Tíminn - 10.12.1970, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 10. desember 1970
TIMINN
Orsending frá Happdrætti
' Framsóknarfiokksins
Þeir, sem fengið hafa heim- Tekið er á móti uppgjöri á
senda miða eru vinsamlega afgr. Tímans Bankastræti 7 á
hvattir til að gera skil til happ- afgreiðslutíma blaðsins »g jiar
drættisskrifstofunnar Hring- eru líka seldir miðar í lausa-
braut 30 ( á horni Hringbraut sölu, svo og úr hjólhýsinu sem
ar og Tjaraargötu), við fyrsta er til sýnis á lóðinni Austur-
tækifæri. Skrifstofan er opin stræti 1.
frá kl. 9—19,00 næstu daga.
Söngsveitin Fílharmónía og Sinfóníuhljóm
sveitin flytja 9. sinfóníu Beethovens
HÖFÐINGLEG GJÖF TIL LR
Lei'kfélagi Reykjavíkur hefur
borizt höflðingleg gjöf. Eyjólfur
Þórðarson frá Laugabóli við ísa-
fjarðardjúp ánafnaði félaginu gott
safn leikrita, sem út hafa komið á
íslenzku. Safnið hefur enn ekki
verið sknáð af Leikfélagsmönn-
um, en nærri mun láta, að þar
séu flest þau leikrit, sem gengið
hafa á prent á ísfandi. Safninu
hefur til bráðabirgða verið komið
Allt innan-
landsflug
lá niðri
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Allt inanilandsflug hefur legið
niðri í dag, vegna veðurs. í morg
un rofaði svolítið til og lagði ein
af flugvélum Flugfélags fslands af
stað til Akureyrar, en vélinni var
bráðlega snúið við þar sem flug-
völlurinn á Akureyri lokaðist.
Þótt veður hafi verið gott í
Reykjavík er etoki hið sama að
segja um þá staði úti á landi sem
fljúga átti til. Undanfarna daga
hefur innanlandsflugið yfirleitt
gengið heldur ilila vegna veðurs-
ins, en í gær var ágætt veðar og
var þá flogið til allra þeirra staða
sem áætlun var til. Millilandaflug
hefur ekkert tafizt.
I
Kveðja frá
Loftleiðum
Stjórnendum Loftleiða h.f.
er það mikið hryggðarefni, aX)
þurfa á bak að sjá fjórum
ágætis mönnum, úr flugliði fé-
lagsins, sem fórust í flugslysi
við Dacca í Pakistan. Það eru
þeir:
Ómar Tómasson, flugstjóri
Birgir Örn Jónsson, flugmaður
Stefán Ólafsson, flugvélstjóri
Jean Paul Tompers, hleðslustj.
Allir höfðu þessir flugliðar
starfað um árabil hjá félag-
inu, þótt þeir að þessu sinni
flygju á vegum annars félags
og hefðu ráðizt til þess um
stundarsakir.
Þessara manna verður get-
ið ítarlega af öðrum og starfs-
ferill þeirra rakinn. í þakk-
látri minningu vilja stjórnend-
ur Loftleio'a h.f. votta aðstand
endum allra þessara manna
innilega hluttekningu.
9. desember 1970.
Kristján Guðlaugsson.
Sinfóníuhljómsveit íslands minn
ist 200 ára afmælis Beethovens
með flutningi 9. sinfóníunnar, sem
verður flutt á 6. reglulegu tón-
leikum hljómsveitarinnar í dag
fimmtudag kl. 21,00 og ,'augard. 12.
desember kl. 14.30 í Háskólabíói.
Stjórnandi er dr. Róbert A.
Ottósson og flytjendur einsöngv-
ararnir Svala Nielsen, Sigurveig
Hjaltesf.ed, Sigurður Björnsson og
Guðmundur Jónsson og Söngsveit-
in Fílharmonía.
Níunda sinfónía Beethovens var
frumflutt í Vín hinn 7. maí árið
1824, ásamt þrem þáttum Missa
fyrir í skri&tofuherbergi Leik- Solemnis. 142 árum síoiar eða í
félagsins í Thor Jensenshúsinu, að . febrúar 1966 var hún flutt í fyrsta
Fríkirkjuvegi 11. Safn þetta mun ; sinn hérlendis undir stjórn dr.
síðar verða uppistaða í bókasa-fni, I Róberts A. Ottóssonar. Flytjendur
sem að sjálfsögðu hlýtur að verða voru hinir sömu og flytja hana
í Borgarleikhúsi framtíðarinnar. I að þessu sinni. Var hún þá flutt
Það voru ættingjar Eyjólfs heit j firnm sinnum í Háskólabíói fyrir
ins Þónðarsonar, sem afhentu Leik ! fullu húsi áheyrenda.
félaginu safnið, en hann hafði
safnað þessum bókum af mikilli
nærfærni og kostgæfni.
Leikfélag Reykjavíkur kann ætt
ingjum gefandans hinar beztu
þakkir fyrir þeirra hluta.
Kökubazar
Hörpukvenna
Kvenfélagið Harpa heldur köku
bazar lau-gardaginn 12. des. kl. 3
síðdegis að Strandgötu 33. Hafn-
arfirði. Félagskonur, vinsamlegast
skilið kökunum að Strandgötu 33
eftir kl. 8 á föstudagskvöld 11.
des. Bazarnefndin.
Sön-gsveitin Filharmonía var
stofnuð haustið 1959. Hefur hún
leitazt við að flytja að minnsta
kosti eitt meiri háttar kórv-erk
með h-ljómsveit ár hvert, og með-
al þeirra verka, sem söngsveitin
hefur átt þátt í að flytja er 9.
sinfónían eftir Beethoven.
Söngsveitin tekur nú þátt í
flutningi 9. sinfóníu Beetho-vens
öðru sinni. Það hefur auðveldað
mjög undirbúning fyrirhugaðra
tónleika, at) margitr, sem þá tóku
þátt í flutningi verksins eru enn
starfandi í söngsveitinni. Æfingar
hófust 30. --.eptember s.l. og hef-
ur Martin Hunger organleikari
verið dr. Róbert til aðstoðar við
æfingar, sem hafa verið 1—2svar
í viku. Söngsveitin er nú fjöl-
Ný sjálfvirk símstöð | mennari en nokkru sinni fyrr og
' U f. v. | er hún skipuð rúmlega 150 söngv-
I Hornatiroi Í mönnu-m og söngkonum.
, , . „ , , _ ■ f stjórn söngsveitai’innar eru
Fimmtudaginn 18. þessa manað-. nú; Gerður G .Bjarklind, Gestur
ar kl. 17,00 verður opnuð sjalfvirk I G;5]as0n. Guðríður Magnúsdóttir,
simstoð í Höfn í Hornafirði. Svæð-I Hei,ga Guðmundsdóttir og Ragn-
ísnumerið er 97, en notendanúmer j ar Árnason.
8100 til 8299. Stöði-n er gerð fyr- i
ir 200 núm-er, en 157 núm-er verða j
nú ten-gd við hana.
Þetta er 57. sjálfvirka stöðin í
landinu.
Enn-fremur má geta þess, að
póstur og sími í Höfn hefur verið
sameinaður og afgreiðslan er flutt
í nýtt póst- og símahús þar.
Póst- og símaaf-greiðslan í Nes-
kaupstað hefu-r einni-g verið flutt
í nýtt póst- og símahús.
Rvík, 8. des. 1970.
Frá Póst- og sfmamálastjórn.
Framsóknar-
félag Rvíkur
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur verður þriðjudaginn
15. desember, kl. 20,30 i Glaum
bæ, uppi. Fundarefni Venj-uieg
aðalfundarstörf, þar á rneðal kosn
in-g fulltrúa í Fuiltrúaráðið. Nán
ar auglýst síðar. Stjórnin.
HAPPDRÆTTtO
100 EIÆSILEO
Á þorláksinessu, 23. þ.m. verð
ur dregið um 100 glæsilega
vinninga i Happdrætti Fram-
sóknarflokksins. Meðal vinn-
inganna að þessu sinni eru
tveir húsvagnar, einn snjó-
sleði, vetrarferð fyrir tvo til
Kanaríeyja, málverk frá Þing
völlum eftir Jón Stefánsson
og annað, Öræfajökull, eftir
Höskuld Björnsson svo eitt-
hvað sé nefnt. Segja má, að
vinningar þessa happdrættis
séu hver öðrum cigulegri og
listaverk þessi t.d. verða í raun
inni ekki metin til fjár.
Pantið miða i síma 244 83, en
þeir sem hafa fengið heim-
senda miða eru beðnir að gera
«kil sem allra fyrst.
WILLIAM
SHAKESPEARE
Bókaútgáfan Heimskringla liefur þá ánægju að til-
kynna yður að fimmta bindi Shakespeares-leikrita
er komið á prent, en þarmeð standa yður til boða
fjórtán af leikritum Shakespeares í íslenzkum
búningi hins mikilhæfa þýðanda:
Helga Hálfdanarsonar
I
Draumur á Jónsmessunótt
Rómeó og Júlía
Sem yður þóknast
II
Júlíus Sesar
Ofviðrið
Hinrik fjórði (fyrra leikritið)
m
Hinrik fjórði (síðara Ieikritið)
Makbeð
Þrettándakvöld
IV
Allt í misgripum
Anton og Kleópatra
Vindsórkonurnar kátu
V
Hamlet Danaprins
Lér konungur
Fáein orð um Shakespeare
og samtíð hans
Verð ib.: kr. 1.980,00+söluskattur.
Nokkur eintök eru til af öllu safninu í skinnbandi.
Verð kr. 2.500,00+söluskattur.
HEIMSKRINGLA
ARGUS