Tíminn - 29.04.1971, Side 11

Tíminn - 29.04.1971, Side 11
FTMMTUDAGUR 29. apríl 1971 TIMINN 11 LANDFARI Hendurnar í vösum þegnanna? Fyrir nokkru, e3a nánar til- tekið þann 17. marz s.l., varð ég undirritaður fyrir áþreifan- legri reynslu um hið fastmót- aða skattheimtukerfi vort, sem ekki væri úr vegi að ábyrgir aðilar gæfu viðhlítandi skýr- ingu á. Ég hefi um áratugi haft mikinn áhuga á öllu sem snert ir Grænland, sem og fleiri fs- lendingar. og reynt af naum- mn lífstekjum að verða mér úti um þann fróðleik, sem ég hefi getað komizt yfir þar um. — Hefi ég í þessu skyni eink- um reynt að afla mér nokkurs bókakosts, sem bæði dönsk og grænlenzk útgáfufyrirtæki hafa á boðstólum um þessi efni. f grænlenzku blaði, sem ég er áskrifandi að, sá ég nýlega auglýsingu um danskar bæk- ur eftir ýmsa höfunda um grænlenzk vandamál, sem mig fýsti að kynna mér. Taldi ég mér fært að verja nokkurri upphæð til þess að eignast þær, ef ég gæti fengið þær með því verði, sem auglýsing- in bauð upp á. — Ég sótti því um gjaldeyrisleyfi fyrir sex hundruð dönskum krónum hjá Útvegsbanka íslands, sem mér var fúslega veitt á ís- lenzku gengi: 11.780.10. — Ég sendi svo þessa , flpphæð í ávísun tíl „Det Grönlandske Forlags Boglade" í Godtháb í Grænlandi og bað um að mér yrðu sendar þær bækur sem ég óskaði eftir. Forlagið brá skjótt við og sendi mér átta bækur í flugpósti ásamt bréfi og reikningsnótu yfir verð þeirra. Var sú verðmesta á 243 krónur danskar. Póstgjald ið undir þetta nam 89 krónum og 55 aurum dönskum. Og þar með varð reikningurinn sam- tals kr. 632.80, danskar. Söluskýrsla og tollskýrsla Þann 17. marz s.l. beið mín tilkynning frá Tollpóststof- unni, þegar ég kom heim í há- deginu, um að ég ætti þessa sendingu í póstinum. — Eftir hádegið þegar ég hafði ráð- stafað verki, sem ég hafði með höndum, brá ég mér niður eftir til að sækja sendinguna og kom við í Tollstöðinni til þess að fullvissa mig um að ég væri hér að taka á móti „toll- frjálsri" sendingu, en var þá tjáð að mér bæri að greiða af þessu 12.1% í söluskatt, reikn- aðan í íslenzkum krónum. — Með þessar upplýsingar fór ég á Tollpóststofuna og afhenti afgreiðslumanni tilkynninguna og sýndi honum reikningsnót- una frá grænlenzka forlaginu, þar sem verð bókanna var skrifað, svo og burðargjalds- upphæðina. Ekki krafðist hann að fá þennan reikning, en fór með sendinguna inn í annað herbergi, þar sem einhverjir reiknuðu út verðið á söluskatt inum“ og hafa sennilega tekið bækumar úr umslögunum, því þegar ég tók þær sjálfur úr, voru kápumar á tveimur dýr- ustu bókunum rifnar. — Ég spurði þennan mann hvort ekki yrði sleppt burðargjald- inu frá útreikningi á söluskatt inum, sem ég sagði honum að mér fyndist ranglátur, þar sem ég væri ekki að fá þessar bæk- ur til þess að selja þær. En hann svaraði því til að það yrði einnig að taka „söluskatt“ af því, því hann væri tekinn af „sif“-verði vörunnar (hvaða íslenzka sem það er nú). Nú varð nokkuð löng bið hjá mér, svo að ekki bólaði á sendingunni eða „tollskýrsl- unni“ um hana, en ég var mjög tímabundinn vegna verka sem ég átti að sjá um. — Innti ég þá afgreiðslumanninn eftir hvort ekki væri hægt að hraða þessu, það ætti ekki að vera svo erfitt a'ð reikna þetta út. . Ég yrði að fara ef ég ekki fengi sendinguna. (Reyndar var hverri bók pakkað sér í umslag, svo pakkarnir vom átta — eins og bækumar — en skráð á tvö innflutnings- númer). — Loks kom „skýrsl- an“ hjá gjaldkera, og var mér þá gert að greiða í söluskatt af þessum dönsku 632 krónum og 80 aurum 1.815 — eitt þús- und átta hundmð og fimmtán íslenzkar krónur! Ég greiddi þetta strax vegna þess að ég var kominn í tíma- þröng, en hafði orð á því við afgreiðslumanninn að mér þætti þetta mjög sein af- greiðsla á tollfrjálsri sendingu, svo væru þetta það miklir pen ingar, að mér fyndist likt og þjófur hefði lætt hendi sinni í vasa minn um hábjartan dag. — „Já, þú skalt bara tala um það við hann Magnús,“ svar- aði maðurinn. — Ég mátti ekki vera að því að spyrja hann um það hvaða Magnús hann ætti við. — leiðrétta mistökin, nema að fá nótuna. — Óþægindi og fyrirhöfn Slæm þjónusfa Þegar ég svo kom á fund vinnufélaga minna og fór að athuga „tollskýrsluafritið" betur, sá ég að „tollvirðið" hafði verið reiknað: kr. 15.000, 00 íslenzkar, og fannst mér nú danska krónan vera farin að hækka í verði. — Ég hringdi því niður á Tollpóststofuna og bað um deildarstjórann til við tals og sagði honum frá mála- vöxtum. — Hann tók máii mínu vel og taldi þetta auðsjá- anlega vera mistök, sem yrðu leiðrétt, ef ég kæmi aftur með „tollskýrsluafritið". Daginn eftir, þann 18. marz, fór ég á sama tíma niðureftir til þess að fá þetta leiðrétt. — Hitti ég að máli ávarpsgóð- an mann og sýndi honum og verðnótuna frá grænlenzka for laginu ásamt afritið af „toll- skýrslunni”. — Furðaði hann sig á þessu og sagði að það ætti að vera auðvelt að laga þetta. — En þá kom þar að annar vörpulegur maður, sem virtist hafa meiri ráð, og krafð ist þess að ég léti af hendi reikningsnótuna frá forlaginu, sem ég átti aðeins í einriti, því annars gæti hann ekki leið- rétt „tollskýrsluna", (af hinni „tollfrjálsu vöru, sem daginn áður hafði enginn vandi verið að setja ágizkunarverð á). — Ég sagði honum að ég gæti ekki misst þessa nótu, því hún væri það eina sem ég hefði í höndum um viðskipti mfn við forlagið. En ég gæti leyft hon um að taka ljósrit af henni, hvort þeir hefðu ekki ljósrit- unartæki. Hann kvað nei við, og svo væri það í ólagi, að mér skildist. Ég spurði nú manninn hvort hann ætlaði ekki að leiðrétta þessi mistök án þess að baka mér meiri fyrirhöfn. En hann kvað þvert nei við þvf, hann yrði að fá nótuna. Ég sagði að mér þætti þetta nú nokkuð hart, þar sem þeir hefðu getað verðlagt þetta á fimmtán þús- und krónur út í bláinn. diginn áður, þó ég hefði sýnt þeim nótuna einnig þá. Ég teldi að þetta væri slæm þjónusta, sem ég ætti heimtingu á að fá bætta, því þeir væru engu síð- ur mínir þjónar og annarra viðskiptamanna, en þess opin- bera og ættu að inna siörf sín rétt af hendi. — En þetta hefði ég líklega ekki átt að segja, því ég fann að þetta féll ekki í smekk mannsins, og neitaði hann nú alveg að „Þú sérð þó tölurnar og að ég fer með rétt mál“, sagði ég. „Það er alveg sama,“ svar- aði hann. „Jæja, þá ætla ég að fá til baka afritið af „tollskýrsl- unni“, því ef þú trúir mér ekki, þá get ég ekki trúað þér. Ég verð þá að fara og hafa fyrir því að láta ljósrita fyrir mig verðnótuna, því ég sé að þið ætlið ekki að leiðrétta þessi mistök. sem eru þó ykk- ar verk, nema fyrirhöfn mín verði sem mest, og rengið mig um að ég hafi rétt fyrir mér.“ Þá vildi hann fara að draga í land, en ég sagði honum að ég skildi íslenzku mætavel, þ.e. þau orð sem hann lét falla. Síðan varð ég að fara inn á Hverfisgötu til þess að fá reikningsnótuna ljósritaða. Ekki get ég sagt að hlaupið væri á móti mér, þegar ég kom aftur, til þess að greiða mér til baka það sem af mér hafði verið rænt. — Varð ég að ganga fast eftir þessu og gerði það þá annar maður, sem ekki hafði blandað sér neitt í mál- in áður, því hinn fyrri lét ekki sjá sig. — Fékk ég greiddar til baka 909.00 krón- ur af þessum kr. 1.815.00, sem ég greiddi daginn áður. — „Tollurinn", sem í þessu til- felli er kallaður „söluskattur" af þessum „tollfrjálsu" bókum sem með flutningsgjaldi (sem var d. kr. 89,55) kostuðu ekki nema 632 krónur og 80 aura danska, varð því 911 krón ur íslenzkar eftir reikningi þessarar stofnunar. Varið ykkur á Magnúsi Þá er komið að bjarna þessa máls, sem ég vil gera hér að umtalsefni. — Mig minnir að Framhald á 14. síöu. Fimmtudagur 29. aprfL 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir. Tónleikar. 7.30 Fréttir. Tónleikar. 7.45 Bæn. 7.50 Morgunleikfimi. 8.00 Tónleikar. 8.30 Fréttir og veðurfregnir. Tónleikar. 8.45 Morgunstund barnanna: Ágústa Björnsdóttir les fram hald sögunnar „Kátir voru krakkar“ eftir Dóra Jóns- son (7). 9.00 Fréttaágrip og útdráttur úr forustugreinum dagblaðanna. Tónleikar. 9.30 Tiikynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. Tónleikar. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Við sjóinn; Bergsveinn Á. Bergsveinsson fiskimats- stióri talar um meðferð á fiski. Tónleikar. lí.00 Frétí ir. Tónleikar. 11.30 í dag: Enduriekinn þáttur Jökuls Jakobssonar frá s.l. laugar- degi. 12.00 Dagskráin Tónleikar. Til- kvnningar. 12.25 Fréttii ue v 'ðurfregnir. 12.50 Á frívaktinni. Eydís Eyþórsdóttir kynnir óskalög sjójmanna. 14.30 Síðdegissagan: „Valtýr á grænni trevju“ eftir Jón B1örns=on Jón Aðils leikari les (3). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Klass ísk tónlist: Pierre Fournier og Kamm- ersveitin í Stuttgart leika Sellókonsert í ->-dúr op. 101 eftir Haydn. Tito Schipa syngur lög eft- ir Scarlatti og Donzetti. Parísarkvartettinn leikur Strengjakvartett í h-moll eftir Telemann. 16.15 Veðurfregnir. Létt lðg. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 18.00 Fréttir .1 ensku. 18.10 Iðnaðarþáttur (endurtekinn frá 20. aprfl). Sveinn Björnsson ræðir við Harry Frederiksen fram- kvæmdastjóra um skinna- og ullariðnað. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöl Isins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Minningar frá bondon-. The House of Commons. Birgir Kjaran alþm. segir frá kyr.num sínum af brezka pinginu. 19.55 Einleikur á fiðlu: Jascha Heife— leikur lög eftir Brahms, Bennett Suhlmann o.fl. 20.20 Leikrit: „Landslag" efth' Harold Pinter. Þýðandi og leikstjóri: Sveinn Einarsson. Persónur og leikendur: Beth: Guðbjörg Þorbjarnar- dóttir. Duff: Rúrik Haraldsson. 21.00 Sinfóníuhljómsveit íslands heldur hljómleika í Háskóla- níói. Stjórnandi: Bohdan Wod- iczko. Einlcikari á píanó: Rögn- valdur Sigurjónsson. a. Polovetsadansar úr óper- unni „ígor fursta" eftir Al- ander Borodin. b. Píanókonsert nr. 2 í c-moll efttir Sergej Rakh- maninoft. 21.50 rossgötur. Baldur Óskarsson les úr nýlegri jóðabók sinni. 22.00 éttir. 22.15 Veðurfregnir. Velferðai ríkið. Ragnar Aðalsteinsson hrl. og Jónatan Þórmundsson prófessoi flytja þátt um lögfræðiieg efni og svara spuringum hiustenda. 22.40 Létt tónlist. Jón Múii Arnason kynnir tóniist úr söngleiknum „Hár- inu“. 23.35 Fráttir í stuttu máli. Dagskrárlok. Suðurnesjamenn Leitið tilboða hjá okkur Látið ókkur prenta tyrirykkur Hver ert þú. — Sendiherrann getur sagt þér það. Ég er leyniskyttan og þú ert Ned, rauð- hausinn, sem sendi þessa byssumenn til þess að drepa mig. — Um hvað ertu að tala. Hér hlýtur að vera um misskilning að ræða. þetta er hlægilegt. — Herra . . ekki vera heimskulegur. Þessi maður er eins og dýnamit. Það er betra að segja honum það sem hann vill vita. — Þegiðu heimskingi. Ég fæst við þig síðar. Fljót afgreiðsta - góð þjónusta Prentsmiðja Baldurs HólmgeUrssonar Pnmnargotu 7 — Keflwlk___

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.