Tíminn - 03.01.1971, Síða 6
6
Varnar-
lausum
börnum
misþyrmt
Evrópuráðið hefur lagt fram tillögur um rétt-
indaskrá barna, þannig að komið verði í veg fyrir
illa meðferð þeirra. Aðalatriðið er vernd ung-
menna, sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér.
Lagt er til að læknar séu leystir undan þagnar-
skyldu og að séð sé fyrir aðstoð bæði til handa
iUa meðförnum börnum og foreldrum þeirra.
Jafnvel hinir mesta ágætis-
foreldrar kunna að sleppa sér
og slá um óf til barnanna. Það
getur verið skiljanlegt, en ekki
«r alltaf hægt að fyrirgefa það.
En hvað þá um móðurina,
sem missir þolinmæðina vegna
þess að barnið er ekki nógu
duglegt að drefcka og rekur
því pelann í muan þess eins
og verið væri að beita pynting
artækjum frá miðöldum, þann
ig að bamið verður marið og
blóðugt?
Eða hvað um föðurinn, sem
lætur grát sonarins fara í taug
arnar á sér og lemur hann, ekki
aðeins einu sinni eða tvisvar,
heldur e.t.v. 20—30 högg?
Þetta eru daglegir viðburðir
og það jafnvel í siðmenntuð-
ustu framfaralöndum heims,
eins og Bandaríkjunum, löad-
um Vestur-Evrópu og Norður-
löndum.
Að sjálfsögðu er ill meðferð
barna ekki eins algengur hlut-
ur og áður var. Hætt er að
senda 8—10 ára börn niður
í námur til að ýta kolavögnum
eða út á akra til að þræla
myrkranna á milli og inn í loft
MALVERK
Pallegt málverb er góð
iólagiöi Við höfum tiJ
sölu t mörgum stærðum.
úrvals listaverk þekktra
listamanna.
Málverkasalan, Týsgötu 3.
Sími 17602.
lausa og SÓtuga ' skorsteina,
sem þrífa þarf.
Allt um það er alvarlegt og
ógnvekjandi til þess að hugsa.
að á tímum allsnægta og auk-
inna þæginda skuli þúsundam
barna líða mjög illa, þótt ekki
heyrist til þeirra.
MANNRÉTTINDASKRÁ
BARNANNA
Sérfræðingar í málefnum
bama og félagsmálafu'/rúar
hafa iátið í ljós sívaxandi
áhyggjur sínar. Og ráðgjafa-
þing Evróþuráðsins hefur svo
miklar áhyggjur, að það hefur
gert drög að ítarlegum tillög-
um um hvernig útrýma beri
því, sem hugsandi, fullorðið
fólk telur óþolandi félagslegt
vandamál.
Tiilöguna má gjarnan kalla
„Mannréttindaskrá barnanaa",
því meginreglan er vernd ung-
menna, sem ekki geta veitt sér
vörn.
Öllum er kunnugt um að
grimmdin birtist í ýmsum
myndurn. Hún getur verið and-
leg og líkamleg eða hvoru
tveggja.
Áhyggjur manna beinast nú
til dags aðallega að .því, sem
kallað hefur verið tilfelli mis-
þyrmdra barna eftir orðala^i
Bandaríkjamannsins C. Henry
Kempe. Hann notaði þetta orða
lag eftir að hafa skoðað börn,
sem hjúkrað hafði verið í
sjúkrahúsum vegna meiðsla er
ekki hlutust af slysförum, og
síðan hefur okkur aukizt þekk
ing á þessu vandamáli.
Menn eru yfirleitt sammála
um að mest sé áhættan fyrir
börn, sem eru innan við 4ra
ára gömul. En sérfræðingai
eru ekki samdóma um hvaða
tegund foreldra er líklegust til
að gera sig seka um slík
grimmdarverk.
TÍMINN
SUNNUDAGUR 3. janúar 1971
'Ii iVt iit f’V ú ók -H'i>tr, -<uL— , , , , ,
Á tímum alfsnægta er óskaplegt til þess að hugsa að þúsundir barna þola önn, án þess að frá þeim heyrist
Myndin er frá velferðarstofnun barna í sjúkrahúsi í Strassborg.
MÆÐUR, SEM GETA EKKI
GEGNT IILUTVERKI SÍNU
Evrópuráðið hefur talið að
mæður, sem geta ekki gegnt
hlutverki sínu, séu venjulega
í lágstéttum, búi í heilsuspill-
andi og þröngu húsnæði og
eigi stórar fjölskyldur. Oft er
ofdrykkja ein helzta ors'ök
hegðunar þeirra.
En nokkur rannsókn hefur
leitt í ljós að foreldrum úr mið
stétt, sem líta virðulega út og
hafa sæmilega góð efni, kann
að vera jafn gjarnt að fara
illa með börn sín.
Eigi þetta fólk nofckuð sam-
eiginlegt er það, að það hefur
sjálft farið á mis við kærleika.
Móðirin getur ekki gegnt hlut-
verki sínu vegna þess að hún
hefur aldrei sjálf notið saunr-
ar móðurástar í æsku. Eins
líklegt er að faðirinn sé upp-
alinn á heimili þar sem lítið
hefur verið úm ástúð, jafnvel
þótt skilyrði hafi verið hag.
stæð.
Þau hrópa á hjálp alveg eins
og hin ólánssömu fórnardýr
þeirra.
Þannig er nokkuð almennt
viðurkennt að lítið hafis' upp
úr að hegna foreldrunum. Það
leysir ekki vanda barns.
ALLIR GETA VEITT
AÐSTOÐ
Ein helzta tillaga Evrópu-
ráðsins er að leysa bæri lækna
undan þagnarskyldunni, sem
kemur oft í veg fyrir að þeir
geti látið viðkomandi yfirvöld
vita um illa meðferð, er þeir
komast að raun um í daglegu
starfi sínu.
Ámóta mikilsverð er áskorun
ráðsins um félagsmálaþjónustu,
er hafi yfir að ráða nægu fé
og starfsliði til að geta hjálpað
bæði illa meðförnum böruum
og foreldrum þeirra.
En allur almenningur gæti
veitt meiri aðstoð. Vissu’.ega
er furðulegt, hversu margir
nágrannar fylgjast vel með því,
að litli drengurinn eða stúlkan
í næsta húsi líði ólýsanlegar
kvalir án þess að gera neitt
í því, af því þeir óttast að
Út er kominn nýr upplýsinga-
bæklingur um ísland á ensku,
Handy Facts on Iceland, helztu
upplýsingar um land og þjóð í
samþjöppuðu formi. Hann er í
handhægu broti, 64 blaðsíður, ein-
göngu með litmyndum, sem eru
36 talsins. Ennfremur er í bækl-
ingnum litprentað kort af fslandi.
Það er Atlantica & ICELAND
REVIEW, sem gefur þennan
bækling út, og er hann sá fyrsti
í fyrirhuguðum flokki handbóka
með þessu sniði, ætlaður erlend-
um ferðamönnum á íslandi og til
dreifingar erlendis.
Eins og nafnið bendir til, fjallar
„Handy Facts on Iceland" um land
og þjóð í heild .skiptist i tvo
meginkafla, þar sem annars vegar
er fjallað um helztu staðreyndir
í sambandi við ísland, legu þess,
náttúru og^ veður. Hinn kaflinn
fjallar um íslendinga, sögu þjóðarl
innar, stjórnarfar, menntun ogl
flækjast í málið. Þeir lofca aug
unum, leggja hlustirnar ekki
við og segja ekkert um það,
sem þeim býr í brjósti.
Á síðustu áratugum hafa
menn komizt til tunglsins og
tekið meiri framförum en for-
feður þeirra gat látið sig
dreyma um.
En meðan eitt lítið barn sæt
ir illri meðferð og hljóðar af
sársauka, eigum við mjög langt
í land og höfum litið sem ekk-
ert af að státa.
James Render.
menningu o.s.frv. Kaflaskipting er
annars sem hér segir:
Landfræðileg lega, Eldfjöll,
Hverir, Jöklar, Fljót og vötn,
Gróður, Dýralíf, Veður. Þá er:
Fólkið í landinu, Saga, Nokkur
söguleg ártöl, Reykjavík, Helztu
kaupstaðir, Stjórnarfar, Utanríkis
þjónusta, Sendiráð og ræðismanns
skrifstofur á íslandi, Menning,
Menntun, Menningarlegar stofnan
ir í Reykjavík. Þjóðfélagsmál, At-
vinnuvegir, Ferðamál og samgöng
ur, Gagnlegar applýsingar fyrir
ferðamenn, íþróttir og tómstunda
iðja.
Textann hefur Sigurður A.
Magnússon tekið saman í samráði
við útgefendur, en útlit annaðist
Gísli B Björnsson Engar auglýs-
ingar eru í Handy Facts on Ice-
land, sem auk staðgóðra og gagn-
legra upplýsinga flytur fjðldann
allan af falle.gum litmyndum frá
ýmsum stöðum á alndinu, eins og
fyrr greinir.
HANDY FACTS ON ICELAND