Tíminn - 13.06.1971, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.06.1971, Blaðsíða 3
StENmJDAGUR 13. jóm 1971 TIMINN 15 Einar Olgeirsson Steingrímur Aðalsteinsson RÉTTU ANDLITIN f gær birtust í Þjóðviljanum tvær áskoranir, ásamt myndum, sem gefa ótvírætt til kynna, að þau Svava Jakobsdóttir og Stefán fréttámaður eru ekki búin að sigra kommúnismann í Alþýðu- bandalaginu, eins og reynt hefur verið að telja hrekklausu fólki trú um fyrir kosningarnar. ásamt mynd. Því aðeins hefðu þessir gallhörðu kommúnistar og gömlu Moskvumenn látið þessar áskoranir frá sér fara, að þeim er vel ljóst, að það eru kommún istar, sem ráða Alþýðubandalag- inu, og þau Svava og Stefán eru aðeins brúður, sem eru notaðar líkt og Hannibal Valdimarsson á | sínum' tíma til að ginna frjálslynt Á 1. síðu Þjóðviljans birtist og saklaust fólk til fylgis við áskorun frá Einari Olgeirssyni,, kommúnista. Einar og Steingrímur ásamt mynd, og við hlið forustu i sýna hin réttu andlit Alþýðu- greinar blaðsins birtist áskorun í bandalagsins, en Svava og Stefán frá Steingrfeni Aðalsteinssyni, eru grímurnar. Breyttir afgreiöslu- hættir hjá Loftleiðum Sú breyting er orðin á af- greiðsluháttum Loftleiða, að skrán ing farþega til brottferðar er nú gerð í farþegaafgreiðslunni í Reykjavík, sem er í hótelbyggingu félagsins. Fyrir rúmum þrem árum var brottfararskráningin flutt frá Reykjavík til Keflavíkur, aðallega vegna of þröngs afgreiðslurýmis í Reykjavík. Urðu farþegar þess vegna að láta vega og skrá farang ur eftir komu til Keflavikur, en af því var þeim talsvert óhag- ræði. Með byggingu nýju hótelálm unnar jókst afgreiðslurýmið, og varð af þeim sökum unnt að taka aftur upp brottfararskráningu í Reykjavík. Eftir að henni er lok- ið hafa farþegar öll ferðaskilríki önnur en brottfararheimild útlend ingaeftirlitsins í vegabréf. Að íriisnr rítlá henni fenginni á Keflavikurflug- velli geta farþegar varið tímanum til að verzla í fríhöfninni eða í verzluninni „íslenzkur markaður", og losna við allar þær tafir, sem áður urðu á flugvellinum vegna farangursskráningar. Er farþegum verulegt liagræði að þessi nýbreytni Loftleiða. Vegna kosninganna á íslandi hafði sænska sjónvarpið sér- stakan fréttaþátt síðastliðið mið vikudagskvöld frá íslandi, er byggðist fyrst og fremst á við- tölum við stjórnmálamenn. Vegna þess, hve Svíar eru sjálf ir mikið undir áhrifum frá Bandaríkjunum, þótti þeim vel við eiga að leggja áherzlu á atburð nokkurn, er mun hafa orðið á Keflavíkurflugvelli, er ungur piltur var handleggsbrot inn, vegna mótmælaaðgerða sinna. Hérna í Svíþjóð eru menn og jafnvel ambassadorar drepnir í mótmælaskyni, og var þessi frétt því léttmeti eitt, en ber þess vitni hvílíkar áhyggjur Svíar hafa af hinni góðu samvinnu íslendinga og Bandaríkjamanna. Skemmtilegi ráðherrann, hr. Gylfi Þ. Gíslason skemmti í þætti þessum með kostulegum yfirlýsingum að venju. Spyrill sjónvarpsins vitnaði í alþjóð- legar hagskýrslur og spurði um ástæðuna fyrir því að Islending ar eiga nú heimsmet í verkföll um. (Átti spyrillinn erfitt með að skilja, hvernig á því stcnd ur að alþýða lands með sósíal- demókrata í ríkisstjórn skuli þurfa að berjast fyrir bættum kjörum með verkföllum). Gam ansami ráðherrann svaraði, að verkföll væru raunverulega ekki til á íslandi. Þetta væri bara þannig, að í stað þess að blessuðum ráðherranum, en hann er svo skemmtilegur, að það er fyrirgefið. Sænskir verkalýðsleiðtogar, sem séð hafa þátt þennan, munu ekki hafa mikið álit á þessum fulltrúa alþýðunnar, enda er ekki litið á verkalýðs baráttu sem grín hér. — Svíar gera skýran mun á verkfalli og sumarleyfi, þótt þessi íslenzki ráðherra sjái þar engan mun á. Viðtal var og við Eðvarð hjá Dagsbrún, og var hann nógu kokhraustur að láta í ljós, að kjarabaráttan undanfarin ár hefði verið vörn og mátti á honum skilja, að sú vörn hefði tekizt, og þá sérstaklega vegna þess, hve samvinnan væri góð milli fulltrúa hinna pólitísku flokka innan verkalýðshreyfing arinnar. Eðvarð þakkaði sem sé fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins það, að verkalýðnum hefði tekizt að verjast hinum illu áhrifum geng isfellinga og verðbólgu. Sú staðreynd, að kaupmáttur launa hefur farið síminnkandi „við- reisnarái’in", virðist hafa farið fram hjá þessum fulltrúa verka lýðsins. Eðvarð mætti íhuga það, hvort það er ekki einmitt hin góða samvinna pólitíkus- anna í verkalýðsfélögunum, sem sem er það afl, er úr dregur. íslenzki forsætisráðherrann hr. Jóhann Hafstein hló óstyrkum hlátri, er hann lýsti því yfir, að engin ástæða væri fyrir fs- 1 My aoiu.ua vœii ijiu iö’ fara í sumarfi-í, þá l'æri ís- k-miin.ca að óttást vald þeirra VY.fBy'?rWður.} mrrm-a Ao lokinm þessari skýringu, hlógu allir og öfunduðu íslend inga af því, hve kjarabarátta þeirra væri ánægjuleg. Lauk ráðherrann hinum gamansömu yfirlýsingum með því að full- yrða, að íslenzkur verkalýður sé áreiðanlega ekki óánægðari með kjör sín en verkalýður hinna Norðurlandanna. Var þetta auðvitað nokkuð ýkt hjá flþíóeiegu/fyrirteekja, er kynnu að_ býfjg.i'Tupp atvinnurekstur á íslandi, „við setjum bara lög sem afmarka starfsemi þeirra“, sagði hann. Mikið skelfing væru Sviar heppnir að hafa slíka hetju sem forsætisráðherra. Hér er Olof Palme logandi hræddur við þessi alþjóðlegu fyrirtæki þrátt fyrir öflugan innlendan iðngð og traust efna hagskerfi, en þessi hetja, þessi íslenzki ráðherra, bara smá hlær að slíkum áhyggjum. Þó lýsti_ hann yfir í viðtali þessu, að fslendingar gætu ekkert sjálfir, þeir gætu engan iðnað byggt upp án hjálpar bæði tæknilega og efnahagslega. Að lýsa yfir í sama viðtali að ekki sé ástæða fyrir íslendinga að óttast vald alþjóðlegra fyr- irtækja, og að íslendingar geti ekkert sjálfir, það jaðrar við skynsemisskort, en er það að sjálfsögðu ekki í þessu tilfelli, heldur aðeins grín. fslenzka ríkisstjórnin er bara svona gamansöm og við skilningssljó- ir. Það er auðvítað hægt að snúa allri pólitík upp í grín, en ég hélt að það væri aðeins Framboðsflokkurinn sem það gerir. Sennilega er það sá flokkur, sem Sjálfstæðisflokk- urinn og Alþýðuflokkurinn ótt ast og því hafa þeir tekið upp svona gamansöm svör. Fulltrúar Framsóknarflokks ins og Alþýðubandalags, eða hvað það nú heitir, voru ekki á valdi þessarar gamanvímu og björguðu þætti þessum frá því að verða fslendingum alger- lega til skammar. Trú á landið og fólkið, kraf- an um íslenzka stóriðju og al- menna uppbyggingu íslenzks iðnaðar, hljóma vel í sænsku sTónvarpi. Slikt ‘tal mætir og skilningi hér, enda virðist að sænskir óttist mest að íslend ingar verði útlendu fjármagni að bráð. Trúin á ísland, íslenzkt hug- vit, hendur og fi’amtak er að- alsmerki Framsóknarflokksins. Við, sem vinna viljum land- inu okkar, kjósum Framsóknar flokkinn í komandi kosning- um. — K. Sn. Jón Snorri um Ölfusborgamálið: „EG HEF ENGUM GREIDSLUM LOFAГ KOSNINGA- VEDRIÐ FB—Reykjavík, laugardag. Veðráttan ætti ekki að verða til þess að draga úr kjörsókn á morgun, að því er Veðurstof an segir, því spáin er einstak lega góð fyrir allt landjð. Hér í Reykjavík er útlit fyrir að verði heiðskírt og bjart allan daginn, og sama spá gildir fyr ir allt landið sunnan og aust anvert. Við norður og vestur- ströndina er búizt við að verði skýjað framan af degi, en upp úr hádéginu fari að létta til, og sólskin verði strax upp úr hádeginu. TK—Reykjavík, laugardag. Eins og menn rekur minni til, _ þá lofaði Jón Snorri Þorleifsson því á kosningafundi Alþýðubanda- lagsins á Hótel Sögu um daginn, þar sem frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins svöruðu fyrirspurn- um fundarmanna, að liann myndi sjá svo um að þeir verkamenn og iðnaðarmenn, sem sviknir liöfðu verið um laun sín við bygg- ingu orlofsheimila ASf í Ölfusi, fengju þau greidd. Jón Snorri svaraði þessari fyrirspurn, sem borin var fram af einum fund- armanna og beint til þeirra beggja, Eðvarðs Sigurðssonar og Jóns Snorra, þannig að skilja mátti að Jón væri að lofa fyrir liönd þeirra félaga beggja, að sjá til þess að laun þcssara manna yrðu greidd hið fyrsta. í morgun hi’ingdi frú Aðalbjörg M. Jóhannsdóttir/kona Árna Jóns- sonar, trésmiðs í Hveragerði til Tímans. en Árni var einn þeirra manna, sem sviknir voru um laun sín fyrir vinnu við Ölfusborgir Frú Aðalbjörg kvaðst hafa hringt í’ Jón Snorra Þorleifsson fyrir tveimur dögum og spurzt fyr- ir um það, hvcnær vænta mætti greiðslunnar á hinum vangoldnu vinnulaunum. Frú Aðalbjörg kvaðst hafa orðið mjög vonsvik- in við svör Jóns Snorra, því að hann hefði sagt, að hann hefði að- eins lofað að athuga málið og sjá til hvað hægt væri að gera í mál- inu. Hér stæði ekkert upp á stjórn ASÍ. Stjórn ASÍ skuldaði engum neitt. — Við höfum þar að auki enga peninga og við höfum ekkert hevrt af þvi. hvað verkalýðsfélög- in muni gera, sagði Jón Snorri. Frú Aðalbjörg sagðist hafa verið alveg hlessa á þessum við- brögðnm og spurt Jón Snorra að því, hvort hann hefSi ekki gefið þetta loforð sitt á fiölmennum kosningafundi hjá Alþýðubanda- laginu, en Jón Snorri þá brugðizt enn harðar við og sagt að hann hefði ongu iofað. Það hefðu engin Joforð verið gefin um greiðslu og bað væri ekknrt að marka það. sem eftir sér hefði verið haft um loforðið í Tímanum. Frú Aðalbjörg sagðist hafa i barnaskap sín im haldið að loforð gefin undir vitni hundruða manna væru haldbetri en þau, sem gefin væru undir fjögur augu. En þetta virtist misskilning ur þegar þessir menn, sem köll- uðu sig vopn og skjöld verka- manna. væru annars vegar. Slík væri sín reynsla. — Fyrir síðustu alþíngiskosningar, 1967, fór ég á fund Snorra Jönssonar. fram- kvæmdastjóra ASÍ. Hann lofaði okkur þá, að skuldin við Árna skyldi greidd nokkru síðar, eða þegar skemma ASf þar evstra yrði' seld. Þegar búið var að selja skemmuna og eftir greiðslunni var gengið, var komið annað hljóð í strokkinn. Þá var líka búið að kjósa. Þá gekk Snorri Jónsson meira að segja svo langt, að kalla tilraunir minar til að fá þessi vinnulaun innheimt hótanir og fjárkúgun. Frú Aðalbjörg sagði, að það gæti verið að ýmsum þætti harla ósn ilegt að þessir verjend ur lítiimagnans væru svo innrætt- ir sem fram hefði komið í því, er hún lv’fði hér þeim, en „ég er reiðubúin að staðfesta þetta með eiði fyrir dómi, og vildi gjarna fá að gera það“, sagði frú Aðalbjörg að lokum. Hringskonur selja merki Að venju hafa Hringskonur merkjasölu á kosningadaginn í Reykjavík. Verða blómamerki Mringsins aðallega seld við kjör staðina í Reykjavík og þar verð ur líka afgreiðsla merkjanna. Eru sölubörn beðin að koma í skól ana og taka merki til sölu. Öllum ágóða af mcrkjasölunni verður var ið til líknarstarfs Ilringsins, cn 'iringskonur eru rómaðar fyrir dugnað sinn á því sviði

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.