Tíminn - 20.05.1971, Blaðsíða 1
ALLT FYRIR
BOLTAÍÞRÖTTIR
Sportvöruverzlun
INGÓLFS ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 44 - Sími H78S.
vmm.
— Fimmtudagur 20. maí 1971 —
55.3&rg.
Mt. L'rtlafell siglir inn til Keflavik-
ur í gærkvöldi, fánum prýtt
Stafna á miti. (Tímamynd Gunnar)
Litlafell komið
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
f kvöld kom til landsins nýj
asta skipið í flota samvinnu-
manna — nýtt Litlafell, og
lagðist það fyrst að bryggju í
Keflavík, en heimahöfn skips-
ins er ísafjörður.
Gamla Litlafell var selt fyrir
skömmu, og fengust fyrir það
7 millj. kr., og í stað þess var
keypt tankskip, byggt 1964 ,og
afkastar það um 30% meira
en gamla Litlafellið gerir. —
Bæði er nýja skipið hraðskreið-
ara, og svo er það líka stærra.
Litlafell kom til Keflavíkur
beint frá Rotterdam í Hollandi,
og að því er skipsfcjórinn, As-
mundur Guðmundss., sagði Tím-
anum, þá voru þeir fjóra og
hálfan sólarhring á leiðinni,
og ganghraðinn komst upp í
tólf mílur. Hingað kom skipið
með eitt þúsund tonn af bíla-
benzíni fyrir Keflavíkurflug-
völl.
Eigendur þessa nýja skips
eru Sambandið og Ölíufélagið
hf. Sagði Hjörtur Hjartar, fram-
kvæmdastjóri Skipadeildar SÍS,
við Tímann, að afkastageta
þessa skips væri nokkru meiri
en olíuflutningaþörf Olíufélags-
ins, og mætti segja að 100 dag-
ar væru lausir á ári. Hjörtur
sagði, að engum erfiðleikum
væri bundið að finna verkefni
fyrir skipið, því bæði væri það
hentugt fyrir flutninga á hvers
konar lýsi frá landinu, auðvelt
væri að fá verkefni fyrir skip
sem þetta erlendis, og flytja
mætti laust korn til landsins í
því. Kostnaðarverð skipsins
sagði Hjörtur vera um 34 miRj-
ónir króna og hefði fengizt sér-
stök fyrirgreiðsla hjá Lands-
bankanum til kaupanna. Skipið
er keypt frá Þýzkalandi og er á-
höfnin 15 manns, en stærð skips-
ins er 1230 tonn.
Mun það fyrst og fremst sinna
olíuflutningum á ströndina, en
auk þess er það hentugt til
margra annarra verkefna, eins
og áður segir.
VANDRÆÐAÁSTAND
RÍKIR A AKUREYRI
Vöruflutningar liggja að miklu leyti niðri á
leiðinni Akureyri—Reykjavík.
ET—Reykjavík, miðvikudag.
Vandræðaástand ríkir nú í vöru
flutningum innanlands vegna ó-
færðar á þjóðvegum, sérstaklcga
er ástandið bagalegt á Akureyri,
þar eð þungaflutningar á leiðinni
Akureyri—Ueykjavík hafa legið
niðri um hálfs mánaðar skeið.
Litlar liorfur eru á, að úr þessu
ástandi rætist í bráð, því mikil
aurbleyta er nú á vegum í Vest-
ur-Húnavatnssýslu og verður að
takmarka umferðina við bifreið
ir með 5 tonna öxulþunga næstu
daga.
Tíminn hafði í dag samband
við Vegagerð ríkisins og fékk
þær upplýsingar, að færð væri
yfirleitt góð um allt land miðað
við árstíma. Á Suður- og Vestur
landi er færðin yfirleitt góð og
flestir vegir á Vestfjörðum eru
jeppafærir, að undanskilinni
Dynjandisheiði. Sama er að segja
um vegi á Austfjörðum, þeir eru
flestir jeppafærir. Holtavörðu-
heiði og aðrir fjallvegir á Norður
landi eru allir greiðfærir, m. a.
er nú fært til Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar frá Akureyri. Það,
sem hindrar greiða færð á leið
inni Akureyri—Reykjavík er, eins
og áður sagði, mikil aurbleyta á
vegum í Vestur-IIúnavatnssýslu
og hefur ástand veganna sízt
batnað eftir stórrigningu s. 1.
nótt. Vegna þcssarar bleytu á
vegunum liefur orðið að takmarka
öxulþungann við 5 tonn, en hvort
það mark verður hækkað, fer
allt eftir tíðarfarinu næstu daga.
Þá hafði blaðið samband við
tvo aðila á Akureyri, er annast
vöruflutninga með stórum bifreið
um milli Akureyrar og Reykjavík
ur. Hjá Pétri og Valdimar liggur
nú öll starfsemi niðri, því það
fyrirtæki annast eingöngu flutn
inga milli Rvíkur og Akureyrar.
Starfsemin hefur legið niðri í
hálfan mánuð og ríkir nú vand
ræðaástand í vöruflutningunum
fyrir norðan. Iðnfyrirtæki hafa
Framhald á bls. 22.
Botnmál Mývatns tekið fyrin
Allir dómarar
beðair að víkja
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
Hið svonefnda botnmál Mývatns
var tekið fyrir í þinghúsi Skútu-
staðahrepps í Skjólbrekku við Mý-
vatn. Allir lögmenn málsaðila
lögðu fram skriflega kröfu um,
að allir dómendumir þrír vikju
sæti í málinu, en þeir eru Jóhann
Skaftason, sýslumaður, Friðrik A.
Magnússon, hrl. á Akureyri, og
Björn Friðfinnsson, bæjarstjóri á
Húsavík. Réttarhöldunum lauk
með því, að dómurinn tók sér
frest til að kveða upp úrskurð
um, hvort ástæða sé til að dóm-
ararnir víki úr sæti.
Mál þetta er höfðað af eig-
endum og ábúendum allra 36 lög
býla við Mývatn til viðurkenning-
ar á því að strandeigendur við
Mývatn eigi einir svonefndan „al-
menning“ vatnsins, þ.e. vatnið og
botn þess, utan netlaga, 115 m.
frá landi.
Tilefni málsins var það, að er
Kísilgúrverksmiðjan h.f. var stofn
uð, skuldbatt íslenzka ríkið sig til
þess að láta Kísilgúrverksmiðj-
unni -h.f. í té endurgjaldslausan
rétt til töku kísilgúrs úr botni
Mývatns.
f því sambandi var lagt fram
álit próf. Ólafs Jóhannessonar
þess efnis, að ríkið væri eigandi
allra vatna á íslandi að botni
meðtöldum, þegar komið væri
115 m. frá landi.
Nú hefur málið tekið þeim breyt
ingum, að tveir aðilar hafa haslað
sér völl sem sækjendur, við hlið
strandeigenda.
í fyrsta lagi krefjast nokkrir eig
endur jarða í grennd við Mývatn
þess, svo sem Arnarvatns, Græna-
vatns o.fl., að réttur þeirra til
vatnsbotnsins sé einnig viður-
kenndur og einnig krefst hrepps-
nefnd Skútustaðahrepps þess, fyr-
ir hönd hreppsins, að viðurkennd
sé eignaraðild hreppsins að botni
Mývatns.
Jóhann Skaftason sýslumaður
Þingeyinga fór að sjálfsögðu með
málið við þingfestingu þess og
tilnefndi sem meðdómendur þá
Friðrik A. Magnússon, hrl., Akur-
eyri, og Björn Friðfinnssón, bæjar
stjóra, Húsavík.
í þinghaldinu þriðjudaginn 18.
maí Iögðu lögmenn málsaðila
fram ný skjöl hver um sig.
Lögmaður Mývatnsbænda (aðal
stefnenda) er Páll S. Pálsson hrl.
en að hálfu ríkissjóðs (aðal-
stefnds), Sigurður Ólason, hrl.
Lögmaður utanvatnsbæjarbænda
er Ragnar Steinbergsson, hrl., en
lögmaður Skútustaðahrepps er
Guðmundur Skaftason, hrl.
Dómsmál þetta þykir að þvl
leyti til einstakt, að þó það sé
höfðað af jarðeigendum og ábú-
endum jarða við Mývatn, þá er
það í raun og veru prófmál um
eignarrétt jarðeigenda eða ríkis
að miðhluta ailra vatna í byggð
á íslandi ef þau eru breiðari en
100 m.
Það gerðist tíl tíðinda, í fyrr-
greindu réttarhaldi, að allir 4
lögmenn málsaðila, lögðu fram
dómskjal no. 117, sem var skrif-
leg krafa um það, að allir dóm-
endumir 3 vikju sæti í málinu.
Það var einarðlega tekið fram
í kröfulýsingu þessari, að lögmenn
irnir og umbjóðendUr þeirra teldu
dómarana mjög vel hæfa sem
slíka, en ef málið færi til æðri
Framhald á bls. 10.
Játuðu yfír
20 innbrot
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Sex strákar á aldrinum 12
til 14 ára játuðu á sig rúmlega
20 innbrot, er þeir voru yfir-
heyrðir hjá rannsóknarlögregl
unni nýlega. Flest innbrotanna
frömdu þeir í aprílmánuði s.l.
Ekki hafa strákarnir haft
mikið upp úr þessum innbrot-
um, en á tveim stöðum náðu
þeir að stela milli átta og níu
þúsund kr. Einhverjum smá-
varningi stálu þeir á sumum
þeim stöðum, sem þeir brutust
inn í. Á einum staðnum stálu
þeir segulbandstæki. Vísuðu
piltarnir á tækið og var það
geymt £ dúfnakofa. Flest inn
brotin voru í verzlanir og fyrir
tæki og mörg í mjólkurbúðir.
Tilraunirnar til að bjarga Cesari:
Kostaaður orðiaa 5,2 milljóair
OO—Reykjavík, miðvikudag.
Tryggingarfélag brezka togar-
ans sem strandaður er fyrir vest
an, hefur þegar greitt 25 þúsund
sterlingspund í kostnað við björg
unina, e'ða rúmar 5,2 millj. ís-
lenzkra króna. Mánuður er nú lið
inn síðan togarinn strandaði og
eins og kunnugt er eru björgunar
menn engu nær með að ná skip
inu út en þegar hann strandaði.
Það var ranghermt í Tímanum
í gær að kostnaðurinn við norsku
björgunarskipin, sem eru við
strandstaðinn, sé 200 sterlings-
pund á dag. Hið réttara er að
tryggingarfélagið grciðir 1100
pund á sólarhring fyrir skipin og
þann útbúnað, sem þau hafa með
ferðis. Hér í blaðinu hefur verið
sagt að ekki hafi verið leitað til
íslenzkra aðila til að ná togar
anum á ílot, en brezkir segjast
hafa leitaö til Landhelgisgæzlunn
ar skömmu eftir strandið og beð
ið um aðstoð, en fengið það svar
að Landhelgisgæzlan hefði hvorki
tíma né tæki til björgunarstarfs
ins. En nokkru eftir strandið var
varðskipið Óðinn við strandstað
inn og eftir að norsku björgunar
skipin komu á vettvang togaði
varðskipið í togarann, sem sat
jafnfastur á sínum
sem áður.
kletti eftir
Norsku skipin eru enn fyrir
vestan og ráðgert er að halda
björgunartilraunum áfram með
stækkandi straumi, svo að sjálf
sagt á kostnaður tryggingarfélags
ins enn eftir að aulcast vegna
þessa skipsstrands.