Tíminn - 29.04.1971, Blaðsíða 13
HJHMTTJÐ'AGUR 29. aprfl 1971
ÍÞRÓTTIR TÍMINN JÞRÓTTIR
13
Reykjavikurmeistararnir í elztu flokkunum á unglingamótinu í badminton. TaliS frá vinstri: Jón Gíslason, Stein-
gnn Pétursdóttir og Sigurður Haraldsson, sem varð þrefaldur meistari.
Gott mót
Góðir leikir
— Á Unglingameistaramóti Reykjavíkur í badminton
Reykjavikurmót unglinga í bad-
minton, var haldið í Laugardals
höllinni í síðustu viku. Keppendur
á mótinu voru milli 30—40 tals
ins, og háðu þeir góða og skemmti
lega keppni og var mótið gott í
alla staði.
Keppt var í flokki pilta, sveina,
drengja og stúlkna og einnig í
tvenndarkeppni sveina og meyja.
Úrslit í einstökum flokkum urðu
þessi:
Einliðaleikur pilta:
Sigurður Haraldsson, TBR sigraði
Jón Gíslason, TBR 15:&=J.5;1.
Einliðaleikur sveina:
Jóhann Kjartansson, TBR sigraði
Ottó Guðjónsson, TBR 11:9 — 10:
12 — 11:7.
Einliðaleikur drengja:
Gestur Valgarðsson, KR sigraði
Hrólf Jónsson, Val 11:6 — 3:11 —
11:6.
Einliðaleikur stúlkna:
Steinunn Pétursdóttir, TBR sigr
aði Sigríði M. Jónsdóttur, KR
11:6 — 9:11 — 11:6.
Tvíliðaleikur pilta:
Sigurður Haraldsson og Jón Gísla
son, TBR sigruðu Ragnar Ragnars
son og Helga Benediktsson, Val,
15:9 — 15:4.
Reykjavíkurmótið
KR-Fram
í kvöld
klp-Reykjavík.
í kvöld leika í Reykjavíkurmót
inu KR og Fram á Melavellinum
og hefst lcikurinn kl. 20.00. Þetta
er fimmti leikurinn af fimmtán,
sem fram fara í mótinu, og jafn-
framt einn sá þýðingamesti.
Bæði liðin hafa leikið einn leik
og bæði borið sigurorð af and-
stæðingnum. Fram sigraði Vík-
ing 1:0 og KR sigraði Val 3:2. Það
er hald manna að Fram eigi eftir
að gera það gott í knattspyrn-
unni í sumar, eins og s. 1. sumar.
Liðið hefur þegar sýnt forsmekk
inn með því að sigra í „Meistara
keppni KSÍ“ þar sem það m. a.
vann ÍBK 5:0 og ÍA 8:1 á úti-
völlum.
KR-ingar komu mjög á óvart
með góðum leik gegn Val á dög
unum, og hinir ungu leikmenn
liðsins sýndu baráttuvilja og
góða knattspyrnu, sem fróðlegt
verður að vita hvort þeir sýni
aftur í leiknum gegn Fram í
kvöld.
Tvíliðaleikur drengja:
Jónas Þ. Jónsson og Gestur Val
garðsson, TBR sigruðu Einar
Kjartansson og Hrólf Jónsson, Val
15:10 — 13:15 — 15:1.
Tvíliðaleikur sveina:
Jóhann Kjartansson og Sigurður
Kolbeinsson, TBR sigruðu Ottó
Guðjónsson og Jóhann S. Möller,
TBR 15:7 — 15:5.
Tvíliðaleikur stúlkna:
Steinunn Pétursdóttir og Guðrún
Pétursdóttir, TBR sigruðu Sigríði
M. Jónsdóttur og Kristjönu Bergs
dóttur, KR 15:6 — 15:12.
Tvenndarleikur (piltar—stúlkur)
Sigurður Ilaraldsson og Steinunn
Pétursdóttir, TBR sigruðu Jón
Gíslason og Guðrúnu Pétursdótt
ir, TBR 15:11—15:9.
Tvenndarlcikur (sveinar-meyjar)
Broddi Kristjánsson og Kristín
Kristjánsdóttir, TBR sigruðu Guð
mund Adólfsson og Margréti
Adólfsdóttur, TBR 15:1 — 15:2.
ViSar Halldórsson, fyrir miðju, hampar verðlaunagripnum, sem hann vann
til eignar í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar á dögunum.
Fóthvati Hafnfirðingurinn
ætlar að hlaupa fyrir KR
klp—Reyk j avík.
Viðar Halldórsson, Hafnfirðing
urinn fóthvati, sem hefur sigrað
í öllum flokkum í Víðavangshlaupi
Hafnarfjarðar, frá því það var
cndurvakið, varð annar í
drengjahlaupi Ármanns, sem fram
fór s. 1. sunnudag. En þar varð
hann aðeins sjónarmun á eftir
Ágústi Ásgeirssyni, ÍR, mun hann
að öllum líkindum æfa og keppa
í lilaupum fyrir KR í sumar.
Viðar vakti á sér athygli þegar
hann tók fyrst þátt í Víðavangs-
hlaupi Ilafnarfjarðar og meðal
þeirra, sem þá hrifust af honum
var Dr. Ingimar Jónsson, núver-
andi þjálfari KR í frjálsum íþrótt
um, og FH í handknattleik. Munu
þeir hafa rætt það nokkuð í vetur
þegar Ingimar þjálfaði Viðar í
handknattleiknum, að hann æfði
hlaup í sumar, og mun það hafa
orðið úr. KR-ingar fá með Viðari
góðan liðstyrk, og verður fróðlegt
að fylgjast með honum á hlaupa-
brautinni næstu ár. En hann sann
aði það í drengjahlaupinu að hann
er meðal okkar efnilegustu milli
vegalengdahlaupara.
Er dómurinn ógildur?
Fram ætlj* fá dóminn yfir Kristni Jörundssyni ógilt-
an, þar sem Aganefndin hafði ekki leyfi til a3 dæma
hann í keppnisbann. — Gleymdist að geta um meist-
arakeppnina í Agareglunum?
Eins og við sögðum frá í
síðustu viku, voru þeir Krist-
inn Jörundsson, Fram og Einar
Gunnarsson, ÍBK, dæmdir í
eins leiks keppnisbann, fyrir að
hafa brotið dómaralögin það
mikið í fyrri leik Fram og ÍBK
í „Meistarakeppni KSÍ“ að dóm
ari leiksins vísaði þeim af leik
vclli.
Fyrir þetta brot dæmdi Aga-
nefnd KSÍ þá í eins leiks keppn
isbann, og var það í síðari leik
Fram og ÍBK í sömu keppni,
sem fram fór s. 1. laugardag,
sem þeir tóku út dóminn!
En nú hefur komið í Ijós,
að í reglugerð Aganefndar um
þau mót, sem hún á að dæma
leikmenn í, er hvergi getið um
„Meistarakeppni KSÍ“. Eftir
því sem íþróttasíðan hefur
fregnað, munu það hafa verið
mistök við gerð laganna, sem
samþykkt voru á síðasta KSÍ
þingi, að nafn „Meistarakeppn
innar“ féll úr.
Þrátt fyrir það dæmdi Aga
nefndin báða þessa leikmenn
í keppnisbann, en nú munu
Framarar hafa í huga að fá
dóminn yfir Kristni Jörunds-
syni, ógiltan, þar sem hann get
ur átt yfir höfði sér þyngri
dóm í sumar ef hann gerist
aftur brotlegur við knattspyrnu
lögin. —klp.
Verður Laugardals-
völlurinn opnaður?
Frjálsíþróttamenn með undirskriftarlista, þar
sem þeir óska eftir því að fá að æfa á vellinum
Meðal frjálsíþróttamanna í
Reykjavík, gengur nú undir-
■ skriftalisti, sem senda á íþrótta
ráði Reykjavíkur, þar sem þess
er óskað að reykvískir frjáls-
íþróttamenn fái að æfa á Laug
ardalsvellinum í sumar.
Laugardalsvöllurinn sjálfur
hefur verið svo til lokaður stað
ur fyrir frjálsíþróttamenn á
hverju ári. Þeir koma þangað
aðeins til að taka þátt í hinum
stærri frjálsíþróttamótum, sem
eru örfá á ári hverju. En fá
ekki að æfa þar frekar en
aðrir íþróttamenn.
Á Laugardalsvellinum er bú
ið að koma fyrir góðum lyft-
ingatækjum, sem koma varla að
miklu gagni í sumar, því eng
ar æfingar fara þar fram. En
á Melavellinum, sem er eini
staðurinn, þar sem frjálsíþrótta
menn fá og geta æft — ef þar
er ekki verið að keppa í knatt
spyrnu — eru engin slík tæki
til afnota.
Ef frjálsíþróttamenn fá leyfi
til að æfa á Laugardalsvellin
um, verður það til mikilla hags
bóta fyrir þá. Þeir koma ekki
til með að nota knattspyrnuvöll
inn til æfinga, aðeins hlaupa
brautirnar, kastsvæðin og sand
kassana, og ætti það ekki að
skemma mikið af þessu „stolti“
íþróttaæskunnar í höfuðborg-
inni“ — klp.
STRIGASKÓR
MEÐ TÖKKUM
NÝKOMNIR
— STÆRÐIR 2—7
FÓTBOLTASKÓR
HANDBOLTASKÓR
TRIMM SKÓR
•
HANDBOLTAR
FÓTBOLTAR — KÖRFUBOLTAR
MINNI BOLTAR
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — sími 11783
POSTSENDUM