Tíminn - 13.06.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.06.1971, Blaðsíða 7
I’ XNUDAGUR 13. júní 1971 TIMINN 19 | : 60 - 70 manns munu starfa við útsendingu sjónvarpsins á kosninga- nóttina „Ég vona að við hðldum þetta út“ Fyrr í vlkunni brá blaða- maður Tímans sér upp í sjón- varp og ræddi við Ólaf Ragn- arsson um kosningasjónvarp Það má segja, sagði ÓlÉfur að kosningasjóntarpið skiptist í tvo hluta, tvær útsendingar. Sú fyrri, aSslútsendingin, hefst kl. 11 á sunmnkvgskvöld og stendur líklega fram kl. 4. Það er fyrirhugað að eft- ir lokatölum úr Reykjavik, en þær ættu, ef ekkert sérstakt kemur upp við talninguna, að birtast um hálf fjögur leytíð. Ef von er á lokatölum úr Reykjanesi stuttu seinna, bíð- um við líka eftir þeim. Kl. 4 er ætlunin, að talning verði byrjuð í öllum kjördæmum, nema e.tv. Austurlandi. f lok útsendingarinnar aðfaranótt mánudagsins ættu því sjón- varpsáhorfendur að hafa feng- ið tölur úr sjö kjördæmum af átta, og líklega lokatölur úr tveimur. — segir Ólafur Ragnarsson um lengstu beinu útsendingu sjónvarpsins Á mánudagskvöld, að lokn- um fréttum, verður svo önnur útsending kosningasjónvarps- ins. Þá verða birt heildarúr- slit kosninganna og rætt við formenn stjómmálaflokkanna um kosningaúrslitin. Ef við snúum okk\i£ aftur að aðalútsendingunni, þá £¥ ur hún yfir í u.m.þ.h. ' 5 t! og er lengsta beina útsending, sem sjónvarpið hefur nokkru sinni sent út. Ég vona, að við höldum þetta út, sagði Ólafur, en víst er, að við verðum dauð- uppgefnir að útsendingunni lokinni. Aðalefni þessarar út- sendingar verður auðvitað lest ur á kosningatölum. En inn á milli verður skotið inn ýmsu efni. f þingkosningunum 1968 not aði útvarpið tölvu við útreikn- ing skv. þeim tölum, er þá bárust. Þetta gafst það vei ,að nú höfum við hjá sjónvarpinu tryggt okkur afnotarétt af út- reikningum tölvunnar ásamt útvarpinu. Eftir að tölur koma inn, mun talvan á grundvelli talnanna gera spár um úrslit £ hverju kjördæmi og eins spár um heildarúrslit á öllu land- inu. Samhliða útsendingum tölvunnar reikna tveir menn, sem staddir verða í upptöku- sal, út úrslit og skýra þær töl- ur, er inn son . „ w Að morgni kjördags er ætl- unin að taka viðtöl við kjós- endur á kjörstöðum í öllum kjördæmunum átta. Þessi við- töl verða birt £ útsendingunni. Þá verður einnig skotið inn ýmsum fróðleik um kjördæm- in, viðtölum um ýmsa þætti kosninganna, upplýsingum um nýkjörna þingmenn o.fl. Einn- ig er líklegt, að birt verði við- töl við menn á kosningaskrif- stofum flokkanna, sem verða þá tekin upp eftir hádegi á kjördag. Eins og í siðustu sveit- arstjórnarkosningum verður bein útsending frá Austurbæj- arskólanum og birtar þaðan nýjar tölur úr Reykjavfk, l£k- lega á hálftúna fresti. Hug- myndin er, að Magnús Bjam- freðsson, sem verður staddur £ Austurbæjarskólanum, rétti hljóðnemann að Páli Lindal, form. yfirkjörstjórnar, þegar hann les fyrstu tölur úr Reykjavik laust eftir kl. 11. Þannig heyra sjónvarpsáhorf- endur tölurnár svovfljótt sem auðið er. Frá Austurbæjar- skólanum verður einnig sjón- varpað frá talningu o.fl. Þá er upp talið það helztá, er fram kemur £ þessari út- sendingu. Til viðbótar má þó geta þess, að Guðjón Einars- son, sem staddur verður i upp- tökusal, mun væntanlega fylgj- ast með gangi mála úti á landi, þ.e. hvernig gengur að ná sam- an kjörgögnum o.þ.h. Einnig eru £ bigerð smáskot, sem ætl- uð eru til skemmtunar og flutt verða af þekktum islenzkum sjónvarpsstjörnum; nöfnum þeirra er þó vissara að halda leyndum. Loks verður skotið inn i útsendinguna stuttum auglýsingasyrpum, eins og venja hefur verið í sjðnvarpi á kosninganótt Geysimikil undirbúnings- vinna liggur að baki kosninga- sjónvarpinu. Nær allir starfs- menn sjónvarpsins munu vinna að kosningasjónvarpinu í einhverri mynd, eða alls um 60—70 manns, sagði Ólafur að lokum. Þess má geta, að veg og vanda af kosningasjónvarpinu hafa aðallega þrir menn: Ólaf- ur Ragnarsson, umsjónarmað- ur og aðalþulur kosningasjón varpsins, Rúnar Gunnarsson, stjórnandi þess, og Björn Björnsson, er teiknaði sviðs- mynd og stjórnar skiltagerð í upptökusal á kosninganótt- inni. Björn Björnsson útbýr spjöld fyr- Ir kosningasjónvarpió. Ólafur Ragnarsson I upptökusal. Sviðsmynd kosningasjónvarpsins í baksýn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.