Tíminn - 03.04.1971, Side 10
10
TIMINN
LAUGARDAGUR 3. aprfl 1971
L. W. MARVIN:
BYSSA TIL LEIGU
— Sama fyrir mig. sagSi Jim.
og Rogan hvarf á brott.
— Nú. svo áð þér eruð einn af
vinum Sams. Það er kynlegt, að
hann skuli aldrei hafa getið um
yður við mig.
— Málafærzlumenn þekkja
ótrúlegan fjölda furðulegra
manna, svaraði Jim.
Rogan kom nú með glösin, og
þegar hann var farinn, sagði hún:
— Mér finnst þér ekki vera
neitt furðulegur. Þér eruð snotur
og viðfelldinn.
Við þessu gat Jim ekki fundið
neitt sérstakt svar, og þessvegna
lyfti hann aðeins glasinu og
drakik henni til.
— Hyggist þér dvelja lengi í
bænum? spurði hún.
— Nokkra daga, býst ég við.
— Ég vona. að þér sitjið til
borðs með okkur í kvöld.
— Það er nú ætlunin. að ég
búi hjá ykkur. meðan ég dvelst
hér.
— Er það satt? En hvað það er
gaman.
Gildvaxin, gráhærð kona í nær-
skornum kjól og með eitthvað það
á höfðinu. sem einna helzt minnti
á skorpnaða orkídeu, kom rétt í
þessu út úr veitingasalnum.
— Katherine, mælti hún og
leit forvitninaugum á Jim. — Við
erum farin að bíða eftir þér.
— Ég kem eftir andartak.
Myrtle.
— En það varst þú, sem áttir
að gefa. mælti gildvaxna konan
enn.
Katherine Allgood andvarpaði
og drakk í botn.
— Við sjáumst síðar, mælti
hún við Jim og fylgdi því næst
gráhærðu konunni eftir til bridge-
borðsins.
Jim Bonnett tæmdi glasið, lagði
nokkra peninga á borðið og gekk
síðan út á völlinn. Enginn golf-
leikari var alveg í nánd, en spöl-
korn utar á vellinum stóðu fjór-
ir menn og höfðust ekki að. Hann
gerði ráð fyrir, að það væri Jeff
Winters og leiknautar hans og
hélt því áfram í hægðum sínum,
þar til þeir höfðu lokið við
sjöttu holuna. Þegar hann var
sjálfur kominn þangað stóð hann
grafkyrr og renndi augum sem
snöggvast yfir næsta umhverfi.
Þarna var tré við tré. Stígurinn
að sjöttu holu lá annarsvegar að
röð af háum espitrjám og hins
vegar að allstórum maísakri. Með-
fram endilangri brún akursins
var komið fyrir vírgerði, sem á
voru fest með hæfulegu millibili
auglýsingaspjöld, en á þeim stóð:
Einkaeign. Aðgangur bannaður.
er iaugardagurinn
3. apríl
Árdegisháflæði í Rvík kl. 00.02.
Tungl í hásuðri kl. 20.41.
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan i Borgarspítalan-
um er opin allan sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
81212.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir fyr-
ir Reykjavík og Kópavog sími
11100.
Sjúkrabifreið í Hafnarfirði sími
51336.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu i borginni eru gefnar )
símsvara Læknafélags Reykjavík
ur, sími 18888
Fæðingarheimilið í Kópavogi.
Hlíðarvegi 40, sími 42644.
Tannlæknavakt er í Heilsuverndar-
stöðinnl, þar sem Slysavarðstoí
an var, og er opin laugardaga oc
sunnudaga kl. 5—6 e. h — Simi
22411.
Kópavogs Apótek er opíð virka
daga kl. 9—19, laugardaga k’. 9
—14, helgidaga kl 13—15.
KeHavíkur Apótek er opið virka
daga kL 9—19, Laugardaga kl.
9—14, helgidaga kl 13—15.
Apótek Hafnarfjarðar er opið alla
virka dag. frá kl. 9—7. á laugar-
dögum kl. 9—2 og á sunnudög-
utn og öðrum helgidögum er op-
ið frá kl. 2—4.
Mæiinsóttarbólusetnina fvrii fnll
orðna fer fram i Heilsuverndar
stöð Reykjavíkur á mánudögum
kl. 17—18. Gengið inn frá Bar
ónsstíg, yfir brúna
Kvöhl- og helgarvörzlu apótcka í
Reykjavík, vikuna 3.—9. apríl,
annast Vesturbæ.jar Apótek og
og Háaleitis Apótek.
Næturvarzla er að Storholti 1.
Næturvörzlu í Keflavík 3. og 4.
apríl annast Kjartan Ólafsson.
Næturvörzlu í Keflavík 5. apríl
annast Arnbjörn Ólafsson.
KIRKJAN
Neskirkja.
Barnasamkoma kl. 10,30. Ferming-
arguðsþjónusta kl. 11 og kl. 2. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Dómkirkjan.
Fermingarguðsþjónusta kl. 11. Sr.
Óskar J. Þorláksson.
Feimingarguðsþjónusta kl. 1,30. —
Sr. Ólafur Skúlason. Fermingar-
messa kl. 3,30. Sr. Ólafur Skúla-
son.
Fjarlægðin ti: sjöttu holu var
eitt hundrað og sjötíu stikur, en
endamörk akursins og reinarinn-
ar voru hin sömu. í nánd við
númer sjö voru nokkrar bygging-
ar, og var það sjáanlega búgarð-
urinn, sem maísakurinn taldist til.
Jeff Winters og leiknautar hans
voru þegar á leið til áttundu
holu. Jim kom kúlu sinni fyrir og
lét sem hann byggi sig af kost-
gæfni undir næsta högg, en um
leið leit hann grandgæfilega til
beggja hliða. Á bak við dálitla
þyrpingu grenitrjáa greindi hann
lítinn skúr.
Hann sté fast niður og lyfti
kylfunni. í sama bili kvað við
feikna hvinur. — zing-g,sagði þyt
urinn. og nær því á sama andar-
taki bar vindurinn óminn af hvell
inum þangað, sem hann stóð. Jim
sentist heim að skúrnum og hnipr
aði sig niður á bak við hann.
Hann beið í sömu stellingum
fulla mínútu, áður en honum
barst til eyrna fuglakvakið, suðið
í býflugunum og öskrið í kúnum
í fjarska. Hann leit vandlega á
fjalirnar, sem skúrinn var sleg-
inn saman með. Um leið ag hann
leit upp fyrir sig, kom hann auga
á rifu. en út úr henni stóðu
nokkrar spánýjar flísar. Örlítið
lengra til hægti voru þrjú svipuð
göt í viðbót. Jim tók fram vasa-
Langholtsprestakall.
Fermingarguðsþjónu^ta kl. 9. Sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson. —
Fermingarguðsþjónusta kl. 10,30.
Sr. Sigurður Ilaukur Guðjónsson.
Fermingarguðsþjónus'ta kl. 13,30.
Sr. Árelíus Níelsson. — Altaris-
ganga á Skírdag kl. 8,30 e. h. Báð-
ir prestarnir.
Árbæjarprestakall.
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju
pálmasunnudag, kl. 11 árdegis. Ath.
breyttan messutíma. Sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson.
Laugarneskirkja.
Messa kl. 10,30. Ferming og altaris-
ganga. Sr. Garðar Svavarsson.
Bústaðaprestakall.
Barnasamkoma í Réttarholtsskóla,
kl. J0,30. Fermingarmessur í Dóm-
kirkjunni kl. 1.30 og 3.30. Sr.
Ólafur Skúlason.
Hafnarfjarðarkirkja.
Fermingarguðsþjónusta kl. 10,30.
Fermingarguðsþjónusta kl. 2. Sr.
Garðar Þorsteinsson.
Lágafellskirkja.
Barnamessa kl. 2. Sr. Bjarni Sig-
urðs.son.
Grensásprcstakall.
Fórnarvika kirkjunnar. Sunnudaga-
skóli í Safnaðarheimilinu. Miðbæ,
kl. 10,30. Guðsþjónusta kl. 2. Sr.
Jónas Gíslason.
Ilallgrímskirkja í Saurbæ.
Föstusacnkoma kl. 2. Sigurveig
Iljaltested syngur einsöng við und-
irleik Ilauks Guðlaugssonar, sem
einnig leikur einleik á orgel kirkj-
unnar. Sr. Bernharður Guðmunds-
son æskuiýðsfulltrúi þjóðkirkjunn-
ar flytur ræðu. Sóknarprestur les
ritningarorð og minnist fórnarviku
kirkjunnar. Sr. Jón Einarsson.
Hallgrímskirkja.
Fermingarmessa kl. 11. Dr. Jakob
■Tónsson.
JlátelgFkirkja.
'Tessa kl. 10,30, ferming. Sr. Arn-
grítnur Jónsson. Fermingarguðs-
hjónu.sta kl. 2. Sr. Jón Þorvarðsson.
Aðventkirkjan, Rcykjavík.
Laugardagur: Biblíurannsókn kl.
9.45 árdegis. Guðsþjónusta kl. 11.
Svein B. Johansen prédikar.
Sunnudagur: Samkoma kl. 5. Ræðu
maður: Sigurður Biarnason.
Safnaðarheimili Aðvontista,
Keflavík.
Laugat’dagur: Guðsþjónusta kl. 11.
Sunnudagur: Samkoma kl. 5. Ræðu
maður Steinþór Þórðarson.
flttoaætlantr
Loftleiðir hf.:
Snorri Þorfinnsson er væntanlegur
frá New York kl. 07:00. Fer til
Luxemborgar kl. 07:45, Fr væntan-
legur til baka frá Luxemborg kl.
16:00. Fer til New York kl. 16:45.
Leifur Eiríksson er væntanlegur
frá New York kl. 10:30. Fer til
Oslónr og Kaupmannahafnar kl.
11:30.
^GTTAjq.AR
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla er á Húnaflóahöfnum á vest-
urleið. Herjólfur fer frá Reykja-
vík kl. 21.00 á mánudagskvöld til
Vestmannaeyja. Herðubreið er á
Norðurlandshöfnum á austurleið.
Skinadeild S.Í.S.:
Arnarfell er á Akranesi. Fer það-
an í dag til ísafjarðar og Norður-
iandshafna. Jökulfell fór í gær frá
New Bedford til Reykjavíkur. Dís-
arfell fór í gær frá Svendborg til
Reykjavíkur. Litlafell er væntan-
lest til Rotterdam 5. þ. m. Helga-
fell losar á Eyjafjarðarhöfnum.
Stapafell losar á Vestf.iörðum.
Mælifell fór 31. marz frá Heröya
til Reykjavíkur. Lone Danica er á
I-Iornafir'ði. Fer þaðan til Þorláks-
hafnar. Martin Sif er í Þorláks-
höfn. Hermann Sif fer frá Kaup-
mannahöfn í dag til íslands.
Félagsstarf cldri borgara
I Tóc.b?"
Þriðjudag 6. apríl hefst haníta-
vinna og föndur kl. 2 e. h. Mið-
vikudag 7. apríl verður opið hús
frá kl. 1,30 til 5.30 e. h.
Æskulýðsstarf Neskirkju.
Fundir fyrir stúlkur og pilta 13
ára og eldri, mánudagskvöld kl.
8.30. Opið hús frá kl. 8, Sr. Frank
M. Halldórsson.
Sunnudagsferð 4. apríl 1971:
Strandganga: Kúagerði — Straums-
vík. Lagt af stað kl. 9,30 frá Um-
ferðarmiðstöðinni (B.S.Í.).
Ferðafélag íslands
Frá Ferðafclagi íslands.
Báskaferðir:
1. Þórsmörk. 5 dagar.
2. Þórsmörk 2V2 dagur.
3 Hagavatn. 5 dagar (ef fært
verður).
Ein.sdagsferðir um páskana
(gevmið auglýsinguna).
8/4 Vífilsfell.
9/4 Valahnúkar — Helgafell.
10/4 Borgarhólar — Mosfellsheiði.
11/4 Reykjafell — Hafravatn.
12/4 Lækjarbotnar — Sandfell.
í einsdagsferðir verður lagt
af stað kl. 1,30 frá Umferðar-
miðstöðinni.
Ferðafélag íslands
Dansk kvindeklub
Tirsdag, den 6. april kl. 20,30.
Vi mödes ved Landakotsspitali.
Kaffen drikkes í Hallveigarstaðir.
Bestyrelsen.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund í Sjómannaskólan-
um, þriðjudaginn 6. apríl kl. 8,30.
Frú Steinunn Finnbogadóttir kynn
ir orlof húsmæðra. Myndasýning:
Gunnar Hannesson. Félagskotiur!
Mætið vel og stundvíslega. Nýir
félagar velkomnir. — Stjórnin.
orðsending"
MUNIÐ FERMINGARKORT
LANGHOLTSSAFNAÐAR
ARNAÐ HEILLA
Kvenfélag Grensá«sóknar
heldur fund mánudaginn 5. apríl
kl. 8.30 í Safnaðarheimilinu. —
Mvndasýning verður, frá landinu
helga. Einsöngur: Halldór Vilhelms
son. Sr. Jónas Gíslason talar.
65 ára er í dag, 3. apríl, frú
Björg Árnadóttir, Stóra-Hofi í
Gnúpverja-hreppi. Hún er kona
Guðjóns Ólafssonar, bónda þar, og
eiga þau 5 börn, sem öll eru á lífi.
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSJSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS:
GÆfAT GO/NG/ /SO/Y TOT/A/0 OU7
MWO /yasbten beh/np tne
AT7EMPTS 70/YPEC/TMy/VElV
BA/T. l/NE! J3UT/'M SNPE/T$
EEEN PEPPyNEiYTOT/l
— Byssan mín cr ónýt! — Upp með að því, hver hefur stjórnað skemmdar- Perry Newton. Á meðaii... — Jæja, þér
hendur! — Gott, nú skulum við komast verkunum! En ég er viss um, að það er eruð kominn um borð, Newton. — Já,
og öruggur! »