Tíminn - 20.05.1971, Page 11
ttMMTCDAGUR 20. maí 1971
TIMINN
11
STANGAVEIDIFÉLAG REYKJAVÍKUR EIGN-
AST GLÆSiLEGT FÉLAGSHEIMILI
EB—Reykjavík, þriðjudag.
ic Stangaveiðifélag Reykjavík-
nr hefur opnað félagsheimili
að Háaleitishraut 68, og þar verður
framvegis miðstöð starfsemi félags-
4ns, sem hefur aukizt mjög á und-
anförnum árum, en félagið er nú
Lþað stærsta sinnar tegundar hér á
'landi.
■jc Nýja húsnæðið er um 160
fermetrar, sem skiptast í
, skrifstofu, fundarherbergi og fund-
arsal. Á vegum félagsins starfa
margar nefndir, og munu þær fram-
vegis hafa þar aðstöðu til hvers
konar funda og kynningarstarfsemi.
Húsgagnavinnustofa Þórs og Ei-
riks hefur séð um innréttingar fé-
lagsheimilisins. — Hönnuður var
Helgi Hallgrímsson, en rafvirkja-
meistari Guðni Helgason.
I fréttatilkynningu, er Stanga-
veiðifélagið sendi blaðinu, í tilefni
hins nýja húsnæðis, segir m. a.:
„Félagar í SVFR eru nú á tólfta
hundrað talsins, og hefur þeim far-
ið ört fjölg. að undanförnu, enda
færist stangaveiði nú ört í vöxt og
haldast þar í hendur síaukinn áhugi
almennings og vaxandi ræktunar-
starfsemi í ám og vötnum.
r Stangaveiðifélagið var stofnað
1939 af fámennum hópi manna, sem
stundaði veiðar í Elliðaánum, en
á undanfömum þremur áratugum,
og þá fyrst og fremst nú síðari árin,
hefur starfsemin aukizt, og er
heildarvelta félagsins nú um tólf
milljónir króna árlega, og veiði-
vðtn þau, sem félagið hefur til um-
ráða, eru nú að heita má í öllum
landshlutum.
Þótt aðalstarfstími SVFR sé á
sjálfum veiðitímanum, að sumar-
lagi, hefur þörfin fyrir hvers kon-
ar fræðslu- og kennslustarfsemi
aukizt svo, að ljóst varð, að henni
varð ekki svarað, nema félagið
AXEL ASPELUND
form. Stangaveiðlfélags Reykjavíkur,
flytur ræðu 1 tilefni opnunar félags-
heimilisins.
kæmi sér upp föstum samastað, þar
sem fjalla mætti reglulega um þau
viðfangsefni, sem fyrir liggja og
sinna verður nú allt árið um kring.
Innan félagsins starfa nú um 10
nefndir ,sem sinna málefnum hverr-
ar ár fyrir sig, annast viðhald veiði
húsa, úthlutun veiðileyfa og önnur
skipulagsstörf. Er hér um að ræða
áhugamannahópa innan félagsins,
sem hafa það að meginmarkmiði,
að kynna stangaveiði og veiðisvæði,
svo og kennslu í köstum.
Ræktunarstarfsemi hefur verið sí
vaxandi þáttur í félagsstarfseminni,
en félagið tók fyrir nokkrum ár-
um við rekstri klak- og eldistöðvar-
innar við Elliðaár, og er nú klakið
út þar og við Stokkalæk nokkuð á
aðra milljón seiða, árlega. Er meiri
hluti þeirra tekinn til eldis, en síð-
an dreift í þau veiðivötn, sem fé-
lagið hefur á leigu.
Skrifstofuhald SVFR hefur verið
endurskipulagt á síðustu tveimur
árum, og fært í IBM kerfi, og mun
félagið vera hið fyrsta sinnar teg-
undar, sem tckið hefur það upp
hérlendis.
StangavQÍðifélagið er opið félag,
en félagar njóta sérstakra réttinda
við úthlutun veiðileyfa í þeim
veiðivötnum, sem það hefur til
umráða, en að öðru leyti cru stund-
uð viðskipti við aðra veiðimenn
og samstarf haft við ýmsa aðila
um sölu, meðal annars innlendar
ferðaskrifstofur.
Það er von forráðamanna SVFR,
að tilkoma félagsheimilisins nýja
megi verða til þess að efla stanga-
veiðiíþróttina almennt og efla sam
stöðu stangaveiðimanna um skipu-
lega starfsemi, og þá ekki sfzt rækt
un nýrra veiðisvæða, sem reynslan
hefur sýnt, að er í senn aðkallandi
og verðugt verkefni.“
Fyrsti formaður SVFR var Gunn-
ar E. Benediktsson, lögfræðingur,
en núverandi stjórn skipa Axel
Aspelund, formaður, Ásgeir lngólfs
son, varaformaður, Björn Þórhalfs-
son, gjaldkeri, Magnús Ólafsson,
ritari og Barði Friðriksson, með-
stjórnandi.
Framkvæmdastjóri SVFR er Koi
beinn Ingólfsson.
HIN VIÐURKENNDU
FYRIRLIGGJANDI í ALLA BÍLA.
AthugiS hið hagskvæma verð á AC-RAFKERTUM.
ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38900
}
I
)
)
\
)
)
}
>
)
\
)
f
>
>
>
)
\
)
)
)
)
)
FRAMLEIÐANDI
SELFOSSI
KLÆÐASKÁPAR
FJÓRAR MISJVIUNANDI
GÉRÐIR TIL NOTKUNAR
í SVEFNHERBERGI OG
FORSTOFUR.
VIÐ NÓATÚN.
SÖLUSKRIFSTOFA
KÁ f REYKJAVÍK
SÍMI 2 18 30.
Hentai’ við alla| aðstæður og
hægt er að véljj* um allar
helztu viðarteguiidir. Verðið
er fast og miðað við afgreiðslu
heim að húsi.
SAUÐ Í*IÐ
SKÁPANA
í hinu nýja happdrættis-
húsi DAS? l*eir voru frá
K.Á.
Fyrsta flokks vinna.
Rennihurðir, fatahengi,
hillur og útdregnir bakkar.
Komið og sjáið úrvalið.
BIFREIDASTJORAR
Við kaupum slitna sólningarhæfa NYLONHJÓLBARÐA,
á verði, sem hér segir:
BARÐINN H.F.
Ármúla 7, Reykjavík, síi
Fólksbíiadekk:
flestar stærðir kr. 200,00
Jeppadekk:
600—650 — 250,00
700—750 — 300,00
Vörubíladekk:
825X20 — 800,00
900X20 — 1000,00
1000X20 — 1200,00
1100X20 1400,00
30501
GARDÍNUBRAUTIR OG STANGIR
Fjölskrúðugt úrval gardínubrauta og gluggatjalda-
stanga. Vestur-þýzk úrvalsvara. ,
Komið. — Skoðið eða hringið.
í
GARDINUBRAUTIR H.F.
Brautarholti 18. Sími 20745.