Tíminn - 09.01.1971, Blaðsíða 16

Tíminn - 09.01.1971, Blaðsíða 16
Stal peningum, ávísunum, bankabók og tákkheftum OÓ-Reykjavík, föstudag. Skjalatösku og kvenveski var stolið á skrifstofu að Skúlagötu 63 í gær. í töskunni og veskinu voru 10—12 þúsund krónur í pening-I um, tvær ávísanir, að upphæð | samtals um 20 þúsund krónur,! Þrjú tékkhefti og bankabók með 200 þúsund króna innstæðu. 1 Þjófnaðurinn var framinn milli kl. 5 og 6 í gær. Skrifstofunutn - var lokað kl. 5, en einn af starfs- mönnum varð eftir. Skömmu fyrir kl. 6 brá starfsmaðurinn sér frá, og þegar hann kom aftur skömmu síðar var búið að stela töskunum. Ekki hefur enn hafzt uppi á þjófn um ,en lögreglan rannsakar málið. Sunnlendingar — Sunnlendingar Framtíð Suður- lands í atvinnu- og menningar- málum, verður umræðuefnið á almennum fundi á Hvoli, laugar- daginn 9. janúar kl. 3. — Fram- sögumenn Ágúst Þorvaldsson, Björn Fr. Björnsson og Helgi Bergs Allir velkomnir FUF-félögin á Suðurlandi. Opinn fundur um verkalýös mál Á þriðjudaginn 12. janúar kl. 20,30 verður opinn fundur um verkalýðsmál að Hringbraut 30. Er hér um að ræða undirbúnings ftind að ráðstefnu sem FUF efnir til um verkalýðstnál o& á að standa dagana 30. og 31. janúar næstkomandi. Frummælandi á fundinum á þriðjudaginn verður Baldur Óskarsson. Verkalýðsmála- ráðstefnan 'verður nánar auglýst síðar. Kópavogur Fundur í Fulltrúaráði Fram- sóknarfélaganna í Kópavogi verð- ur haldinn mánudaginn 11. jan. n.k. klukkan 20,30 að Neðstutröð 4. Dagskrá: 1. Uimræður um fjár- hagsáætlun kaupstaðarins 1971. — 2. Önnur mál. Stiórnin. IGÞ-Reykjavík, föstudag. Á þriðjudaginn kemur hefst dagblaðakeppni í skák á milli Taflfélags Reykjavíkur og Skák félags Akureyrar. Verður teflt á fitnm borðum og leikinn einn leikur . á hverjum. degi, þegar blöð koma út. Blöðin sem taka þátt í þessu eru Þjóðvlljinn, Morguniblaðið, Alþýðublaðið, skákkeppni í vændum Vísir og Tíminn. Þeir sem tefla fyrir Tímann eru Trausti Björnsson og Gunnar Gunnars- son. Andstæðingar þeirra nyrðra eru Margeir Steingríms- son og Jóhann Snorrason og hafa þeir svart. Tíminn býst við harðri keppni. Mun tafl- staðan verða birt daglega í blað inu, svo lesendur geti fylgzt rneð sínum mönnum. I j ir Þjóðviljann tefla Bragi Kristjánsson og Ólafur Björns- son, gegn Jóni Björgvinssyni og Stefáni Ragnarssyni. Akureyri hefur svart. Fyrir Morgunblað- ið tefla Jón Kristinsson og Stefán Þormar, gegn Guðmundi Búasyni og Sveini Hrafnssyni. Akureyri hefur hvítt. Fyrir Vísi tefla Leifur Jósteinsson og Björn Þorsteinsson, gegn Gunnlaugi Guðmundssyni og Sveinbirni Sigurðssyni. Akur- eyri hefur hvítt. Fyrir Alþýðu- blaðið tefla Jón Þorsteinsson og Guðmundur S. Guðmunds- son, gegn Júlíusi Bogasyni og Jóni Ingimarssyni. Akureyri hefur hvítt. HERFÖR HANNIBALS FRUMSÝNT í IÐNÖ SJ—Reykjavík, föstudag. A þriðjudagskvöld frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur „Herför Hanníbals“, leikrit eftir bandarísk- an höfund, Robert Sherwood, í þýðingu Ásgeirs Hjartarsonar. Leikstjóri er Helgi Skúlason, leik tjöld og búninga teiknaði Stein- þór Sigurðsson. Aðalhlutverk leika þau Helga Bachmann, Jón Sigurbjörnsson og Steindór Hjör- leifsson. Rúmlega 20 leikendur koma firam á sýningunni, og fer Guðrún Á. Símonar með eitt hlut- verkið. Sherwood er eitt af þekktustu leikslkáldum bandarílskum, en leikrit þetta, sem heitir á frum- málinu „Road to Rome“, samdi hann um 1920—30, og er það að verða klassískt, bandarískt leik- húsverk. Efni leiksins er sögulegt, fjallar um átök Rómverja og Kar- þagómanna, og gætir þar tölu- verðrar gamansemi. Boðskapur þess er þó enn í fullu gildi, og efni leiksins minnir mjög á víg- búnaðarkapphlaup okkar tíma. „Herför Hanníbals" áitti a& verða jólaleikrit Leikfélagsins, en frumsýningu var frestað vegna mikillar aðsóknar að öllum sýn- ingum félagsins. Var ekki hægt EB-Rvík, föstud. Kristján Sigur- mundss. frkvstj. Crystal hefur nú gert tilboð í Þverá í Borgarfirði fyrir sumarið 1972, er hljóðar upp á 5,4 millj. kr. Er hér um að ræða 3,4 milljón kr. hærri upp- hæð en núvcrandi leigutaki ár- innar þarf að greiða fyrir leigu næsta sumar. Er ljóst af þessu tilbo'ði, að beztu laxveiðiár lands- ins hækka mikið í verði á næst- unni. VLsir birti í gær, fimmtudag, óstaðfesta frétt, þess efnis, að 6,2 milljónir kr. hafi verið boðnar í Þverá fyrir sumarið 1972. Tím- inn fékk í dag staðfestingu á því, að formaður yeiðifélags Þverár, Magnús Kristjánsson í Norður- tungu, hefur enn ekki fengið það tilboð í hendurnar. 5,4 millj. kr. tilboð Kristjáns leic/ir til þess að leiga Norðurár í Borgar firði hækkar 1972 í 5,4 milljónir króna, taki veiðiéigendur Þverár fyrrnefndu tilboði, en þessar tvær | ár fylgjast að hvað leiguna áhrær-1 ir. Það er veiðimönnum reyndar SEMJA VERDUR AFT- UR VID SJÓMENNINA OÓ-Reykjavík, föstudag. Samningaviðræður vegna báta- kjarasamninganna verða nú að hefjast á ný, þar sem Farmanna- og fiskimannasambandið hefur hafnað þeim samningum, sem búið var að gera með þeim fyrir- vara, að sjómenn samþykktu þá. Auk yfirmanna, höfnuðu þrjú sjó mannafélög samningunutn. Eru j það félögin í Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og í Höfn í Horna- firði. Sjómannafélögin á Akrandsi, í að bæta einni við, þar sem ekki var hægt að geyma leiktjöld úr fleiri sýningum í Iðnó, en þegar voru þar í gangi. Nú eru að hefj ast sýningar á Hitabylgju í ná- grenni borgarinnar og verða leik tjöldin úr því verki geymd í bíl, sem félagið hefur fengið vegna ferðalaga þessara. Var þvi unnt aó' hefja sýningar á þesgu nýja viðfangsefni, Hitabylgja hefur ver ið sýnd 17—18 sinnum, þar af 4 sinnum í Hafnarfirði. Á næstunni verður önnur hver sýning í Iðnó en hin utan Reykjavíkur. Frumsýningin á „Herför Hanní bals“ er daginn eftir 74 ára af- mæli Leikfélags Reykjavíkur, 11. janúar. Aðsókn hefur verið mjög góð að öllum sýningum félagsins í vetur. Spanskflugan er sýnd í Austurbæjarbíói við góða aölsókn til ágóða fyrir leikhúsbyggingar- sjóð. Um 12.000 áhorfendur hafa séð hana. Næsta verkcfni Leikfélagsins er Mávurinn eftir Tsjekov og hefj ast æfingar í næstu viku. Leik- stjóri verður Jón Sigurbjörnsson. 5,4 MILLJONIR BOÐNAR I ÞVERÁ kunnugt, að árnar tvær vora á s. 1. sumri beztu laxveiðiárnar í landinu. Veiddust yfir 2100 laxar í Norðurá og um 2000 í Þverá. Þess ber þó aö' gæta, að laxinn sem veiddist í Þverá var ef á heildina er litið mun stærri, en sá er veidd- ist í Norðurá. Ljóst er að sú þróun, sem nú er að verða í sambandi við leigu á laxveiðiám landsins, getur leitt til þess, að erlendir auðmenn geti einir leyft sér að renna í árn- ar. Má því búast við því, að mikið Framhald á bls. 14 Keflavik, Sandgerði og Grindavík samþykktu samningana. Ekki er hægt að segja að svo stöddu hvort málinu verður vísað til sáttasemj ara. Enn hafa engin verkföll verið boðuð \og verður róðrum haldið áfram þar til annað kann að verða ákveðið. Kastaði ú þrett- ándanum EB—Reykjavík, föstudag. Er heimilisfólkið í Hallgeirs- ey í Austur-Landeyjahreppi lcit út um glugga á þrettánda- dagsmorguninn, uppgötvaði það, að hryssa ein í hrossastóði þess, var búin að kasta úti á túninu. Er það sjaldgæfur at- burður, að slíkt gerist um miðj an vetur. í viðtali við Tímann í dag, sagði Guðjón Jónsson bóndi í Hallgeirsey, að hann hefö*i ekki vitað um, að hryssan væri fyl- full, og folaldið því komið honum mjög á óvart. Guðjón sagö'ist eðlilega hafa þegar í stað drifið hryssuna og fol- aldið í hús, svo að folaldið fái einhverja móðurmjólk. Folaldið cr jarpt að lit og í alla staði mjög fallegt sem móðir þess, þótt hún sé komin nokkuð til ára sinna, og er líðan þeirra mæðgininna mjög góð, að sögn Guðjóns. Þá fræddi Guðjón blaðið á því, að fyrir mörgum árum hefði ein hryssa hans eignazt folald um sumarmál, sem eðlilega þyk- ir mjög snemmt. og fór það einnig allt saman vel. Mjög gott veður hefur verið i Rangárvallasýslu undanfarna daga, „alltaf gott veður“, að sögn Guðjóns Jónssonar. t

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.