Tíminn - 10.12.1970, Blaðsíða 2
■J
2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 10. desember 1970
Framhald al bls. 1
vill of seint. Hér þyrfti að setja
reglur um, að ná'kvæm athugun
skuii fara fram á því, hvers kon-
ar mengun allur sá ióínrekstur,
sem hér kann að verða settur á
laggirnar, getur valdið á utmhverf-
inu og gerðar fullnægjandi ráð-
stafanir til að boma í veg fyrir
hana með viðeigandi hreinsunar-
aðferðum. Þar duga engin vettl-
ingatök og óteljandi dæmi frá
öðrum löndum sýna að ekki er
einhiítt að treysta á fullyrðmgar
þeirra, sem að iðnrekstrinum
standa, heldur verður hið opin-
bera að taka málin í sínar hendur
af framsýni og með framtiðarheill
lands og lýðs í huga, en ekki ein-
blína á stundarhagsmuni.
Fyrst og fremst efnamengun
Hér er fyrst og fremst um að
ræða efnamengun af ýmsu tagi,
bæði I fersku vatni og söltu og
andrúmslofti, jarðvegi og lífver-
um. Mengun fersks vatns af gervi-
sápum er víða um lönd mikið
vandamál, einkum þeirra sápuefna
sem innihalda fosföt, en lítið er
vitað um hana hér. Frárennsli
frá ýmiss konar iðnaði getur inni-
haldið alls konar varhugaverð efni
sem spilla því vatni sem frárennsl-
ið blandast saman við og igera
það óhæft til neyzlu og hættulegt
öllu lífi. Er þar rétt að benda á
að úrgangsefni frá skinnaiðnaði,
t.d. sútun, eru víða talin viðsjár-
verð, en ekki er vitað að neinar
rannspknir hafi verið gerðar á
mengun frá slíkum verksmiðjum
sem eru nú komnar upp á nokkr-
um stöðum á landinu, t.d. Akra-
nesi, Akureyri, Borgarnesi, Reykja
vik og á Sauðárkróki. >á er einn-
ig rétt að benda á, að nauðsyn-
legt er að athuga mengunarhættu
frá frárennsli uilarþvottastöóVar-
innar í Hveragerði.
Frórennsli iðnfyrirtækja
og hitaveitu
í mörgum löndum eru ákveðn-
ar reglur um hámarkshitastig frá-
rennslisvatns frá iðnaði og orku-
vinnslu en þó eru menn víða ugg-
andi um hvað gera skuli við hið
mikla magn af heitu frárennslis-
vatni sem kemur frá kjarnorku-
verum. Hér á landi þarf að fylgj-
ast vel með því, hver áhrif frá-
rennslisvatn hitaveitna kann að
hafa á hitastig og þar með líf
þeirra vatnsfalla og stöðuvatna sem
það er leitt í, en reglur um há-
markshitastig slíks frárennslis erú
hér engar til og þarf því að vinna
acI setningu slíkra reglna. Eink-
um verður brýn þörf á varúð í
sambandi við frárennslisvatn igufu
orkuveitna, sem er það heitt að
óhjákvæmilegt er að kæla það
verulega og þá helzt með því að
nýta hita þess á einhvern hátt,
eins og bent hefur verið á af
tæknimönnum sem um þau mál
fjalla.
Olíuhreinsunarstöð
Loftkennd úrgangsefni frá iðn-
rekstri eru líka mjög viðsjárverð,
einkum súrefnissamhönd af brenni
steini og flúor og er því augljóst
að samfara vaxandi iðnvæó*ingu
þarf auknar rannsóknir á mengun-
arhættu sem frá iðnrekstrinum
kann að stafa og skal hér aftur
bent á Áburðarverksmiðjuna, þar
sem rannsóknar er þörf. Einnig
má benda á, að olíuhreinsunar-
stöðvum fylgir víðast allmikil
mengunarhætta, auk hvimleiðs
ódauns, og þarf því að viðhafa alla
gát frá byrjun, nú þegar rætt er
um að koma á fót slíkri stöð 'hér
á landi. M.a. virðist varhugavert
ao' ætla henni stað í næsta ná-
grenni Reykjavikur, eins og sézt
hefur imprað á í dagbl’öðum, þar
sem hún gæti verið komin inn á
borgarsvæðið eftir 20—30 ár.
Fiskimjöls- og síldar-
verksmiðjur
Andrúmsloft í sjávarþorpum og
bæjum er oft mjög mengað af
megnum óþef úr reyk fiskimjöls-
og síldarverksmiðja og kveður
rnest að slíkri mengun í þröngum
fjörðum þar sem hún veldur
fólki oft miklum óþægindum. Þó
slík mengun sé ef til vill ekki
bráðhættuleg, þá getur faún verið
heilsuspilandi og því er nauöfeyn
frekari rannsókna á þessu sviði
og athugana á því hvort ekki er
hægt að fyrirbyggja slíka mengun
meö' hreinsun reyksins.
Skólpfrárennsli þorpa
og bæja
Sjórinn við strendurnar er all-
víða mengaður af skólpfrárennsl
þorpa og bæja, eins og áður er
getið og einnig af frárennsli frá
fiskiðju, og þarf hið fyrsta að
hefja athugun á bví, á hvem hátt
eir hægt að leysa það vandamál,
því ekki er endalaust hægt að
nota firði og víkur og _ f jörur
þeirra sem sorpgeymslu. í raun-
inni ætti að setja strangar reglur
um sorp- og skólpmál um allt
land byggðar á niðurstöóáim rann-
sókna í þessum efnum. í fram-
haldi af því er rétt að vekja at-
hygli á, að fyrir fáum árum var
lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um endurskoðun á þeim kafla
hinna gömlu vatnalaga frá 1923,
sem fjallar um óhreinkun vatns.
Þar er m. a. að finna
ákvæði sem heimila algera frið
lýsingu svæö'a umhverfis og í ná-
grenni vatnsbóla. Einhverra hluta
vegna hefur þetta frumvarp ekki
enn náð fram að ganga og þyrftu
þó ýmis ákvæði þess að vera enn
ákveðnari en þau eru. T.d. væri
athugandi að setja ákvæði um,
að eignarréttur vatns, hvort sem
er rennandi vatns eða kyrrstæðs
vatns í sveit eða bæ, nái ekki það
langt, að heimilt sé að spilla vatn-
inu með því að ieiða í það olíu,
skólp eða annan úrgang.
Olíumengun frá skipum
og bátum
Hætta á olíumengun er þó nokk
ur hér á landi, bæði frá skipum
o,g bátum og eins frá olíutönkum
við hús sem hituð eru upp með
olíu, einkum er hætt við að frá-
gangi olíutanka við sumarbústaði
sé ábótavant, en þeir standa ein-
mitt oft á stöðum setn viðkvæmir
væru fyrir olíumengun. Þarf því
hið fyrsta að setja strangar regl-
ur um frágang olíutanka við hús.
Eins er orðið mjög aðkallandi að
koma upp viðunandi aðstöðu í
landi til að taka við olíusora, sem
skip þurfa að losna við.
Skordýraeitur
Hér á landi hefur frekar lítið
verið notað af efnum til að eyða
skordýram, illgresi og öðrum pest
um sem herja á nytjaplöntur, þ.e.
þeim efaum, sem nefnd eru
,,pesticides“ á ensku. >ó er nokkuð
flutt inn af slíkum efnum til not-
kunar í gróðurhúsum, matjurta-
görðum og skrúðgörðum og hefur
verið svo um r.okkurt árabil. T.d.
var árin 1967 og 1968 flutt inn um
4% tonn af DDT, sem nú hefur
algerlega verið bannað að nota
í nokkrum löndum, en nokkru
minna bæði 1966 og 1969. Auk
þess hefur nokkuð verið flutt inn
og notað árlega af ýmsum öðrum
efnum í sama augnamiði, en
mörg þeirra eru veikari og hættu-
minni en DDT. Þrátt fyrir þetta
voru einungis til mjög ófullkomn
ar reglur um innflutning og notk-
un þessara efna hér allt fram til
s.l. áramóta, að hin aýju lög um
eiturefni og hættuleg efni gengu
í. gildi. Eins hafa sáralitlar eða
engar rannsóknir verið gorðar..á.
þeim jarðvegi þar sem 'þessi efni
faafa verið 0.0116, með tilliti til
þess hve mikið af þeim kann
smám saman að hafa safnazt fyrir
í honum, eða hvort þessi efni
kunna að hafa borizt í ár og vötn,
en mörg þeirra eru einmitt þekkt
að því að eyðast ákaflega seint
í náttúrunni. Úr þessu er brýn
þörf að bæta hið allra fyrsta.
Jafnhliða er efcki minni nauðsyn
að rannsaka, hvort þau matvæl
úr plönturíkinu, sem ræktuð eru
þar sem slík eyðingarefni eru not
uð, hafa mengazt af þeim, og
einnig þarf að rannsaka villtar
plöntur hér á landi í sama au/jna
miði, einkum þær sem fénaður lif
ir á úti um hagann.
Sauðf járböðunarefni
Annað hvert ár eru flutt inn um
12 tonn af efni, lindan (Hexecíd),
sem notað er til böðunar sauðfjár
og er allsterkt eyðingarefni.
Fyllsta ástæða er að rannsaka,
hvað um þetta efni venður, þegar
það hefur verið notað, hvort því
er t.d. einfaldlega veitt beint út
í næsta læk eða á, þar sem það
gæti gert skaða. Eins og áður er
getið, hefur þetta efni fundizt í
smjörsýnum hér, og er nauðsyn
frekari rannsókna á hugsanJegri
mengun matvæla af þessu • efni.
Frekari rannsókna er einnig þörf
á mengun mjólkur af sýMalyfjum,
sem áður er minnzt á, þannig að
samfelldar rannsóknir á þessu
sviði verði gerðár um allt land.
Reglugerð þá, sem nú er í gildi um
mjólk og mjólkurvörur þarf einnig
að endurskoða og gera ýmis á-
kvæði bennar strangari, enda er
hún orðin 17 ára gömul. Þá þarf
að rannsaka og setja fastar reglur
um hvaða efni, svo sem litar- og
rotvarnarefni megi nota í matvæla
i'ðnaði, en um það gilda býsna
strangar reglur í mörgum löndum.
Nauðsynlegt er að athuga hvort
ekki er fært að skapa aðstöðu hér
á landi til að eyða leyfum hættu-
legra efna, t.d. gömlum birgðum
skordýraeiturs, að svo miklu leyti
sem sflk' eýðing er möguleg.
í nágrannalöndum okkar, t.d. f
Noregi og Svíþjóð, er mengun af
frárennsli frá súrheysgerð og frá
mykju í ár og vötn talin veruleg.
Hér þyrfti að rannsaka þessa hluti
og menn almennt að gera sér grein
fyrir því, að ekki er sama hvert
sMkt frárennsli lendir.
0pi6 til M.4
slls laugspíaga
TÍZKIVEFZLIM
L9t!gavegi37ogSý