Tíminn - 29.11.1970, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.11.1970, Blaðsíða 6
8 TÍMINN SUNNUDAGUR 29. nóvember 1970 Skortur fjármagns til áfengis- og tóbaksvarna Áfengisneyzla eykst Það er staðreynd, sem gleym- ist alltöf oft, ao' áfengisneyzla fer vaxandi, einkum meðal ungs fólks. Eitt dæmið um þetta er það, að þeim fer mjög fjölg- andi, sem teknir eru ölvaðir við akstur. Ýmsar orsakir valda því að sjálfsögðu, að áfengisneyzlan eykst og jafnhliða það böl, sem fylgir henni. Veigaminnst er ekki sú ástæða, að slakao hefur verio' á ■ýmsum hömlum, m. a. í sambandi við vínveit- ingar á veitinga- og skemmti- stöðum. í þeim efnum var ekki talið annað fært, þegar núgild- andi áfengislög voru sett 1954, en að semja sig að háttum nágrannaþjóða. Vafasamt er líka, 'hvort boð og bönn um- fram það, sem annars staðar gild ir, reynast einhlít til lengdar. Iiitt ætti jafnframt að vera aug- ljóst, að þegar rýmkað er á slík um hömlum, þarf eitthvað ao' koma, sem vegur á móti. Til þess var líka ætlazt, þegar áfengislögin voru sett 1954, en því miður hefur orðið minna vir framkvæmdum en lögin gera ráð fyrir. Vanræktar áfengis- varnir í áf engislögunum tfrá 1954 er aHl-angur kafli, sem nefriist áfengisvarnir. Samkvæmt þess- uiíl ákvæðum laganna skal Al- þingi kjósa áfengisvarnaráð, sem hefur sérstakan áfengis- varnaráðunaut í þjónustu sinni. Hlutverk áfengisvarnaráðunauts og áfengisvarnaráðs er að stuðla að bindindissemi og vinna gegn neyzlu áfengra drykkja, m. a. með því aó' fylgj- ast sem bezt með áfengis- og bindindismálum og veita hlut- lausar upplýsingar um þau til blaða og annarra fjölmiðla. Þá skulu starfa í öllum bæjar- og sveitarfélögum ólaunaðar áfeng- isvarnanefndir til að vinna að þessum málum. Óhætt er að segja, að vel hef- ur yfirleitt tekizt val á áfengis- varnaráðunautum, áfengisvarna- ráði og áfengisvarnanefndum. En til þess, að slíkt kerfi komi að tilætluðum notum, þarf ekki ac'eins góðan vilja, heldur einnig verulegt fjármagn. Það er ekki ofmælt, þótt sagt sé, að þetta víðtæka kerfi hafi aldrei getað komið að tilætluðum notum, sök um fjárskorts. Sama er að segja um þann þátt áfengisvarnakaflans í áfengislögunum, sem fjallar um áfengis- og bindindisfræðslu í skólum, og um tilheyrandi kennsluhækur og fræðslukvik- myndir. Þennan þátt bindindis- fræðslunnar á fræðslumálastofn- un að annast. Það er ekki of- mælt, eó‘ þar hafi alltof lítið verið gert, m. a. vegna fjár- skorts. Áfengisvarnirnar, sem áfeng- islögin gera ráð fyrir, hafa þannig strandað á því meira og minna, að oflitlu fé hefur verið veitt til þeirra, einkum meöal ungs fólks. Það er þó ein mitt á þeim aldri, er mestu skipt ir að menn læri „hvaða áhrif of- nautn áfengis hefur á líkama mannsins, vinnuþrek, siðferðis- þroska og sálarlíf, á heimili manna, umgengnisvenjur og al- menna siðfágun, á fiárhag ein- sta'klinga og þjóðarinnar", svo a'ð notuð séu orð áfengislaganna. Tlllaga áfengislaga- nefndarinnar 1954 Gegn áfengisneyzlunni og mis- beitingu 'hennar er tvímælalaust ekkert áhrifameira vopn til en heilbrigt og hleypidómalaust al- menningsálit. Þetta álit verður ekki skapað, nema með mark- vissri og skipulegri fræðslu um böl áfengis. Þetta var ljóst þeirri nefnd, er vann að undirbúningi áfengis- laganna frá 1954, en hana skip- uðu: Gústaf A. Jónasson ráðu- neytisstjóri, Brynleifur Tohíasson áfengisvarnaráðunautur, _ Jó- hann G. Möller forstjóri, Ólaf- ur Jóhannesson prófessor og Pét- ur Daníelsson hótelstjóri. Nefnd in iagði til, að nokkuð yrði dreg- ið úr ýmsum áfengishömlum, m. a. í sambandi viö veitingahús, en það kæmi svo á móti, að bindindisfræðsla yrði stórlega aukin og nægilegt fjármagn tryggt til þeirrar starfsemi. í frv. nefndarinnar var lagt til, að stofnaður skyldi sérstakur áfengisvarnasjóður, er styrkti áfengisvarnir, bindindisfræðslu og bindindisútbreiðslu, og skyldu árlega renna í hann 3% af hagn að áfengisvei'zlunar ríkisins. Illu heilli felldi Alþingi þetta á'kvæði úr frv. nefndarinnar. Niðurstað- an við afgreií/slu áfengislaganna frá 1954 varð því sú, að dregið var úr áfengishömlum, en bind- indisfræðsla aukin, en( ekki tryggt fé til hennar. Áfengisvarnasjóður Vegna þeirrar reynslu, að áfengisvarnakerfið hefur 'kom- ið að alltof takmörkuðum not- um sökum fjárskorts, hafa tveir af þingmönnum Framsóknar- flokksins, Þórarinn Þórarinsson og Ágúst Þorvaldsson, flutt frv. á Alþingi um að endurvekja til- lögu nefndarinnar, sem undirbjó áfengislögin 1954, um stofnun sérstaks áfengisvarnasjóðs. Ef farið hefði verið eftir þessari tillögu - nefndarinnar, hefði áfengisvarnasióður haft um 15 millj. kr. til ráóstöfunar á s. 1. ári, eða um 10 millj. kr. rneira en þá var veitt úr ríkissjóði til bindindisstarfsemi. Þessi fjár- ráð áfengisvarnasjóös mundu sízt vera of mikil, þar sem hon- um er ekki aðeins ætlað að styrkja hina beinu bindindis- fræðslu og bindindisstarfsemi, heldur einnig ýmsa æskulýðs- slarfsemi, sem vinnur gegn áfengisnautn. Meðferð drykkju- sjúklinga Hin aukna áfengisneyzla hefur leitt til þess, að mjög hefur fjölgað þeim, sem telja má drykkjusjúklinga og hafa því þörf sérstakrar hjúkrunar og meðhöndlunar, ef þeir eiga ekki að veröa áfengisnautninni alveg að bráð. Hinsvegar má vel bjarga slíkum mönnum, ef þeir fá rétta hjúkrun og umönnun í tæka tíð. Til þess þarf sér- stakar stofnanir og sjúkradeild- ir, sem geta hagað störfum sín- um mismunandi eftir því, hvar viðkomandi sjúklingur er á vegi staddur. í áfengislögunum 1954 var að finna merkilegt nýmæli, þar sem fjallað var um lækningu slíkra manna. Samkvæmt lögun- um var gert ráð fyrir, að kom- ið yrði upp hælum. og . sjúkra- deildum fyrir umrædda sjúkl- inga. í því skyni skyldi' stofnað- ur svokallaður gæzluvistarsjóó- ur, sem fengi vissa upphæð af tekjum áfengisverzlunarinnair. Hlutverk sjóðsins skyldi vera að styrkja slíkar stofnanir. í lögunum um meðferð ölv- aðra manna og drykkjusjúkra, sem sett voru 1964, var gengið lengra á þessari braut og þar nánara ákveðið hvernig slíkar hjálparstofnanir og sjúkradeild- ir skyldu vera. Jafnframt var ákveðið, að gæzluvistarsjóó'ur skyldi árlega fá 7,5 millj. kr. af tekjum Áfengisverzlunarinnar. Það má segja, að árið 1964 hafi það framlag, sem lagt var í gæzluvistarsjóð, verið all ríf- legt, en þó fjarri því að vera meira en þörf var á. Verð- bólgan hefur hinsvegar orðió' til að rýra mjög verðgildi þessa framlags. Árið 1964 var það 2,3% af tekjum áfengisverzlun- arinnar, en 1969 aðeins 1%. Hefði sama hlutfall haldizt og 1964, hefði það átt að nema 18,2 miUj. kr. árið 1969. Gæzl u vista rs jóðu r Það er í samræmi við þetta, aó' tveir af þingmönnum Fram- sóknarflokksins, Einar Ágústs- son og Björn Fr. Björnsson, hafa flutt á Alþingi þá breytingatil- lögu við lögin um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, að 2%% af tekjum Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins skuli ár- lega varið til gæzluvistarsjóðs. í greinargerð frv. þeirra segir m. a.: „Augljóst er, að vaxandi verð- bólga gerir gæzluvistarsjóði ó- kleift að valda þeim verkefn- um, sem honum eru fengin, ef ekkert verður gert til aö afla honum aukinna tekna. Nú er svo komið, að langmestur hluti af ráðstöfunarfé sjóðsins gengur til að standa straum aí rekstri drykkjumannaheimilisins að Akurhóli á Rangárvöllum. Afleiðingin er sú, að ekkert fjármagn er aflögu til að sinna þeim höfuðviðfanigsefnum, sem sjóðnum voru ætluo' í upphafi, s;vo sem þeim að reisa sjú'kra- hús og s.júkradeildir fyrir drykkjúsjúkiiniga, og bera þann aukakostnað, sem af starfsemi þeinra leiðir. Ekki þarjf löngu máli að eyða til rökstuðnings því, hversu mikilvægt það er, að þeir sjúkl ingar, sem hér um ræðir, geti fengið beztu aðhlynningu, sem völ er á, og eru þjóðfélagsverð mætin ómæld, sem hér eru í húfi, auk þess sem þau mann- legu bágindi, sem hugsanlega er unnt aÖ afstýra, verða ekki í tölum talin.“ Varnir gegn sígarettureykingum Lengi vel héldu bindindis- menn aðallega uppi baráttu gegn áfengi, en töldu tóbak hættu- minna. Nú er hinsvegar komið í Ijós, að sígarettur geta ekki síður verið hættylegar heilsu og lífi manna en áfengið, þótt á annan hátt sé. Þessvegna er nú hafin víða um lönd skipu- lögð áróö'ursstarfsemi gegn síga- rettureykingum. Fyrir Alþingi liggur nú tillaga frá Jóni Skaftasyni, Pálma Jónssyni, Eðvarð Sigurðssyni, Benedikt Gröndal og Hannibal Valdimars- syni um varnir gegn sígarettu- reykingum. í tillögunni er skor- að á ríkisstjórnina að gera eftir- farandi ráðstafanir til þess að draga úi tóbaksreykingum og þá sérstaklega sígarettureyking- um: 1. Víðtæk upplýsingastarfsemi um skaðvænlegar afleiðingar sígarettureykinga verði haf- in í dagblöðum, hljóð- og sjón- varpi. Höfuðáherzla verði lögö á þær skyldur, sem foreldrar og kennarar hafa. 2. í skólum verði hafin reglu bundin kennsla um heilsufarsleg- ar hættur sígarettureykinga. 3. Regluleg fræðsluerindi (námskeið) verði haldin fyrir kennara og kennairaefni um þessi mál. 4. Stofnaðar verði „opnar deildir“ (poliklinik), sem stjórn að sé af sérfróðum læknum, og þar geti reykingamenn fengið aö'stoð til þess að hætta reyk- ingum. 5. Stofnað verði ráð lækna og leikra, sem hafi eftirfarandi hlutverk: a) Að safna upplýsingum um, hversu víðtækar reykingar séu, t. d. meðal skólabama og ungl- inga. b) Að stjórna vísindalegum rannsóknum um áhrif reykinga. c) Að vera yfirvöldum til ráðuneytis um þessi máL Tízkan er voldug Tillögunni um varnir gegn sígarettureykingum fylgir m. a. útvarpsræða, sem Hrafnkell Helgason læknir flutti nýlega um hættuna af sígarettureykingum. Henni lýkur með þessum orðum: „Ég tel ástæðu til, að við fslendingar förum að dæmi ann- arra þjóða og reynum að berj- ast gegn þessari hæbtu með aukn um áróðri og upplýsingum í ræðu og riti. Hér eiga heil- brigðisyfirvöld, læknar og ekki sízt kennarar mikiÖ starf fyrir höndum. Ef vel tekst til, meg- um við örugglega vænta oss lengri lífdaga og betri heilsu. Ekki þýðir að hræða fólk um of eða banna reykingar. Það eru mjög gleðileg tíðindi, að nú alveg nýlega ,hafa verið birtar.. ., tölur, er sýna, að mjög héfur dregið úr reykingum hjá barida rískum ungmennum. Tízkan er ; voldug, og ef Ihægt væri að sann, færa unglinga um, að reykingar væru ekki lengur í tízku, held- ur ófínn löstur eldri kynslóöar- innar, þá hefði vissulega mikið áunnizt. Ekki þefcki ég neitt öruggara ráð til að lemgja meðal aldur fslendinga um nokkur ár og bæta heilsufar okkar en að ■hætta sígarettureykingum." Bandaríkjamenn hafa ekki gripið til þess ráðs í áróðri að banna tóbaksauglýsingar, en þeir hafa gert sjónvarpsstöðvum og hljóðvarpsstöðvum, sem flytja slíkar auglýsingar, að skyldu að verja jafnlöngum tíma til fræðslu um skaðsemi sígarettureykimga. Fjárveitingar, sem ekki má skera við nögl Framangreint dæmi frá Banda- ríkjunum sýnir vel, hve áhrifa- mikil skipulögð og skynsamleg upplýsingastarfsemi getur reynzt. Hún er vafalítið áhrifam.eiri en nokkur boö' og bönn. En slíkri starfsemi fylgir það, að hún kostair verulega fjáimuni. Nú- tíma þjóðfélag má ekki skera vio' nögl þær fjárveitingar, sem eiga að fara til að upplýsa al- menning um ofnautn áfengis og tóbaks, eða annarra Skaðlegra nautnameðala. Hér er tvímæla- laust þörf stóraukinnar starf- semi og hún getur því aðeins aukizt, að ríkið láti meira fé af hendi rakna til hennar. Svo mikill er líka gróði ríkisins af sölu áfengis og tóbaks, að ekki getur talizt óeðlilegt, að nokkr- um hluta hans verði varió’ til upplýsingastarfsemi um hættur þær, sem áfengis- og. tóbaks- nautninni fylgja. Þ. Þ-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.