Tíminn - 29.04.1971, Qupperneq 14

Tíminn - 29.04.1971, Qupperneq 14
14 TÍMINN FIMMTUDAGUR 29. aprfl 1971 GARDlNUBRAUTIR OG STANGIR FjölskrúSugt úrval gardínubrauta og gluggatjalda- stanga. Vestur-þýzk úrvalsvara. Komið. — Skoðið eða hringið. GARDINUBRAUTIR H.F. Brautarholti 18. Sími 20745. Silfurhíllinn Framhald af bls. 2. vinnutrygginga eru þeir Sigurjón SigurSsson, lögreglustjóri, og Lýður Jónsson, fyrrv. yfirvega- verkstjóri, og var, svo sem fyrir er lagt í reglugerð bílsins, haft samráð við þá um úthlutunina. Silfurbíllinn, sem er frumsmíð á liverju ári, er gerður af Vali Fannar, gullsmið. Sauðburður Framhald af bls. 1. notfæra sér góða eiginleika, sem þegar væru þekktir. Mest væri upp úr því lagt, að bæta kjötið og kjöt- eiginleika kindanna, enda gæfi kjöt ið mest af sér, en einnig væri sæð- ing framkvæmd með það fyrir aug um að fá betri ull og hvítari, og losna við gular illhærur úr ullinni. Sauðfjárveikihólfin skapa þó nokkra erfiðleika í framkvæmd sæðinganna, því þær hefta sæðing- ar milli hólfa, og er það óhentugt, en hins vegar er ekki leyfilegt að fara framhjá því atriði. Árni lagði að lokum ríka áherzlu á það við bændur, að þeir fóðruðu féð vel um sauðburðinn ,sér í lagi tvílemburnar, allt fram til þess að sauðbeit væri orðin góð. Refsimál ungiinga Framhald af bls. 16. tíma, en lögreglunni var tillcynnt um atburðinn í morgun. Fyrir viku var svipað innbrot framið í skólanum og þá var greinilegt að ekki var verið að leita að peningum eða öðru þ. h. Brotnar voru upp hirzlur eins og innbrotsmaðurinn (-menn- irnir) væru að leita að einhverju og í einni hirzlunni voru 1000 kr., sem látnar voru óhreyfðar. Innbrot af þessi tæi gerast á hverju ári í skólum hér í Reykja- vík. Stundum kemst upp hver eða hverjir hafa verið að verki. Hafa það oft reynzt unglingar, stundum ósakhæfir, en það mun vera reglan að mál þeirra eru ekki afgreidd. Þótt slík afbrot séu kærð og upp komist um sökudólgana, er ekkert gert frekar í málinu, jafn- vel þótt verulegt tjón hafi hlotizt af. Fuglinn drepst Frnmhnld af 1 síðu vcga mjög erfitt að ná olíunni þarna upp, nema gera miklar ráðstafanir. Er áreiðanlega fyrsta og bezta ráðið að reyna að bjarga skipinu. Verður auð- veldast að gera það með því að fá til þess lyftipramma eða flot- hylki, til að lyfta togaranum upp að aftan. Norski björgunar- maðurinn mun nú hafa samband við yfirboðara sína úti, til að gefa skýrslu um þá athugun, sem fram fór í dag. Ef ná á togaranum á flot, verður að fá björgunarskip frá Bergen. Fyrir hádegi á morgun munu þeir Hjálmar og Finnur ganga fjörur og hyggja að fugli. í fjörunni við togarann er ekki mikið af dauðum fugli, en töluvert er af fugli útötuðum í olíu á ísjökum í kring og eins er nokkuð af olíublautum fugli á landi. Mikið af þess um fugli er æðarfugl, eða öllu meira en af öði’um sjófugli. Það er vonlaust verk að hreinsa olíuna úr fiðri fuglsins. Reynslan er sú að fugl drepst ef hann biotnar um of af olíu. Eftir Torry Canyon-strandið voru t. d. hreinsaðir 6 til 7 þúsund fuglar. Virðist ekkert af þeim fugli ætla að lifa. Nokkur hundruð af þeim eru enn eftir, og deyja þeir að lík indum allir innan tíðar. llreinsi efnin, sem notuð eru til að ná olíunni taka einnig fituna úr fjöðrum fuglanna og þeir virö ast ekki geta myndað fitu aft- ur. Kemst þá vatnið inn á skrokk fuglanna og þeir deyja af kulda. Vera má að eitthvað af þeim fugli sem nú er olíu- blautur nái sér. Cesar strandaði fyrir réttri viku eða s. 1. miðvikudags- kvöld. Síðan hefur verið ein- munatíð fyrir vestan og varla örlað við stein á strandstaðn um, en björgunaraðgerðir allar dragast á langinn. Olíubrákin, sem flaut frá togaranum er nú rckin norður í Djúp og er ó- kunnugt um hvaða skaða hún kann að valda þar. Trétappar hafa verið reknir í loftrör olíu geymanna, en það er náttúrlega bráðabirgðaráðstöfun og er von manna að góða veðrið haldist svo skipið brotni ekki á strand staðnum, því þá er voðinn vís ef gat kemur á olíugeymana, og eina ráðið virðist að bíða og sjá hvort björgunarskip verður sent frá Noregi, en þótt það verði gert tekur ferðin talsverð an tíma. Forsetaför Framhaid af t>ls. 1 til heiðurs forseta fslands og konu hans. Fimmtudaginn 6. maí verður haldið til Björkö og Birka skoð- uð. Eftir hádegi verður siglt til Stokkhólms. Að lokinni leiksýn- ingu í Drottningholmsleikhúsinu munu forsetahjónin sitja kvöld- verðarboð sænsku ríkisstjórnar- innar. Föstudaginn 7. maí skoða for- setahjónin Statens Historiska Museum. Síðan verður forseta sýnd verksmiðja AGA á Lindingö en forsetafrúnni dagheimili í Ásöberget. Forsetahjónin munu sitja hádegisverðarboð borgar- stjórnar Stokkhólms í ráðhúsi borgarinnar. Síðdegis sama dag mun forseti hafa mótttöku fyrir íslendinga í Svíþjóð. Um kvöldið halda forsetahjónin konungi veizlu á Grand Hotel. Laugardaginn 8. maí lýkur hinni opinberu heimsókn kl. 10.00 f.h., en síðan verða forsetahjón- in gestir ríkisstiórnar Svíþjóðar. Haldið verður til Uppsala, þar sem skoðuð verða háskólabóka- safnið, dómkirkjan og gömlu Upp salir. Að loknum hádegisverði í Uppsalahöll í boði Edenmans landshöfðingja halda forsetahjón in til Skokloster. Kiukkan 18.50 verður farið frá Arlandafiug- velli og lent á Fornebuflugvelli við Osló kl. 19.45. Heim munu forsetahjónin koma með flugvél frá Flugfélagi íslands sama kvöld. f fylgdarliði forsetahjónanna verða Emil Jónsson, utanríkisráð herra, Pétur Thorsteinsson, ráðu- neytisstjórí, Birgir Möller, for- setaritari og frú Margrét Jóns- dóttir, aðstoðarstúlka forsetafrú- arinnar. Konuráflutningabílum Framhald af bls. 16. byggja lokunarmannvirki og grafa 3 km. langan skurð. Þuríð- ur og starfsfélagar hennar munu hafa ekið 7.000 til 10.000 rúm- metrum af steypu í þessi mann- virki áður en yfir lýkur. Landfari Framhald af bls. 11. það gerðist í fyrra, þegar um- ræður um inngöngu í EFTA stóðu sem hæst, og alþmgis- menn íhuguðu tekjumissinn sem verða myndi vegna tolla- lækkana, að Hannibal Valdi- marsson hafi látið þá r,koðun uppi. að íslenzka ríkið ætti að geta jafnað þann hal'.a með því að taka bara þeim mun hærri söluskatt af vörunni, sem einfaldast væri að inn- flytjendur eða heildsalar greiddu strax er þeim væri afhent varan úr toUi, svo öruggt væri að hann kæmi strax ti) skila. — En aðrir þingmenn tóku ekki undir þetta, því það yrði skoðað sem brot á tollsam Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför mannsins míns, Guðmundar H. Friðfinnssonar, pípul.meistara. GuS blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda. Áslaug Magnúsdóttir Þökkum auösýnda samúð og vináttu við andlátog útför föður okkar, tengdaföður og afa, Jóns Jakobssonar, Varmalaek. Jakob Jónsson Jarþrúður Jónsdóttir Kristleifur Jónsson Auður Jónsdóttir Pétur Jónsson Erna Sigfúsdóttir og barnabörn. 3B»ac.*:aas komulagi milli viðkomandi landa. Nú vil ég spyrja-. 1) Hvernig samrýmist 12,1% söluskattur af „tollfrjálsum“ bókum tollasamkomulagí við Danmörku, þegar bækurnar eru ekki keyptar til þess að selja þær í búð? 2) Hvernig samrýmist 12.1% söluskattur lögum Alþingis um 11% söluskatt af seldri vöru í smásöluverzlunum? 3) Af þessu leiðir spurning um á hvaða lögum bygg'st heimild til að taka söluskatt af burðargjaldi í frímerlcjum límdum á umslög? 4) Ber Tollpóststofunni ekki að greiða skemmdir sem starfs menn hennar valda á iniiihaidi póstsendinga sem þeir „toll- skoða“, eins og í þessu tilfelli kápunum á tveimur bókum° Að endingu vil ég beina þeirri aðvörun til þeirra sem þurfa að hafa skipti við Toll- póststofuna, að láta ekki þenn an Magnús, sem 5g var var- aður við, hlunnfara sig. Reykjavík, 17. apríl 1971. Ragnar V. Sturluson. c*!ent yfirlit Framhald af bls 9 stjórnarbyltingu, en ekki varð kunnugt fyrr en nokkrum vik- um síðar, að Park hafði verið einn helzti byltingarleiðtog- inn. Hann tók þá völdin. Ný stjórnarskrá tók gildi 1963 og var Park kjörinn forseti sama ár og endurkosinn 1967. Hann þykir kænn og stjórn- samur, en er þó fáskiptinn og kemur lítið fram opinberlega. Ræðumaður er hann heldur lítill og ekki mikill fyrir mann að sjá, lágvaxinn og grannur. Andstæðingur hans í for- setakosningunum,, Kim Dae Jung, er hins vegar með betri ræðumönnum og kemur vel fyrir. Hann er 46 ára gamall. Hann var lítið þekktur áður en kosningabaráttan hófst. Hann þótti reynast vel í henni, og þykir nú líklegur til auk- ins frama, þegar Park dregur sig í hlé. Þ.Þ. ísl. bókmenntir FramKhald af bls. 8 í fræðum, er varða Norður- lönd, mundi slíkt ekki koma fyrir, því að menn þessir gætu örugglega vísað þeim á þýð- endur, sem væru hæfir til þessa frá fræðilegu og bók- menntalegu sjónarmiði. Þriðja skáldsaga Indriða heitir „Þjófur í Paradís". Hún kom út 1967 og fjallar um sauðaþjóf, sem vekur samúð meðal fólksins. í skáldsögu þessari tekst Indriða í ein- földu máli að móta djúpstæð- an harmleik. Hvítur mátar í tveimur leikjum. ABCDEFGH AbCDEFGH Ekki þýðir 1. Da5? — Kg6! eða 1. Dc2? — Bd3! Lausnarleikurinn er 1. Dc4! — Kg6/Bg6/Bc6 þá 2. Bd3/Dcl/De6 mát. 115 III )j ÞJOÐLEIKHUSIÐ ZORBA Söngleikur eftir Joseph Stein og John Kander. Þýðandi: Þorsteinn Valdemars- son. Leikstjóri: Roger Sullivan. Höfundur dansa og stjórnandi: Dania Krupska. Hljómsveitarstj.: Garðar Cortes. Leiktjöld og búningar: Lárus Ingófsson. Frumsýning föstudag kl. 20. Uppselt. Önnur sýning laugardag kl. 20. Uppselt. Þriðja sýning sunnudag kl. 20. LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS Sýning sunnudag kl. 16. Aðgöngumiðasaian opin frá kL 13,15 til 20. Sími 1-1200. Mávurinn í kvöld kl. 20,30. 4. sýning Kauð kort gilda „Kristnihald" föstudag. „Hitabylgja" laugardag. Mávurinn sunnudag. 5. sýning. Blá kort gilda. Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin frá kl. 14. Sími 13191. Það er ekki létt að hitta á rétta lokasamninginn í þessu spili fyr- ir N-S. í 5 T eru þrír tapslagir beint, og 3 gr. eru verri. 4 Hj hafa möguleika, og nokkur pör náðu þeim samning í tvímennings- keppni. A G 4 ¥ ÁG3 ♦ D 10652 * ÁG7 A KD986 A Á 10 7 2 ¥ 108 72 ¥ 64 ♦ Á 7 ♦ 83 * 10 4 * D 8 6 5 3 A 53 ¥ K D 9 5 ♦ K G 9 4 * K 9 2 V spilaði út Sp-K og þegar A kallaði með 10 varð V að finna snilldarvörn til að hnekkja spilinu. Hann tók á Sp-D og spilaði þriðja spaðanum í tvöfalda eyðu. Gagn- vart þessari „gjöf“ átti S ekkert svar. Hann trompaði í blindum, og varð að spila T til þess, að ná út As, áður en hann fór í trompið. Vestur gaf fyrsta T-slaginn, skiptir ekki máli, en tók næsta á Ás. Og miskunnarlaust spilaði hann enn spaða. Það skiptir ekki máli hvoru megin spilarinn trompar — hann hlýtur nú alltaf að tapa slag á tromp og þar með sögninni. Yngsti kórinn Framhald af bls. 3. orgelleikari. Aðgöngumiðar að hljómleikunum verða til sölu í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar og Fcrðaskrifstofunni Út- sýn. Mikið hefur verið spurt um það, hvort kórskólinn verði ekki starf andi næsta vetur. Ingólfur Guð- brandsson kvað líklegt að svo yroi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.