Tíminn - 03.06.1971, Síða 9

Tíminn - 03.06.1971, Síða 9
JMMTUDAGUR 3. júní 1971. iflliI'ttJMÍ TÍMINN ÍÞRÓTTIR ÉMMltai 9 Víklngur leikur á ísafirði Um næstu helgi heimsækja J Víkingar fsafjörð og leika gegn [ heimamönnum í 2. deild. Fer \ leikurinn fram á laugardag og ’ hefst kl. 16. Verður þetta fyrsti [ 2. deildar leikurinn á ísafirði ( í ár. Erfitt er að spá um úr- [ slit leiksins. ísfirðingar virðast i sterkir um þcssar mundir, m.! a. gerðu þeir jafntefii við KR [ nýlega. j Fimmtudagsmót FÍRR í kvöld í kvöld kl. 18,30 hefst „Fimmtu dagsmót FÍRR“ á Melavellinum. Keppt verður í 100 m., hlaupi karla, kvenna, telpna, sveina og pilta. 400 m. hláupi karla, 1500 m. hlaupi karla og 3000 m., hlaupi kvenna. Þá verða á dagskrá há- stökk kvenna, langstökk karla og kringlukast karla og kvenna. Met á Selfossi Á annan í hvítasunnu fór fram frjálsíþróttamót á Selfossi. Sveit ÍR í 3x800 m boðhlaupi kvenna setti nýtt íslandsmet, hljóp á 8: 57,0 mín., bætti eigið met um tæpar 10 sekúndur. I sveitinni eru Anna Haraldsdóttir, Katrín ísleifsdóttir og Lilja Guðmunds- dóttir. í 100 m hlaupi karla sigraði Sævar Larsen, HSK, 11,3 sek., en annar varð Guðmundur Jónsson, HSK á 11,4 sek. Anna Haralds- dóttir, ÍR hljóp 1500 m. á 5=44,8 mínútum. Tjarnarboðhlaupið verður á sunnudag Tjarnarboðhlaup KR fer fram n. k. sunnudag. Hefst hlaupið við Tjamarbrúna og verður hlaupinn einn hringur í kringum Tjömina. Hefst hlaupið kl. 14,00. Þátttökutilkynningar skal senda til Dr. Ingimars Jónssonar, sími 32877 fyrir föstudagskvöld. Kastkeppni Vormót í stangaköstum tileink- að SVFR verður haldið að kvöldi 8.,9. og 10. júní. Meistaramót fslands í stanga- köstum fer fram laugardaginn 26. og sunnudaginn 27. júní. Tekið á móti innritun í bæði mótin í símum 35158 — 32175 — 34205. Ajax varð Evrópumeistari Sigraði Panathianikos í úrslitaleiknum, sem fram fór á Wembley í gærkveldi 2:0 JOHANN GRUYFF sem nefndur hefur verið George Best Holiands. Var bezti maður leiksins, og átti mestan þátit i sigri Ajax. Hollenzka liðið Ajax varð sigur- vegari í Evrópukeppni meistara- liða í gærkveldi er liðið sigraði gríska liðið Panathinaikos í úr- slitaleiknum, sem fram fór á Wembley leikvanginum í Lundún um að viðstöddum yfir 100 þúsund áhorfendum. Ajax, sem lék hér á landi fyrir nokkrum árum — en þá var liðið skipað áhugamönnum — var betra liðið í þessum leik og sigurinn var fyllilega verðskuldaður. Eftir að leikurinn hafði staðið í 5 mínútur skoraði Ajax fyrsta markið og var þar að verki Dik Van Dijk (ekki samt sjónvarps stjaman fræga) með mjög fallegu skallamarki eftir fyrirgjöf frá vinstri útherjanum Piet Keizer. Ajax hafði algjöra yfirburði í fyrri hálfleiknum og var leikur liðsins mjög léttur og hreyfanleg ur — allir sóttu sem einn maður og allir komu aftur sem einn. Þegar nokkuð var liðið á síðari hálfleikinn fóru leikmenn Panathi anikos að sækja í sig veðrið og áttu þá nokkur tækifæri á að jafna, en þegar 3 mín. voru til leiksloka skoraði Ajax aftur, og var þar með út um þann mögu leika hjá Grikkjunum. Það var hinn frábæri leikmað ur Johann Gruyff, sem var bezti maður leiksins, sem átti heiðurinn af því marki, með föstu skoti, sem markvörðurinn hálfvarði, en knötturinn fór fyrir fætur eins af sóknarmönnum Ajax, sem renndi honum i netið. Gífurlegur fögnuður varð meðal hinna hollensku áhorfenda í leiks lok og sendu þeir upp hundruð raketta, og fólkið þyrptist inn á leikvanginn til að fagna hetjun um sínum. Þetta er í annað sinn, sem lið frá Hollandi sigrar í þess ari keppni, Feyenoord, varð sigur vegari í fyrra, en þá sló liðið m. a. KR út úr keppninni f fjrrstu umferð. Ajax hefur áður komizt í úrslit í þessari keppni, það var 1969, en þá tapaði það fyrir AC Milan. Þetta er í 16 sinn, sem úi> slitaleikur fer fram í Evrópu- keppni meistaraliða, og hefur Real Madrid frá Spáni oftast orð ið sigurvegari. Þá lék með liðinu hinn frægi ungverski leikmaður Framhald á bls. 10. r I gærkveldi fóru fram tveir leikir í 2. dcildarkeppninni í knattspyrnu í Hafnarfirði léku FH og Haukar og lauk lciknum með jafntefli 0:0. Á Melavellinum léku Ármann og Þróttur og sigr- aði Ármann 2:0. Nánar á morgun. MIMIS DOMAZES fyrirliði Panatbinaikos. — NáSi því ekki að taka við Evrópubfkamum í þetta srnn. FRAM — Reykjavikurmeistari í knettspymu 1971. Aftari röð f. v.: Hiímar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar Fram, Jón Pétursson, Kristinn Jörundsson, Martehm Geirsson, Erlendur Mag.-iússon, Amar Guðiaugsson, Jóhannes Atlason, Sigurbergur Sigsteinsson, Ásgeir EK- asson, Ómar Arason, Guðmundur Jónsson, þfálfari. Fremri röð frá vinstrl: Balthjr Scheving, Ágúst Guðmundsson, Þorbergur Atlason, Hörður Ó. Helgason, Kjartan KJartansson, Guntiar Guðmundsson, Rúnar Gíslason. (Tímamynd Gunnar) mimjtl sparast, eí beitt er fullkomnustu flutningatækni nútímans. Flugfélagið býður beztu þjónustu í vöruflutningum innanlands og milli.--------- landa Flugfrakt með Flugfélaginu: \ ódýr, fljót og fyrirhafnarlaus. FLUGFELAC ISLAJVDS SKRIFSTOFUR FLUGFÉLAGSINS OG UMBOÐSMENN UM LAND ALLT VEITA NÁNARI UPPLÝS|NGAR OG FYRIRGREIÐSLU

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.