Tíminn - 11.05.1971, Blaðsíða 10
TÍMINN
Innfluttir fiskar frá Asíu
gjöreySa lífi í ám og vötn-
um í Bandaríkjunum.
Það sem margir Bandaríkja-
menn hafa óttazt hefur nú
rætzt. Innrás hefur verið gerð
frá Asíu. Óvinirnir eru þegar
komnir inn í mitt land. Þeir
stíga eins og froskmenn upp
úr ám og vötnum, þeir herja
landið eins og fótgönguliðs-
sveit, og dag hvern ná þeir
nýjum svæðum á sitt vald. Og
enn hefur ekki fundizt neitt
varnarvopn. Nafn óvinarins er
á latínu „Clarias batrachus“,
og hann er fiskur uppprunn-
inn í Thailandi öðru nafni
Siam. Dýrakaupmaður í Banda
ríkjunum flutti nokkra slíka
fiska til Flórída og kom þeim
fyrir í sundlauginni sinni.
Hann vissi ekki að þeir eru
verstu strokuhundar og góðir
til „gangs“.
Fiskar þessir sem verða allt
upp í 40 cm langir, geta stig-
ið á land, andað með eins
konar lungum klukkustund-
um saman, og herjað á margra
kílómetra stóru svæði Þeiv
geta stokkið og þreifa fram
fj<rir;sig með öngum, sem þeir
háfa við munninn. Fiskar þess
jit eru alger rándýr. Þeir éta
allt líf upp til agna í vötnum,
tjörnum og ám, og skilja eftir
sig algera auðn. Og frá náttur-
unnar hendi eiga þessir Asíu-
búar enga óvini í Bandaríkjun-
um. Jafnvel grimmustu dýr
taka á sig lcrók þegar þau rek-
ast á fiska þessa, einum þeirra
hefur meira að segja tekizt að
bíta hund. Líffræðingar eru
ráðalausir. Einn þeirra hefur
saígt: „Hvéniir éigum við að
d|-eþa fiska, sem hreinlega
labba burt, þegar maður eitr-
ar tjörnina þeirra?11
Gengið
Gjaldeyrismarkaðir eru enn lok
aðir í Belgíu, og mun því skrán-
ing á belgískum frönkum ekki
verða tekin upp af Seðlabankan-
um að svo stöddu. Hins vegar
munu viðskiptabankarnir verzla
með belgíska franka á sama hátt
og undanfama daga.
Áð öðru leyti en hér hefur
verið rakið munu gjaldeyrisvið-.
skipti verða með venjulegum
hætti, þ.á.m. á ítölskum lírum, en
skráning á þeim var felld niður
s.l. fimmtudag", segir í tilkynn-
ingu Seðlabankans.
íþróttir
En á 35. mín. var Magnúsi
markverði vísað út af, eins og
sagt var frá í upphafi. Eftir það
varð leikurinn að „skrípaleik".
Hef ég sjaldan orðið vitni að
öðru eins, — og sízt hjá fullorðn-
um mönnum, Þetta var eins og
hjá strákum, sem eru að leika
knattspyrnu án dómara og allir
vilja dæma. — Leikmenn beggja
liða hrópuðu og veifuðu hver í
kapp við annan, þegar við þá var
komið.
Ef síðustu 10. mín. leiksins
væru klipptar af, mætti segja um
leikinn, að hann liafi boðið upp
á margt skemmtilegt.
Hefðu Víkingar leikið allan
leikinn eins og þeir léku fyrstu
15. mín. í fyrri hálflcik, hefði
sigurinn orðið stærri en 3:2 yfir
KR.
Víkingsliðið, sem er eitt okkar
skemmtilegasta lið, gerði margt
fallegt. Ætti það að vera mikill
styrkur fyrir liðið, að Gunnar
Gunnarsson er byrjaður að leika
aftur cftir stutt hlé. Beztir voru
Hafliði Pétui-sson, sívinnandi, og
fyrirliðinn, Jón Ólafsson (Donni).
KR-liðið skapaði alltaf stór-
hættu með skyndiupphlaupum, —
en liðið virðist ekki fastmótað
enn. Hjá liðinu bar mest á hinum
síunga Sigþóri Jakobssyni.
Sjaldan hefur maður séð eins
mikið kæruleysi og hjá dómara-
tríói leiksins. Leikinn dæmdi Þor-
steinn Björnsson hörmulega. —
Hafði hann lítil samskipti við
reynslulausa línuverði. Maður
hélt nú annars, að línuvörður
hefði um annað að hugsa en kall-
ast á við stúkugesti.
Aðsúgur var gerður að dóm-
aranum eftir leikinn, með grjót-
kasti og spörkum, og er til skamm
ar, að dómari skuli ekki fá vernd
þegar svona lýður leikur lausum
hala. — SOS.
EFTA
Framhald af bls. 1.
Hér á eftir fer verð á filmunum í
EFTA-ríkjunum, og er alls staðar
miðað við svissneska franka.
Austurríki 23,16
Danmörk 18,42
Finnland 24,13
ísland 31,21
Nojregur 22,35
Portúgal 27,00
Svíþjóð 17,39
Sviss 15;50
Bretland 18,70
Þá var nefnt scm dæmi verð
á OMO þvottaefni, en pakkinn af
því kostar í Portúgal 1,38 svissn.
franka, hér á landi 2,18 og í Sviss
2,80. Þá var nefnt dæmi um bif-
rciðaverð og tekin Volvo-bifreið,
sem kostað í Sviss 13,400 franka,
á fslandi 19,938 og í Finnlandi
22.418 franka.
Eins og áður segir, hefst fundur
ráðherranefndar EFTA á fimmtu
daginn og lýkur á föstudag. Hinir
erlendu gestir koma á miðviku-
dag nema brezki ráðherrann, sem
kemur um miðjan fimmtudag
beint af samningafundi við EBE-
ríkin. Fréttir frá Brussel herma,
að talið sé sennilegt að verulegur
árangur náist á þeim samninga-
fundi, þótt ekki sé talið að sá
fundur hafi nein úrslitaáhrif.
Loftleiðir ,
þegaþjónustan hefur gengið
hér á landi, síðan henni var
komið á, og þykir Loftleiða-
mönnum þvi sjálfsagt að færa
út kvíarnar á þessu sviði sem
öðrum.
Samstarf Lofleiða og Luxair
er mikið á ýmsum sviðum. en
þess má geta, að 53% allra
þeirra farþega sem fara um
Findelflugvöll ferðast með
Loftleiðavélum og Air Ba-
hama. Hefur farþegaaukning*»i
aukizt um 40% síðan þotuflug
félagsins byrjaði. Fyrsta árið
sem Loftleiðir flugu til Luxem
borgar 1955, var farþegatalan
650. Á síðasta ári fluttu Loft-
leiðir 219 þúsund farþega um
Luxemborgarflugvöll, og það
sem af er þessu ári nemur
farþegaaukningin 20%. Nú eru
starfsmenn félagsins í Luxem-
borg 106.
Nótímaljóð
Ijóðlist, er fjaliað um þau skáld,
sem ailt frá Jóhanni Sigurjóns-
syni og fram á vora daga hafa
að áliti höfundarins stuðlað að
öðrum fremur að endui'nýjun
ljóðsins, bæði að því er tekur
til efnis og forms, og er mörgum
þeirra gerð veruleg skil. Samt
tekur höfundurinn mönnum vara
fyrir því, að líta á ritið sem eigin
lega sögu þessara bókmennta-
greinar, heldur sé því öðru frem
ur ætlað að eyða fordómum og
skapa umræðugrundvöll. Til
þeirra hluta virðist bókin prýði-
lega fallin, auk þess sem hún ætti
að koma að góðum notum við
bókmenntakennslu í skólum lands
ins. Og þó að ýmsar ályktanir
höfundarins kunni að valda ágrein
ingi, skiptir það í raun minnstu
máli, ef bókinni tekst að öðru
leyti að vekja tilætlaðan áhuga
og skilning,
íslenzk nútímaljóðlist er 241
bls. Hún er prentuð og bundin í
Prentsmiðju Hafnarfjarðar, en
Torfi Jónsson teiknaði kápu.
Á víðavangi
Framhald af bls. 3.
og niðurstöðum prófkjörs, en
hann hcfur einnig horfið af
listanum í Reykjavík. Þannig
fer fyrir hinu „fylgissnauða
flokksstjómarfólki" í hinum
nýju samtökum. — TK
íþróttir
Framhald af bls. 8.
á ferðinni með góða scndingu.
Charlie George tók við boltanum
og sendi hann með hægra fæti
glæsilega í mark.
Sigurvegurunum var að venju
fagnað gífurlega og tóku „The
Kop“, stuðningsmenn Liverpool,
einnig þátt í þeim fagnaðarlát-
um. Nokkrir áhangendur Arsen-
als tóku sig til, og fóru í bað í
gosbrunnunum á Trafalgar torgi
í London eftir leikinn.
Úrslitaleikurinn verður vænt-
anlega sýndur í sjónvarpinu á
laugardaginn kemur. —kb—
ÞRIDJUDAGUR XL ma! 1981
íbróttir
Framhald af bls. 9.
Einliðaleikur kvenna:
1. Margrét Rader, KR
2. Sigrún Pétursdóttir. KR
3. Ríta Júlíusdóttir, Á
Tvenndarleikur:
1. Sigrún Pétursdóttir og Gunnar
Gunnarsson, KR
2. Elísabet Simson og Jóhann
Sigurjónsson, Ö.
3. Margrét Rader og Stefán
Árnason. KR
Tvíliðaleikur karla:
1. Birkir Þ. Gunnarsson_ og
Ólafur H. Ólafsson. Ö.
2. Björn Finnbjömsson og
Jón Kristinsson, Ö.
3. Ólafur G. Ólafsson og
Svavar Sigurðsson, ÍA.
Einliðaleikur karla:
1. Björn Finnbjörnsson,__ð
2. Bagnar Ragnarsson,_ Ö
3. Ólafur Garðarsson, Ö
f einliðaleik og tvíliðaleik karla
á hið nýstofnaða borðtennisfélag
Örninn sigurvegarana, og í ein-
liðaleiknum raða sér „Ernir" 1
öll efstu sætin, og þar efstur
Björn Finnbjörnsson, sem leikur
yfii-vegað og hættulaust. Hann
sækir sjaldan en lætur mótheri-
ann um það, og ,Mslær svo til“
þegar þeir gera vitleysur, og á
því vinnur hann mest.
íbróttir
Frarr’ ’ ’ bls 9.
sem hann átti sjálfur. Var hann
kominn langleiðina með það upp,
en náði ekki að rétta nógu vel
úr sér, enda orðin þreyttur eftir
að hafa verið á ferðinni í sam-
bandi við keppnina og í henni
frá því fyrir hádegi.
f mótinu tók þátt ungur Japani,
Kenechi Take Fuse, sem gestur
og keppti hann í fjaðurvigt. Hann
gerði allar 3 lyfturnar á bekknum
ógildar, og var þar með úr keppni.
Hann var þó með í hnébeygjunni
og réttstöðulyftunni, þar sem
hann lyfti 105 og 160 kg, en það
er samtals 95 kg. meira en fs-
landsmetið í þeim þyngdarflokki
— hraustur náungi það.
f léttvigt áttu Seyðfirðingar tvo
fyrstu menn, í millivigt KR-ing-
ar. f léttþungavigt sigraði Gunnar
Alfreðsson, en þar byrjaði Friðrik
Jósepsson, Vestmannaeyjum á
því að setja íslandsmet í bekk-
pressu ,130 kg„ en hann féll úr
keppni með Jíví að gera ógilt í hné
beygjunni. Á mótinu voru sam-
tals sett 13 íslandsmet, sem er
glöggt dæmi um hina öru þróun
hér á landi í þessari íþrótt.
Colombía
Framhald af bls. 7.
ið að völdum um skamman
tíma. Áður en sú stjórn tók við
voru harðar sviptingar í stjóm-
málaflokkunum um nokkurt
skeið, og létu þá lífið tugir þús-
unda manna.
Nú virðist allt kyrrt á yfir-
borðinu, en víða er grunnt á
því góða inn til landsins, þar
sem margs konar skæruliðar
ráða lögum og lofum, ýmist á
bandi Sovétmanna, Castros eða
Maos. f raun og veru ríkir um-
sátursástand hvarvetna í land-
inu. Hersveitir og vopnuð lög-
regla hafa verið á verði við alla
mikilvæga staði síðan háskóla-
stúdentar efndu til óeirða í Cali
í byrjun apríl.
Þetta, sem liér hefir verið
lýst, eru þó smámunir einir, að-
cins ofurlítil ólag á yfirborðinu,
hjá þcim kraumandj ægivanda,
sem á eftir að koma í ljós, —
nema þvf aðeins, að allar konur,
bæði í Bandaríkjunum og Col-
umbíu, gerbreyti lífsháttum sin-
um. En á því eru afar litlar
horfur, svo ekki sé fastara að
oi'ði kcmlzt.