Tíminn - 20.04.1971, Síða 5
ÞBSBJCDAGUR 20. apríl 1971
TIMINN
MEÐ MORGUN
KAFFINU
— Og þctta cr konan m«n — 1922.
Eiginkona eins af þekktustu
stjórnmálamonnHm landsins
kom nýlega inti í kjðtveTzlun
við Laugaveginn, sneri sér að
einum afgreiðslumamiinum og
sagðl.
„Ég ætla að fá nokkrar læris-
sneiðar af hvalkjöti“
„Sjálfsagt, frú mín“, sagði af-
greiðsiumaðuiinn án þess svo
mikið sem blíkka auga.
„Hvort á það heldur að vera
a£ hægra eða vinstra lærinu?"
— Ég hef áhyggjur ót af
kommni minni. Hún fór regn-
hlffariaus út og nú er komin
hellirigning.
— Þú þarft engar áhyggjur
að hafa hennar vegna. Hún fcr
bara inn í einhverja búðina og
bíður af sér skúrinn.
— Ég veit það, það er ein-
mitt það sem ég er hræddur
mm-
Eftirfarandi orðaskipti átti
sér stað milli tveggja húsmæðra
á skömmtunarárunum í Austur-
Þýzkalandi, en á þessum tíma
urðu húsmæður einatt að standa
í endalausum biðröðum við
verzlanir til þess að reyna að
ná í kjötbita handa fjölskyld-
unni. Þetta var nánar tiltekið
í Leipzig.
— Þetta fer nú að verða
svart. Maður verður að fara
alla leið til Dresden tii þess
ná í kjötskammtinn sinn.
— Dresden? Er meira kjöt að
hafa þar?
— Nei, en þangað ná biðrað-
irnar frá kjötbúðunum hér í
Leipzig.
— Þú fékkst mesta klappið
af öllum þingmönnunum
á flokksþinginu fyrir að vera
fj^rverandi og geta ekki flutt
ræðu.
<=> C3
H F N I\| I — Bláa strikið var kntturinn
hennar Möggu, en það livíta var
DÆMALAUSIgamIi’sóði Snati>
Christian prins af Danmörkn
hefur nú giftzt fallegri dökk-
hærðri stúlku, Anne Dorthe
Maltoft-Nielsen. Hún stóð bak
við afgreiðsluborð þegar prins-
inn kom anga á hana. Gifting-
arathöfnin fór fram í lítilli
kirkju skammt utan við Kaup-
maimahöfn.
— ★ — * —
Sá harmleikur átti sér stað
nýlega í Stokkhóhni að 17 ára
stúlka drukknaði í baðkerinn
heima hjá sér.
Foreldrar stúlkunnar höfðu
boðið gestum heim til sín dag-
inn sem þetta kom fyrir. Um
hálf áttaleytið um kvöldið, fór
stúikan í bað og læsti á eftir
sér.
— Um kl. 8 heyrðum við sog-
hljóð frá baðherberginu. Við
hugsuðum ekkert um það þar
eð við héldum að dóttir okkar
hefði verið að losa y^tnið úr
baðkerinu, segja foreldrar stúlk
unnar.
15 mínútum síðar bjuggu
gestirnir sig til heimferðar.
Einn þeirra þurfti áður að fara
á salernið. Móðir stúlkunnar
bankaði þá á dyr baðherbergis-
ins og bað stúlkuna að opna,
væri hún komin í föt. En ekkert
svar kom.
Foreldrana gioinaði þá, að
ekki væri allt með feldu. Faðir
inn fór niður í kjallara og sótti
öxi og braut síðan upp baðher-
bergishurðina. Þá fann hann
dóttur sína látna í baðkerinu.
Líklegast er talið að stúlkan
hafi drukknað á þann hátt að
hún hafi slegið höfðinu við bað-
kerið og misst meövitund.
— ★ - ★ —
Það gerðist 30. júní 1908 í
siberísku skógarflæmi að menn
sáu, að eldhnöttur fór þvert um
himin, þá kváðu við þrjár eða
fjórar ofboðslegar sprengingar.
A samri stundu lék 20 km hár
iogi við himin og þyrlaði upp
milljónum smálesta af ryki.
Mörgum árum síðar komust
menn að því, að sægur loft-
steina hefði fallið á þennan
stað. Áhorfendur og fræðimenn
urðu furðu lostnir. Það kom í
ljós, að skarkalinn heyrðist í
1000 km fjarlægð, loftþrýsting-
urinn stöðvaði járnbrautarlest i
Kirensk (400 km fjarlægð), sóp-
aði sauðahjörð í fljót eitt í 300
km fjarlægð, og olli heilablóð-
falli og hjartabilun í 260 km.
fjarlægð frá vettvangi. Þetta
gerðist allt á næstu grösum, en
í kjölfarið sigldu jarðskjálftar,
og fóru oft umhverfis jörðu,
loftbylgja var athuguð í Was-
hington 8900 km frá vettvangi
og margar „bjartar nætur" tóku
Ijós sitt frá hvítu skýi, er sveif
í 80 km. hæð yfir jörðu.
Sovézka stjamfræðingnum Ku-
Dk tókst að koma athugunum
Þessa mynd rákumst við á um
daginn í erl. tímariti, sem ekki
hefur áhuga á trimmi. Hins
vegar má kalla þetta trimm
líka. Myndin er ekki birt til
þess að gera grín að konunni
heldur til þess að hvetja konur
til að gera þessa hollu æfingu
að minnsta kosti einu sinni á
dag, svo og til þess að minna á
það, að trimm er ekki cinúngis
skokk um holt, hæðir og gang-
stéttir.
þessum heim og saman árið
1921.
Þegar hann kom á staðinn,
tók hann eftir þyí, að tré höfðu
fallið og brunnið meira eða
minna á mörg þúsund ferkíló-
metra svæði umhverfis gíginn,
og horfðu allir trjátoppar frá
sprengistaðnum. Ekki var hér
heldur um einn samfelldan gíg
að ræða, heldur 200 gíga af öll-
um stæroum. Hins vegar fann
Kulik engar minjar um loftstein
inn sjálfan, hann virtist hafa
tvjstrazt eftir áreksturinn, ef
dæma mátti af þeim ögnum
nikkeljárns, er í grennd fund-
ust.
-★-,★-
Ursula Andress er nú aftur
farin að leika í kvikmyndum eft,-
ir að hafa tekið sér langa hvild
frá slíkuin störfum vegna mikils
vinskapar við þann fræga
franska leikara Jean-Paul
Belmondo. Myndin sem hún hef
ur nú hafið leik í heitir „Rauða
sólin“ og leikur Alain Delon á
móti henni. Myndin fjallar um
atburði er gerðust í Arizona
1870. Kvikmyndatakan fer
fram á Spáni.
★ — ★ —
I síðustu viku gerðist sá at-
burður í bænum Palmi á Suð-
ur ítalíu, að þrír drengir, 5—9
ára, grýttu 68 ára konu til bana.
Þeir brutust inn í hús hennar til
þess að stela, en gamla konan
heyrði í þeim og byrjaði að
hrópa á hjálp. Gripu þcir þá
nokkra steinhnullunga og grýttu
í hana, unz hún þagnaði. Nokkr-
um klukkustundum síðar íundu
nágrannarnir hana meðvitundar-
lausa. Aður en konan lézt á
sjúkrahúsi bæjarins, gat hún
sagt frá því, hvað einn drengj-
anna hét.
— Við ætluðum ekki að drepa
hana, aðeins að fá hana til þess
að þegja, sögðu drengirnir há-
grátandi, þegar liaft var upp á
þeim. i