Tíminn - 08.06.1971, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 8. júní 1971
TIMINN | 1 ÍÞRÓTTIR
9
A„l
í Reykjavík tóku Kópa
vogsmenn fyrstu stigin
HeimavöJlur hefur hingað til
verið taliS sterkt vopn í 1. deild-
arkeppninni í knattspyrnu, þó að
stundum hafi líti'ð farið fyrir því
vopni hjá Reykjavíkurliðunum,
sem öll hafa sama heimavöll. Sá
völlur er Laugardalsvöllurinn, sem
hingað til hefur verið lokaður
vegna viðgerða, en þess í stað
hefur Melavöllurinn haft þann
heiður. Með Reykjavíkurfélögun-
um deilir Breiðablik úr Kópavogi
Melavellinum sem heimavelli, og
það lék sinn fyrsta „heimaleik“ í 1.
deild þar á sunnudagskvöldið. Mót
herjinn var lieimavant lið, Valur,
en þrétt fyrir það varð Breiðablik
sigurvegari, og hlaut þar með sín
fyrstu stig í 1. deiíd.
Valmenn tóku það ráð að setja
Hermann Gunnarsson út úr lið-
inu og láta hann þess í stað
verma varamannabekkinn í fyrri
hálfleik. Finnst þeim hann hafa
verið full áhugalítill að undan-
förnu, og ekki gert þá stóru hluti,
sem hann hefur gert undanfarin
ár.
Valsmenn hófu þegar að gera
harða hríð að marki Breiðabliks,
en þeir komu að þéttriðnu neti
af varnarmönnum, sem gáfu þeim
engan frið. Varð úr þessu nokk-
urt leiðinda þóf, en á miili mátti
þó sjá laglega hluti gerða. Vals-
menn áttu fyrstu tækifærin í
leiknum, en þegar fór að liða á
fóru Kópavogsmenn að verða að-
gangsharðir, sérstaklega Guð-
mundur Þórðarson, sem lét varn- -
armenn Vals hafa í miklu að snú-
ast.
Þegar 25 mín voru liðnar af;
, leiknum komst hann í gégnum S
vörnina uigrlega í vítateignum en; •
var ekki buinn að skapa sér neitt
færi, þegar Siguröur Jónsson,
krækti fætinum á eftir honum
þannig að hann féll við, og dóm-
arinn dæmdi þegar vítaspymu,
sem Magnús Steinsson skoraði úr
með frekar lausu innanfótarskoti.
Staðan í hálfleik var 1:0. í síð-
ari hálfleik sendu Valsmenn Her-
mann Gunnarsson inn á og ætluðu
þeir nú sýnilega að sýna þessum
nýliðum í tvo heimana. Þeir sóttu
mikið og pressuðu á markið, en
endahnútinn vantaði á sóknina.
Hermann átti þó tvö ' gullfalleg:
skot, sem fengu áhorfendur til að
hrópa upp yfir sig af hrifningu,
sem er heldur óvenjulegt hér á
landi. En fyrir utan þessi skot og
2—3 önnur sæmileg tækifæri,
gerðist fátt við mark Breiðabliks,
þrátt fyrir að leikurinn færi þar
að mestu fram.
Brciðabliksmenn sóttu í sig
veörið þegar á leið og sendu
knöttinn fram til framlínumann-
anna þegar slíkt var mögulegt. Við
það skapaðist oft mikil hætta, sér
staklega þegar Guðmundi Þórðar-
syni tókst að snúa sig af Hall-
dóri Einarssyni, sem er enn helzt
til of þungur. I eínu slíku tilfelli
sneri Guðmundur sig af honum
með bolvindu við vítateiginn og
hafði þá frían sjó að marki, og
sendi knöttinn í netið gjörsam-
lega óverjandi fyrir Sigurð Dags-
són.
Undir lok leiksins átti Breiða-
blik möguleika á að bæta við 3.
markinu, þegar Guðmundur fékk
knöttinn fyrir markið í einu af
mörgum skyndiupphlaupunum. en
hann var skrefi of scinn að reka
fótinn í hann.
Þessi óvænti sigur Breiðabliks
var vissulcga kærkominn fyrir
Kópavogsmenn, því flestir höll-
uðust að því að liðnu tækist ekki
að sigra eitt einasta lið — nema
þá helzt KR. Sigurinn var fylli-
lega sanngjarn. Breiðablik lék
af viti og tjaldaði því sem til
var — hraða, krafti og áræði.
Það vantar að vísu örlítið meir
af þessum „fína fótbolta“ í liðið,
en það vinnur það upp með kraft
inum og áhuganum á að gcra vel.
Framhaia a Dls 10.
Valsmenn sækja aS marki BreiSabliks í fyrri háifleík
„Skiðaferðáí Haraldar
gaf fyrsfa sigurinn
ÍA sigraði ÍBA í 1. deild 1:0 — fyrsti „stórsigu rinn" síðan íslandsm.titillinn féll þeim í skaut
— Loksins — loksins, sögðu
Skagamenn á laugardaginn eftir
leik ÍA og ÍBA. Þeir gátu svo
sannarlega sagt það, því leik-
mönnum þeirra hefur vegnað mjög
illa síðan þeir hlutu íslandsmeist
NORÐUR-
LANDAMET
HJÁ ÓSKARI
klp—Reykjavík
Á innanfélagsmóti í lyfting-
um hjá Ármanni á laugardag-
inn setti Óskar Sigurpálsson
nýtt Norðurlandamet í kraft-
lyftingum — en sú tegund lyft-
inga er að ná miklum vinsæld-
um víða um heim.
Óskar lyfti samtals 707,5 kg í
þungavigt, en það er 5 kg. meira
en gamla metið sem liann átti
sjálfur, sett á meistaramótinu
í síðasta mánuði. Óskar lyfti
167,5 kg í bekkpressu, 265 kg.
í hnébeygju og 280 kg. í rétt-
stöðulyftú.
Tvö íslandsmet í kraftlyft-
ingum voru sett á þessu sama
móti. Ólafur Emilsson, Hafnar
firði í léttvigt, lyfti samtals
437.5 kg., bætti metið um 2.5
kg. Og í bekkpressu í millivigt
setti Einar Þorgrímsson nýtt
íslandsmet, lyfti 125 kg.
Öll liðin í 1. deild hafa nú
fengið stig, og má örugglega bú-
ast við miklum spenning í deild-
inni i sumar. öll liðin nema
Fram og ÍBK hafa leikið tvo
leiki — en þau mætast á Melavell
inum í kvöld.
Staðan í deildinni er nú þessi:
Fram 1 1 0 0 2:0 2
IBK 1 1 0 0 2=1 2
ÍBA 2 1 0 1 2:3 2
KR 2 1 0 1 3:3 2
Breiðablik 2 1 0 1 2=3 2
IA. 2 10 1 2:2 2
ÍBV 2 0 1 1 1:2 1
Valur 2 0 1 1 1:3 1
Markhæstu menn:
Eyjólfur Ágústsson, ÍBA 3
Jón Sigurðsson. KR 2
aratitilinn í fyrra — aðeins sigr-
að 2. deildarliðin FH og Hauka í
opinberum leikjum, þar til þeir
sigruðu ÍBA á laugardag.
Menn voru ekki á einu máli um
ástæðuna fyrir þessum sigri, en
sumir leikmcnnirnir vildu samt
halda því fram að ástæðan væri
sú, að þrír af félögum þeirra
höfðu daginn áður loks borgað
veðmál, sem þeir tóku þátt í, en
það var um hvort þeir yi-ðu ís-
gist£r£r í fyrra.
veðmáli töpuðu þeir —
en drógu að borga „veðféð“ þar
tií loks í fyrradag, því að aðrir fé
lagar þeirra sögðu að þeir gætu
ekki sigrað í leik fyrr en það væri
gert.
Það fyrsta, sem þeir spurðu
um, þegar leikurinn hófst var
hvort búið væri að borga „veð-
féð“ og létti öllum, að sögn frétta
manns okkar á leiknum, við að vita
það.
Fyrri hálfleikur leiksins var
heldur þófkenndur, en bæði lið-
in áttu nokkrar sóknarlotuí — Ak-
urnesingar öllu fleiri og hættu-
legri. Fyrri hálfleikurinn var
marklaus, og var allt útlit fyrir
að ekkert mark yrði skorað í
leiknum, því opin tækifæri Skaga
Haraldur Sturlaugsson
manna, hvað eftir annað, runnu
Út í sandinn.
Um miðjan hálfleikinn kom
bragarbót á, Haraldur Sturlaugs-
son, sem var langbezti maður
leiksins fékk knöttinn á miðjum
velli og tók strikið þegar í átt
að marki. Hann renndi sér á
milli Akureyringanna eins og svig
maður í skíðakeppni í Hlíðar-
fjalli, og skaut frekar lausu en
hnitmiðuðu skoti á markið, þegar
hann var kominn að vítateig.
Framhald á bls. 10.
KR hafði yfir-
burði í Tjarnar-
boðhlaupinu
Tjarnarboðhlaup KR fór fram
á sunnudaginn. Fjórar sveitir tóku
þátt í því, en yfirburðir KR-inga
í lilaupinu voru miklir. A-veit KR
tók strax forystu og hafði hana
allt lilaupið. Nokkur barátta var
milli Breiðabliks og ÍR um annað
sæti, en Breiðablik hafði þó bet-
ur að lokum.
Úrslit:
A-sveit KR 2=37,6
Sveit Breiðabliks 245,2
Sveit ÍR 247,2
B-sveit KR 3:06,6
Sigursveit KR skipuðu: Vilmund
ur Vilhjálmsson, Örn Petersen,
Einar Gíslason, Bragi Stefánsson,
Sigurður Geirsson, Viðar Halldórs
son, Grétar Guðmundsson, Einar
Frímannsson, Borgþór Magnússon
og Bjanii Stefánsson. Sveit KR
hlaut í annað sinn bikar sem um
er kennt.
MELAVÖLLUR
Islandsmótið í 1. deild. — í kvöld kl. 20,30 leika
FRAM
I.B.K.
Knattspyrnödeild Fram
mammmm