Tíminn - 07.03.1971, Blaðsíða 2

Tíminn - 07.03.1971, Blaðsíða 2
2 TÍMINN SUNNUDAGUR 7. marz 1971 Nú er kominn tími til aS athuga höggdeyfana fyrir vorið og sumarið STILLANLEGIR höggdeyfar sem hægt er að gera við, ef þeir bila. — Nýkomnir KONI höggdeyf- ar í eftirtalda bíla: Opel Kapitan Rambler American Rambler Classic Renault Skoda Octavia Skoda 1000 M. B. Toyota Crown Toyota Corona Toyota Corolla Toyota Landcrusier Vauxhall Victor Vauxhail Viva Volvo, fóiksbifr. Willis jeep Opel Record Útvegum meö tiltölulega stuttum fyrirvara KONI-höggdeyfa í hvaSa bíl sem er. KONI-höggdeyfarnir eru í sér gæðaflokki og end- ast ótrúlega vel. Þeir eru einu höggdeyfarnir, sem seldir eru á íslandi með ábyrgð og hafa tilheyrandi viðgerða- og varahlutaþjónustu. KONI-höggdeyfar endast, endast og endast. S M Y R I L L - Ármúla 7 - Sími 84450 KOMI Chevrolet Chevelle Bronco International Scout Taunus 17 M (aftan) Hiilman Imp. Benz fólksbifr. Benz, vörubifr. N.S.U. Prins 1000 Fiat Moskvitch Opel Cadet Opel Caravan ■...................................................................... ' . . . ; Til foreldra fermingarbarna Marz-mánuOur er að verða mánuður æskulýðsins á íslandi. Þá er æskulýðsdagur þjóðkirkj- unnar að biskupsboíi næstum orðinn að hefð, o.g er það vel, þar sem allt er vel undirbúið og guðsþjónustur dagsins fjöl- sóttar með hljóðlátum helgi- blæ. Síú'ustu sunnudaga í marz hefjast svo fermingar hjá mörg um söfnuðum hér í borginni. Þeim þarf að Ijúka í apríl og margir söfnuðir verða enn að vera um hverja kirkju, sökum kirkjuleysis ungu safnaðanna. Líklega dettur fæstum í hug annað hér á landi en að ferm- ing sé nokkurs konar sjálfsagð- ur þáttur í uppeldisferli barns- ins, jafnvel takmark, sem verði vigsla til framtiðar og fullorð- insára. Samt er það nú svo, a& hér er iiokkuð að þakka. Ferhiing- ardagurinn er mörgum mikil hátíð, mikil tilhlökkun, mikil og heilög minningastund. Samt er það nú svo. að ekki er ýkja langt síðan farið var að ferma börn á íslandi. Og þá er annað líka til íhugunar. Sums staðar eru fermingar lagðar niður aö minnsta kosti í kirkjum. En hins vegar orðn- ar geysimiklar hópvígslur eða hátíðir æskufólks haldnar í stórum samkomuhúsum og koncertsölum stórborga. Sums staðar eru þetta nefndar borg- aralegar fermingar og farið að tíðkast hér á Norðurlöndum, en annars æskulýðsvígslur sem er í rauninni réttara, t.d. í Þýzkalandi einkum Austur- Þýzkalandi og er þar gengið hreinna til verks í orðum. Sagt er að „fermingar“ þessar eigi fátt sameiginlegt með þeirri kirkjulegu helgi, sem ennþá hvllir viðast hvar yfir kirkju- legum fermingum. Vel mættu foreldrar þó fara að gera ráð fyrir að þessi tízka nútímaveraldarvizku fær ist nær, svo að þau yrðu að gera , það, ppp í hugsun og framkvæmd, hvort þau ætluðu að íáta ferma börnin sín í kirkju eða ekki. Vont gæti þetta orðió' og erfitt þeim foreldrum, sem hafa látið börn sín ráða frá bernsku, en þannig er nú orð- ið víða. Og margir foreldrar telja það einmitt nær sjálfsagt, að börnin ráði hver fermir þau og hvar þau eru fermd.^. Líklega væri nær sanni að HANDAVINNA HEIMILANNA HUGMYNDABANKINN Verðlaunamunir úr samkeppn- inni „Handavinna heimilanna" verða sýndir um hélgina í gluggum Gefjunar í Austurstræti. Auk verðlaunamunanna verða einnig sýndir aðrir athyglis- vsrðir keppnismunir. Sjón er sögu ríkari. GEFJUN AUSTURSTRÆTI endurskoða vandlega þá aðferð og þaó' jafnvel á fleiri sviðum. Nú er þetta val, t. d. svo nærri sem í Kaup- mannahöfn, að verða eitt a'ö vandamálum í uppeldi æskunn ar og ákvörðunum foreldra þeim til handa, sem laridið eiga að erfa. Vonandi verður bið á því, að það vandatmál berist hingað og borgaralegar ferm- ingar eru varla íslendingum að skapi, nema þá helzt upp- reisnargjarnri og óframsýnhi æsku. En það er ýmislegt ann- aó', sem foreldrar mættu gjarn- an taka sem fyrst til athugun- ar viðvíkjandi fermingum bama sinna eins og þær eru nú. Það fyrst að velja sem bezt handa þeim undirbúning. Og þar kemur margt til greina. En tilgangur allrar þeirrar fjölbreytni sem nú er til reiðu í fermingarundirbúningi, allt frá kvikmyndasýningúm til bænastunda, þarf að vera sá að auka virðingu barna fyrir því sem heilagt er og kenna þeim að umgangast hið heilaga og gera þeim ljóst að Krist- ur og kenningar hans eru upp- sprettulindir sannrar ham- ingju og sígilt leiðarljós. Þá ættu foreldrar að sjá um að börnin sæki kirkjuna sem bezt, meðan undirbúningsnámskeið- ið, svonefndur spurningatími, stendur yfir. Helzt ættu þau að fara sem oftast með þeim sjálf til messu og tala svo við þau um það, sem þar er sagt og gert með lotningu og virð- ingu. Fátt er ánægjulegra í kirkju en að sjá fallegar. prúð- búnar fjölskyldur sem fylla heila bekki. Gætið þess foreldr ar, hve mikill munur er að segja við barn sitt ,,komdu“ til kirkju eða ,,farðu“ til kirkju. Og munurinn á „komdu“ og ..faróU" er geysi- Iegur til árangurs eða ósigurs í öllu uppeldi og í öllum til- gangi. Ennfremur er nauðsynlegt að fylgjast með því, hvort börnin gera samvizkusamlega og af trúmennsku og vand- virknj það, sem presturinn ætlast til af þeim. Því er oft- ast mjög í hóf stillt og næsta litið nú orðið hjá flestum prestum. En þeim mun meiri ástæða til að vanda það vel. Og öll ótrúmennska og svik- semi á þessu sviði vinnur beint á móti tilgangi ferming- arinnar. Umfram allt, kæru foreldr' ar, gerið fermingarheitiö og ferminguna, athöfnina sjálfa og undirbúninginn að helgi- dómi í vitund barna ykkar. Til þess duga hvorki gjafir né veizlur heldur trúuð hjörtu, sem slá heit af fórnfýsi og kærleika. Árelíus Níclsson. Skákkeppnin Svart: Taflfélag Akureyran Jóhann Snorrason og Margeir Stelngrimsson. vaoaaAÐH Hvítt: Taflfélag Reykjavíkur: Gunnar Gunnarsson og Trausti Björnsson. 26. leikur svarts: Dd6—c7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.