Tíminn - 23.02.1971, Síða 11
ÞRHMTJDAGUR 23. febrúar 1971 " TIMINN
1!
Þriðjudagsgrein
Fraenhald af bls. 7.
kjarabætur, sem vissulega ber
a3 fagna. En er ekki kominn
tími til a3 líta á þarfir fleiri
hagsmunahópa í þjóðfélaginu
en þeirra, sem sérstaka viður-
kenningu hafa og mest láta að
sér kveða um völd og álirif?
Er ekki kominn tími til að
kanna það í alvöru, hvort ekki
muni vera í þjóðfélagi okkar
hópar manna, sem lítið forsvar
hafa gagnvart ríkisvaldinu og
fáa formælendur í raun?
Hagsmunamál aldraða fólks-
in liggja um of í láginni. Það
er lítið rúm fyrir umræður
um málefni þess í velferðar-
ríki okkar íslendinga. Svo bú-
ið má ekki lengur standa. Ekki
er við unandi, að með eíli-
dögum upphefjist ný tegund af
kjaramismunun, þar sem sum-
um er útdeilt stórum sneiðum
af allsnægtabprðinu á meðan
aðrir fá lítið sem ekkert í
sinn hlut.
Ingvar Gíslason.
Framhald af ls 8.
lokin tókst hinum ungu og efni-
legu stúlbum úr Njarðvíkum að
komast yfir og sigra í léiknum
með 1 marki 10:9.
Fram sigraði Reyikjavíkurmeist
arana Yíking með 5 marka mun,
11:6 og Valur gjörsigraði KR,
Síðdegis í gær var annar fund-
ur haldinn á búnaðarþingi. Skil-
aði kjörbréfanefnd þar áliti, en
framsögumaður hennar var Egill
Bjarnason. Þá voru varaforsetar
þingsins kjörnir, þeir Einar Ólafs-
son og Ásgeir Bjarnason, og ritar-
ar þeir Jón Gíslason og Sigurður
Sigmundsson. Einnig var kjörið í
fastanefndir þingsins. Allmörg
mál hafa þegar verið lögð fram á
búnaðarþingi og var þeim vísað
til nefnda. Næsti fundur búnaðar-
þings verður næsta fimmtudag kl.
9.3Q árdegjs í Átthagasal.
Állmiklar breýtingar hafa nú
orðið á fulltrúaliði búnaðarþings,
og eru þar sex menn, sem ekki
hafa átt þar sæti áður. Formaður
gat þess, að ráðgert væri, að þing-
tími yrði og þrjár vikur og lyki
þinginu þá 13. marz.
Búnaðarþingsfulltrúar eru þess-
ir: Ásgeir Bjarnason, Egill
Bjarnason, Egill Jónsson, Einar
Ólafsson, Friðbert Pétursson,
Gísli Magnússon, Grímur Arnórs-
son, Guðmundur Jónasson, Gunn-
ar Guðbjartsson, Hjalti Gestsson,
Hjörtur E. Þórarinsson, Ingi-
mundur Ásgeirsson, Jóhann Jón-
asson, Jón Egilsson, Jón Gísla-
son, Jósep Rósinkarsson, Lárus
Ág. Gíslason, Mágnús Sigurðsson,
Sigmundur Sigurðsson, Sigurður
Líndal, Sigurjón Friðriksson, Snæ
þór Sigbjörnsson, Stefán Hall-
dórsson, Teitur Björnsson, Þórar-
inn Kristjánsson.
IVIorðmál
17:9.
Allt útlit er fyrir að KR falli
í 2. deild. Litfið hefur ekkert stig
Ihlotið í 7 leikjum -en til áð halda
sæti sínu í deildinni þarf það að
sigra í öllum leikjunum sem eftir
eru, þrem að tölu, og er það
heldur erfið þraut. því þeir eru
við NjaróVík, Ármann og Fram.
Framhald af bls. 9.
Ilandsliðsmlönnunum Viðari og
Stefáni, en Viðar gerir orðið mest
gagnið fyrir liðio' þegar hann er
tekinn úr umferð — þá opnast
fyrir hina.
Dómarar í þessum leik voru
Sveinn Kristjánsson og Reynir
Ólafsson. Dæmdu þeir ágætlega,
en gerðu þó nokkur mistök, sér-
stakiega Sveinn undir lokin — en
dómariim er ekki 100% frekar
en leikmennirnir. Reynir er mjög
hárður dómari og óvæginn við að
vísa mönnum útaf fyrir gróf brót.
Það gera hinir ekki. og því sker
hann sig nokkuð úr — en hann
dæmir vel og rétt'.
Mikill spenningur er enn
í deildinni. Öll liðin eiga eftir að
leika 2 leiki hvert, og verður í
þeim barizt bæði um efsta og
neðsta sætið. Valur og FH um
það efsta, en Vfldngar og ÍR um
það neðsta. Haukar og Fram ættu
áð vera úr failhættu, en þó er
tölulegur möguleiki á að falla á
7 stigum. Athyglisvert er hvað ,
öll liðin hafa skorað svipað af!
mörloim í leikjunum til þessa. |
Valur og FH hafa bæði skorað i
159 mörk, Haukar, Fram og ÍR i
144 mörk hvert, en Víkingar 3 j
mörkum minna eða 141 mark.
Jafnara er varla hægt að hafa
það eftir 8 leiki — klp..
Búnaðarþing
Framhald af bls. 1
mun verða birt hér í blaðinu.
Að lokinni setningarræðu ávarp
aði Ingólfur Jónsson. landbúnað-
arráðherra, þingið. Hann ræddi
um starf harðærisnefndar og j
hjálp þá, sem reynt hefði verið
að veita bændum. Einnig minnti
hann á kalrannsóknir og fleira.
Framhald af bls. 1
veigamesta rannsókn sem hér
hefur verið gerð í síðari tím-
um í þessum efnum.
Það var að morgni 18. janúar
1968, sem lögreglunni var til-
kynnt um glæpinn, og hófst
rannsókn málsins þá þegar.
Beindist hún í fyrstu að vett-
vangsrannsókn og að skothylki,
sem fannst í bíl Gunnars,
sem hann var myrtur £. Að þvi
kom, að skothylkið og kúlan,
sem Gunnar var myrtur með,
var rakið til Jóhannesar Jósefs-
sonar, en eftir því sem bezt er
vitað, átti hann einu byss-
una hér á landi, sem skot
þetta passaði í. En þá var búið
að stela byssunni frá Jóhann-
esi fyrir nokkrum árum.
Þann 7. marz 1969 urðu
straumhvörf í rannsókn máls-
ins, er byssan fannst í fórum
Sveinbjarnar Gíslasonar, og
var hann þá handtekinn. Svein-
björn neitaði að vera á nokk-
urn hátt viðriðinn glæpinn,
og hefur haldið við þann fram-
burð allt síðan. Var hann í
gæzluvarðhaldi þar til 13. feþ-
rúar 1970, en hann var sýkn-
aður í undirrétti. Tveir dóm-
arar töldu hann sýknan af ákær
unni en dómsforseti taldi hann
sekan.
■ Saksóknari reifaði málið og
rakti rannsókn þess í öllum höf-
uðatriðum. Kva® hann greinilegt
að Gunnar hafi verið myrtur af
ásettu ráði. Sagðist hann ekki sjá
neina beina ástæðu fyrir glæpn-
um, nema ef vera kynni ágirnd,
enda taldi hann fullvíst eftir þeim
athugunum, sem gerðar hafa ver
ið, að peningaverski hafi verið stol
ið af Gunnari. Sagði saksóknari
a® ástæða væri til að ætla að
Gunnar hafi verið með meiri pen-
inga á sér þessa nótt en endranær.
Byggði hann þetta á því að fyrr
um nóttina sagði Gunnar starfsfé-
laga sínum á Hreyfli, að fyrr um
nóttina hefði sér verið greidd
skuld, sem hann bjóst ekki við að
fá. Ekki nefndi Gunnar hve há
þessi upph. var, né hver greiddi
honum hana. Hefur ekki hafzt
upp á þeim aðila. Sagði sækjandi,
að hann gæti ekki séð að Gunnar
hafi verið myrtur af hatri eða af-
brýðis. Taldi hann aðdraganda að
dauða Gunnars hafa verið skamm
an. Hafi honurn verið sagt að
stöðva bíl sinn fyrirvaralaust og
hafi sá sem sat í aftursætinu lát-
ið skotið ríða fyrirvaralaust af,
þegar bíllinn var stanzaður og hald
i® byssuhlaupinu rétt við hnakka
Gunnars. Síðan hefur morðinginn
flýtt sér á brott og ekki gefið sér
tíma til að hirða skothylkið af
gólfi bílsins. Ekkert bendir að
öðru leyti til að til átaka hafi kom
ið, en peningaveski Gunnars var
horfið. Morðinginn hefur greini-
lega notað hanzka og finnast eng-
in fingraför eftir hann í bílnum.
Þegar vegfarendur komu að var
vél bílsins £ gangi og gjaldmælir-
inn gekk. Stöðuljós voru kveikt.
Sveinbjörn hefur til þessa hald-
ið fast við þann framburð að hann
hafi fundið byssuna undir sæti i
bíl sínum, og segist ekki vita hver
setti hana þar. Fannst hún síðar
í hanzkahólfi í bíl hans, en þar
lét hann vopni©. í fyrstu sagðist
hann ekki vita neitt um þessa
byssu, nema hvað hún líktist
skammbyssu, sem fyrrverandi hús
bóndi hans Jóhannes Jósepsson
átti. Siðar breytti hann þessum
framburði og sagðisí hafa stolið
byssunni frá Jóhannesi fyrir mörg
um árum, en hefði ekki haft hana
í fórum sínum þegar morðið var
framið, og ekki fundið hana fyrr
en ári siðar í bil sínum. Sagðist
hann ekki hafa nokkurn grun um
hver setti byssuna í bílinn og eina
ástæðan fyrir því hlyti a® vera
að einhver vildi koma honum í
vandræði.
Þegar byssan fannst í bíl Svein-
björns var hún fullhlaðin.
Eins og fyrr segir hefur sækj-
andi enn ekki lokið sóknarræðu
sinni. Hann sagði í dag, að hann
vildi halda því fram að byssan hafi
aldrei farið úr fórum ákærða frá
því hann stal henni og þar til hún
fannst og var tekin af honum, en
hafi ekki horfið frá honum 1966,
eins og Sveinbjörn heldur fram.
Sagtði saksóknari að saga ákærða
um hvarf byssunnar og afturkomu
hennar væri með afbrigðum ótrú-
leg.
Eins og sagt var frá á sínum
tíma var byssan og skotin send til
Bandaríkjanna og rannsökuð þar
í sérstakri rannsóknarstofnun til
að fá úr því skorið hvort skotinu,
sem varð Gunnari að bana hafi
verið skotið úr byssunni. Niður-
stöður þeirrar rannsóknar voru
þær a® svo væri. Saksóknari sagði
að síðar hefðu gögnin verið send
rannsóknarstofnun í London og
hafi Hallvarður Einvarðsson farið
með þau þangað. Þar var fúliyrt
að rannsókn lokinni, að skotið
væri úr þessari byssu.
Málflutriingúr hefst að nýju í
fyrramáli®, og heldur saksóknari
þá áfram ræðu sinni.
Hreindýr
Framhald af 1 síðu
stærri hópnum hreyfðu sig hins
yegar ekki, enda var bifreiðin
ekki stöðvuð, heldur ekið hægt
fram hjá dýrunum. Lágu þau
makindalega i snjónum í sól-
skininu, eða kröfsuðu í snjóinn
og reyndu að ná sér i eitthvert
æti.
10 dýr öfan við Seyðisfjörð.
í brekkunni rnilli svokallaðra
Stafa ofan vi® Seyðisfjorð sá-
ust á föstudaginn um tíu dýr,
en þar hafa hreindýr haldið sig
á undanförnum árum.
\ v'sðavangi
Framhmr n ois 3
Það er hins vegar með Eyj-
ar eins og Binna í Gröf hér
á árunum. Þótt hann væri afla-
kóngur vertíð cftir vertíð, voru
aðrir skipstjórar með liærri
NÝ ÖRUGG
ATVINNA
MIRLIR TEKJUMÖGULEIKAR
Við ós'kium eftir aö komast í samband við fólk irueð sem
víðtækasta þekkingu á mörgum atvinnugreinum t. d. landbúnaði,
fiskvinnslu, bifreiðaverkstæðum, bensínsölum o. fl til þess að
starfrækja hreinsunar- og þvottastöðvar víðsvegar um landið.
Það hefur komið í ijós í öðrum löndum, þar sem þessi starfsemi
hefur þegar verið reynd, að þörfin er mikil og hagnaður þeirra,
sem starfrækja þær, lamgt yftr meðallag.
Þetta nýja þvottatæki, er hið hagkvæmasta og öruggasta sem til
er á markaðnum. Stofnkostnaður er u. þ. b. Nkr. 7.500,00.
Fagkunnátta er óþörf, þar sem við munum láta í té nauðsynlega
tilsögn. Þetta er sjálfstæður atvinnurekstur, sem jafnvel getur
farið saman meö annarri vinnu.
Skrifið strax og biðjið um náoari upplýsingar:
FABRIKEN HETRACO A.S.
PÓSTHÓLF: 5075, REYKJAVÍK
hlut. Eyjar eru ekki með mest-
an útflutning á íbúa. Meðan ég
nefni fleiri staði, mega menn
fara að geta sér til um það.
Keflavík og þorpin á Reykja
nesskaga geta sannarlega bor-
ið höfuðið hátt. Út úr Kefla-
vikurhöfn sigldu 37.815 tonn
sjávarafurða fyrir 1.500 millj-
ónir króna árið 1970 og senni-
lega fóra um 500 milljónir til
viðbótar frá þessu svæði, sem
flntt var út gegnum Reykja-
vík, svo að Suðnrkjálkinn hef-
nr skilað um 2 milljörðum kr.
á þessu eina ári.
Akranes seldi sjávarafla ár-
ið 1969 fyrir um 310 milljónir
króna. En tölur þaðan fyrir s.l.
ár eru ekki enn fyrir hendi.
Þaðan voru ank þess fluti
ar út iðnaðarafurðir á því ári
fyrir 26 millj. kr.
Siglufjörður flutti út sjávar-
afurðir 1970 fyrir 153 milljón-
ir króna og Húsavík fyrir 110
milljónir. Þá éru ötaldar sölur
Húsavikurbáta í Norðursjó.
Upptalningunni er þá komið
til Aústurlands, sem er svo
fjarlægt og afskekkt, að erlcnd
iy samgönguseffræðingar, sem
áttu áð gera tiflögur um sam-
göngur þar, hristu höfuðið og
tjjldu mikju einfaldara að
fíytja þéssar 11 þúsund hraeður
til Suðvesturlands en reyna að
leggja þar vegi, enda sýndust
þeim fáir möguleikar til menn-
ingarlífs á nútímavísu á slík-
um útkjálka.
f kaupstöðunum tveimur og
hirium 10 sjávarþorpum frá
Höfn í Bakkafirði til Hafnar
í Hornafirði búa um 7 þúsund
manns eða 3¥2% þjóðarinnar.
Þessir 12 staðir fluttu út sjáv-
arafurðir fyrir um 1.225 millj-
ónir króna árið 1970, eða sem
næst 9’4% af útflutningi
landsmanna.
Höfn í Hornafirði er þar efst
á blaði með sínar 270 milljónir
króna, sem gerir 213 þusund
krónur á hverp hinna 865 íbúa,
og er það þannig með allmiklu
hærri einstaklingshlut en Vest-
mannaeyjar.
En hæstan hlut allra staða,
scm ég hef fengið upplýsingar
um, hefur Stöðvarfjörður, lítið
þorp á sunnanverðuin Aust-
fjörðum. Hinir 237 íbúar Stöðv
arfjarðar færðu heildverzlun-1
inni í Reykjavík hvorki meira
né minna en 80 þúsund krónur
á hvert mannsbarn, eða rúm-
lega 1.400 þúsund krónur á
meðalfjölskyldu í plássinu.
Það virtist ekki óviðeigandi,
að SÍS og Félag íslenzkra stór-
kaupmanna sendu Stöðfirðing-
um kveðju í einhverri mynd í
þakklætisskyni fyrir hjálp-
ina.
Fast á eftir Stöðvarfirði og
Höfn í Hornafirði fylgir litla
Breiðdalsvík með sína 150
íbúa. Hún skilaði út 45 milljón
um króna eða 300 þúsund krón
um á íbúa.
Mér þykir rétt að geta þess,
að það eru ekki mörg ár, síð-
an Stöðvarfjörður komst í
vegasamband við umheiminn
— og það voru Breiðdælingar,
sem lánuðu í byrjun fé til
þeirra framkvæmda, af því að
ríkið hafði ekki fé hándbært.“
Þessar tölur, sem Sigurður
Blöndal hefur dregið hér fram,
æltu þeir að hugleiða vel,
sem við þægiiuli þéttbýlisins
hér suðvéstanlands búa en
telja jafnframt eftir allt það
sem íbúum landsbyggðarinnar
er gert til stuðnings. — TK.
ísinn
Framhald af bls. 1
Á Húnaflóa og Skagafirði er
talsverður ís.
Siglingaleiðin fyrir Horn er
sæniilega greiðfær eins og er, og
virðist greiðfærast 4 til 6 sjóm.
af Kögri og Horni.
Á sigling^leiðinni Horn Eyja-
fjörður og 10 til 15 sjóm. utan
hennár er ís 1—3/10 að þéttleika,
sigling þar er sæmilega greið-
fær.
Eyjafjörður er að mestu ís-
laus, nema nokkrar smá ísrastir
við Ólafsfjörð.
Ekki varð vart við ís á siglinga-
leiðum austan Eyjafjarðar.
ísinn sem kannaður var virðist
mcstmegnis þykkur fyrsta árs ís,
þykktin meira en. 120 cm.
Veður til ískönnunar var gott.
Auglýsið í Tímanum