Tíminn - 09.01.1971, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.01.1971, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 9. janúar 1971 TÍMINN IifsaðstaSan skapar landið í hug-' om fólksins sem >að byggir. Og fyr- irkomiuilag vegakerfis og annarra ferðaleiða eiga ekiki lítinm þátt í því að sikapa mynd þess, sem á eikikert sfeyffit við landaibréf. Maður sem aldrei fer út úr götumni, sem hann býr við, eða burt úr dalnium símim; honum er iandið þessi gata eða þessi dialur. Og þeir sem eiga þess eklki kosit að ferð- asit nema í eina átt í la-ndi sínu, fá ósjálfrátt þá huigmynd, að iandið sé aðeins til þeirrar áttarinnar sem þeir ferðast. Þammig geta fólki verið skap- aðir þrömgir gluggar, þótt það lifi í sjálfu víðerninu. Hringur, sem er 1476 kílómetrar Vegakerfið á íslandi ræður miklu um hvað fólk fær að sjá af lamdimu og hverndg það fær að sjá það. Þeg- ar um einikaferðalög er að ræða fara flestir orðið í eigin bílum, og marg- ur hefur lagt iand undir bíl á iiðrnum árum til að kynnasit landi sínu og koma í fjörr byggðariiög. Þeim hefur bamnski fundizt að þeir sæju full- mikið af sumum svæðum, vegna þess að þótt Isiiand sé eyja, þá hefur enn ekki tekizt að koma vegamálum ofek- ar í það horf, að hægt sé að aka hringinn við venjulegar aðstæður. Vegur í kringum landið mundi verða 1476 kílómetra lamgur eða þar um bil. Nú vantar ekki nema rúma þrjá- tíu kílómetra veg til að loka hringn- um. Eyja eða 1443 kílóinetra langur tangi Þegar fólk ekur norður og austur á land kemst það lengst 1443 km. frá Reykjavók, eða að Skaftafeili í Ör- æfum. Þegar þangað er kornið verð- ur að snúa við og hefja ferð að nýju í slóðina sína hinn langa veg um Austfirði og Norðurland. Við búurn því við sömu kjör og fólk á lömigum tanga, sem á ekki annars úrkosta en aka í sífellu sama veginn fram og aftur. Þrátt fyrir al'lt erum við ey- þjóð, og von er að margur veigri sér við því að fara svo langan veg að heiman, og eiga svo stutt heim, en vera tvo til þrjá daga að komast til baka. A þeirri bilaöld sem nú er uppi, mundu allir fara hringimn ef hann opnaðist. Upp mundi hefjast ný alda ferðalaga innan lands, og enn nánari kynni við landið. Vonandi hefst þetta mál í gegn fyrir baráttu manna á Alþingi, manna eins og Eysteins Jónssonar, sem höf baráttu fyrir þvi að hrimgmum yrði lokað. Það er nefnilega kominn tími til að við förunj að njóta þess að vera ey- þjóð, með þeim þægindum sem því fylgir, en ekki langabúar hjakkamdi í sama farinu ár og síð. Svarthöfði. Afhugasemd frá Lofíleiðum í tilefni af frétt í blaðinu í gær, vill Sigurður Magnússon, blaða- fulltrúi Loftleiða, koma eftirfar- andi á framfæri: „Áhafnir Loftleiða fá dagpea- inga þegar þær eru erlendis á vegum félagsins. Þær greiða sjálf- ar allan dvalarkostnað, þar með talin gjöld vegna gistingar í hótel- um. Áhafnirnar ákvarða sjálfar, hvar þær dveljast, og er hverjum og einum í sjálfsvald sett, hvort hann kýs sér eitt hótel öðrum fremur. Áhafnir Loftleiða, sem þurfa að dveljast í New York, hafa sjálíar valið að búa á Mc Alphin hótelinu. f upphafi vora þær ánægðar með það, en upp í síð- kastið hefur gætt vaxaxndi ó- ánægju, og-þess vegna eru fyrir-1' liðar áhafnanna að leita sér að öðru hóteli. Loftleiðir munu að sjálfsögðu veita þá hjálp, sem unnt er til þess að finna betra hótel, en lokaákvörðun í því efni verður vitanlega tekin af fluglið- unum. Mér vitanlega hefur engin flug- freyja Loftleiða kært til hótel- stjórnar Mc Alphin eða lögregíum ar í New York, vegna nauðgunar. Hitt má vel vera, að stúlka, sem ef til vill hefur ekki verið nógu varkár hafi sagt, að hún hafi verið beitt ofbeldi, en það lætur að líkum, að nauðgunar- mál er i flestum tilfellum örðugt að sanna á sakborning, þótt kærð- ur sé svo fljótt, sem verða má. Annars man ég ekki betur, en að nokkur nauðgunanmál í hinu náttúrulitla og friðsæla íslandi séu nú á döfinni. Mál, sem mér skilst að hafi verið kærð til lög- reglunnar. Ée held, að þau hljóti að vera traustari umræðugrund- völlur, en hin, sem aldrei hafa verið kærð, hyorki til húsráðenda né lögreglunnar". Siguiður Magnússon. Tíminn sér ekki ástæðu til að taka annað fram vegna yfirlýs- ingar fulltrúa Loftleiða, en það, að ofbeldisverk, eins og nauðgun, á ekki að liggja í þagnargildi, hyort sem hún hefur verið kærð eða ekki. Ritstj. Sex fulltruar héðan á fund Norður- landaráðs æskunnar Dagana 7. og 9. janúar er haldinn í Stokkhólmi fundur Nörð urlandaráðs æsku.nnar. Helztu við fangsefni fundarins eru samuor- rænn vinnumarkaður og byggða- stefna, Norðurlönd og þróunin til aukinnar samvinnu Evrópuþjóða í efnahagsmálum, Norðurlönd og þriðji heimurinn, Norðurlönd og öryggismál Evrópu og umhverfis- vandamálið. Auk þessa verður fjallað m.a. um skipulagsmál Norð urlandaráðs og norræna æskulýðs- sióðinn. Fulltrúar fslands, sem ráðstefnu þessa sækja eru: Jén Steinar Gunnlaugsson og Sigurður Hafstein frá SUS. Baldur Óskars- son og Elías Jónsson frá SUF, Guðríður Þorsteinsdóttir frá SUJ og Guðmundur Jónsson frá Alþýðu bandalaginu. Auk þeirra sækir Hrafn Bragason fundinn, en hann er formaður norrænu æskulýðs. nefndarinnar, sem er samstarfs- nefnd Æskulýðssambands íslands og Norrænu félaganaa. Góð og falleg bifreið lckoJ þarf góðar og hagkvæmar TRYGGINGAR. I Tryggið bifreið yðar hjá stóru og traustu ^TR\y fyrirtæki - Tryggið hjá okkur. 5 7MM M SAMVIIMVUTRYGGINGAR ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500 S. V.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.