Tíminn - 20.04.1971, Page 8
f r <•
SÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 20. aprfl 1971
9 mðrk í
— Og Akurnesingar fengu sína verstu útreið í knattspyrnu
í mörg ár — töpuðu fyrir Fram 8:1
RUNAR GISLASON
— fslandsmeistari í lyftingum, skor-
a@i tvö ef átta mörkum Fram i leikn-
om viS Akranes.
Bikarmeistararnir í knaUspyrnu
Fram, hömruðu lieldur betur á ís
lamlsmeisturunum frá Akranesi
á heimavelli hinna síðarnefndu í
„Meistarakeppni KSÍ“ á laugardag
inn. Þeir sigruðu þá 8:1 og er það
ein versta útreið, sem Akurnes-
ingar hafa fengið í knattspyrnu
lcik liér á landi í mörg ár.
Þegar leikurinn fór fram var
bandvitlaust veður, og stóð vind
urinn, sem mældist milli 8—9
vindstig beint á annað markið.
Var mjög erfitt að leika eittbvað
sem líktist knattspyrnu í því veðri
enda á köflum varla stætt á vell
inum.
Skagamenn fengu að leika ttnd
KOPAVOGSMENN
SÓTTU OF STÍFT
)
— og Keflvíkingar náðu að skora á móti vindi
Annar leikurinn í litlu bikar-
keppninni í knattspyrnu, var leik-
inn á laugardaginn í Keflavík, og
áttust þar við Keflvíkingar og
Kópavogsbúar. Var leikið við
mjög crfiðar aðstæður, hávaða rok
og þungan og blautan völl, sem
að mestu var undirlagður af krapi.
Keflvíkingar léku undan vindi
í fyrri liálfleik og skoraði hinn
bráðefnilegi leikmaður Gísli Torfa
son, (bróðir Magnúsar Torfason-
ar), fyrsta markið í leiknum, en
skömmu síðar bætti Gunnar Sig-
tryggsson, öðru markinu við fyr-
ir Keflvíkinga, og var staðan þann
ig í hálfleik.
í síðari ' hálfleiknum minnkaði
Guðmundur Þórðarson, bilið í
2:1. Við það hljóp mikið kapp í
Kópavogsmenn, sem gerðust
heldur sókndjarfir, þannig að
Keflvíkingar náðu upphlaupi gegn
vindinum, sem lauk með skoti frá
Ólafi Júlíussyni, í stöngina, en
þaðan hrökk knötturinn fyrir fæt
ur Birgis Einarssonar, sem sendi
hann í netið.
Skömmu fyrir leikslok skoraði
svo Gunnar Þórarinsson, fyrir
Kópavog 3:2 og urðu það loka-
tölur leiksins.
Fyrstu umferðinni í Litlu bik-
arkeppninni ér nú lokið, en Önn
ur umferð verður leikinn n. k.
fimmtudag. Þá leika á Akranesi,
heimamenn og Kópavogsmenn, og
í Keflavík leika Keflvíkingar við
Hafnfirðinga.
Allt útlit er fyrir að Hafnfirð
ingar og Kópavogsbúar verði að
leika alla sína leiki á útivöllum.
Á hvorugum þessum stöðum eru
vellir í almennilegu ásigkomulagi,
og er það óhæft aðy jafn stór
bæjarfélög og þarna er um að
ræða, geti ekki séð knattspyrnu
mönnum sínum fyrir sæmilegiú
aðstöðu. — klp.
/>0/Tv;jruveT,V
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — sími 11783
POSTSKN DUM
an vindi í fyrri hálfleik, og tókst
þá aðeins einu sinni að koma
knettinum alla leið í markið hjá
Fram. Var það Andrés Ólafsson,
sem skoraði markið. Framarar
náðu tvívegis að berjast gegn
vindinum og komast í dauðafæri,
og i annað skiptið tókst þeim að
koma knettinum í netið. Þar þar
að verki hinn nýji „sterki“ útherji
liðsins, Rúnar Gíslason, sem er
margfaldur íslands- og Reykjavík
urmeistari í lyftingum. Á t. d. fs
landsmetið í Léttvigt 281 kg, en
hann er einnig mjög góður knatt
spyrnumaöur.
í siðari hálfleik þegar Framar
ar léku undan vindinum, hófu þeir
þegar stórskotahrið á mark Skaga
manna, og úr þeirri árás höfðu
þeir sjö skot í mark. Þau skot,
sem ekki fóru í netið, eða var
bjargað í námunda við markið,
fóru langt út í fjöru og munaði
ræki
stundum lillu að knöttinn
til hafs.
Rúnar Gíslason, skoraði fyrsta
markið í síðari hálfleik, en síðan
skoraði Eriendur Magnússon, 3:1,
Marteinn Geirsson, 4:1 (úr víta-
spyrnu) Kristinn Jörundsson, 5:1
Jón Pétursson, 6:1, Jóhannes Atla
son, 7.1 og Kristinn Jörundsson,
skoraði síðasta markið í leiknum
8:1.
Fram er nú efst í mótinu með
5 stig úr 3 leikjum og hefur skor
að 13 mörk gegn 1. Tveir leikir
eru nú eftir í því, og er sá fyrri
n. k. laugardag, en þá mætast
Fram og ÍBK á Melavellinum.
Sigri Fram í þeim leik er liðið
þar með búið að sigra í mótinu.
Ef ÍBK sigrar í leiknum og sið
an í síðasta leiknum við ÍA í
Keflavík annan laugardag, er
ÍBK sigurvegari, en ÍA á enga
möguleika lengur.
Litla bikarkeppnin
Akranes
Keflavík
Kópavogur
Hafnarfjörður
1 1 0 0 5-.0 2
1 1 0 0 3:2 2
1 0 0 1 2:3 0
1 0 0 1 0:5 0
Markhæsti maður:
Björn Lárusson, Akranesi
Næstu leikir:
Fimmtudaginn 22. apríl.
Akranes—Kópavogur
Kef la vík—Haf narf j örður
Meistarakeppni KSÍ
Fram
ÍBK
ÍA
3 2 10 13:1 5
2 10 1 4:8 2
3 0 1 2 4=12 1
Markhæstu menn:
Kristinn Jörundsson, Fram 5
Jóhannes Atlason, Fram 2
Eyleifur Hafsteinson, ÍA 2
Rúnar Gíslason, Fram 2
Marteinn Geirsson, Fram 2
• \
Næstu leikir:
Laugardaginn 24. apríl Fram—ÍBK
Laugardaginn 1. maí ÍBK—ÍA.
Vonbrigði fyrir Leeds
— en Arsenal stefnir að meistaratitlinum meS jafnmörg stig
og Leeds, en hefur leikið tveimur leikjum færra
MÖGULEIKAR Arsenal á að
hljóta Englandsmeistaratitilinn
1971 jukust að mun á laugardag.
Leeds tapaði heima gegn West
Brom. — og Arsenal sigraði.New
Castle, einnig heima.
Leikmenn og áhangendur' Léeds
hljóta að vera mjög súrir í bragði
yfir ósigrinum gegn West Brom.,
sem auk þess að minnka mögu
leika Leeds á að sigra í deild
inni, var fyrsti útisigur WBA síð
an í september 1969. Fyrsta mark
leiksins skoraði markhæsti leik-
maður 1. deildar, Tony Brown í
fyrri hálfleik. í síðari hálfleik
rak hver atburðurinn annan. Mark
Mick Jones, Leeds, var dæmt af
— Allan Clarke, Leeds, brugðið
innan vítateigs, en ekkert dæmt.
Að lokum var það svo rúsínan í
öllu saman — sigurmark WBA.
Sókn á Leeds-markið og annar
línuvörðurinn veifar Colin Suggett
WBA, rangstæðan — varnarmenn
Leeds hika og Jeff Astle nær
boltanum og skorar. Við þetta
mark uppliófust mikil ólæti.
Ahorfendur þustu inná völlinn og
annar línuvörðurinn fékk höfuð
högg í miöjum slagsmálunum.
Hafsteinn
fær aðstoð!
Eins og við höfum áður sagt
frá óskaði Hafsteinn Guð-
mundss. „einvaldur“ landsl. í
knattspyrnu, eftir því að fá að-
stoð við að fylgjast með leikj-
um og lcikmönnum í sumar.
En hann hefur einn haft meir
en nóg að gera að fylgj-
ast með undanfarin tvö ár.
Eftir ársþing KSÍ, kom til
tals, að Hörður Felixsson yrði
,,aðstoðareinvaldur“, en hann J
hafnaði því boði, og hefur IIaf-[
steinn nú fengið þrjá menn \
sér til aðstoðar. Eru það}
þeir Árni Agústsson, Ilrciðar}
Ársælsson og Gunnar Péturs- (
son, en þeir skipa allir ung-[
Iinganefnd KSÍ. — klp.
Eftir fimm mín. var þó búið að
ryðja völlinn og þegar f jórar mín.
voru eftir skoraði Clarke eina
mark Leeds, sem úr þessu hafði
ekkert að segja. Dómarinn þurfti
aðstoð fhá ‘ lögreglunni eftir leik-
inn.
Leikur Arsenal og Newcastle
bauð ekki uppá neitt sérstakt.
Frank McLintock, fyrirliði Arsenal
átti þó enn einn af sínum stjörnu
leikum — en maðurinn sem kom
mest við sögú í leiknum var hinn
ungi og efnilegi Charlie George,
sem nú orðið er reyndar orðinn
meira en bara efnilegur. Auk þess
að vera bókaður skoraði hann sig
urmark leiksins mjög skemmtilega
með vinstra fæti. 48 þúsund manns
komu til að sjá leikinn.
Urslitin í 1. deild á laugar
dag:
Arsenal—Newcastle 1:0
Blackpool — Nott. F. 2:3
Coventry—Burnley 3:0
Crystal Pal.—Manch. Utd. 3:5
Derby—Everton 3:1
Ipswich— Huddersfield 2:0
Framhald á bls. 10.
Mikil blóðtaka hefur það verið fyrir leikmenn og áhangendur Leeds a3
tapa báðum stigunum í leiknum við West Bromwich Albion á laugardag —
enda var óánægja óspart látin í Ijós og um tíma logaði allt í siagsmálum á
sjálfum leikvellinum. Hér á myndinni sjáum við markvörð Leeds, Gary
Sprake, sitjandi vellinum, eftir að boltanum hafði verið komið framhjá hon-
um og i netið.