Tíminn - 29.11.1970, Blaðsíða 8
8
TIMINN
SUN-NUDAGUR 29. íióveniber 1970
MILLISVÆÐAMÓTIÐ
Þessy dagana beinist athygli
aKra skakunnenda að viðurcign
24 skákmanna, sena heyja harð
vítuga baráttu um sex efstu sæt-
in á mitlisvæðamótinu í Palma
de Mallorca. Eins og sakir standa
er ógerlegt að spá nokkru um
endanleg úrslit, enda mótið að-
eins hálfnao' og margir um hit-
una, cins og eftirfarandi tafla ber
með sér.
Staða eítir 12. umferðir.
1. Fischcr 81/a V.
2. Geller 8 V.
3.— 4. Uhlmann 71/z V.
3.-— 4. Húbner 71/2 V.
5.—11. Ivkov 7 V.
5.—11. Gligoric 7 V.
5.—11. Lavsen 7 V.
5.—11. Polugaj. 7 V.
5.—11. Panno 7 V.
5.—11. Portisch 7 V.
5.—11. Mecking 7 V.
12,—13. Minic 6V2 V.
12.—13. Taimanov 61/2 V.
14.—15. Smyslov 6 Y.
14.—15. Utjumen 6 V.
16. Matulovic 51/2 V.
17.—18. Hort 5 V.
17—18. Suttles 5 V.
19.—21. Addison 4% V.
19.—21. Reshevsky 41/2 V.
19.—21. Naranja 41/2 V.
22. Rubinetti 4 V.
23. Filip 31/2 V.
24. Jiminez 2 V.
Það vekur strax athygli,
fulltrúar yngri kynslóó'arinnar,
þeir Húbner, V.-Þýzkalandi og
Mecking, Brasilíu, hafa staðið vel
fyrir sinu og er ekki ólíklegt að
þeir blandi sér í lokabaráttuna.
Húbner hefur m. a. borið sigur-
orð af Matulovic og Reshevsky
og kann að verða erfitt að halda
aftur aí honum eftir að hann er
einu sinni kominn á skrið. Hins
vegaT getur frammistaða sov-
ézku keppendanna ekki talizt
nema meðalgóð, þegar á heild-
ina er litið, og kann þetta ao'
skjóta stoðum undir þá skoðun, sem
nú er mjög almenn, að yfirburð-
ir sovézkra skákmanna fari óðum
dvinandi. Þá hafa þeir Hort og
Reshevsky átt mjög erfitt upp-
dráttar og mega þeir sannarlega
taka á honum stóa-a sínum, ef
þeir ætla að hljóta eitt af sex
efstu sætunum.
Einhver athyglisverðustu úr-
slit síðustu daga má telja sigur
Larsens yfir Fischer í 9. umferð.
Larsen lætur að því liggja í
,,Politiken“, að hann hafi séð
fyrir í draumi þá leikaðferó', sem
Fischer mundi beita, og hafi
hann því tekið þessa leikaðferð til
ítarlegrar athugunair (Velimirovic
afbrigðið í Sikileyjarvörn.) Það
kom fram, sem Larsen hafði
dreymt. Fischer notaðist við áður
greinda leikaðferð í skákinni og
Larsen tókst að koma honum á
óvart mefí nýjum leik. Þegar skák
in fór í bið var staða Fischers
orðin vonlaus og tók hann þann
kostinn að gefast upp skömmu
síðar.
Því miður hefur mér ekki tek-
izt að verða mér úti um þessa
athyglisverðu skák, en þess í stað
birtist hér skemmtileg skák sem
Fischer tefldi við Geller í Skopje
‘67. í þessari skák notast Fiseher
við Velimirovic-afbrigðið og verð-
ur fróðlegt að gera samanburo á
þessai'i skák og skák Fischers
við Larsen.
Hv.: Fischer.
Sv.: Geller.
Sikileyjarvörn.
1. c4, c5
2. Rf3, d6
3. d4, cxd4.
4. Rxd4, Rf6
5. Rc3, Rc6
6. Bc4, e6
7. Be3
(Þennan leik má telja upphaf
Velimirovic-afbrigðsins. Að öllu
jöfnu leikur Fischer hér 7. Bb3.)
7. —, Be7
(Fischer teluir þennan leik of
hægfara. Beti'a sé 7. —, a6 8.
Bb3, Dc7 9. De2, b5 10. O—O—O,
Ra5 o.s.frv.).
8. Bb3
(Venjuiega er leikið hér strax
8. De2 ásamt 9. O—0—0, en
leikjaröðin breytir litlu).
8. —, 0—0
9. I)e2, Da5
(Geiler víkur áf- hrnni venju-
bundnu leið 9. —, a6.)
xo. 0—0—0, Rxd4
11. Bxd4, Bd7
12. Kbl, Bc6
(í sama móti lék Júgóslavinn
Sofrevsky 12. —, IIad8 á móti
Fischer, en lenti i erfiðleikum
eftir 13. De3! Framhaldið varð:
13. —, b6? 14. Bxf6, gxf6? 15.
Rd5!, Hfe8 (Ekki 15. —, exdð
16. Hxd5, Da6 17. Hih5 og vinnur.)
16. Rxe7f. Hxe7 17. Hxd6, Hc8
18. Dd4, Be8 19. Dxf6, gefið).
13. f4, Had8
14. Hhfl
(14. f5 strax kemur mjög sterk-
iega til greina. Einnig 14. g4 o.
s. fl'V.)
14. —, b5
(Eða 14. —, d5 15. e5. Re4 16.
f5 og hvítur heldur frumkvæðinu)
15. f5!
(Teningunum er kastaö! Héðan í
frá veró'ur ekki aftur snúið.)
15. —, b4
16. fxe6-, bxc3
17. cxf7t, Kh8
18. Hf5!, Db4
19. Dfl-
(Sterkur leikur. Það tók Fischcr
u.þ.b. 45 mínútur að finna leik-
inn.)
19. —, Rxe4
(Þessi leikur reynist vel, en 19.
i —, Rg4 var betri leikur aö mati
Fischers.)
20. a3?
(Þessi leikur lciðir til taps.
Fischer fann ekki rétta leikinn
fyrr en við athugun á skákinni
síðar, 20. Df4. Sá leikur leiðir til
vinnings í öllum afbrigðum. T.d.
20. Df4, Rd2f 21. Hxd2. cxd2 22.
c3-, Dxb3 23. Bxg7f, Kxg'7 24.
Dg4f, Kh8 25. Dd4f og mátar.)
20. —, Db7
21. Df4, Ba4.
(Þessi leikur snýr skákinni al-
gjörlega við.)
22. Dg4, Bf6!
23. Hxf6, Bxb3!
Nú rann skyridilega upp ljós
fyrir Fischer. Eftir 24. Hf4 er
skákin til lykta leidd með —,
Ba2t. Eða 24. cxb3, Rxf6 og sv.
vinnur.
F. Ó.
KEFLAVIK — SUÐURNES
RAFTÆKI í ÚR VAU
FRYSTIKISTUR — KÆLISKÁPAR
SILTAL SJÁLFVIRKAR ÞVOTTAVÉLAR
KITCHENAID HRÆRIVÉLAR
RYKSUGUR — STRAUVÉLAR
STRAUJÁRN — VÖFFLUJÁRN
BRAUÐRISTAR — HRAÐS KATLAR
NllllllllllllllllUllllllllllllllilllllllllllllllllHIIIIHHH
RAFMAGNSRAKVÉLAR
hHIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIHIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIt
SJÖNVÖRP — FERÐATÆKl
1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHHIIIII
GERIÐ JÓLAINNKAUPIN í KAUPFÉLAGINU
KAUPFÉLAG SUDURNESJA
Hafnargötu 61, Keflavík.
Bótagreiðslur
almannatrygginganna
í Gullbringu- og Kjósarsýslu
Bótagreiðslur almannatrygginganna í Gullbring-a-
og Kjósarsýslu fara fram sem hér segir:
í Seltjarnarneshreppi, þriðjudaginn 1. desember
kl. 10—12 og 1—5.
í Mosfellshreppi, miðvikudaginn 2 .desember M.
1— 4.
í Kjalarneshreppi, fimmtudaginn 3. desember M.
2— 3.
í Kjósarhreppi, fimmtudaginn 3. desember kl.
4—5.
í Grindavíkurhreppi, föstudaginn 4. desember ká.
1.30—5.
í Njarðvíkurhreppi, mánudaginn 7. desember M.
1.30—5. '
í Gerðahreppi, þriðjudaginn 8. desember kl. 1—3.
í Miðneshreppi, þriðjudaginn 8. desember M. 4
—6.
Sýslumdðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
ROBBENS PLAST NYLON
Gólfflísar
MARGIR LITIR — PÓSTSENDUM —
MÁLNING & JÁRNVÖRUR H.F.
Laugavegi 23, sími 12876 — 11295