Tíminn - 11.05.1971, Blaðsíða 3
BOK UM NUTIMAUOD-
LIST EFTIR JÓHANN
I>að er oft haft á orði, að fáar
þjóðir eða engar eigi skádlist
sinni meira upp að uima en ís-
lendingar, og má það til sams
vegar færa. Á löngum öldum
fylgdi hún þeim trúlega frá einni
kynslóð til annarrar og liún varð
þeim ekki aðeins athvarf og
dægradvöl, heldur andleg íþrótt,
sem öllum almenningi var tiltæk
og brýndi vitsmuni hans og anda
gegn lífshættum einangrunar og
fásinnis. Þá átti hver maður að
heita mátti sitt eftirlætisskáld,
og hefur svo verið allt fram á
vora daga.
Nú er það að sönnu augljóst
mál, að þjóðfélagsleg stakka-
skipti hafa í seinnj tíð lagt í
aðrar hendur ýmis þau hlutverk,
sem skáldskapurinn var áður lát-
inn gegna, en þar fyrir verður
ekki með nokkru móti staðhæit,
að þjóðin í heild sé orðin ljóð-
listinni fráhverf. Hitt er engu að
síður satt, að um sinn hefur al-
menningi gengið miður vel að til-
einka sér hina yngstu ljóðagerð,
sem einatt er borin þeim sökum
að vera bæði formlaus og óper-
sónuleg. Þetta viðhorf hefur
stefnt hinum ungu skáldum til
meiri einangrunar en þeim sjálf-
um eða bókmenntunum er hollt
og verður naumast úr því bætt
nema með einu móti — aukinni
kynningu.
f raun er hér komið að vanda-
máli, sem allt til þessa hefur sætt
mikilli vanrækslu. En nú hefur
Jóhann Hjálmarsson skáld og
gagnrýnandi, tekið saman allmik-
ið rit, sem ætti að geta leitt til
hlutlægra mats á hinni ungu ljóð
list og jafnframt til nánara sam-
bands milli hennar og lesendanna.
Nefnist bókin fslenzk nútímaljóð
list og er hún nýlega komin út á
vegum Almenna bókafélagsins.
í bók þessari, íslenzkri nútíma
Frh. á bls. 10.
Ekki er útlit fyrir að enska
togaranum, sem strandaður er
út af Arnarnesi, verði bjargað
af strandstað þennan daginn.
Björgunarskipin tvö geyma enn
flothylki hér jnni á ísafirði. f
dag hafa björgunarskipin verið
út við togarann, en í gær og
fyrradag var unnið við að koma
vírum og flothylki undir hann.
Nú sést mávurinn ekki einu
sinni við Arnarnes, en þar ligg-
ur nú ný olíurák mcðfram öllu
landi. (Tímamynd G.S.)
------------------------------i
Hóptrygging
>
cn
>loa s'io'
Vaxandi áhugi er fyrir þvi, að samstarfsfólk, lífeyrissjóðir
eða félög standi sameiginlega að HÓPTRYGGINGUM. Með
því móti verða iðgjöíd veruiega lægri og fullvissa er um,
að allir e.ru tryggðir. Samskot vegna fráfalls eða veikinda
vinnúfélaga ættu að vera óþörf, ef HÓPTRYGGING er fyrir
hendi.
Við höfum nú á boðstóli^m mjög fullkomna HÓPLÍF-
SJÚKRA- og SLYSATRYGGINGU, serh. kemur í veg fyrir
tekjumissi vegna sjúkdóma eða slysa, og greiðir dagpen-
inga í allt að þrjú ár. Ennfremur greiðir tryggingin örorku-
bætur og dánarbætur við fráfall fyrirvinnu og einhleypinga.
Upplausnarásfand
hjá Hannibal
Þá hefur Félag frjálslyndra
í Reykjavík loks ^engið frá
frainboðslista sínum, en þar
höfðu þau tíðindi gerzt, að
Hannibal Valdimarsson hafði
sagt sig af listanum vegna
ágreinings, og er hann nú kom-
inn í framboð vestur á fjörð-
um. Frá nýjum framboðslista
var svo gengið á laugardaginn.
Það var Bjarni Guðnason, pró-
fessor, sem fyrir því stóð að
Ilannibal var flæmdur vestur.
Fékk hann til liðs við sig
Magnús Torfa Ólafsson, fyrr-
um ritstjóra Þjóðviljans, sem
skipar nú fyrsta sætið á lista
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna í Reykjavík. Á þessum
fundi á laugardaginn sögðu 8
menn, sem ætlað var sæti á
framboðslistanum sig út af list
anum í mótmælaskyni, Meðal
þcirra voru Steinunn Finnboga
dóttir, borgarfulltrúi Frjáls-
lyndra í Reykjavík, Margrét
Auðunsdóttir, formaður starfs-
stúlknafélagsins Sóknar, Sigríð
ur Hannesdóttir og Alfreð
Gíslason, læknir, og fyrrum al-
þingismaður Alþýðubandalags-
ins. Hann mætti ekki einu
sinni á fundinum, en lét fylgja
þau skilaboð, að hann yrði ekki
í framboði fyrir hinn nýja
stjórnmálaflokk. Alfreð hafði
verið ætlað hciðurssætið á list-
anum.
Þannig er hinn nýi „samein-
ingarflokkur" nú klofinn. Raun
ar kemur það ekki á óvart
þeim, sem til þckkja og vita
hvers konar samanskrap óá-
nægðra úr ýmsum áttum þessi
nýju stjórnmálasamtök eru.
Klofningur var því aðeins
spurning um tíma. Engan mun
samt hafa órað fyrir, að flokk-
urinn myndi klofna fyrir
fyrstu alþingiskosningarnar,
sem hann tæki þátt í.
Þar er skýringar
aS finna
Skýringar á þessum atburð-
um má m.a. finna í síðasta tölu
blaði Nýs lands, sem gefið er
út cftir að Ijóst er orðið, að
Hannibal er horfinn á braut
og kominn í framboð á Vest-
fjörðum. f forustugrein blaðs-
ins fær Hannibal heldur kaldar
kveðjur. Þar segir m.a.:
„ . . . . Flokkurinn vill koma
með nýtt fó!k, sem ekki er sam
dauna hinu gamla flokkavaldi
þar sem einn vilji ræður
mestu“.
Þetta er sérstök kveðja til
Hannibals ,en við hana er
bætt:
„Þegar stjórnmálaflokkar
ákveða lista sína koma venju-
lega tvö sjónarmið til greina.
Annað að tryggja vald flokks-
stjórnarmanna yfir væntanleg
um frambióðendum. hitt að
velja á lista fólk, sem væn-
legt er til að draga fylgi að
Iistanum. Síðarnefnda sjónar-
miðið varð að ágreiningsefni í
Reykjavík".
Þessi kv»ðja er að sjálfsögðu
einm'g ætluð Steinunni Finn-
bogadóttur og Haraldi Henrýs-
syni, seni átti að skipa 3ja sæti
listans skv. ákvörðun fundar
Framhald á bls. 10.
Jóhann Hjálmarsson
fev-