Tíminn - 09.01.1971, Side 13
LAÍIG-ARDAGUK 9. janúar 1971
IÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
sagdi nei!
Eins og sagt var frá á
sendu formenn allra Reykja-
íþrótfcasílðuimi sJ. þriðjudag,
víkurfélaganna, sem hafa knatt
spyrnu á stefnuskrá sinni,
stjórn Knattspyrnusambands ís-
lands bréf, þar sem þess er
óskað að KSf hætti við fyrir-
huguð málaferli við ÍBR út af
9% vallarleigunni.
Var þetta bréf sent KSÍ um
áramótin, og hefur nú borizt
svar við því, þar sem þessari
málaleitan er hafnað.
Þetta „nýja vallarleigumál"
hefur verið mikið til umræðu
meðal íþróttaforustumanna að
undanförnu, og eru skiptar
skoðanir manna um þetta
„heita“ mál, sem ekki á sinn
líka í íslenzkri íþróttasögu.
f þættinum „á vítateigi" í
blaðinu á morgun, mun Alfreð
Þorsteinsson ræða um þetta
mál. v — klp.—
Markhæstir
r
\
Maikhæstu leikmenn 1. deild-
arinnar ensku (þar innifalið 1.
deildin, deildarbikarinn og enski
bikarinu).
Mörk
Martin Chivers, Tottenh. 18
Tony Brown, West Br. 14
Ray Kemnedy, Arsenal 14
John Radford, Arsenal 14
Colin Bel'l, Man. City 13
Alan Gilzean, Tottenham 13
Bobby Gould, Wolves 13
,Mike Channon, Southamp. 12
Franeis Lee, Man. City 12
'Keith Weller, Ohelsea 12
Ron Davies, Southampt. 11
Neil Martin, Cowentry 11
Markhæsti leikmaður yfir all
ar deildirnar fjórar er leikmað-
/ur 4. deildarlðsins, Bournemouth,
;Ted Macdougall, en hann hefur
' skorað samtals 28 mörk.
Landsliðið
aftur af stað
klp—Reykjavík.
Eftir nær 2ja mánaða hlé taka
knattspyrnmenn okkar aftur upp
þráðinn þar sem frá var horfið
og byrja nú af fullum krafti að
æfa fyrir næsta verkcfni, sem er
landsleikur við Frakkland um
miðjan maí.
Á morgun verður fyrsta æfing-
in, og leikur þá landsliðið við
unglingalandslióSð. Hefst leikur-
inn, sem fram fer á Melavellin-
um kl. 14.00.
Til landsliðsæfinga hafa verið
valdir 17 menn og eru þaft sömu
mennirnir og skipuðu landsliðs-
hópinn í leikjunum gegn Noregi
og Danmörku s.l. sumar.
Hafsteinn Guðmundsson mun
sjá um liðið fram að
KSÍ, en þá hættir hanŒ
sem „einvaldur."
Einhverjar breytingar geta
orö'ið á landsliðshópnum frá því
aem nú er. Þegar hafa tveir menn
tilkynnt að þeir verði ekki með.
Þeir Ellert B. Schram og Guðjón
Guðmundsson og Hermann Gunn-
arsson má ekki ieika með liðinu
gegn Frökkum, því fyrrverandi
atvinnumönnum, er bannað að
taka þátt í leikjum í sambandi
við Olympíuleikana.
Davíð og Golíat
— Nei, þetta eru ekki DavíS og Golíat, en engu að síður eru þetta tveir
heimsfrægir náungar, hvor á sínu sviði. Sá litli er söngvarinn og leikar-
inn Sammy Davis jr., en sá stóri er W>lt Chamberlain, sem talinn er bezti
körfuknattleiksmaður heims, og sá, sem mestar tekjur hefur af öllum
íþróttamönnum í heiminum. Myndin er tekin, þegar kapparnir komu fram
í sjónvarpsþætti Dan Rowans, og er sá litli heldur ófrýnilegur að sjá.
„Handknattleiks
hátíð“ um helgina
Þrjátíu og sex leikir fara fram í öllum flokkum
og deildum í Reykjavík og Seltjarnarnesi
klp—Reykjavík.
Þessi helgi verður hrein há
tíðahelgi fyrir handknattleiks-
unnendur hér á Sjtór-Reykja-
víkursvæðinu. Þá fara fram
hvorki mcira né minna en 36
leikir í fslandsmótinu, og eru
þeir í öllum flokkum og deild
um.
Athafnasvæðið verður í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi,
!þar sem 8 leikir verða leiknir
í dag, þar af einn í 2. deild
karla milli Breiðabliks og KA,
og í Laugardalshöllinni, sem
bæði í dag og á morgun verð-
ur undirlögg fyrir handknatt-
leik.
í dag hefst keppnin þar kl.
14.00 og verður þá leikiö í
yngri flokkunum, en keppn-
inni lýkur með leik Þróttar og
Þórs frá Akureyri í 2. deild
karla.
Á morgun byrjar ballið kl.
13.30, og þá rekur hver stór-
leikurinn annan fram til mið-
nættis. Fyrstu tveir leikimir á
morgun verða í 2. deild karla.
Fyrst leika Ármann og Þór,
en síðan KR og KA. Ættu þess-
ir leikir að geta orðið skemmti-
legir, sérstaklega þó sá síð-
ari.
Að þeim leikjum loknum
verða 2 leikir í 1. fl. kvenna,
en sío'an verður leikin heil
umferð í 1. deild kvenna. Fyrst
mætast Fram og Víkings-stúlk
urnar, og reyna Fram-stúlkurn
ar áreiðanlega að hefna ófar-
Hvað gerir HSK á útivelli?
klp—Reykjavík.
Þrír mikilvægir leikir í 1. deild
íslandsmótsins í körfuknattleik,
verða leiknir um helgina. Fara
tveir þeirra fram á Seltjarnar-
nesi og einn á Akureyri.
í dag kl. 16.00 fer fram leikur
milli Þórs og UMFN í íþrótta-
skemmunni á Akureyri, en á
henni hafa verið gerðar miklar
breytingar að undanförnu m.a.
skipt algjörlega um gólf.
Verður þetta fyrsti leikur Þórs
í 1. deild í vetur. Lítið er vitað
um getu Þórsara, en þeim hefur
borizt liðsstyrkur að undanförnu
m. a. frá Sauðárkróki, og má
því búast við þeim sterkum.
UMFN liðið er ekki eins gott og
þaÖ var í fyrra, enda misst góðan
leikmann úr liðinu, Barry Nett-
les, en ef það nær sér á strik
getur það náð prýðis leikjum.
í íþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi leika á sunnudagskvöldið
Valur — HSK og KR—Ármann.
Báðir þessir leikir ættu að geta
orðið spennandi og skemmtileg-
ir. HSK sýndi klærnar er það
sigraði KR á Laugarvatni á dög-
unum, og verður fróó'legt að sjá
í leiknum við Val hvort sá sigur
var eingöngu heimavellinu..i að
þakka.
Síðari leilkurinn annað kvöld
verður á milli KR og Ármanns,
og eir ekki að efa að þar verða
miklar sviptingar eins og oftast
þegar þessi lið mætast.
anna úr Reykjavíkurmótinu
gegn Víkings í þeim leik. Þá
leika Ármann og Njarðvík, en
þau eru mjög áþefck lið, og
loks leikur svo hið fræga
kv^rmalið Vals, sem verið hef-
ur hálf dauft að undanförnu,
við KR og ætti það einnig að
geta orðið jafn leikur.
Að kvennaleikjunum lokn-
um — en það má áætla að
verði um kl. 19.00 — fer fram
leikur í 1. fl. karla, KR—Þrótt-
ur, en síðan verða leiknir tveir
leikir í 1. deild karla. Báðir
mikilvægir leikir, en þó sér-
staklega sá fyrri.
Framhald á bls. 14
Gunnlaugur
til ÍR?
Eins og flestir vita, sem fylgjast
með íþróttum, var Gunnlaugi
Hjálmarssyni sagt upp störfum
sem þjálfari íslandsmeistaranna í
handknattleik karla, Fram, í byrj
un þessarar viku.
Nú hefur Gunnlaugi boðizt þjálf
arastaða hjá öðru 1. deildarliði, en
það er hjá ÍR, sem hefur verið
þjálfaralaust síðan í liaust, er
landsliðsþjálfarinn Hilmar Björns
son, yfirgaf liðið.
Gunnlaugur mun mæta á fundi
með forráðamönnum handknatt-
leiksdeildarinnar n.k. mánudag, og
þar verður gert út um hvort hann
kemur aftur til ÍR, en eins og
flestir vita, lék hann í f jölda mörg
ár með ÍR, og var þá m.a. í stjórn
félagsins. — klp —
.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.W.V
Aðalfundur
Aðalfundur knattspynmudeildar
Þróttar verður haldinn sunnudag-
inn 17. jan. og hefst kL 14.00,
að Freyjugötu 27 (uppi).
Venjuleg aöalfundarstörf.
Mætið vel og stundvíslega.
STJÓRNIN.
Þessi mynd er frá úrsiitaleiknum í hraðkeppnismóti HKRR, en beim leik og mótinu lauk með sigri Hauka. Það er Stefán Jónsson, Haukum, swjt
hefur losnað á línunni, og þá er ekkl að sökum að spyrja — knötturinn er í netinu. Eins og sjá má sitja áhorfendurnir á hinum nýju bekkjum,
sem hafa verið settir upp í höllinni. Gera þeir og leikmenn liðanna góðan róm að þessum bekkjum, áhorfendurnir eru miklu nær, og andrúmsloft-
ið er allt annað. Sjálfsagt verður það hlaðið spennu nú um helgina, því þá fara fram r.iargir leikir í öllum flokkum í íslandsmótinu í handknattleik.