Tíminn - 11.05.1971, Blaðsíða 9

Tíminn - 11.05.1971, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 11. maí 1971 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 9 mSm llilil . ■ - fc f í F m ■ ‘•■■vs.ý:-. , . : ' ' " ’■ ■ Á j| 4| ::::::':::: „PING-PONG - glumdi milljón sinnum í Laugardalshöllinni, þegar fyrsta íslandsmótið í faorðtennis fór þar fram um helgina JClp-Reyk.iavík. íslandsmótið í borðtennis, það fyrsta, sem haldið er hér, fór fram um helgina í Laugardalshöllinni og var þar leikið á 10 borðum í cinu. Það má því áætla að hið margumtalaða „PING-PONG“, sem íþróttin heitir á alþjóðamáli. og ber nafn sitt af því þegar knötturinn er sleginn og hann kemur í borðið, hafi glumið millj- ón sinnum í veggjum hallarinn- ar, meðan mótið fór fram. f mótinu tóku þátt um 90 kepp- endur. Fyrir einu ári var þessi íþrótt svo til óþekkt hér á landi. Landsleikur við Færeyjar Á blaðamannafundi, sem stjórn KSÍ hélt í gær vegna landsleiks- ins við Frakkland á miðviku- dag, kom m. a. fram, að samið hefur verið um landsleik við Fær eyjar, og mun hann fara fram hér á landi þann 14. júlí nk. f þeim leik teflir fsland fram a-landsliði sínu, en hingað til hefur b-liðið, leikið við Færey- inga, og hefur það verið hálf- furðuleg ráðstöfun, því það þekk- ist hvergi í heiminum, að leik- inn sé b-landsleikur milli þjóða, þar sem önnur þjóðin teflir fram a-liðil —klp— leikin á einstaka vinnustað, en nú hefur henni aukizt heldur bet ur fiskur um hrygg, og er sérstak lega mikið að koma fram af ung- um og bráðskcnimtilegum leik- mönnum. Sérstaka athygli af yngri mönn unum vöktu Akurnesingarnir Sig- urður Gylfason og Elvar Elíasson, en sá síðar nefndi er mjög lag- inn og skemmtilegur leikmaður. Einnig vakti KR-ingurinn Hjálm- ar Aðalsteinsson, athygli fyrir mikla fjölhæfni. Mótið var stigakeppni — allir léku við alla — og var það gert til að hægt sé að raða niður í flokka á næstu mótum, eins og gert er erlendis. Úrslit og landsliðsmeistarar 1971 urðu þessi: Tvfliðaleikur unglinga: 1. Elvar Elíasson og Sigurður Gylfason, ÍA. 2. Finnur Snorrason og Hjálmar Aðalsteinsson, KR. 3. Sigurður Jóhannsson og Gísli Antonsson, Á. Einliðaleikur unglinga: 1. Sigurður Gylfason, ÍA. 2. Hjálmar Aðalsteinsson, KR 3. Sigurður Jóhannsson, Á. Tvíliðaleikur kvenna: 1. Margrét Rader pgo-Sigrún Pétursdóttir, KR 2. Ríta Júlíusdóttir og,,Elísabefci. Simson, Á og Ö. 3. Nanna Sigurjónsdóttir og Jóhanna Stefánsdóttir, Ö. Framhald á bls. 10. íslandsemeistararnir í borðtennis 1971. Efsta rö3 sigurvegararnir f einliðaleik, miðröð, tvenndarlelk og tvíliðalelk LANDSLIÐIÐ VALIÐ karla og neðstu röð tvíliðaleik unglinga og tvíliðaleik kvenna. (Timamyndlr Gunnar) Ingi Björn Aibertsson, — nýiiði Jóhannes Eðvaldsson, — nýliði í gær var landsliðið í knatt- spyrnu, sem leika á við Frakk- land á Laugardalsvellinum á miðvikudagskvöldið, tilkynnt. Við spáðum í síðustu viku hvernig liðið yrði skipað í þess um mikilvæga leik, og vorum við „heitir“ þvi við höfðum 10 stöður réttar af 11. Eini munurinn á okkar uppstillingu og Hafsteins Guðmundssonar, var sú, að hann hefur Harald Sturlaugsson inni, en við höfð- um Guðgeir Leifsson. Liðið sem Hafsteinn valdi er þannig skipað — miðað við 4-3-3 leikaðferðina: Þorbergur Atlason, Fram Jóhannes Atlason, Fram Guðni Kjartansson, ÍBK Einar Gunnarsson, ÍBK Ólafur Sigurvinsson, ÍBV Haraldur Sturlaugsson, ÍA Jóhannes Eðvaldsson, Val Eyleifur Hafsteinsson, ÍA Matthías Hallgrímsson, ÍA Ingi Björn Albertsson, Val Ásgeir Elíasson, Fram. f þessu liði eru tveir nýliðar þeir Ingi Björn og Jóhannes Eðvaldsson, Val. Varamenn í leiknum verða þeir Magnús Guðmundsson KR Róbert Eyjólfsson, Val, Þröst- ur Stefánsson, ÍA, Guðgeir Leifsson, Víking, Baldvin Bald vinsson, KR. — klp. Norðurlandamet í kraftlyftingum Óskar Sigurpálsson og Gunnar Alfreðsson, settu Norðurlandamet í kraft- lyftingum á íslandsmótinu, sem fram fór á laugardag. KIp-Reykjavík. Það er ekki á hverjum degi, sem íslendingar upplifa það að sjá Norðurlandamet sett í íþróttakeppni meðal lands- manna. Það fengu þó þeir, scm komu til að horfa á íslandsmótið í kraftlyftingum í KR-heimiIinu á laugardaginn, jafnframt því, sem þeir fcngu að sjá fjöldann allan af fslandsmetum slegin í skemmtilegri keppni, sem lyfting ar eru oftast. Það voru þeir Óskar Sigurpáls- son og Gunnar Alfreðsson, sem sýndu áhorfendum þetta sjald- gæfa fyrirbæri. Gunnar í rétt- stöðulyftu, þar sem hann lyfti 265 kílóum, og Óskar, í hnébeygju með 267,5 kg. I samanlögðum ár- angri var hann með samtals 702,5 kg., sem einnig er Norður- landamet. Gamla metið átti Svíinn Ingvar Asp, og var það samtals 698 kg. Kraftlyftingar eru ekki enn viðurkenndar sem Olympíuíþrótt, en þessi tegund af lyftingum, scm er gjörólík olympísku þríþraut- inni, eins og nafnið bendir til, er mjög vinsæl víða erlendis, og er keppnisíþrótt á Norðurlöndum, í Bandarikjunum og einnig geyei vinsæl í Þýzkalandi og víðar. f kraftlyftingum byggist meira á kröftum en í hinni, og einnig á nokkurri tækni. Fyrst er lyft af békk, svonefnd bekkpressa, síðan kemur hnébeygja, en þar tekur keppandinn lyftingatækin á herð arnar og beygir sig niður með þau, en síðast er réttstöðulyfta, þar sem keppandinn tekur tækin frá gólfi og lyftir þeim upp fyrir hné og réttir um leið úr bakinu þannig að herðablöðin koma nær saman. Það mesta sem lyft var á þessu móti voru 285 kg. (Óskar Sigur- pálsson og Björn R. Lárusson). En Björn reyndi við 310 kg., sem er 5 kg. meira en íslandsmetið, Framhald á bls. 10. Úrslit á íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum ásamt gildandi íslandsmeti í hverjum þyngdarflokki fram að keppninni. (Allar uppgefnar tölur eru kfló) Léttavigt: Islandsmet. Skúli Óskarsson, Hugin, Seyðisf. Jóhann Sveinbjörns., Hugin S. Millivigt: íslandsmet. Einar Þorgrímsson, KR Ólafur Sigurgeirsson, KR. Léttþungavigt: íslandsmet. Gunnar Alfreðsson, Ármann Guðmundur Guðjónsson, KR. Milliþungavigt: fslandsmet. Guðmundur Sigurðsson, Ármann Grímur Ingólfsson, KR. Þungavigt: íslandsmet. Óskar Sigurpálsson, Ármann. Yfirþungavigt: fslandsmet. Björn R. Lárusson, KR Sigtryggur Sigurðsson, KR Bekkp. Hnéb. Rétts. Samt. 90 135 185 405 95 140 200 435 110 130 190 430 125 165 195 480 122,5 155 207,5 485 110 115 200 425 125 170 210 500 122,5 180 265 567,5 125 157,5 205 487,5 155 240 270 650 145 195 225 565 115 155 230 500 155 265 270 685 150 267,5 285 702,5 192,5 255 305 752,5 187,5 250 285 722,5 110 180 240 530

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.