Tíminn - 18.04.1971, Page 10
10
SUNNUDAGUR 18. aprfl 19U
TJMIMN
Flokksþingíð
Framhald aí 1. síðu.
framboða til Alþingiskosninga.
Væri Framsóknarflokkurinn eini
flokkurinn sem þetta hefði gert,
þótt aðrir flokkar hefðu einnig
haft skoðanakannanir hér og þar.
Frumkvæðið að þessum skoðana
könnunum hefðu í sumum tilvik-
um kjördæmissamtökin sjálf haft,
en f ððrum hefði tilefnið verið
ályktun miðstjórnarfundar 1968,
þar sem mörkuð hefði verið sú
stefna, að skoðanakannanir skyldu
vera undanfari allra framboða. f
þeirri ályktun væri lögð áherzla
á, að stæðhættir væru mismun-
andi í kjördæmum og ekki væri
eðlilegt að sömu reglur giltu
endilega í'þeim öflum. Af þessum
sökum hefði framkvæmdastjórn-
in ákveðið að setja ekki almenn-
ar, bindandl reglur um tilhögun
skoðanákaimananna, hcldur hefði
hún gefið út almennar leiðbein-
ingar með ýmsum valkostum og
sent kjördæmissamböndum.
Framkvæmdin hefði orðið sú, að
í engum tveim kjördæmum hefði
verið fylgt sömu reglum. Því
hefði fengizt mjög dýrmæt
reynsla í mörgum atriðum og væri
mjög nauðsynlegt að vinna úr
^henni og draga af henni lærdóm.
1 í öllum kjördæmum væru fram
boðslistar í öllum meginatriðum í
samræmi við niðurstöður kannan-
anna.
Að lokum sagði Helgi Bergs
m.a.:
„Samhiiða þeim önnum, sem
starfsfólk flokksins hefur átt í
vegna undirbúnings flokksþings-
ins, hefur verið unnið ötullega að
undirbúningi alþingiskosninganna.
Lokið er við að dreifa kjörskrám
út í kjördæmin þar sem þær koma
vonandi að góðum notum.
Til nýmæla má telja, að verið
er að stofna til starfshópa í
Rrvk- ip'' o° f-’ ir bv rt
kjördæm' nt—1 R vt' v-!v og
eru í þesspm hóoum m r>n aðflutt
ir úr kjördæmunum og kunnugir
þar en nú bús"'ttir í Reykiavík.
Hlutv'rk þoirra er að vera starfs-
liði aðalskrifstofu til ráðuneytis
og aðstoðar í kosriingavinnunni og
standa vonir til að af því verði
mikill ávinningur.
Þá er þess að geta, að verið er
að leggja síðustu hönd að gerð
handbókar fyrir frambjóðendur og
aðra baráttumenn flokksins, en í
henni verður að finna ýmsar gagn
legar upplýsingar af vettvangi
stjórnmálanna. Standa vonir til að
hægt verði að dreifa bókinni inn-
an tveggja til þriggja vikna.
Lokaorð þessarar skýrslu skulu
vera þakkir til allra þeirra, sem
lagt hafa hönd að verki í starf-
semi flokksins. Framkvæmda-
stjóra og öðru starfsliði flokksins
skal þakkað mikið og vökult starf,
starfsliði Tímans og annarra blaða
flokksins einnig. En fyrst og
fremst ber að þakka þeim fjöl-
mörgu áhugamönnum um allt
land, sem alltaf eru boðnir og
búnir til að leggja fram fé og fyr-
irhöfn í þágu flokksins og með eld
móði og fórnfýsi halda uppi öfl-
ugri félagsstarfsemi á hans veg-
um, úti um dreifðar byggðir lands-
ins.“
Dýrgripir
Framhald af bls. 1
Gunnar Björnsson, ræðismaður í
Kaupmannahöfn.
Engin sérstök athöfn var í Kaup
mannahöfn, þegar þessi fyrstu
handrit voru sett um borð í Vædd-
eren, en þeim mun meiri viðhöfn
verður í Reykjavík, þegar þessar
langþráðu bækur verða bornar á
land á miðvikudaginn og afhentar
/íslendingum síðar um daginn. Þá
fyrst má segja, að handritamáljnu
séloiað; og ér því vonandi að heim
ferðin gangi að óskum, og allt fari
: þar samkvæmt áætlun.
135 PAPPÍRSÞURRKUR KOSTA
SAMAOG ÞVOTTUR ÁEINU
HANDKLÍÐI
SKÚLAGÖTU 32,-SÍMI 84435
í V
Rafgeymaþjónusta
Rafgeymasala
A&bMöa rafsaymtaviðgerðir og
Notnm eÍDgöngu og seljum
feemisk hreinsað rafgeymavatn.
Fyót og ömgg þjónusta.
Tæknwer, afgreiðsla
PmpiwtjHf 21 — Simi 33 1 55
hleðsla.
járninnihaldslaust
— Næg bílastæði.
„SÖNNAK
RÆSIR
BlLINN"
Pípöfegf«ngameistarar athugið
Piltur sem lokið hefur námssamningi í pípulögn-
um óskar eftir að fá vinnu við pípulagnir, helzt á
Norður- eða Austurlandi. Þeir, sem áhuga kynnu
að hafa, vinsamlegast sendi svar á afgreiðslu
blaðsins merkt: „Pípulögn 1161“ fyrir næstu mán-
aðamót.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Þriggja til fjögra herbergja íbúð, sem næst mið-
bænum, óskast á leigu sem allra fyrst. Fyrirfram-
greiðsla. Upplýsingar í síma 85018 og 33988.
BYGGINGARLÓÐ
óskast til kaups í Reykjavík eða nágrenni.
Til'boð sendist afgreiðslu Tímans
merkt: „Lóð 1160“.
Atvinna - Hafnarfjörður
Viljum ráða menn til verksmiðjustarfa.
BÖRKUR H.F.
SÍMI 52042.
ÍÖRÐ TIL SÖLU
í Mýrasýslu. Uppl. í síma 16655, og hjá Andrési
Guðmundssyni, Saurum, sími um Arnarstapa.
BÆNDUR
KAUPFÉLÖG
Þeir sem ætla sér að panta ull-
arballa, hausapoka og kartöflu-
poka hjá okkur, þurfa að senda
pantanir sínar fyrir 15. mai
1971, þar scm afgreiðslufrestur
á efni getur vorið allt að 5
mánuðir til okkar. Athugið að
mjög takmarkaðar birgðir cru
til af hey-yfirbreiðsluefni og
pokum fyrir kál og fl.
Pokagcrðin, Hveragerði
Sími 99-4287.
',%m og máiefni
j'.imþald at oú 6
ætluðu að ná sér eftir bergvist-
ina. Þeir gerðu sér þá ljóst, að
Framsóknarflokkurinn væri lang-
samlega sterkasta umbótaafl ís-
lenzkra stjórnmála og því skipti
höfuðmáli að efla hann og þá,
sem með honum vildu vinna. Þess
vegna leituðu þeir viðræðna við
hann um samvinnu og var því til-
boði tekið í fullri alvöru. Án þess
að nokkuð reyndi á það til þraut-
ar, hvort samkomulag næðist eða
ekki, slitú þeir Björn og Hannibal
viðræðunum, því að þá brysti um-
boð frá fylgismönnum sínum.
Eftir það voru „Samtök fr.jáls-
lyndra og vinstri manna“ sett á
laggirnar og síðan hafa þcir
Hannibal og Björn verið eins og
þeir hafi gengið í björg á ný.
Sinnaskipti þeirra frá einu til ann
ars hafa verið eins snögg og
veðrabrigðin á landi hér. Einn
daginn hafa þeir rætt um að sam-
einast Alþýðuflokknum eftir kosn
ingar og styðja stjórnina, annan
daginn um bandalag við bæði Al-
þýðuflokkinn og Alþýðubandalag-
ið, þriðja daginn við unga Fram-
sóknarmenn og fjórða daginn um
sameiningu Framsóknarflokksins,
Alþýðuflokksins og Hannibalista
í einn flokk! Þvílíkt er þetta
hringl orðið, að enginn getur sagt
um, hvar þá verður að finna
næsta dag.
Skýring á þessu hringli er hins
vegar ljós. 1 fyrsta lagi eru sam-
tökin þegar tvíklofin, ef ekki
margklofin, og reynt er sitt á
hvað að taka tillit til mismun-
andi sjónarmiða. 1 öðru lagi gera
forustumennirnir sér ljóst, að
samtökin eiga ekki framtíð og
gegna því ekki öðru hlutverki en
að sundra liði umbótamanna í ein-
um örlagaríkustu þingkosningum,
sem hér hafa verið. Þessi nötur-
lega tilfinning hefur að sjálfsögðu
áhrif á þá, sem enn kunna að vera
íhaldsandstæðingar í hjarta sínu.
Hnignun verka-
lýðssamtakanna
Það eru athyglisverð tíðindi,
að risin sé í höfuðborginni ný
hreyfing, sem nefnir sig Baráttu-
samtök launafólks. Um 600 manns
munu þegar hafa innritazt í þessi
samtök. Forustumenn þessara
samtaka segja, að þau reki ræt-
ur til deyfðar og forustuleysis
heildarsamtaka verkalýðsins. Því
er ekki að neita að áhrif verka-
lýðssamtakanna hafa farið sí-
minnkandi síðasta áratuginn. For-
usta Alþýðusambands íslands má
nú heita að mestu eða öllu úr
sögunni. Hannibal Valdimarsson
hefur reynzt þar allt annað en
skeleggur forustumaður. Hnign-
un verkalýðshreyfingarinnar má
m. a. ráða af því, a'S þeir flokkar,
sem upphaflega völdu sér fram-
bjóðendur úr röðum hennar, eru
nú alveg hættir því. Alþýðuflokk-
urinn reið þar á vaðið, en nú
fylgir Alþýðubandalagið fast í
slóðina. Það velur t. d. Stcfán
Jónsson fréttamann til framboðs
í stað Björns Jónssonar og Svövu
Jakobsdóttur skáldkonu í stað
Jóns Snorra Þorleifssonar.
Örlagaríkar
kosnmgar
Þannig er nú ástatt í íslenzk-
um stjórnmálum, að úrslit næstu
þingkosninga geta orðið örlagarík
fyrir þjóðina. Landhelgismálið
eitt veldur því, að úrslit kosning-
anna geta ráðið miklu eða mestu
um, hvernig henni farnast í fram-
tíðinni. íhaldsöflin treysta á, að
úrslitin geta orðið þeim hjgstæð
sökum aukins klofnings andstæð-
inga þeirra. Við þessu hafa íhalds
andstæðingar ekki nema eitt svar.
Þetta svar sáu þeir Hannbal
Valdimarsson og Björn Jónsson í
réttu ljósi fyrir tveimur árum.
þegar þcir leituðu samstarfs • 'i
Framsóknarflokkinn, þótt þ n
yrði á villa síðar. Þeir sáu þá rvt,
að í næstu alþingiskosnir,'’ n
væri mikilVægt að efla Framcr :i-
arflokkinn og þau öfl, sem h?nn
vilja styðja. Þannig tryggja m nn
bezt þá stefnubreytingu, sem þirf
að verða, og smáflokkar vrða
aldrei færir um að knýja fram.
Til þess þarf stóran og traustan
flokk eins og Framsóknarflokk-
urinn er.
Þ.Þ.
Ping-Pong
Framhald at bis 7
svo, að borðtennisleikurinn í
Peking gefi til kynna, að
Bandaríkin og Alþýðulýðveld-
ið í Kína séu í þann veginn
að taka upp vinsamleg og op-
inber samskipti á alþjóða vett
vangi. Ryðja þarf úr vegi fjöl-
mörgum og öflugum hindrun-
um áður en úr því getur orð-
ið, en meðal þeirra má nefna
afar mikilvæga árekstra í Suð-
austur Asíu ðg deiluna um Tai-
wan, sem nú hefir staðið í
fulla tvo áratugi.
Enginn þarf þó að efast um
ótvíræða þýðingu þess merkis,
1 sem gefið hefir verið: Leiðtog-
ar Alþýðulýðveldisins í Kína
eru að þreifa fyrir sér um
nýja og betri sambúð af engu
minni alvöru en Bandaríkja-
menn. Þeir virðast reiðubúnir
að feta sig áfram eftir þess-
ari braut með fimi og ná-
kvæmni, þrátt fyrir Vietnam,
Cambodíu, Laos og Formósu.
Leiðtogarnir í Washington
fagna þessu innilega. Það mun
heldur ekki fara framhjá vald-
höfunum í Moskvu — eða Tai-
pei.
- FERMINGAR -
Framhald af bls. 9.
Þorkell Arnar Ásmundss. Ara-
túni 13
Ævar Harðarsson, Bakkaflöt 3
Ferming í Garðakirkju, sunnudag-
inn 18. apríl kl. 2 e:h.
STÚLKUR:
Auður A. Ólsen, Móaflot 53
Auður Atladóttir, Laufási 7
Benedikta Haukdal, Lindarfl. 24
Guðný Stefánsd., Lækjarfit 6
Helen S. Færseth, Smáraflöt 40
Helga Einarsd., Faxatúni 34
Ingibjörg Magnúsd., Löngufit 14
Jenný Gunr.arsdóttir, Aratúni 10
Katrín Linda Óskarsdóttir,
Hörgatúni 9
Laufey Eyjólfsdóítir, Lyngási
Ragnhildur Pálsdóttir, Hagafl. 2
Þóra G. Geirsdóttir, Goðatúni 15
DRENGIR:
Ársæll Gunnarsson, Löngufit 16
Einar Th. Jónsson, Hagaflöt 6
Haraldur Iíelgason, Garðaflöt 13
Heiðar Jónsson, Lækjarfit 10
Ingólfur Guðmundss., Lindarfl. 41
Jón Baldur Hlíðbcrg, Smárafl. 36
Magnús Pálsson, Hörgslundi 5
Markús Árnason, Faxatúni 3
Óli Waage, Móaflöt 57
Rafn Guðjónsson, Smáraflöt 12
Sighvatur Pálsson Haukanesi 24
Sigurjón Pálsson, Hörgslundi 5
Sæmundur Bjarnas., Markarfl 19
Víðir Þ. Guðjónss. Smáraflöt 12