Tíminn - 29.04.1971, Qupperneq 1
FUGLINN DREPST: ENGIN RÁÐ FUNDIN
00—Reykjavík, miðvikudag.
Ekki er búið að ákveða, hvað
gert verður til að bjarga brezka
togaranum Cesari af strandstað,
eða ná olíunni úr honum. í dag
fór Hjálmar R. Bárðarson, sigl-
ingamálastjóri, ásamt Finni
Guðmundssyni, fuglafræðingi,
og fulltrúa norsks björgunarfyr-
irtækis, vestur til að athuga
björgunarmöguleika og hvað
hægt verður að gera til að koma
í veg fyrir olíumengun úr tog-
aranum.
í dag fóru fyrrgreindir aðilar
um borð í skipið ásamt fulltrúa
frá tryggingafélagi togarans og
fulltrúa eigenda hans, en engin
ákvörðun var tekin um aðgerðir.
Hjálmar R. Bárðarson sagði
Tímanum, að þeir hefðu gert
tilraunir í dag með vökva til að
eyða olíu. Var skipið olíuatað
og var efninu sprautað á olíuna,
en magnið sem þeir voru með,
var allt of lítið, en að öðru
leiti gekk tilraunin vel. Efni
þetta hreinsar olíuna, en ekki
er vitað, hvort þetta efni í raun-
inni eyðir henni eða bara sökkv-
ir henni. En auðvelt er að
hreinsa skipið sjálft, en það
leysir að sjálfsögðu engan
vanda.
Siglingamálastjóri sagði, að
hann hefði farið niður í vélar-
rúmið, sem er hálffullt af sjó.
A yfirborðinu er 1 til 1,5 cm.
lag af olíu, sem flýtur þar inni,
en í vélarrúminu er flóð og
fjara. Virðist þarna aðallega
vera um að ræða dieselolíu og
smurolíu, en lítið af þykkolíu.
Virðist olían, sem þarna flýtur
ekki geta komizt út, því gatið
er á botninum og sjórinn lekur
þar inn og lyftir olíunni upp.
Skipið liggur alveg á stjóm-
borðshliðinni og virðist bak-
borðshliðin alveg heil.
Er verið að athuga hvað hægt
er að gera í sambandi við björg-
un, sagði Hjálmar. Það er alla
Framhald á bls. 14.
Sauðhurður hefst
senn um allt land
Þessi mynd var tekin uppi hjá Elliðavatni í gær. Þarna var allt bjartleitt og fótfrátt í vorsóiinni, (Timam. Gunnar)
FB—Reykjavík, miðvikudag.
Sauðburður er hafinn á stöku
stað, þó aðallega í þéttbýli, þar sem
fólk hefur sauðfjárræktina meira
sér til gamans en sem atvinnu-
rekstur. f sveitum hefst sauðburð-
ur almennt fyrst í lágsveitum sunn-
anlands og undir Eyjafjöllum og
þar um kring. Vona menn almcnnt
að veðráttan verði ekki til þess að
gera sauðburðinn erfiðari en þörf
krefur að þessu sinni, því gömul trú
segir, að veðrið fari gjarnan eftir
því, hvernig fyrsti sunnudagurinn
í sumri er hverju sinni, og hann
mun hafa verið með bezta móti að
þessu sinni.
Árni G. Pétursson, sauðfjárrækt-
arráðunautur, sagði í viðtali við
blaðið, að sauðburður hæfist ekki
fyrr en um 10. maí víðast hvar.
Hann væri þó að byrja á stöku
stað í þéttbýli, til dæmis í ná-
grenni Reykjavíkur, þar sem fólk
hefur sauðfé meira til gamans en
að það líti á það sem atvinnurekst-
ur. Einnig sagði Árni, að sauðburð-
ur hæfist heldur fyrr en ella, þar
sem kindur hefðu verið sæddar.
Færðist það stöðugt í vöxt, að kind-
ur væru sæddar, og að þessu sinni
hefðu þær verið um 9000 talsins.
Sagði Árni, að miklar líkur væru
til þess, að það ætti etm eftír að
aukast mikið, því á þennan hátl
væri hægt að fá fram betra fé, og
Framhald á bls. 14.
FORSETIISLANDS TIL NOREGS
0G SVIÞJÓDAR 3. TIL 8. MAÍ
Síldarleit
hefst um
miðjan maí
OÖ—Reykjavík, miðvikudag.
Rannsóknarskipið Ámi Friðriks-
son mun hefja síldarleit í hafinu
fyrir austan ísland um miðjan maí-
mánuð. Verður leitað út júnímán-
Uð á hafinu milli íslands og Nor-
egs, og um leið gerð leit og veiði-
tilraunir í sambandi við kolmunna
á sömu slóðum. Einnig er gert ráð
fyrir að gerð verði leit að síld í
Norðursjó einn til tvo mánuði, eft-
ir því, sem þurfa þykir. Mun Haf-
þór að öllum líkindum leita þar.
Eftir að veiðibanninu á síld vestan-
lands og sunnan verður aflétt í
septembermánuði nk., verður stund
uð síldarleit á því svæði, eftir því
sem hægt verður til áramóta.
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð
ingur, sem stjórna mun leitinni á
Arna Friðrikssyni í sumar, sagði
blaðinu, að höfð verði samvinna
við Rússa og Norðmenn við síldajr-
leitina í hafinu milli íslands og
Noregs í maí og júní. Ekki er búið
að ganga frá neinni ákveðinni sam-
vinnu við Norðmenn á þessu sviði,
en íslenzkir og norskir fiskifræð-
ingar hafa um árabil haft sam-
vinnu við þessar rannsóknir og
verður það að sjálfsögðu gert
áfram.
Árni Friðriksson er nú í árlegri
klössun og verður lagt af stað st.rax
að henni lokinni. Verður Hjálmar
leiðangursstjóri í leiðöngrunum
fyrir austan landið, síðan mun Jak-
ob Jakobsson, fiskifræðingur, taka
við og stjórna leitinni fyrir sunnan
og suðvestan landið í haust.
Ályktun 15.
flokksþings-
ins um fé-
iagsmál er
á bls. 6-7
Eins og áður liefur verið til-
kynnt I fréttum fara forseti ís-
lands og forsetafrú í opinbera
heimsókn til Noregs og Svíþjóðar
dagaana 3. til 8. maí n.k. Dagskrá
heimsóknarinnar verður í stór-
um dráttum sem liér greinir:
Komið verður til Fornebuflug-
vallar kl. 11.15 eftir norskum
tíma, þar sem Ólafur Noregskon-
ungur mun taka á móti forseta-
hjónunum. Verður síðan ekið til
hallarinnar, þar sem forsetahjón-
in munu búa meðan á hinni opin-
beru heimsókn stendur. Að lokn-
um hádegisvörði í höllinni verð-
ur ekið til Akershuskastala, þar
sem forseti mun leggja blómsveig
á þjóðarminnismerkið yfir fallna
Norðmenn. Að því loknu verður
ekið aftur til hallarinnar, þar sem
forsetinn tekur á móti erlendum
sendiherrum, sem búsettir eru í
Osló. Um kvöldið halda konungs-
hjónin veizlu til heiðurs forseta
fslands og lconu hans.
“*“n 4. maí verða Munchsafn-
ið Folkemuseet skoðuð fyrir há-
degi. Forsetahjónin munu sitja há
degisverðarboð ríkisstjórnar Nor-
egs í Akershuskastala. Síðdegis
sama dag hitta forsetahjónin fs-
lendinga á heimili Agnars Kl.
Jónssonar sendiherra. Um kvöld-
ið halda forsetahjónin konungi
veizlu á Grand Hotel.
Miðvikudaginn 5. maí skoða
forsetahjónin Hjemmefront-
museet. Að loknum hádegisverði
í höllinni verður haldið til Forne
buflugvallar og farið þaðan kl.
13.45 til Svíþjóðar. Er þar mcð
lokið hinni opinberu heimsókn í
Noregi.
Komið verður til Arlandaflug-
vallar kl. 14.40, þar sem Gustav
Svíakonungur mun taka á móti
forsetahjónunum. Verður síðan
ekið til hallarinnar, þar sem for-
setahjónin búa meðan á hinni
opinberu heimsókn stendur. Síð-
degis sama dag tekur forseti á
móti erlendum ser.diherrum, sem
búsettir eru í Stokkhólmi. Um
kvöldið heldur konungur veizlu
Framhald á bls. 14.