irini eru trúarkennd- ir mannshjartans ekki eins ólíkar og hugsa mætti, sama hvar þeir búa og hvaða litar- hátt þeir bera. Þeir sækjast eftir hylli, vernd og ástúð guða sinna, samfélagið við samferðafólkið á lífsleiðinni, hugdirfð á hættu stund, huggun í sorgum, leið- sögn í önn dagsins, lausn og linun iðrunar og samvizkubits og flestir vilja von um ódauð- leika. Þetta allt í ótölulegum til- brigðum er uppistaða trúar- kenndanna, sem síðan koma fram í formum og umbúðum trúarbragðanna. Leiðirnar til Guðs virðast óteljandi. En óll hin æðstu trúarbrögð hafa talið hug- leiðslu í þögn og kyrrð, fegurð og algleymi, lykill leyndar- dómsins við hjarta Guðs. Samt eru musterin mörg og marg- vísleg allt frá lélegum strá- kofum til listríkra hofa og mustera, kirkna og helgidóma. En eitt er víst. hvað sem allri fjölbreytni helgisiða og helgidóma líður. þá eru í musteri Guðs bau hjörtu sem trúa“. Án bergmáls í sálunum verða helgustu musterin aðeins auðn og tóm. hulstur, hismið eitt. Og óhætt mun einnig að taka andir tvö þúsund ára speki spámannsins, sem sagði eitthvað á þessa leið þau trú- ar brögð ein fullnægja trú þörf mannsins og eiga sann- arlegt takmark, sem stvrkja hann til að gera rétt 'ðka miskunnsemi og gange auð- m júkur á Guðsvegum: ■ Sýnum við trú okkar þann- þá göngum með reistu höfði, hvað sem guðinn er kallaður þá eru við og lifum í anda Jesú Krists. 9 Árelíus Níelsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.