Tíminn - 29.04.1971, Qupperneq 16
Seint gengur
að greina
flenzusýnin
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
Cmgangsveiki sú, sem gengiS
héfur hér í nágrenninu er nú í
rénum. Veikin hefur lítið breiðzt
út á landsbyggðinni, en þó hafa
Margréti Guðnadóttur, prófessor,
borizt sýni úr sjúklingum á Akur
eyri, Djúpavogi og í Stykkishólmi.
Svo virðist jafnvel sem um fleiri
en eina tegund umgangsveiki sé
að ræða, þar sem allir, sem veikj
ast kenna ekki sömu sjúkdómsein
kénna.
Að sögn lækna eru aðaleinkenni
veikinnar hár hiti, mikill höfuð-
verkur og eymsli í hálsi. Sumir
vérða hásir og ekki er óalgengt
að börn fái útbrot. Þá vitum við
um fólk, sem fengið hefur maga
kveisu samfara umgangsveiki þess
ari, aðrir fá mikið kvef, en sum
ir ekki, heldur höfuðverk, bein-
verki og eymsli í hálsi.
Margrét Guðnadóttir, sérfræð-
ingur í veirufræði við tilrauna-
stöðina á Keldum sagði í dag, að
ekki hefði gefizt tími til að ljúka
við að greina sýnin, sem borizt
hefðu. Um daginn hefði eitt sýni
verið greint og reyndist hafa að
geyma veiru, sem veldur veiki,
sem er lík hvotsótt. Greiningu
annarra sýna verður ekki lokið
fyrr en eftir um viku, en Margréti
virtist ekki ólíklegt að um fleiri
en einn sjúkdóm væri að ræða. —
Ekkert bendir þó til að um inflú
ensu sé að ræða, sagði Margrét.
fVfaður á hjóli
lenti á bíl
landi í dag með 100 rauðmaga
og 350 grásleppur. Það er
kannski vegna þessa góða afla,
sem Hafnfirðingarnir eru ekki
eins dýrt seldir á rauðmagana,
miðað við Reykvíkingana á
Grímsstaðarholtinu. f Hafnar-
firði kostar rauðmaginn nefni
lega ’ÍO^kfónur á bryggjunhi,
en á Grímsstaðarholtinu hef-
ur hann kostað 50 kr. fram undir
þetta í vörinni við Skerjafjörð.
Grímur Ársælsson í Hafnar-
firði sagðist vera með 20 tross
ur eða 60 net í sjó, og sagði
hann að þau væru í um 20 mín
útna siglingu frá Hafnarfirði.
Ilann kvað nógan markað fyr-
ir rauðmagann, enda 20 krón
um ódýrari en á Grímsstaðaholt
inu, og hrognin úr gráslepp-
unni kvaðst hann salta sjálfur,
og sömuleiðis herða gráslepp
una sjálfur. Grímur sagðist
hafa komið með svipað afla-
magn í gær, og veiðin væri
því góð, sem og mátti sjá í
bátnum hjá honum, sem var í
orðsins fyllstu merkingu drekk
hlaðinn.
Grásleppuveiðimenn og aðr-
ir trillueigendur í Hafnarfirði
hafa fengið góða aðstöðu í Hafn
arfjarðarhöfn. Gamli Hótel
Víkingur þjónar þar sem fyrir
taks flotbryggja fyrir trillurn
ar, og af bryggjunni og upp á
garðinn er svo landgangur sem
hreyfist til eftir flóði og fjöru.
Aðalkosturinn við flotbryggj-
una er auðvitað sá, að gott er
að landa úr trillunum á bryggj
una, en að vísu verður svo að
bera aflann upp á garðinn.
Grímur Arsælsson kemur að landi
með drekkhlaðinn bát í Hafnar-
firði í gaer. (Tímamynd Gunnar)
)
GVA-Reykjavík, miðvikudag.
Hrognkelsaveiðimenn í Hafn
arfirði virðast afla vel þessa
dagana, ef marka má aflann yf-
irleitt eftir aflabrögðum hjá
Grími Ársælssyni, sem kom að
RAUÐMAGINN 20 KR. DÝRARI í
REYKJAVÍK EN í HAFNARFIRÐI
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
25 ára gamall maður ók á fleygi
ferð á mótorhjóli norður Súða-
vog í gærkvöldi. Sjónarvottar
biðu með öndina í hálsinum, er
þeir horfðu á eftir honum, og
slysið lét ekki á sér standa.
Maðurinn ók á hlið jeppa, sem
ók út á götuna. Var bíllinn kom-
inn hálfur út á götuna þegar bíl-
stjórinn sá til ferða piltsins á
hjólinu. Ætlaði hann að reyna að
bakka, en gafst ekki tími til
þess. Ók maðurinn á hjólinu á
hlið bílsins. Hemlaför eftir hjól-
ið voru 40 metrar. Skemmdir
urðu bæði á hjólinu og jeppan-
um. Ökumaður mótorhjólsins
meiddist á hnjám og olnboga, en
mesta ferðin var farin af hjólinu
þegar áreksturinn varð.
HMA SOTT
ÞÁGU TIL SiLDVEIDA
OÓ—Reykjavík, miSvikudag.
Nokkrir bátar hafa sótt um
undanþágu til aS veiða síld
suður af Reykjanesi og er
blaðinu kunnugt um að enn
fleiri muni sækja um undan-
Framsóknarkonur, Reykjavík
Félag framsóknarkvenna heldur fund að Hallveigarstöðum
fimmtudaginn 6. maí, kl. 20:30. Fréttir frá flokksþinginu, tízku-
sýning og fleira. Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur
gesti. — Stjórnin.
þágu. Eins og er hafa aðeins
tveir bátar leyfi til veiðanna,
Örfirisey og Hafrún, en þeir
bátar hafa báðir landað síld,
sem veidd var vestan Vest-
mannaeyja. Ekki hafa enn
verið veittar fleiri undanþág
ur og mun óráðið enn hvort
yfirleitt verður leyft að veiða
þessa síld, sem er mögur
sumargotssíld.
Heildarfita þeirrar síldar, sem
Hafrún veiddi er 8.2% og meðal-
búkfita 6.2%. Meðalstærð síldar-
innar er 29.5 cm. Síldin sem Ör-
firisey veiddi fékkst nokkuð aust
ar. Heildarfita hennar er 8.3%,
en meðalbúkfita nokkuð hærri
eða 9.5%. Sú síld er smærri, með
alstærð er 28.5 cm. Meira vantar
eldri árganga í þá síld.
Komnar eru að minnsta kosti
þrjár umsóknir til viðbótar til að
veiða þessa síld, og fleiri eru á
leiðinni. Er verið að athuga hvort
leyfa eigi að veiða síldina.
Blaðburðarfólk óskast
Hvernig er ástandið í
refsimálum unglinga ?
Innbrot í skóla látin óátalin
VÍÐS VEGAR UM BORGINA
Uppiýsingar á afgreiðslu Tímans, Bankastræti 7,
SÍMI 1 23 23.
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
í nótt var brotizt inn í Voga
skóla og stungin upp hurð á her
bergi símaafgreiðslu. önnur spjöil
voru ekki unnin í skólanum og
ckki virtis sá (eða þeir), sem
þarna var að verki hafa verið
að leita að einhverju» fémætu. Síð
an fór innbrotsmaðurinn inn á
kennarastofuna og gæddi sér þar
á eggi og innihaldi mjólkurhyrnu,
sem hann fann þar.
Innrásarmaðurinn mun hafa
Komizt inn í skólahúsnæðið úr
nýbyggingu, sem verið er að gera
við skólann. Menn voru að vinnu
skólanum,.til rúmlega 12 aðfara
nótt miðvikudags, og mun innbrot
ið hafa verið framið eft.ir þann
Framhald á bls. 14.
ÞÆRAKA
VÖRUBÍL
OGRÚTU
SJ—Reykjavik, miðvikudag.
Tvær íslenzkar konur vinna nú
við þungaakstur svo vitað s» og
ef til vill hafa fleiri af „veikara“
kyninu tekið upp þessa starfs-
grein. Ung stúlka, Þuríður Salóme
Guðmundsdóttir, er vörnbílstjórí
hjá verktakafyrirtækinu ístak
uppi við Þórisvatn. Hénni fellur
starfið vel og ætlar að vinna við
virkjunarframkvæmdir við ÞóriS'
vatn í sumar. Önnur kona, Guð-
laug Þórarinsdóttir, hefur ekið
áætlunarbifreið að staðaldri í tvð
ár og raunar lengur í ígriptmi.
Guðlaug cr einnig ánægð með
sitt starf, og hún hefur sannar-
lega heppnina með sér, þvi það
hefur aldrei sprungið hjá henui
í áætlunarakstri.
Guðlaug ekur ásamt eiginmanm
sínum á áætlunarleiðunam
Reykjavík — Grindavik og
Reykjavík — Þingvellir. Á sumr-
in hefur hun ekið dagíega á þess-
um leiðum, en á vetuma er ró-
legra þegar ferðir eru strjálli.
Erfiðasti hluti starfsins fyrir Guð-
laugu er að taka við þungum far-
angri. Ferðir til Grindavikur eru
1—3 sinnum á dag, en 1 sinni í
viku til Þingvalla. 1. júní hefst
sumaráætlunin og þá er farið dag
lega til Þingvalla og um helgar
fleiri en ein ferð á dag.
Við töluðum við Þuriði Salóme
í síma fyrir skömmu en hún var
þá tímabundin, var að fara á
vakt að aka steypu við suðurenda
Þórisvatns. En vörubílstjóramir
hjá fstak vinna 12 tima vaktii
í einu og eiga jafnlangt frí á
milli í hálfan mánuð í senn, en
fá þriggja daga helgarfri é
tveggja vikna fresti. Um 120
starfsmenn frá fstak verða rið
Þórisvatn í sumar og um 200
manns frá verktakafyrirtækinu
Þórisós h.f., auk fólks frá Orku-
stofnun, Landsvirkjun og e.tv.
fleiri aðilum.
— Mér fellur ágætlega hér,
sagði Þuríður, — en annars
finnst mér þetta ekkert frétt-
næmt.
Þuríður Salóme tók meira próf
bifreiðastjóra fyrir 5 ámm. Hún
er frá Akri á Rangárvöllum og
starfaði áður í benzínskála, sem
hún rekur eftir sem áður.
Starfsmenn fstaks eru að
Framhald á bls. 14.
5000
KALLINN
AÐ KOMA
Föstudaginn 30. apríl mun
Seðlabankinn setja í umferð
5000 króna seðil. Fer hann sam
tímis í umferð í Reykjavík og
víða úti á landi.
Seðillinn hefur sömu lengd
og breidd og 1000 króna seðill
inn þ.e. 160x70 mm og er aðal
litur hans brúnn.
Á framhlið hans er mynd af
Einari Benediktssyni, skáldi,
auk- myndar frá Soginu, frá íra
fossi og Ljósafossi. Vatnsmerki
er til hægri á framhlið af
Sveini Björnssyni, fyrsta for-
seta lýðveldisins.
Á bakhlið seðilsins er mynd
af Dettifossi. {
C- ...--------------