Tíminn - 07.03.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 07.03.1971, Blaðsíða 7
SUNNUDAGUR 7. marz 1971 TIMINN WBMani 7 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvaemdastjóri: Kristján Benediktssonj Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Jón Helgason, Indriói G. Þorsteinsson og Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Rlt- stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu, símar 18300 — 18306. Skrif- stofur Bankastræti 7. — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingasimi: 19523 Aðrar skrifstofur simi 18300. Askriftargjald kr. 195,00 á mánuði tnnanlands. í lausasölu kr. 12,00 eint. — Prentsm. Edda hf. Er þetta hægt? Eitt mesta vandamálið í sjúkrahúsamálum okkar nú er skortur á hjúkrunarfólki. Við umræðu um þingsályktun- artillögu Einars Ágústssonar og Sigurvins Einarssonar í fyrradag, um að Alþingi álykti að skora á ríkisstjómina að gera þegar í stað raunhæfar ráðstafanir til þess að ráða bót á skorti hjúkrunarfólks, gerði ráðherra heil- brigðismála sig að hreinu viðundri. í framsöguræðu sinni fyrir tillögunni minnti Einar Ágústsson á, að er heilbrigðismálaráðherra, Eggert Þor- steinsson, hefði svarað fyrirspum frá sér um þetta mál á Alþingi í októbermánuði sl., hefði hann lýst yfir, að hann hefði ákveðið að setja á laggimar nefnd, sem hefði það hlutverk að semja lög um námstilhögun og starfs- réttindi hjúkmnarfólks. Eggert G. Þorsteinsson sagði við umræðuna í fyrra- dag, að hann hefði aldrei gefið fyrirheit um, að nefnd yrði skipuð til að semja lagafrumvarp um þessi mál, heldur aðeins lofað því, að málið yrði rannsakað. Einar Ágústsson greip þá til skjala Alþingis og las upp ummæli ráðherrans frá þvi í október, þar sem sagði meðal annars orðrétt: „í sambandi við skort annars sér- menntaðs fólks og starfsliðs fyrir sjúkrahús, þá hefur ráðuneytið nú ákveðið að setja á laggimar nefnd, sem hefur það hlutverk að semja lög um námstilhögun og starfsréttindi slíks fólks og er þess að vænta, að nýtt lagafrumvarp verði lagt íyrir þetta Alþingi.“ Ráðherrann svaraði því til, að hann hefði gleymt þessu og baðst afsökunar á gleymsku sinni og kvaðst vona, að hann yrði ekki talinn minni maður af að við- urkenna hana. Heilbrigðismálaráðherrann sagði, að fé skorti ekki til þessara mála í fjárlögum, þar eð það væri ekki fullnýtt, og ekki skorti skólahúsnæði, þar sem Hjúkmnarskólinn væri ekki full setinn — og ekki skorti hjúkrunarkennara, þótt þeir virtust ekki vilja kenna við skólann. í þessu máli væri því vandinn sá að finna vandann. Það kom fram í ræðu Einars Ágústssonar, að ekki væri þetta ástand í hjúkmnarmálunum að kenna dræmri aðsókn að Hjúkrunarskólanum. Aðsókn væri svo mikil að skólanum, að forstöðumenn skólans neituðu að af- henda þeim, sem hug hafa á hjúkrunamámi, umsóknar- eyðublöð. Skólinn getur tekið á móti 90 nemendum, en aðeins 60 er veitt skólavist. Sýnist því augljóst, að eitt- hvað er bogið við þetta og ærin þörf að leysa úr þeim vanda sem fyrst. En síðan í október hefur ráðherrann greinilega ekki verið önnum kafinn við að glíma við þann vanda að finna vandann. Hann var alveg búinn að gleyma málinu. Mundi ekki eftir því í byrjun marz, að í október hafði hann gefið um það yfirlýsingu, að hann hefði ákveðið að skipa nefnd til að semja lagafrumvarp um hjúkmn- amám og réttinda hjúkrunarfólks og þá talið Alþingi trú um að hann hefði fullan hug á því að það mál yrði afgreitt á þéssu þingi, sem skammt lifir nú af. Hér var þó um það mál að ræða, sem öllum ber saman um að brýnast er nú-að leysa í íslenzkum heilbrigðis- og sjúkra- húsamálum! Ráðherrann gleymdi því óvart! Höfum við efni á að hafa slíkan heilbrigðismálaráð- herra ? Er þetta ekki enn eitt dæmið um það, að ráðherrar núverandi ríkisstjórnar eru orðnir þreyttir, væmkærir og úrræðasnauðir og það sé orðið meira en tímabært að hleypa nýjum lífsanda í landstjómina með nýjum mönnum, nýjum viðhorfum og raunhæfum úrræðum? — TK í DAVID HALBERSTAM, New York Tímes: Bandaríkjamenn gleyma því, að Vietnam er ættland óvinanna Því ráða hugsjónir, en ekki vopn, úrslitunum. Höfundur þessarar grein- ar, David Halberstam, var um alllangt skeið fastur blaðamaður hjá New York Times og skrifar enn öðru hverju greinar í blaðið, en aðallega skrifar hann nú greinar fyrir Harper's Maga zine. Honum var fyrir nokkr um árum vísað frá Póllandi vegna berorðra frétta það- an. Síðar fór hann á vegum New York Times til Viet- nam og sendi stríðsfréttir þaðan. Fyrir þær hlaut hann Pulitzer-verðlaunin, sem þykja mikil viðurkenn- ing. JÆJA, þá er komið að Laos. Svona gengur þetta í það ó- endanlega. Hvern gat órað fyrir að við tæki ný jarðgöng. einmitt þeg ar við áttum von á að sjá örla á skimu við enda jarð gangnanna, sem við vorum að brölta í? Við höfum áður heyrt röksemdirnar, sem nú óma í eyrum okkar: Flýtum styrjöld- inni, hröðum heimflutningi her sveita okkar, verndum líf Bandaríkjamanna, eflum sið- ferðilegan styrk ríkisstjómar- innar í Suður-Víetnam, sýnum forustunni í Hanoi svart á • hvítu, að okkur sé full alvara að ná því marki, sem við höf um sett okkur. Þrátt fyrir þetta læðist að okkur grunur um, hverju við eigum von á í Laos: Eigi sömu, gömlu rökin við í Laos hlýtur okkur að gruna sama, gamla misskilninginn og sömu blekk ingarnar og áður. FYRST ber að telja þá trú, að þegar við hefjumst handa eigi óvinirnir ekki um neitt að velja, enga möguleika til gagn árásar. Þetta er ef til vill at- hyglisverðasta blekkingarendur tekning styrjaldarinnar. Við getum rakið feril hennar allt aftur til ársins 1946. Reynslan hefir ávalt leitt í ljós, að her sveitir kommúnista í Vietnam eiga dýpri rætur í þjóðlífinu en önnur öfl. og hermenn þeirra eru fúsari til að fórna lífi sínu en aðrir. (Af þessu stafaði misskilningurinn á valda árum Kennedys, þegar hug- myndin um takmarkaðar hem aðaraðgerðir var í tízku. Við heyjum því takmarkaða styr jöld, en óvinimir, sem voru og eru færri, máttarminni og að öllu verr búnir, heyja skefja lausa styrjöld). Okkar mesta skyssa er að gleyma því, að þetta er þeirra heimaland. Tíminn verður þeim ætíð hliðhollur. Þeim þarf aldrei að liggja á. (Stjórnmála sérfræðingurinn Henry A. Kiss inger sagði endur fyrir löngu, meðan hann gagnrýndi styrjald arótö<kin og áður en hann hóf starf við skipulagningu þeirra, að skæruliðarnir bæm tvímæla laust sigur úr býtum ef þeir i væru ekki sigraðir). ; SKÆRULIÐARNIR geta ávalt haft í fullu tré við okk- ur, hvað svo sem við tökum NIXON — sömu skyssurnar og hjá Johnson okkur fyrir hendur. Við ger um loftérásir á Norður-Víet nam og Norður-Víetnamar senda aukið lið á vígstöðvamar í suðri. Við sendum hersveitir á vettvang í suðri og þá senda þeir enn fleiri menn að norð an. Við ráðumst á bækistöðvar þeirra í Cambodíu og þá leggja þeir aukna áherzlu á styrjaldar átökin þar og í ljós kemur, að þeir eru okkur öflugri þar sem annars staðar. Við tökum þann kost að ráðast inn í Laos, bæði her Suður-Víetnama og banda rískar hersveitir. Getur nokkr um, sem fylgzt hefir með gangi hinnar hryggilegu styrjaldar, dottið í hug í alvöru, að óvin irnir eigi þess ekki kost að koma fram á enn nýjum stað, þar sem við erum veikir fyrir en þeir öflugir? Aðra styrjaldarblekkingu mætti kalla blekkingu hinna varanlegu og áþreifanlegu stöðva. Þarna er ýmist um að ræða ákveðnar leiðir, bækistöðv ar, kjama ákveðna hersveita, birgðastöðvar eða verksmiðjur. Þetta er allt unnt að sjá, taka af því myndir, bera kennsl á það og eyðileggja það. Þetta hefir ávalt verið eitt aðal við- fangsefnið. Er þessu stríði þá þannig hátt að, að varanlegar stöðvar og áþreifanlegur herstyrkur sé í raun og vem eins og út lítur fyrir? Eða er þessu ef til vill heldur þannig varið, að þetta sé aðeins tímabundnar og ó- áreiðanlegar svipmyndir af búnaði andstæCinganna og að- stöðu, en hugsjónir þeirra og ákveðni ráði úrslitum? STYRJÖLDIN hefir staðið i tuttugu og fimm ár og fram vindan hefir sannað betur og betur, að síðari spurningunni ber að svara játandi. „Hve lengi viljið þið Banda ríkjamenn berjast“, spurði Pham Van Dong í Hanoi fyrir fjórum árum. „Viljið þið berj ast í eitt ár, tvö ár eða tutt ugu ár? Ofckur er aðeins gleoi efni að verða við óskum ykk- r.“ Vestrænir menn, einkum þó henmenn og hernaðarsérfræð ingar hafa ávallt haft tilhneig ingu til að leggja allt kapp á að glírna við varanlegar stöðv ar og áþreifanlegan herstyrk og ofmeta áhrifin af stundleg um árangri í eyðileggingu slíkra hluta. Þetta eykur okkur svartsýni og okkur getur fundizt, að við séum staddir nákvæmlega á sama stað og við vorum fyrir mörgum árum. Og þá er spum ingin, hvernig á því stendur? Fyrst örlaði á skýringu á þessu í hinni þögulu baráttu árið 1968. Ef Nixon hef&i verið al- vara að komast með bandaríska herinn á burt, hefði hann þá þegar látið þann vilja sinn í ljós. S'NEMMA á árinu 1969 gerð ist það svo, meðan enn ríkti þögn á æðri stöðum, að Kissing er lýsti því yfir í viðtölum við menn hér og þar í Washing- ton, að árás Cliffords og Harri- mans‘ á ríkísfetjóm þeirra Thi- eus og Kys vtfcri alvarlegasta skyssan, sem ríkisstjóm John- sons hefði gert. Síðar réðist Nixon sjálfur á Clifford. Skömmu síó'ar eða 3. nóvem ber 1969 flutti Nixon einhverja mikilvægustu ræðu, sem flutt hefir verið af hálfu Bandaríkja stjómar. Þá sagði hann, að her inn yrði fluttur á burt frá Viet nam, án allra ávirðinga. Þá tileinkaðj hann sér þá hugsun og þau gömlu rök, sem lengst hafa verið höfð á takteinum í sambandi við styrjöldina, eða að lífvænlegt ríki andkommún ista í Suður-Víetnam væri bandarískum hagsmunum bráð nauðsynlegt. Stefnan hefir síðan orðið srniátt og smátt skýrari og ákveðnari: Herskáum verka- lýðsleiðtpgum hefir verið fagn að í Hvíta húsinu, Joseph Al- sop hefir verið heiðraður, frið arsinnuðum fulltrúa Republi- kanaflokksins í öldundadeild- inni hefir verið útskúfað og varaforsetanum hefir verið sig að á andstæoinga styrjaldarinn ar. Svo kom innrásin í Cam- bodíu og síðan Laos. Don Ober dorfer, fréttaritari Washington Post í Hvíta húsinu skrifaði fyr ir skömmu mjög skarplega lýs ingu á því. sem gerzt hefir: „Aðalatriðið er, að forsetinn virðist trúa því í einlægni, að Bandaríkjamenn eigi ákaflega mikið undir því komið, að and stæðingar kommúnista ráði ríkj um í Víetnam. Hann virðist sannfærohr um, að þetta geti tekizt og er reiðubúinn að hætta miklu og leggja mikið í sölurnar til þess að reyna að ná því marki. „Forsetinn virð- ist með öðrum orðum trúa því, að Bandarífcjamenn geti sigr að í styrjöldinni, eða komist hjá að bíða ósigur ef menn vilja heldur orða það svo. Þeg ar forsetinn segir „fricAir" á Framhald á 14. síöu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.