Tíminn - 11.05.1971, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 11. maí 1971
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
9
mSm
llilil
. ■ -
fc f í
F
m
■
‘•■■vs.ý:-.
, . :
' ' " ’■ ■ Á
j|
4|
::::::'::::
„PING-PONG
- glumdi milljón sinnum í Laugardalshöllinni,
þegar fyrsta íslandsmótið í faorðtennis fór
þar fram um helgina
JClp-Reyk.iavík.
íslandsmótið í borðtennis, það
fyrsta, sem haldið er hér, fór fram
um helgina í Laugardalshöllinni
og var þar leikið á 10 borðum
í cinu. Það má því áætla að hið
margumtalaða „PING-PONG“,
sem íþróttin heitir á alþjóðamáli.
og ber nafn sitt af því þegar
knötturinn er sleginn og hann
kemur í borðið, hafi glumið millj-
ón sinnum í veggjum hallarinn-
ar, meðan mótið fór fram.
f mótinu tóku þátt um 90 kepp-
endur. Fyrir einu ári var þessi
íþrótt svo til óþekkt hér á landi.
Landsleikur
við Færeyjar
Á blaðamannafundi, sem stjórn
KSÍ hélt í gær vegna landsleiks-
ins við Frakkland á miðviku-
dag, kom m. a. fram, að samið
hefur verið um landsleik við Fær
eyjar, og mun hann fara fram
hér á landi þann 14. júlí nk.
f þeim leik teflir fsland fram
a-landsliði sínu, en hingað til
hefur b-liðið, leikið við Færey-
inga, og hefur það verið hálf-
furðuleg ráðstöfun, því það þekk-
ist hvergi í heiminum, að leik-
inn sé b-landsleikur milli þjóða,
þar sem önnur þjóðin teflir fram
a-liðil —klp—
leikin á einstaka vinnustað, en
nú hefur henni aukizt heldur bet
ur fiskur um hrygg, og er sérstak
lega mikið að koma fram af ung-
um og bráðskcnimtilegum leik-
mönnum.
Sérstaka athygli af yngri mönn
unum vöktu Akurnesingarnir Sig-
urður Gylfason og Elvar Elíasson,
en sá síðar nefndi er mjög lag-
inn og skemmtilegur leikmaður.
Einnig vakti KR-ingurinn Hjálm-
ar Aðalsteinsson, athygli fyrir
mikla fjölhæfni.
Mótið var stigakeppni — allir
léku við alla — og var það gert
til að hægt sé að raða niður í
flokka á næstu mótum, eins og
gert er erlendis.
Úrslit og landsliðsmeistarar
1971 urðu þessi:
Tvfliðaleikur unglinga:
1. Elvar Elíasson og Sigurður
Gylfason, ÍA.
2. Finnur Snorrason og Hjálmar
Aðalsteinsson, KR.
3. Sigurður Jóhannsson og
Gísli Antonsson, Á.
Einliðaleikur unglinga:
1. Sigurður Gylfason, ÍA.
2. Hjálmar Aðalsteinsson, KR
3. Sigurður Jóhannsson, Á.
Tvíliðaleikur kvenna:
1. Margrét Rader pgo-Sigrún
Pétursdóttir, KR
2. Ríta Júlíusdóttir og,,Elísabefci.
Simson, Á og Ö.
3. Nanna Sigurjónsdóttir og
Jóhanna Stefánsdóttir, Ö.
Framhald á bls. 10.
íslandsemeistararnir í borðtennis 1971. Efsta rö3 sigurvegararnir f einliðaleik, miðröð, tvenndarlelk og tvíliðalelk
LANDSLIÐIÐ VALIÐ
karla og neðstu röð tvíliðaleik unglinga og tvíliðaleik kvenna.
(Timamyndlr Gunnar)
Ingi Björn Aibertsson, — nýiiði
Jóhannes Eðvaldsson, — nýliði
í gær var landsliðið í knatt-
spyrnu, sem leika á við Frakk-
land á Laugardalsvellinum á
miðvikudagskvöldið, tilkynnt.
Við spáðum í síðustu viku
hvernig liðið yrði skipað í þess
um mikilvæga leik, og vorum
við „heitir“ þvi við höfðum
10 stöður réttar af 11. Eini
munurinn á okkar uppstillingu
og Hafsteins Guðmundssonar,
var sú, að hann hefur Harald
Sturlaugsson inni, en við höfð-
um Guðgeir Leifsson.
Liðið sem Hafsteinn valdi er
þannig skipað — miðað við
4-3-3 leikaðferðina:
Þorbergur Atlason, Fram
Jóhannes Atlason, Fram
Guðni Kjartansson, ÍBK
Einar Gunnarsson, ÍBK
Ólafur Sigurvinsson, ÍBV
Haraldur Sturlaugsson, ÍA
Jóhannes Eðvaldsson, Val
Eyleifur Hafsteinsson, ÍA
Matthías Hallgrímsson, ÍA
Ingi Björn Albertsson, Val
Ásgeir Elíasson, Fram.
f þessu liði eru tveir nýliðar
þeir Ingi Björn og Jóhannes
Eðvaldsson, Val.
Varamenn í leiknum verða
þeir Magnús Guðmundsson KR
Róbert Eyjólfsson, Val, Þröst-
ur Stefánsson, ÍA, Guðgeir
Leifsson, Víking, Baldvin Bald
vinsson, KR.
— klp.
Norðurlandamet í kraftlyftingum
Óskar Sigurpálsson og Gunnar Alfreðsson, settu Norðurlandamet í kraft-
lyftingum á íslandsmótinu, sem fram fór á laugardag.
KIp-Reykjavík.
Það er ekki á hverjum degi,
sem íslendingar upplifa það að
sjá Norðurlandamet sett
í íþróttakeppni meðal lands-
manna. Það fengu þó þeir, scm
komu til að horfa á íslandsmótið
í kraftlyftingum í KR-heimiIinu
á laugardaginn, jafnframt því,
sem þeir fcngu að sjá fjöldann
allan af fslandsmetum slegin í
skemmtilegri keppni, sem lyfting
ar eru oftast.
Það voru þeir Óskar Sigurpáls-
son og Gunnar Alfreðsson, sem
sýndu áhorfendum þetta sjald-
gæfa fyrirbæri. Gunnar í rétt-
stöðulyftu, þar sem hann lyfti
265 kílóum, og Óskar, í hnébeygju
með 267,5 kg. I samanlögðum ár-
angri var hann með samtals
702,5 kg., sem einnig er Norður-
landamet. Gamla metið átti Svíinn
Ingvar Asp, og var það samtals
698 kg.
Kraftlyftingar eru ekki enn
viðurkenndar sem Olympíuíþrótt,
en þessi tegund af lyftingum, scm
er gjörólík olympísku þríþraut-
inni, eins og nafnið bendir til, er
mjög vinsæl víða erlendis, og er
keppnisíþrótt á Norðurlöndum, í
Bandarikjunum og einnig geyei
vinsæl í Þýzkalandi og víðar. f
kraftlyftingum byggist meira á
kröftum en í hinni, og einnig á
nokkurri tækni. Fyrst er lyft af
békk, svonefnd bekkpressa, síðan
kemur hnébeygja, en þar tekur
keppandinn lyftingatækin á herð
arnar og beygir sig niður með
þau, en síðast er réttstöðulyfta,
þar sem keppandinn tekur tækin
frá gólfi og lyftir þeim upp fyrir
hné og réttir um leið úr bakinu
þannig að herðablöðin koma nær
saman.
Það mesta sem lyft var á þessu
móti voru 285 kg. (Óskar Sigur-
pálsson og Björn R. Lárusson).
En Björn reyndi við 310 kg., sem
er 5 kg. meira en íslandsmetið,
Framhald á bls. 10.
Úrslit á íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum ásamt gildandi
íslandsmeti í hverjum þyngdarflokki fram að keppninni.
(Allar uppgefnar tölur eru kfló)
Léttavigt: Islandsmet.
Skúli Óskarsson, Hugin, Seyðisf.
Jóhann Sveinbjörns., Hugin S.
Millivigt: íslandsmet.
Einar Þorgrímsson, KR
Ólafur Sigurgeirsson, KR.
Léttþungavigt: íslandsmet.
Gunnar Alfreðsson, Ármann
Guðmundur Guðjónsson, KR.
Milliþungavigt: fslandsmet.
Guðmundur Sigurðsson, Ármann
Grímur Ingólfsson, KR.
Þungavigt: íslandsmet.
Óskar Sigurpálsson, Ármann.
Yfirþungavigt: fslandsmet.
Björn R. Lárusson, KR
Sigtryggur Sigurðsson, KR
Bekkp. Hnéb. Rétts. Samt.
90 135 185 405
95 140 200 435
110 130 190 430
125 165 195 480
122,5 155 207,5 485
110 115 200 425
125 170 210 500
122,5 180 265 567,5
125 157,5 205 487,5
155 240 270 650
145 195 225 565
115 155 230 500
155 265 270 685
150 267,5 285 702,5
192,5 255 305 752,5
187,5 250 285 722,5
110 180 240 530