Tíminn - 03.06.1971, Qupperneq 1

Tíminn - 03.06.1971, Qupperneq 1
1EHA Ivöcíll- skápar \ XiSvcUbícíf*a*£MmJt* hJt ALLT FYRIR BOLTAÍÞRÓTTIR Sportvöroverzlun INGÓLFS ÖSKARSSONAR Idapparstíg 44 ■ Sími 11783. 721- fbl. — Fimmtudagur 3. júní 1971 — i—J. 55. árg. Frá framboðsfundum EFN AH AGSMÁLIN: Hvað átti Olafur Björnsson við er hann talaði um hrollvekjuna? Hvaða ráðstafanir eiga að koma til sögunnar eftir 1. sept.? Það hefur reynzt réttur spádómur hjá Ölafi Björnssyni, að ýmsir frambjóðendur myndu taka upp léttara hjal, þegar rætt yrði um efríahagsmálin fyrir kosningar. Fram- bjóðendur stjórnarflokkanna hafa reynt að gera sem minnst úr vandanum, sem glíma þurfi við, er verðstöðvuninni lýkur 7. september. Þó gengur þeim alltaf heldur illa að glíma við þau ummæli Ólafs Björnssonar, að þá taki við hrein hrollvekja, því að vitað er, að stjórnarflokkarnir hafa ekki annan færari hagfræðing en Ólaf innan vébanda sinna. Fresturiim. Yfhieitt hefur það verið tónn- inn í frambjóðendum stjómar- flokkanna, að allt sé nú í bezta lagi. Atvinna sé nóg og kaupmátt ur launa meiri en undanfarin ár. Enginn vandi muni reynast að halda þessu áfram eftir að verð stöðvuninni lýkur 1. september. Frambjóðendur stjórnarandstæð inga hafa m. a. svarað þessn með því, að annað hljóð hafi verið í foringjum Sjálfstæðisflokksins á síðastliðnu hausti, þegar þeir töldu nauðsynlegt að efna til þing kosninga, því að efnahagsvandinn væri orðinn svo mikill, að hann yrði ekki leystur á síðasta þingi fyrir kosningar. Að ráði Alþýðu- flokksins var kosningum þó frest að og jafnframt ákveðið að fresta lausn vandans með því að efna til bráðabirgðaverðstöðvunar fram yfir kosningar. Þessi frest ur mun verða til þess, að vand iim, sem var mikill á síðastl. hausti, verður orðinn enn meiri á komandi hausti, þegar óhjá- kvæmilegt verður að reyna að leysa hann með einhverjum hætti. Hinar veiku stoðir verðstöðvunarinnar. í málflutningi stjórnarandstöð- unnar hefur verið bent á, að verð stöðvunin byggðist á mjög veik- um stoðum, sem ekki geti haldið henni upp lengur en til 1. septem ber. Þessar stoðir eru: 1. Niðurgreiðslur hafa verið auknar, sem nema mörg hundr uð milljónum króna á ári, án þess að afla tekna til þeirra leng ur en til 1. september. Þessar nið- urgreiðslur hafa verið stöðugt auknar, t. d. síðast nú um mán- aðamótin, þegar mjólkurlítrinn var lækkaður um kr. 1,70, en það var gert til að koma í veg fyrir hálfs stigs hækkun á kaupgreiðslu vísitölunni. Sú kauphækkun hefði strax komið til framkvæmda, ef mjólkurlítrinn hefði ekki verið lækkaður. Þessi eina niðurgreiðsla mun kosta ríkissjóð 75 millj. kr. á ári/ Kunnugir telja, að eigi að halda kaupgjaldi og verðlagi niðri með niðurborgunum á næsta ári, geti þurft að afla nýiæa tekna, sem nemi 2—3 milljörðum króna, eða meira. 2. Margar iðngreiðnar og þjón ustugreinar telja sig nú búa við taprekstur vegna þess, að þær hafa ekki verið búnar að fá full nægjandi hækkanir, þegar verð- stöðvunin gekk í gildi 1. nóv. síðastl. Þetta verði þær að fá leið rétt strax eftir 1. september. Árs- þing iðnrekenda í vor ályktaði mjög skelegglega um þetta, enda væri samdráttur og , stöðvun margra iðngreina yfirvofandi að öðrum kosti. í þessu sambandi má minnast þess, að verðstöðvun in 7 067 byggðist að verulegu lcyti á taprekstri ýmissa at- vinnugreina. 3. Frestað er til 1. september að greiða launþegum vísitölubæt ur, sem nema tveimur vísitölustig um. Jafnframt koma þá til sögu Framhald á bls. 10. Ungmennafélagar um aflt land: Græða upp vegkanta FB—Reykjavík, miðvikudag. Um næstu helgi munu félagar ungmennafélaganna um allt land taka að sér að sá fræi og dreifa áburði með- fram vegum landsins, sér í iagi þar sem um er að ræða jarðrask af manna völdum. Framkvæmdir þessar eru í framhaldi af viðræðum, sem áttu sér stað í vetur milli Vegagerðar ríkisins og Ungmennafélags íslands að til- hlutan Landverndar. Vegagerð ríkisins hefur ár- lega eytt um tveimur milljón- um króna í að græða upp veg ' kanta og svæði meðfram þjóð- vegum landsins. Einn fimmti hluti þessarar upphæðar hefur \ farið í vinnulaun og flutning áburðar og fræs á dreifingar- staðina. Þar er ungmennafélag amir hyggjast vinria þetta verk í sjálfboðavinnu myndi það verða til þess að hægt væri að kaupa fræ og áburð fyrir 40 þús. kr. meira en ver- ið hefur hingað til. Verkið verður unnið á hverjum stað í samvinnu við vegaverkstjóra Vegagerðarinnar. Yfirstjórrí Ungmennafélags íslands sendi út bréf til allra félaga á landinu, og mælti með því, að landgræðsludagur þessi yrði næsti sunnudagur, 6. júní. Árið 1974 halda íslendingar hátíðlega 1100 ára afmæli ís- landsbyggðar, eins og kunnugt er, og mun það vera von þeirra, sem að þessari land- græ lsu standa, að þangað til megi ungmennafélögunum um allt land takast að varða veg- inn með stórfelldum ræktunar störfum, vekja áhuga alþjóðar fyrir nauðsyn þessa starfs og færa landinu slíka afmælis- gjöf að fjórum árum liðnum. . . • og i Mogga íhaldið í réttu Ijósi á Ólafsfirði Kosningasíminn er á bæjar- skrifstofunum KJ—Reykjavík, miðvikudag. Að undanförnu hefur mátt lesa í Morgunblaðinu lista yfir kosn- ingaskrifstofur Sjálfstæðisflokks- ins um land allt. Það, sem vekur athygli við auglýsinguna um kosn- ingaskrifstofuna á Ólafsfirði, er að þar er auglýstur sem kosninga- sími skrifstofusími bæjargjald- kerans, Ásgeirs Ásgeirssonar. Virð ist hann, cftir auglýsingunni að dæma, rcka kosningaskrifstofu fyrir Sjálfstæðisflokkinn á skrif- stofu bæjarstjórans á Ólafsfirði, og hikar ekki við að auglýsa sím- ann á bæjarskrifstofunni sem kosn ingasíma Sjálfstæðisflokksins. Þessari grófu misnotkun bæjar- gjaldkerans mun hafa verið mót- Framhaio á Dls. 10. jÓsannindi Ingólfs jhrakin með hans jeigin orðum á þingi IEJ—Reykjavík, miðvikudag. Það vakti sérstaka athygli í sjónvarpsumræðunum í gærkvöldi, hvcrsu Ingólfur Jónsson, ráðherra, fór blygðunarlaust með ósann- Iindi, er hann ræddi afstöðu Framsóknarflokksins til ýmissa mála, svo sem Búrfellsvirkjunar og álbræðslunnar í Straumsvík. Hann hélt því blákalt fram, að Framsóknarmenn hefðu verið á móti virkjun í Þjórsá, þótt sú virkjun hafi verið samþykkt samhljóða á Alþingi. flokka voru sammála um það, að virkjun í Þjórsá væri tíma bær og nauðsynleg, hvort sem samningur yrði gerður um ál- bræðslu í Straumsvík eða ekki. Þetta sýna bezt orð Ingólfs sjálfs í umræðunum um Búr- fellsvirkjun á alþingi vorið 1964. „hagkvæmasta virkjunin" f umræðunum um frumvarp- ið í neðri deild alþingis 10. maí 1964 sagði Ingólfur Jónsson m. a. eftirfarandi um þetta atriði: „Það þykir eðlilegt og sjálf- sagt að fá heimild til þess að virkja við Búrfell allt að 210 þúsund kw, þó aö það sé ekki Framhald á bls. 10. j Búrfellsvirkjun var samþykkt | á alþingi vorið 1964 með lögun > um um Landsvirkjun. Þau lög | voru samþykkt samhljóða. All- j ir flokkar voru því fylgjandi virkjun í Þjórsá. \ íhaldsmenn rökstyðja yfir- leitt þessi ósannindi sín þannig að Framsóknarmenn hafi verið ! á móti Búrfellsvirkjun með því | að þeir hafi verið á móti samn ingum um álbræðsluna í Straumsvík, sem lagður var fyr ir alþingi nokkru síðar og að álbræðslan hafi verið „alger“ forsenda þess, að hægt hefði verið að virkja á hagkvæman hátt í Þjórsá. Þessi fullyrðing er einnig '< röng, þar sem þingmenn allra '•7 -1

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.