Tíminn - 13.06.1971, Blaðsíða 2

Tíminn - 13.06.1971, Blaðsíða 2
14 TÍMINN SUNNUDAGUR 13. júní 1971 Frá heimsókn á kosningaskrifstofur B-listans í Reykjavík og víðar Breiðholt er barnflesta hverfið, en þar er ekkert dagheimili fyrir börn í Breiðholti eru um 2300 manns á kjörskrá og er það flest ungt fólk. f borgarstjórnarkosningun- um í fyira voru þar 1580 manns á kjörskrá. f Breiðholti eru íbú ar um 5 þúsund og er það sama íbúatala og í Vestmannaeyjum. Kristján Jónsson. Kristján Jónsson, rannsóknarmað ur, er býr að Blöndubakka 3 í Breiðholti, fræddi okkur m. a. um þetta, er við rákumst á hann á kosningaskrifstofu B-listans að Fomastekk 12. — Breiðholt hefur nokkra sér- stöðu miðað við önnur hverfi hér £ Reykjavík, hélt Kristján áfram. — Það er einkum vegna þess, hvað Breiðholtshverfið er langt frá öðrum borgarhlutum og þjón- ustan við þennan borgarhluta er afar slæm, strætisvagnaferðir eru t. d. strjálar hingað uppeftir. Hér býr ungt fólk, sem berst fyrir líf- inu, og þrátt fyrir að þetta sé barn flesta hverfi borgarinnar, þá er ekkert dagheimili hér fyrir böm né leikskóli. Er við spurðum Kristján að því, hvers vegna hann styddi Fram sóknarilokkinn, svaraði hann. — Ég styð Fraimsóknarflokkinn vegna þess, að mér hefur alltaf fundizt hann vera eini flokkurinn, sem sameinað getur vinstri öflin vegna ítaka hans £ sveitum lands íns og i samvinnuhreyfingunni, sem alltaf hlýtur að vera stói; þáttur i vinstri hreyfingu á ís- landi. Þegar konan telur eiginmann- inn hafa rétt fyrir sér Við hittum einnig á kosninga skrifstofu B-listans á Langholts veginum, frú Solveigu Hjörvar, nem búsett er þar skammt frá, á Langholtsvegi 116 b, en frú Sol- veig er eiginkona Þorsteins Ei- rílcKsonar yfirkennara, og sér um kjördeildina á Hrafnistu. — Er mikill kosningahugur £ konum, Solveig? — Það er alltaf hugur í kon um og venjulega til einhvers góðs, svaraði Solveig, en sagði síðan: — Mér valdist það hlutskipti að hugsa um gamla fólkið á Hrafn- istu og £ þvi sambandi vil ég láta þá skoðun mína £ ljós, að ekki get ég unað því, þegar fullfrísk ung hjón fá borgað með fyrsta barni sínu, að ekki sé hlúð betur en svo, að aldraðri konu, sem vinn ur að prjónaskap, að selji hún eitt par af vettlingum, fær hún ekki nógu mikið fyrir parið, til að hún geti keypt fyrir þá upphæð hespu til þess að hafa á prjónun um, og ellilaun gömlu konunnar duga ekki fyrir matnum. — Það að ég styð Framsóknar flokkinn, fylgir sjálfsagt því að kvænast framsóknarmanni. Og hvaða kona fylgir ekki eiginmanni sínum, þegar hún telur hann gera rétt, sagði Solveig að lokum. í HafnarfirSi Á kosningaskrifstofu framsókn- armanna í Hafnarfirði var mikill ys og þys, er blaðamann Tímans bar þar að garði fyrr £ vikunni. Fjölmenni var á skrifstofunni og auðséð er, að mikill baráttuhug- ur ríkir meðal framsóknarmanna í Hafnarfirði. Við tókum tvo af þeim, er voru staddir á skrifstofunni, tali og varð fyrstur á vegi okkar Vignir Thoroddsen, ungur og galvaskur Vignir Thoroddsen Borgþór Sigfússon Hafnfirðingur. Vignir sagði, að sér virtist mjög gott hljóð í Hafnfirð- ingum gagnvart Framsóknar- flokknum og stefnu hans. — Við framsóknarmenn i Hafnarfirði stefnum ótrauðir að kjöri tveggja manna af B-listanum í Reykjanes- kjördæmi, sagði Vignir. — Ungt fólk er óápægt með núv. stjórn- arstefnu, a.m.k. það, sem ég hef talað við, svo að Framsöknar- flokkurinn fær eflaust fjölda at- kvæða frá yngrá fólki ekki sfður en því eldra. — Ég verð liklega við stjórn kjördeildastarfseminnar á kjördag. Ég er bjártsýnn fyrir hönd okkar framsóknarmanna i Hafnariirði og ég er sannfærður um, að uppskeran verður góð, svo vel hefur verið unnið hér að und- anfömu, sagði Vignir að lokum. Borgþór Sigfússon er að visu ekki fæddur i Hafnarfirði, en hann hefur búið þar lengst af eða frá árinu 1907. — Mér lfzt vel á kosningamar, segir Borgþór. — Hafnfirðingar, ekki síður þeir eldri, em orðnir hundleiðir á stjóminni og vilja breytingar. — Ég veit ekki, hvað ég geri á kjördag. Ég er að vísu varamaður í kjörstjóm, en læt það þó ekki aftra mér frá því að vinna fyrir Framsóknarflokkinn á kjördag. Guðmundur Þorsteinsson Svavar Þorvaldsson hefur búið í Kópavogi um 13 ára skeið. — Mér lízt vel á kosningamar, sagði Svavar. — Fólk er tvímæla- laust orðið leitt á stefnu núver- andi stjórnar og telur tímabært að gera nú breytingar á ríkisstjóm inni. Landhelgismálið er eitt mik- ilvægasta mál þessara kosninga og er það mín skoðun, að sem fyrst verði að færa út landhelgina og segja jafnframt upp samkomulag- inu við Breta frá 1961. — Ég starfa á einni af hverfaskrifstofum framsóknarmanna hér í bænum á kjördag. Guðmundur Þorsteinsson segist ekki vera flokksbundinn fram- sóknarmaður, en hann muni kjósa Framsóknarflokkinn í þessum kosningum. Ég kaus Sjálfstæðis- flokkinn í bæjarstjómarkosning- unum í fyrra, en kýs nú Fram- sóknarflokkinn vegna þess að ég tel þá leið vænlegasta til að fella stjórnina. Flestir þeir, sem ég hef rætt við eru andvígir núverandi stjóm- arstefnu og vilja breytingar á stjórninni. Ég tél heilbrigt, að skipt verði um stjóm; þeir menn, er hafa stjórnað landinu s.l. 12 ár, hafa gott af hvild. Fra kosningaskrifstofunni í Garðahreppi. Svavar Þorvaldsson Ég skora á Hafnfirðinga að trygg.ia kosningu Björns Svein- björnssonar í kosningunum á sunnudaginn, sagði hin gamla kempa að lokum. Um leið og við kvöddum kosn- ingaskrifstofuna í Hafnarfirði, báðu framsóknarkonur okkur að koma því á framfæri, að kaffiveit ingar verða bornar fram á kosn- ingaskrifstofunni frá morgni til kvölds á kjördag, og hvöttu þær hafnfirzka kjósendur til að líta inn á kjördag og fá sér kaffi. í Garðahreppi Frá Hafnarfirði lá leið okkar á kosningaskrifstofu framsóknar- manna í Garðahreppi. Þar var hópur manna við vinnu, en allir svo hógværir, að enginn einn fékkst til að ræða við okkur. Við erum bjartsýnir á úrslit kosning- anna í Reykjaneskjördæmi, en viljum ekki spá neinu fyririram, teljum það óráðlega. Hér £ Garða- hreppi hefur verið unnið mjög vel og við reiknum með betri útkomu hér í þingkosningunum á sunnu- daginn heldur en í sveitarstjórnar kosningunum í fyrra. í Kópavogi Á kosningaskrifstofu framsókn- armanna í Kópavogi var fjöldi sjálfboðaliða að störfum, er okk- ur bar að g .'ði. Við tókum tvo þeirra, sem þar voru staddir, tali.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.