Tíminn - 04.12.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.12.1970, Blaðsíða 1
BLAÐ II 276. tbl. — Föstudagur 4. des. 1970. — 54. árg. Æðisgengið verð fyrir eitt málverk: Veröið dugar til framfærslu 154 þúsund fjölskyldna í 1 ár á flóðasvæðunum í Pakistan SB—Reykjavík, fimmtudag. Fólk er farið að venjast því, að málverk séu dýr, en það vekur óneitanlega til um- hugsunar, þegar eitt slíkt er selt á 500 milljónir ísi. króna. Þessi fjárhæð dugar nefnilega samkvæmt útreikningum, til . að sjá fyrir 154 þúsund fjöl- skyldum á flóðasvæðunum í Pakistan í heilt ár. Einnig hef- ur verið reiknað út, að það myndi taka verkamann þús- und ár, að vinna fyrir því. Málverkið, sem um ræðir, er frá 17. öld, eftir Velasques og er af Juan nokkrum de Pareja. Þetta málverk er ekki stórt, að- eins 60x45 sm. Hvernig víkur því við, að það geti verið 500 milljóna virði? Vegna þess meðal annars, að þarna er um að ræða verð- mæti, sem ekki eyðast. Þannig er þvi einnig fario' um frímerki og demanta. En hvers vegna þá einmitt þetta einstaka málverik? Listayerkasalar eru alltaf að leita að einhverju, sem er ein- stakt í sinni röð og allir vita, að gömul málverk eru dýr. Vela- squez er hins vegar talinn taka fram öllum hollenSku meisturun um og flestum þeim ítölsku og þá verður verðmismunurinn að sýna þann mun. Fjórir enskir málverkasafnarar eiga málverk eftir Velasques, sem hvert um sig er ta-lið jafnmikils virði og þetta, sem seldist um daginn í London á 500 milljónir. Áður en uppboðið í London fór fram, voru þau verk hins vegar ekki talin vrrði nema 250 milljóna en hækkuðu u-m helming á einni nóttu. Þannig -gengur það ekki fyrir sig á verö'bréfamörkuðum, aðeins á listamarkaðnum. Einn þessara fjögurra manna hefur til- kynnt, að hann ætli að senda Velasques-mynd sína á Lundúna- uppboðið næsta ár, en það er ekki víst, að hann fái lí'ka 500 milljónir fyrir það. Myndin, sem fullyrt er, aS tekln sé um miðja nótt. Á henni sést Edward og Mariu Piu, sem er lengst til vlnstrl. Kennedy ásamt ónafngreindum manni Pentagon njósnar um bandaríska þegna - hefur 14 milljónir á skrá KJ—Reykjavík, fimtudag. Á þriðjudaginn var skýrt frá því í sjónvarpsþætti í Banda- ríkjunum að á vegiun banda- ríska hersins starfi um eitt þúsund njósnarar í Bandaríkj unum sjálfum. Er hlutverk þessara njósnara að fylgjast með friðarhreyfingum, og njósna um ýmis samtök og stjórnmálahreyfingar þar í landi. Þetta kom fram í sjónvarps þætti, þar sem fimm fyrrver andi herforingjar komu frarn. Einn herforingjanna skýrði frá því ao' hann hefði verið búinn „vopnum“ eins og marijuana og áfengi, í tilraunum sínum til að komast að áformum hópa, sem eru á móti stríði. Sem dæmi um verkefni þess ara njósnara sögðu fimmmenn in-garnir frá því að þeir hefðu verið viðstaddir jarðarför M-artins Luthers Kings og flokksþing demokrata og repji- bli-kana 1063. Þessar yfirlýsingar herfor- ingjanna koma Bandaríkjamönn Fr nhald á bls. 18. Nýtt hney ksli h já Kennedy? Hln glaSa Marla Pia, sem Kennedy á a5 hafa dansað við alla nóttina Edward Kennedy, öldungadeild arþingmaður, er nú rétt einu sinni koininn í slúðurdálka æsi- fréttablaða. Nú er liann sagður hafa skemmt sér heila nótt í París með léttlyndri alvöruprins essu, sem heitir Maria Pia, og er dóltir Umberto, fyrrverandi Ítalíu kóngs, og er fyrrverandi eiginkona Alexanders Júgóslavíuprins, en þau eru skilin. Maria Pia er 35 ára gömul, og einkum þekkt fyrir svall og skemmtanafýkn. Sam- kvæmt slúðurblöðunum voru þau Kennedy og Maria Pia að skemmta sér á næturklúhbum Parísarborgar fram undir morgun, Miklar vaxtalækkanir í helztu iðnaöarríkiunum EJ—Reykjavík, fimmtudag. Flést lönd í kringum okkur hafa á undanförnum vikuni og mánuðum lækkað vexti verulega, og eru vextir á ís- landi nú hærri en um getur annars staðar í Vestur- Evrópu. Vaxtalækkanir hafa undanfar- ið átt sér stað í Vestur-Þýzka- andi, Bandaríkjunum, Kanada, Frákklandi, Belgíu og Japan svo helztu ríkin séu nefnd. 1 Bandaríkjunum voru vextir lækkaðir úr 5,75% í 5,50% á dögunum, en þremur vikum áð- nr voru þeir lækkaðir úr 6% í 5,75%. Eru vextir í Bandaríkjun um því orðnir mjög lágir miðað við mörg önnur lönd, þar sem vextir eru almennt 6—7,5%. Hér á eftir fer yfirlit yfir bankavexti í nokkrum helztu iðn- aðarríkjum eins og þeir eru i dag: Danmörk, 9, Frakkland 7,5, Belgía 7,5, Bretland 7. Svíþjóð 7. Vestur Þýzkaland 6,5, Japavi 6,25, Kanada 6, Hoiland 6, Banda ríkin 5,5, Austurríki 5, Noregur 4,5 og Sviss 3,75%. Eins og þetta ber með sér, eru vex-tir í þessum löndum lægri cn hér á landi, og víðast hvar miklu lægri, en hér eru vextir 9,5% og jafnvel í ymsum tilvikum 10%. Vaxtalækkun hefur ekki átt sér stað hér á landi um langan tíma, én hins vegar hafa vextir fario’ sífelit liækKandi rneð árunum. nóttina áður en De Gaulle var jarðaður. Aftur á móti segir blaða fulltrúi Kennedys, að hann þekki ekki prinsessuna og hafi aldrei séð hana og sé samdráttur þeirra uppspuni frá rótum ,og að mynd- ir þær sem birtar voru af þeim nóttina góðu séu falsaðar. Öldungadeildarþing-maðurinn fór til Parísár á sinum tíma, ti-1 að vera viótstaddur minningarathöfn um De Gaulle, sem haldin var í Notre Dame kirkjunni. Að því er fréttaritarar kjafta blaðanna segja, var hann að sjá mjög þreyttur og fölur þegar hann kom í kirkjuna. Voru menn ekki lengi að komast að ástæð unni. Hann hafði hitt Piu prins essu, sem ekki hefur nema meðal gott orð á sér, og þau skemmtu sér á næturklúbbum fram undir morgun. Blöð í Frakklandi og Bretlandi gerðu sér mikinn mat úr þessu hneyksli o-g birtu frá sagnir og myndir af þessu fólki við næturiðjuna. Var látið fyl-gja að þar meó1 væri pólitískur ferill Edwards Kennedy á enda. Hann hafi að vísu sloppið tiltölulega vel út úr hneykslinu í hitteðfyrra er hann ók með stúlku út af brú við Chappaquiddick, og hún fórst. í nýafstöðnum kosningm til öldungadeildarinnar fékik Kenne dy mikinn meirihluta atkvæða. Sagt er að Kennedyfj-ölskyldan hafi reynt að ko-ma í veg fyrir birtingu frétta og my-nda af næt- urævintýri Kennedys í París, en ekki tekizt. Framhald á bls. 18.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.