Morgunblaðið - 22.12.2005, Qupperneq 59
Jólamyndin 2005
Upplifðu ástina og kærleikann
Hún er að fara að hitta foreldra hans
…hitta bróður hans
…og hitta jafnoka sinn
Yndisleg jólamynd
fyrir alla fjölskylduna
400 KR Í BÍÓ*
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sími 551 9000 Miða sala opn ar kl. 17.15
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16
Alls ekki fyrir viðkvæma
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
...ÞAÐ GERÐIST
Á AÐFANGA-
DAGSKVÖLD
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
hversu langt myndir þú ganga
langt til að halda lífi?
Alls ekki fyrir viðkvæma
553 2075Bara lúxus ☎
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára
Sara Jessica Parker
tilnefnd til Golden
Globe verðlaunanna
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM PETER JACKSON
„King Kong er án efa ein
magnaðasta kvikmyn-
daupplifun ársins. “
Topp5.is / V.J.V.
E.P.Ó. / kvikmyndir.com
S.U.S. / XFM 91,9
V.J.V. / topp5.is
S.V. / Mbl.
A.B. / Blaðið
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16ára
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
...ÞAÐ GERÐIST
Á AÐFANGA-
DAGSKVÖLD
HÆTTULEGIR
ÞJÓFAR Á
HÁLUM ÍS!
BAD SANTA
JÓLAMYND Í ANDA
Ó.Ö.H / DV
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
Ó.Ö.H / DV
Ó.H.T / RÁS 2
„The Family Stone er bráðfyndin
en ljúfsár gamanmynd“
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Topp5.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 59
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Póstsendum
Flott jólagjöf
Leðurjakkar
áður 14.990
nú 9.990
Litir: Svartur, dökkbrúnn
og koníaksbrúnn.
Stærðir: 34-46
Ný sending –
takmarkað magn
ÞRÁTT fyrir allar framfarirnar sem orðið hafa á
síðustu öld hvað snertir tækni og öryggisbúnað
um borð í flotanum, síaukna stærð og afl skipa, er
sjómennskan ætíð hættuleg og ströndin við-
sjárverð sem jafnan fyrr. Það er með ólíkindum
að sjá eitt glæsilegasta og best búna skip fisk-
veiðiflotans, Baldvin Þorsteinsson EA, þrjú þús-
und tonna ferlíki, að verðmæti um tvo milljarða
króna, byltast um bjargarlaust í brotsjóunum við
Skarðsfjöru fyrir um það bil hálfu öðru ári.
Myndin þeirra Hauks og Páls, Útkall Rauður –
Strandið á sandinum er áminning um að sjómenn
geta aldrei orðið fullkomlega öruggir um sig og
björgunarsveitirnar allt í kringum landið þurfa
jafnan að vera viðbúnar váboðanum Útkall Rauð-
ur, sem merkir að mannslíf eru í hættu. Ekki síst
minnir hún okkur á að enn byggja þetta land
menn sem sækja sjó og eru sem fyrr undirstaðan
fyrir tilveru okkar í miðju kauphallarmanginu.
Menn sem kunna til verka þegar á reynir, manns-
líf og mikil veraldleg verðmæti eru í húfi.
Það er stórkostleg sjón að sjá hvernig björg-
unarsveitin í Vík tekur á vandanum í samvinnu
við útgerðarmenn skipsins þegar flaggskipið
þeirra situr hjálparvana fyrir náttúruöflunum, á
einum varasamasta kafla íslensku strandlengj-
unnar. Suðurströndin hefur löngum verið mis-
kunnarlaus lokaáfangi fjölda skipa og hoggið
stórt skarð í raðir sjómanna í gegnum tíðina. Í
þetta skipti var hún sigruð, stærð skipsins, sand-
urinn og hárrétt viðbrögð björgunarmanna gerði
að verkum að þetta strand endaði giftusamlega
og togarinn náðist út á áttunda degi.
Haukur og Páll komu á strandstaðinn fljótlega
eftir atburðinn og náðu að festa á filmu viðbrögð
manna í landi, fumlausa og markvissa vinnu
þeirra sem að komu og unnu ósvikið afreksverk.
Snillingarnir á björgunarþyrlunni voru ekki
höndum seinni að flytja mannskapinn í land, fyrr
en varði sat skipið mannlaust í brimgarðinum við
ströndina. Það var átakanleg sjón að sjá þetta
stolta og glæsta skip upplýst og yfirgefið í hafrót-
inu. Allir voru sammála um að það gat hreinlega
ekki gengið!
Öflugum dráttarköðlum var flogið í skyndi til
landsins og eftir mislukkaðar tilraunir íslenskra
skipa var kraftmikill, norskur dráttarbátur
kallaður á staðinn á undraskömmum tíma. En
róparnir slitnuðu eins og tvinni en áfram var
haldið uns sigur yfir Ægi konungi vannst í ann-
arri tilraun á áttunda degi. Það er erfitt að lýsa
þeiri ósviknu gleðistemningu sem grípur fólkið á
ströndinni þegar björninn er unninn og Baldvin
Þorsteinsson skríður hægt en örugglega út á
rúmsjó á nýjan leik. Tilfinningin er ekki ólík því
að tígulegu dýri merkurinnar sé sleppt úr búri
sínu og gefið frelsi. Og það sem skipti mestu máli,
í þetta skipti var fórnarkostnaðurinn óverulegur
þrátt fyrir allt – því enginn skaði varð á mönnum.
Í annarri tilraun á áttunda degi
SJÓNVARP
RÚV
Heimildarmynd eftir Hauk Hauksson og Pál Bene-
diktsson. Dagskrárgerð: Haukur Hauksson. Handrit:
Páll Benediktsson. Þulur: Guðjón Einarsson. Hljóð-
upptaka: Arnar Þórisson. Hátt og snjallt ehf/RUV.
Sjónvarpið 18. des. 2005. Ísland 2005.
Útkall Rauður – Strandið á sandinum
„Myndin þeirra Hauks og Páls, Útkall Rauður – Strandið á sandinum, er áminning um að sjó-
menn geta aldrei orðið fullkomlega öruggir um sig og björgunarsveitirnar allt í kringum
landið þurfa jafnan að vera viðbúnar,“ segir m.a. í umsögn.Sæbjörn Valdimarsson
MIKIL og þung
undiralda söng-
yrkja (singer/
songwriter) hóf að
rísa fyrir rúmum
áratug eftir að hún
hafði, að því er virtist, fjarað alger-
lega út á áttunda áratug síðustu ald-
ar. Segja má að þessi alda hafi fyrst
risið aftur upp á yfirborðið með til-
komu tónlistarmannsins Beck Han-
sen sem tókst að færa þessa sönglist
nær nútímalegri tónlistarstraumum
um miðjan tíunda áratug síðustu ald-
ar en í kjölfar annarra söngyrkja á
borð við Will Oldham (Palace Broth-
ers, Bonnie „Prince“ Billy), sem
kusu að fara mun persónulegri leið í
sínum verkum, reis önnur alda söng-
yrkja sem kenndu sig (eða voru
kenndir við) alternative-country tón-
listarstefnuna. Þar var einfaldleiki
og stílsnilli kántrítónlistarinnar end-
urvakin af ungum tónlistarmönnum
sem höfðu þörf fyrir að tjá sig á mjög
persónulegan og ljóðrænan hátt um
hlutskipti mannsins í veröldinni.
Önnur sóló-plata Þóris Anarchists
Are Hopeless Romantics er á marg-
an hátt skilgetið afkvæmi beggja
þessara stefna; hinnar póst-
módernísku hentistefnu-tónlistar
Becks og svo hinnar einlægu stefnu
alt-kántrísins. Textar Þóris eru sum-
ir átakanlega hreinskilnir og per-
sónulegir en undir niðri er einnig að
finna sótsvartan húmor sem prýðir
alla alvöru póstmódernista. Og tón-
listin er á svipuðum nótum; persónu-
leg og hreinskilin en á engan hátt
einstrengingsleg. Í „Nupur Lala“
finnur maður keim af Neil Young, í
„Gimmie, Gimmie, Gimmie“ má
heyra áhrif frá lo fi böndum á borð
við Pavement og í bakgrunni má svo
greina „syntha“-hljóð – a la Dr. Dre.
Violent Femmes er önnur sveit sem
kemur upp í hugann þegar Þórir er
annars vegar en þá verður líka að
hafa í huga að Þórir hefur lengi verið
viðriðinn harðkjarnatónlistina þar
sem pönkið verður að teljast ákveð-
inn grunnur. Svona er hægt að halda
lengi áfram þegar hvert og eitt lag
er greint en það sem Þóri tekst bet-
ur en mörgum öðrum er að láta þess-
ar stefnur renna saman í heildstæð
lög og það sem meira er, í heildstæða
plötu sem vex með hverri hlustun.
Með Anarchists are Hopeless
Romantics tekst Þóri að festa sig í
sessi sem einn efnilegasti söngyrki
landsins. Á næstu plötu ætti hann að
stefna að því að verða sá besti.
Einlægur söngyrki
TÓNLIST
Geisladiskar
Öll lög eftir Þóri G. Jónsson sem einnig
spilar á flest hljóðfæri. Ólafur Arnalds
leikur á trommur og píanó. Upptökur fóru
fram víðsvegar um Reykjavík og voru í
höndum Þóris G. og Ólafs Arnalds. Guð-
mundur Kristinn Jónsson hljóðblandaði
en tónjöfnun fór fram í Exchange. 12 tón-
ar gefur út.
My Summer as a Salvation Soldier –
Anarchists are Hopeless Romantics
Höskuldur Ólafsson
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni