Tíminn - 08.06.1971, Page 2
Ba.na.stys - maður varð
undir skurðgröfu
Maður á reiðhjóli varð undir
skurðgröfu á Vesturlandsvegi s.l.
laugardag og beið þegar bana. Var
skurðgrafan aftan í vörubíl. Mað-
urinn hét Albert Sigurgeirsson 40
ára að aldri til heimilis að Vorsa-
bæ 18 í Reykjavík. Lætur hann
eftir sig konu og fjögur börn.
Slysið var rétt fyrir kl. 5 á
laugardag, skammt frá afleggjar-
anum að Engi. Albert var á leið
upp í Mosfellssveit. Kom bíllinn
sem dró skurðgröfuna á eftir hon-
um og fór framúr. Bílstjórinn sá
hjólreiðarmanninn á vegarkantin-
um. Hjólaði hann eins utarlega og
unnt var á kantinum. Bílstjórinn
telur sig hafa ekið nægilega langt
frá honum og sá hann er hjólreið-
armaðurinn fór aftur með bílnum
AlþýSubandalagið
gengur i skóla.
Eins og kunnugt er, þá hefur vcr-
ið ritað mikið um þörf á aukinni fé-
lagsræktun í landbúnaði á undarn-
förnum árum. Hafa verið færð rök
að því, bæði í Tímanum, í Samvinn-
unni og í ræðum þingmanna Fram-
sóknarflokksins á þingi, þegar land-
búnaðarmál hafa verið til umræðu,
að það sem gæti orðið landbúnaðin-
um til einna mestra hagsbóta væri
meiri nýting láglendisins. Hvað eftir
annað hefur verið bent á þá stað-
reynd, að víða hagar svo til enn í
dsg, að bæirnir eru staðsettir þar,
sem áður horfði vel við beit. Bygg-
ist þetta eðlilega á því, að býlunum
var valinn staður víöast hvar áður
en treysta þurfti svo mjög á ræktað
land, og áður en vélakostur var fyr-
ir hendi, sem gerði slórvinnslu í
jarðrækt mögulega. Takmarkað land-
rými til ræktunar á gomlum og
grónum jörðum, þar sem dýrum fast-
eignum hefur verið komið upp, þreng
ir eðlilega að, og ekki gott um vik
að leysa úr þeim vanda nema finna
ræktarland annars staðar. Liggur í
augum uppi að með sameiginlegu
átaki heilla byggða í félagsræktun,
geta þeir sem við þrönga landkosti
búa, aukið heyöflunin, án þess að
önnur óþægindi fylgi en flutningur
á heyinu verkuðu heim til bæjar.
Víða er nú að rísa visir að félags-
ræktun. þar sem henni verður við-
komið, og bændur hafa eðlilega sýnt
þessu máli mikinn áhuga. Fyrr-
greinda stefnu hafa Framsóknar-
menn bent á, hvað eftir annað og
stutt, nú siðast í stjórnmálayfirlýs-
ingu flokksþingsins um landbúnaðar-
mál.
án þess að neitt skeði, en Albert
mun ekki hafa varazt að bíllinn
dró skurðgröfuna og hefur senni-
lega beygt inn á veginn of snemma
þegar bíllinn var kominn fram úr
honum. Grafan var dregin þannig
að framhjól hennar voru laus við
veginn en þunginn hvíldi á aftur-
hjólunum. Rakst maðurinn á ytra
byrði hægra framhjólsgröfunnar
og missti jafnvægið. Datt hann
undir hægra afturhjólið.
Skömmu áður en slysið varð,
var Albert að tala við mann á hesti
á veginum. Höfðu þeir lokið sam-
tali sínu og reiðmaðurinn var far-
inn burtu. Rannsóknarlögreglan í
Reykjavík biður þennan mann að
gefa sig fram, og eins önnur vitni
scm vera kunna að atburðinum.
í niðurstöðum ráðstefnu Alþýðu-
bandalagsins í landbúnaðarmálum,
sem birtar eru í Þjóðviiijanum á
sunnudaginn, sést að þeir Alþýðu-
bandalagsmenn hafa lesið sér vel til
í skrifum Framsóiknarmanna um fé-
laigsræktunina. Þeir taika næstum
orðrótt upp úr skrifum Framsóknar-
manna eftirfarandi kafla:
„Grundvöllur landbúnaðar hér á
landi er gras og fóðuröflun í formi
heys. Er þvl ljóst að mikill hluti fóð-
ursins mun koma af varanlegu túni.
Alþýðuibandalagtð telur eðlflegast,
að sem mestur hluti vetrarfóðursins
sé fenginn á félagslegum grunni, þ.e.
fólagsræktun bænda í stórum stil,
þar sem samtök bænda eigi ræktun-
ina og reki, með þessu móti fengist
betri nýting véla og manna.
Ein'kum væri slíkt fyrirkomulag
heppilegt þar sem land9lag og land-
leysi valda því að erfitt er um rækt-
un heima á býlunum sjálfum.”
A þessum niðurstöðum ráðstefnu
Alþýðubandalagsins verður séð, að
þeim hefur orðið gott af námsdvöl-
inni hjá Framsóknarmönnum. Þeir
hafa vitkazt nokkuð. Hitt er svo
eftir að vita hvað lærdómurinn tollir
lengi í þeim. Hingað til hafa þeir
ekki tekið undir við Framsóknar-
menn, þegar þeir hafa verið að boða
félagsræktunina. Páli Þorsteinsson,
alþingismaður, hefur flutt frumvarp
um samvinnuræktun á mörgum þing-
um. en án árangurs. Og þegar frum-
varp hans hefur verið tekið til með-
ferðar hefur enginn orðið þess var,
að það nyti stuðnings Alþýöubanda-
iagsins.
Kosningaskrifstofur B-listans
í Reykjavík, Skólatúni 6
© Allar aimennar upplýsingar svo og upplýsingar um kjör-
skrár eru veittar i síma 25074
© Upplýsingar um þá, sem dvelja erlendis eru í sima 25011.
• Kosningastjóri er í sima 25010.
© Stuðningsfólk B-listans cr beðið að veita sem fyrst allar
upplýsingar. sem að gagni mættu koma, varðandi fólk, sem
dveiur utanbæjar, og láta skrifstofuna sömuleiðis vita um
þá, sem fara úr borginni fyrir kjördag.
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 8. júni 1971
: ;
|||i
Seint í gær dag var verið
að færa styttuna af Kristjáni
kóngi, sem staðið hefur fyrir
framan stjórnarráðið við Lækj-
argötu. Tók Gunnar ljósmynd-
ari Tímans þessa mynd, er
kóngurinn var heldur farinn að
hallast aftur á bak, en sem
betur fer var hann tryggilega
bundinn, svo ekki var hætta á
að hann hallaðist of langt.
BVIálverkasýn-
ing framlengd
Vegna góðrar aðsóknar hefur
verið ákveðið að framlengja sýn-
ingn Gylfa Gíslasonar í SÚS-saln-
um við Vatnsstíg.
Gylfi sýnir þarna aðalíega póli-
tískar teikningar og verður opið
fram á kjördag 13. júní.
LEIDRETTING
Sú smávægilega ónákvæmni varð
í prófarkalestri mínum af grein-
inni um Skjónu og málaferlin,
miðdálki á síðari bls., að upphafs-
stafur var þar í stað úrfellingar-
merkja; átti að vera þannig:
.....vafi lék á marki“. Efnislega
breytir þetta engu, (nfl. að eyrun
hafi verið klippt og rökuð, þar sem
„vafi lék á marki“). Þá hefir og
misritast „drufsar“ í stað „druss-
ar“, í 2 dálki fyrri bls. S.ÓL
Magnús sálarháski
Ég treysti manndómi Magnúsar
og manninn lofaði allstaðar. .
Ég kaus hann líka við kosningar,
því tungan snjalla og loforð löng
það líktist himneskum englasöng.
En tímar breytast og mótast menn —
þó Magnús heitirðu að vísu enn.
Hvort sami maður ?— Nei, sízt er það
þitt sálarlíf virðist umpólað.
Þú svikur landið og fólkið flest
og fáir trúa þér lengur bezt.
Þín loforð öll virðast orðin tóm —
þitt eðli saurgar hvern helgidóm.
Hð| ÉBfjjjMjlllfifrp
Nú bölvun fylgi hvert fótmál þér,
í faðminn taki þig Lúsífer.
Hvert mál þér verði til minnkunar
og menn þig forsmái allstaðar.
— Það koma bráðlega kosningar — •
SJÁLFBOÐALIÐAR
Á KJÖRDAG
Nú styttist óðum þar til kjördagurinn 13. júní rcnnur upp.
Þeir, sem vilja vinna fyrir B-listann á kosningadaginn, eru beðn-
ir að hringja til viðkomandi kjöésvæðaskrifstofu og láta skrá sig
til starfa. Símanúmer á kjörsvæðaskrifstofunum eru auglýst á
þessari sömu síðu í blaðinu.
63 LAXAR KOMNIR ÚR
NORÐURÁ f GÆR
Enn r;um við með nýjar fréttir
frá Norðurá í Borgarfirði. Á há-
degi í gær höfðu veiðzt þar 63
laxar. Annar veiðihópurinn við
ána, er lauk þar veiðinni á há-
degi á laugardag, fékk 21 lax. Hóp
urinn sem þá kom, var búinn að
fá 4 laxa á hádegi 1 gær, 1 þeirra
veiddist á sunnudag og 3 í morg-
un.
DAVÍÐ SIGURDSSON VAR
AFLAKÓNGUR í ÞETTA SINN
Davíð Sigurðsson í Fiat, var sá
í veiðihóp nr. 2, er mest veiddi.
Hann fékk 6 laxn. Stærsta laxinn
fékk Július Bjnrn tson, sá var 15
pund, veiddur á maðk á Stokks-
hylsbrotinu. Veiðimenn við Norð
urá fiska enn mest á maðk og
flestir laxarnir, er hópurinn
veiddi, fengust við Laxfoss.
Sama veðurbliðan er í Borgar-
firði og fer vatnsmagn Norðurár
nú óðum minnkandi.
LAXÁ f KJÓS AÐ FYLLAST —
VÆNN LAX f ELLIÐAÁNF I
Um daginn skýrðum við frá því
að Björn Þórhallsson hefði fyrstur
stangaveiðimanna, veitt lax þetta
veiðitímabil. Hins vogar vitum
vi* f'kkl b n- t'i- -*'ir S''e-
urðsson á Núpum nyrðra, sé
fyrsti v'’iðim''ðurinn er fær lax
á stöng þetta árið. 26. maí s.l. cr
S'guiTi ■ var á íiungsv iðum í
Laxá í Aðaldal, skammt neðan við
Núpabreiðu, fékk hann 12 punda
hrygnu á stöngina. Laxinn er sem
sé farinn að ganga af fullum
krafti í ána, og sama er að segja
um aðrar laxveiðiár.
í stuttu viðtali í kvöld við Jakob
Hafstein framkvæmdastjóra, kom
fram að Laxá í Kjós er að fyllast
af laxi, og 4 laxar hafa komið
í kisturnar í 'liðaánum. Sagði
Jakob að laxinn í Elliðaánum
virtist vænn.
Það er óvenjulegt, að lax gangi
svo snemma í árnar. Jakob sagði
að þetta benti til þess, að það
hefði vorað óvenjuvel á hafinu.
laxinn skilaði sér því snemma.
— EB
Svarthöfði.