Tíminn - 03.01.1971, Page 16
Hafís eina
vörnin!
EB-Rvík, laugardag.
Mikil snjókoma var á ísafirSi
í nótt. Sagði fréttaritari blaðsins
á ísafirði, Guðmundur Sveinsson
í viðtali við blaðið í morgun, að
snjóiagið væri um 30 cm. Hins
vegar rigndi á ísafirði fram eftir
deginum í gær. Sagði Guðmundur
að nú væri ísinn skammt undan,
sem er eina vörn Vestfirðinga
fyrir ásókn erlendra togara á mið-
in þar vestra svo og eina vörn
fiskistofnsins þar.
Stórum verksmiðjutogurum hef
ur fjölgað mjög á fiskimiðunum
fyrir Vestfjörðum á síðustu mán-
uðum. Togarar þessir geta veitt
í mun verra veðri en önnur fiski-
skip og er mikill hafís það eina
sem hamlar því að stóru togararnir
geti mokað upp fiski á þessum
slóðum nær allan ársins hring.
Það er ekki nema í aftakaveðrum
sem verksmvðjutogararnir leita
vars eða í hafnir.
Brennur voru á víð og dreif um alla borgina á gamlaárs kvöld, og munu þaer hafa verið naer fjörutíu talsins.
Ljósmyndari Tímans, Gunnar, tók þessa mynd vlð borg arþrennuna svokölluðu, sem var við Miklubraut og var
það stærsta brennan í borginni.
ARIÐ KVATT MED ELDI
Jónas Kristjánsson
Jónas forstöðu-
maður Handrita
stofnunarinnar
Daginn fyrir gamlársdag mælti
menntamálaráðhcrra með því við
forseta fslands, að Jónasi Krist-
jánssyni, handritafræðingi, yrði
veitt staða forstöðumanns Hæid-
ritastofnunarinnar, en áður hafði
heimspekideild mælt með honum
í stöðuna að fenginni álitsgerð
þriggja tilkvatldra manna. Mun
Jónas Kristjánsson taka við starf
inu nú um áramótin af prófessor
Einari Ólafi Sveinssyni, sem veitt
hefur stofnuninni forstöðu frá
stofnun.
Jónas Kristjánsson fæddist 10.
apríl 1924 að Fremstafelli í S-
Þingeyjarsýslu. Varð stúdent frá
Menntaskólanum í Keykjavík 1943
og cand. mag. í íslenzkum fræð-
um frá Háskóla íslands 1948.
Síðan starfaóá hann við hand-
ritarannsóknir og útgáfu hand-
rita við Árnasafn í Kaup-
mannahöfn til 1952. Þá varð hann
skjalavörður við Þjóðskjalasafnið
og ráðinn sérfræðingur við Hand-
ritastofnunina 1963 og hefur starf
að þar síðan.
Eftir Jónas liggja allmörg fræði
Sunnlendingar —
rit, útgáfur og þýðingar, svo og
margar greinar og-ritgerðir. Síðast
í haust kom út bókin Handritin
og fornsögurnar eftir hann. Á
næstunni mun koma út bók um
rannsóknir hans á Fóstbræðra-
sögu, og hefur heionspekideild met
ið hana gilda til doktorsvarnar.
og mun doktorsvörn fara fram á
þessu ári.
Áramótin gengu stórslysalaust
fyrir sig um allt land. Mikið var
um gleðskap í hinu bezta veðri,
og sums staðar, svo sem í Reykja-
vík og Hafnarfirði var mikið um
ölvun, og liafði lögreglan meira
cn nóg að gera fram eftir aðfara-
nótt nýársdags. Áberand| var,
hversu ölvun í heimahúsum hefur
mjög aukizt frá síðustu áramót-
um, en liins vegar verið minna
um ölvun og ærsl á almannafæri,
að sögn lögreglunnar í höfuðborg
inni.
Mikil umferð var í Reykjavík
í sambandi við brennurnar á gaml-
árskvöld, en að sögn lögreglunnar
var kvöldið tiltölulega rólegt. En
þegar Oíða tók á nóttina var mik-
iö' að gera vegna ölvunar borgar-
anna. Var lögreglan kölluð út á
80 staði og vora útköllin nær öll í
sambandi við ölvun á almanna-
færi og í heimahúsum.
Hefur erill lögireglunnar þessa
nótt minnkað mikið í sambandi
við ærsl á almannafæri, en fjölg-
að mikið vegna drykkjuláta í
heimaihúsum. Rólegt var í borg-
inni fram að þeim tíma að dans-
leikjum lauk, en þá fékk lögregl-
an nóg ag gera og var tnikið á
ferðinni fram undir morguo. Slys
uröu ekki teljandi nema smávægi-
leg meiðsl.
’S.l. nótt varð umferðarslys rétt
fyrir kl. 2.30. Þá varð harður
árekstur á mótum Mikluibrautar og
Grensásvegar. Voru báðir bílarn-
ir á Grensásvegi og komu á móti
hvor öðrum. í öðrum bílnum var
ein kona og í hinum karlmaður og
tvö börn, 12-og 14 ára. Slasaðist
allt fólkið og var flutt á slysa-
deild Borgarspítalans og var gert
að meiðslum þess þar. 14 ára
telpa liggur enn á sjúkrahúsinu.
en faitt fólkiö var sent heim að
lokinni aðgerð.
Á gamlárskvöld og um nóttina
voru 10 ölvaðir ökumenn teknir
fastir.
Drukknir Hafnfirðingar flutt*
ir til Keflavíkur
í Hafnarfirði urðu engin slys
eða óhöpp yfir áramótin. Hins
vegar var mikil ölvun í bænum á
gamlárskvöld. Fylltist fanga-
geymsla lögreglunnar fljótlega um
kvöldið. Var þá leitað ásjár lög-
reglunnar í Reykjavík til að hýsa
þá Hafnfirðinga, sem ekki fengu
að vera á almannafæri eða heima
hjá sér, en í Reykjavikinni voru
I allar fangageymslur yfirfullar. Þá
var það tekio' til bragðs að flytja
drukkna menn frá Hafnarfirði suð-
ur á Keflavíkurflugvöli, en þar
var sæmilega gott rúm í fanga-
geymslum. Þar urðu menn að
dúsa fram á nýársdagsmorgun og
sjá sér sjálfir fyrir fari til Hafn-
arfjarðar aftur.
Kópavogsbúar héldu friðsæl
áramót og þurfti lögreglan þar
ekki að hafa afskipti af drukknu
fólki og slys urðu engin, svo telj-
andi væri.
Rólegt hjá slökkviliði
KJ-Reykj avík ,1 augardag.
Óvenju rólegt var hjá slökkvi-
Framhald á bls. 14
ÍÞRÓTTIR
Gunnar M. Magnúss, Jón Helgason, Jóhann Hjálmarsson og Sigfús Daðason við mótttöku fjárins úr Rithöfunda-
Sunnlendingar
® Framtíð Suður-
lands í atvinnu-
og menningar-
málum, verður
umræðuefnið á
almennum fundi
á Hvoli, laugar-
daginn 9. janúar
___ kl. 3. — Fram-
sögumenn Ágúst Þorvaldsson,
Björn Fr. Björnsson og Helgi
Bergs. Allir velkomnir.
FUF-félögin á Suðurlandi.
sjóði útvarpsins.
(Tímamynd Gunnarj
Fjórir fengu styrk úr
Rithöfundasjóði útvarps
AK-Rvík, laugardag. — Sí'ðdegis
á gamlársdag voru að venju
veittir styrkir úr Rithöfundasjóði
ríkisútvarpsins, og voru þeir fjór-
ir að þessu sinni. Styrkina hlutu:
Gunnar M. Magnúss, rithöfundur,
Jóhann Hjálmarsson, skáld, Jón
Helgason, ritstjóri og rithöfund-
ur, og Sigfús Daðason, skáld.
Athöfnin fór fram í Þjóðmiuja-
safni að viðstöddum dr. Kristjáni
Eldjárn, forseta íslands, mennta-
málaráðherra og fleiri gestum.
Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson,
prófessor, formaður sjóðsstjórnar
innar, afhenti styrkina með ræðu.
Hann sagði, að nú væra veittir
styi'kir úr Rithöfundasjóði ríkisút-
varpsins i 15. sinn. Styrkir þessir
hefðu ýmist verið einn, tveir
eða þrír áður, en samtals hefðu
verið veittir 28 styrkir í þessi 14
skipti, eða að meðaltali tveir á
ári. Nú væri gerð alger undan-
tekning og veittir fjórir styrkir,
hver að upphæð 50 þúsund kr.,
en það væri sama upphæð og
í fyrrá.
Gunnai' M Magnúss þakkaði
heiður og stuðnina með styrkveit
ingu þessari fyrir hönd fjórmenn
inganna, er styrkinn hlutu að
þessu sinni.
Rithöfundasjóður ríkisútvarps-
ins var stofnaður upphaflega af
framlagi ríkisútvarpsins, en fær
síðan þau höfundarlaun, sem ríkis
útvarpið greiðir. en ekki finnast
réttmætir eigendur að, eða er ekki
vitjað innan þriggja ára. Er þetta
núorðið nokkurt fé á hverju ári,
og hefur gert sjóðnum fært að
fjölga styrkjum árlega.
um helgin
í dag hefst aftur keppni í íþrótt
um á höfuðborgarsvæðinu, að af-
loknu jólafríi. Það eru körfu-
knattleiksmenn, sem fyrstir fara
af stað, en handknattleiksmenn
degi síðar.
„íþróttir um helgina“ verða
þessar:
SUNNUDAGUR:
Körfuknattleikur: íþróttahúsif
Seltjarnarnesi kl. 19.30. 1. deild,
UMFN—ÍR og KR—Valur.
MÁNUDAGUR:
Handknattleikur: Laugardalshöl)
kl. 20.00 Hraðmót HKRK í Mfl
karla. 5 leikir. Víkingur—ÍR
KR—Fram, Ármann —Þróttur
Valur—Haukar. FH—Sigurveg-
ari úr leik Vikings/ÍR (Úrslita
leikirnir þriðjudagskvöld).