Tíminn - 11.05.1971, Page 5
MHBTODAGUR 11. maí 1971
TIMINN
MEÐ MORGUN
KAFFINU
_£j Lbfjl I£J
■ Já, ég er nývaknaður. Hvers vegna spyrjið þér?
Það var jólahátíS hjá stóru
fyrirtæki, og starfsfólkið var að
skemmta sér við leik, sem var
í því fólginn, að allir áttu að
skrifa sína eigin grafskrift.
Ung skrifstofustúlka, sem var
bráðhugguleg og karlagull hið
mesta, sat við hlið auglýsinga-
stjórans og hvíslaði að honum:
— Ég hef ekki hugmynd um,
hvað ég á að skrifa.
— Það er nú ekki vandasamt,
svaraði auglýsingastjórinn, —
ég skal skrifa það fyrir þig.
Þar með tók hann blaðið henn
ar og skrifaði á það nokkur orð.
Þegar grafskriftin var lesin upp
yfir alla viðstadda, kom í ljós,
að hún var þannig:
— Loksins sefur hún alein!
1 raunhmí er það dátlítið ein-
kennöegt, en fóík, sem kann að
Kta sSr Bða vel, hefur aldrei
pcnrnga — en fóik, sem hefur
peninga, kann ekki að láta sér
liSa veJL
— M hverýn veknr þú mig
svo snemma, bam?
— Mamma sagði, að við mætt
om ekki lcika okkur meðan þú
Evæfir.
Palli pipulagningarmaður datt
ofan af þriggja hæða húsi, og
lá á götunni. Fjöldi fólks kom
þegar á vettvang. Lögreglumann
bar þar að ög spurði, hvað um
væri að vera. I því stóð Palli
upp og sagði, um leið og hann
burstaði rykið af fötum sínum:
— Það veit ég svei mér ekki,
ég er nýkominn hingað.
Ransóknardómarinn varð að
áminna hinn ákærða, því að
honum hætti við að hafa of
miklar þagnir í framburði sín-
um. Dómarinn ítrekaði áminn-
ingu sína harðlega, þegar á-
kærður sagði: — Herra dóm-
ari, ég er ekki nærri því eins
mikill þrjótur og ákærandinn
(löng þögn) — álítur mig
vera.
Einnig byrjandi getur náð sér
í stúlku. — En það þarf reynd-
an mann til að losna við hana
aftur.
— Hjónabandinu má líkja við
höfn, þar sem tvö skip mætast.
— Já, en það fór nlí svo, að
ég rakst á herskip.
ISPEGLI TrtHSfflÆklM
DENNI Allir segja: — Góðan daginn,
.... * , , r— . en ckki cr bæKt að siá á ykkur,
DÆMALALl 51 ■# w ™ rétt.
Nýlega hittust tvær frægar
konur, þær Grace furstafrú af
Monaco og Ingrid Bergman, og
þetta var í fyrsta sinn, sem þær
hittust, þótt undarlegt megi telj
ast, því báðar hafa þær verið
um langt bil frægar kvikmynda-
stjörnur, þótt furstafrúin hafi
lagt það starf á hilluna. Fund-
um þeirra Ingrid og Grace bar
saman í Englandi, en þangað var
Grace komin með 14 ára gamla
dóttur sína, Caroline, og var að
Enn einu sinni eru Englend-
ingar farnir að tala um Önnu
prinsessu. Ekki er það vegúa
ástarævintýris, heldur vegna vút-
lits hennar. Anna prinsessa hef
ur hlaðið utan á sig spiki frá
því hún kom heim frá Kenya í
febrúar sl., og landar hennar
eru heldur óánægðir með útlit
hennar. Elizabeth drottning hef-
ur skipað dóttur sinni að fara í
megrunarkúr, og Anna hefur
látið hafa það eftir sér, að mað-
ur verði víst að fórna sér úr því
hún sé fædd prinsessa, enda
þótt hún elski mat.
★ - ★ -
Borðtennis er ein umtalaðasta
iþróttagreinin þessa dagana,
enda orðin stórpólitísk, síðan
bandaríska liðinu var boðið til
keppni í Kína fyrir nokkrum
vikum. Að vísu muna fæstir
hvernig leikar fóru, en það
skiptir minnstu máli. Nú eru
menn farnir að velta því fyrir
sér, hvaðan þessi íþrótt -er runn
in og hver eigi heiðurinn af
því að hafa fundið hana upp.
Nú hafa þrjár sonardætur Samú
els nokkurs Jones upplýst, í
blaðinu Observer, að afi þeirra
og kunningi hans hafi fundið
upp íþróttagreinina. Sanna þær
mál sitt með því að staðhsefa
að borðtennis hafi fyrst verið
leikinn á jólunum 1895, í húsi,
sem kallað var Quarries í Sur-
rey.
Þegar þeir James Gibb og
fvrrnefndur Jones voru búnir að
éta jóiamatinn og tæma kampa-
vínsflöskurnar brugðu þeir á
leik. Þeir stöfluðu bókaröð
þvert yfir matborðið og slógu
kampavínstappana á milli sín
yfir bækurnar. Sem spaða not-
uðu þeir tóma vindlakassa.
Karlarnir höfðu svo gaman af
þessu, að þeir fcngu sér síðar
létta bolta frá Frakkiandi og
bjuggu til spaða, ekki ósvipaða
þeim, sem enn eru notaðir. Það
voru þessir glöðu íþróttamenn
leita að hentugum skóla handa
henni- Kvöld eitt fóru mæðgurn
ar í leikhús til þess að sjá
Ingrid Bergman í Ieikritinu
Captain Brassbounds Conversi-
on. Að sýningunni lokinni hittu
mæðgurnar stjörnuna Ingrid
Bergman að tjaldabaki, og hér
eru Grace og Ingrid að bera
saman bækur sínar um vini og
kunningja frá Hollywood-tím-
um þeirra beggja.
— ★ — ★ —
sjálfir, sem gáfu borðtennis
nafnið Ping-Pong, eins og það
' er viðast kallað. Málfræðingar
eru ekki í vandræðum með að
sjá að nafn þetta er hreinn
hljóðgervingur, eða hljóðið,
sem heyrist, þegar boltinn er
sleginn með spaðanum og hljóð-
ið þégar hann skellur á borðinu.
— ★ - ★ -
Framleitt hefur verið tæki,
sem kalla mætti „grát-kannara“.
Tækið segir til um, hvað er að
smábarni, eftir því, hvernig það
grætur. Tækið var íramleitt af
sænskum og finnskum vísinda-
mönnum, og er sagt bylting á
því sviði, að skcra úr um sjúk-
dóma, sér í lagi alvarlega sjúk-
dóma í taugakerfi barna á fyrstu
tveimur vikunum eftir fæðing-
una. Tækið greinir grátinn í
þrennt. — Eðlilegan grát —- of-
urlítið óeðlilegan — og mikið
óeðlilegan, en þá mun vera mik-
il hætta á ferðum. Sagt er, að
tækið, sem nú er í notkun á
Karolinska sjúkrahúsinu í Stokk
hólmi, sé mjög dýrt, en komi
innan tíðar á markaðinn.
— ★ - ★ -
Fjölskylduvandamálin eru far
in að verða Sophiu Loren þung
í skauti. Mesta vandamálið er
nú móðir hennar, Romilda Vill-
ani, scm er 61 árs og hefur tek-
ið upp á því, að fara að lifa og
lcika sér, eins og hana langar
til, á næturklúbbi í Róm. Það
fellur Sophiu Loren síður en
svo vel í geð, og finnst ekki við
hæfi móður sinnar. En það er
ekki bara hið villta líf mó'ður-
innar, sem varpar skugga á líf
Sophiu sjálfrar. Yngri systir
hennar, Anna Maria, sem hún
hefur alltaf hafí mikið- dálæti á,
hefur fengið skilnað frá manni
sínum, Romano Mussolini (syni
einræðisherrans). Sophia hafði
í lengstu lög vonað, að ekki
kæmi til skilnaðar systur henn-
ar og Mussolinis.
— ★ - ★ —
Þótt svo eigi að heita, að kom-
ið sé sumar hér hjá okkur,
fannst okkur allt í lagi, að birta
þessa mynd, aí þeim Margréti
Danaprinsessu og Henry prins í
skiðafötunum. Þau brugðu sér
á skiði í fjalllendinu suður i
Frakklandi seinni partinn i vet-
ur, og nutu útivistarinnar vel.
Prinsessan mun ekki vera neinn
viðvaningur á skíðum, þótt hún
sé upprunnin í Danmörku, þar
sem ekki er mikið um skíða- J
brekkur, og ekki mikið tæki- *
færi fyrir fólk að æfa sig í J
öðru en skíðagöngu.