Tíminn - 13.06.1971, Blaðsíða 6

Tíminn - 13.06.1971, Blaðsíða 6
8 TÍMINN SUNNUDAGUR 13. júni 1971 utvarpiö sendir beint út frá 3 stöðum á kosninganótt Ámi Gunnarsson. ÞaSan stjórnar hann útsendingu h! jóðvarpsins i kosninganóHina. Haraldur Óiafsson Harald Ólafsson, dagskrár- stjóra, hittum við fyrir á skrif stofu hans í útvarpshúsinu. — Dagskrá hljóðvarpsins verð ur með mjög svipuðum hætti um þessar kosningar og venju lega. Á sunnudag verða öðru hverju fréttir af kjörsókn, birt viðtöl við kjósendur o. fl. Taln ingu verður nú flýtt mun meira en í síðustu kosningum, sagði Haraldur, þannig að tölurnar berast enn tíðar en áður. Þess vegna verður erfitt fyrir okkur að undirbúa langar dagskrár fyr irfram, til að skjóta inn á milli talnalestursins á kosninganótt- ina. Við leikum því aðallega létt lög, en reynum einnig að skjóta inn viðtölum við kjós- endur á kjörstöðum og öðrum kosningafróðleik. Þá höfum við, eins og í síðustu þingkosning utn, not af tölvu Reiknistofnun ar Háskólans, sem mun spá um kosningaúrslitin. Fréttamað ur frá hljóðvarpinu mun fylgj ast með flokkun og síðan taln ingu atkvæða í Austurbæjar- skólanum. Strax kl. 11 mun hann senda fréttir af talning- unni ,unz talningu lýkur í Reykjavík. Þess má geta að lokum, að við höldum áfram með kosningaútvarpið þar til úrslit liggja fyrir í öllum kjör dæmum. Árni Gunnarsson stjórnar út- sendingu hljóðvarpsins á kosn inganótt. — Við byrjum á kosn ingafréttum kl. 10 á sunnudags morgun og síðan birtum við öðru hverju fréttir um kjör sókn o. fl. fram til kl. 11 um kvöldið, er kjörfundi lýkur. Tekin verða viðtöl við kjósend ur á kjörstöðum og þeim skotið inn í dagskrána, bæði fram til kl. 11 og eins eftir þann txma. Þá verða nokkrir snillingar látn ir spá um úrslit kosninganna og spár þeirra birtar rétt eftir að kjörfundi lýkur. Við leggjum áhei-zlu á að hafa sem bezt samband við talningastaðina á kosninganótt, sagði Árni. Nýjar kosningatöl ur verða teknar niður hér á fréttastofunni og síðan farið með þær inn í þularherbergi við hliðina svo að tölurnar ættu að berast mjög fljótt til hlust enda. Þess má geta að lokum, sagði Ámi, að bein útsending verður frá þremur stöðum á kosninganótt, þ. e. héðan úr útvarpshúsinu, frá Austurbæj arskólanum og frá Reiknistofn nn Háskólans, þar sem dr. Guðmundur Guðmundsson og Haraldur Ólafsson sitja við hljóðnemann og skýra jafnóð um frá útreikningum tölvunn- ar. Við brugðum okkur upp í Reiknistofnun Háskólans, sem staðsett er í húsi verkfræði- og raunvísindadeildar vestan við Húskólabíó. Ætlunin vár að hittá áð máli einhvem þeirra þriggja verkfræðinga, er vinna við tölvu Reiknistofnunarinnar á kosnihganótt Enginn þeirra var þó staddur þar, en við náð- um tali af Herði Arinbjarnar, starfsmanni í stofnuninni, og skýrði hann út fyrir okkur í stórum dráttum starfsemi tölv unnar. Talvan er ekkert annað en risastór Teiknivél, mjög hraðvirk, getur t.d. prentað 480 stafi á sek. Hún er e.t.v. 2 mín. að reikna dæmi, er tæki stærð fræðinga heilan dag að reikna. En það verður að taka skýrt fram, að hún er ekki forvitur, hún vinnur aðeins eftir ákveðn um prógrömmum, sem hún er mötuð á fyrirfram. Það eru þrír verkfræðingai’, sem hafa veg og vanda af útreikningun um á kosninganótt, þeir Helgi Sigvaldason, dr. Kjartan Jó- hannsson og dr. Guðmundur Guðmundsson, — Við starfs- menn Reiknistofnunar komum lítið nálægt þessu, nema e.t.v. einn okkar, er verður þremenn- ingunum til aðstoðar, sagði Hörður að lokum. Helga Sigvaldason, vei'kfræð- ing, heimsóttum við á verk- fræðiskrifstofu hans við Ár- múla og var hann þá að vinna við kosningaprógrömm fyrir tölvuna. Helgi sýndi mér hlaða af gataspjöldum. Á þessum spjöldum eru upplýsingar um úrslit síðustu alþingiskosninga skráð, og auk þess eru þar ýms ar upplýsingar, er við höfum komizt að með því að rannsaka talningartölur og úrslitatölur undanfarinna þingkosninga. Við liöfum m. a. á grundvelli þessa komizt að því, að fylgni er milli fylgi flokkanna í Reykja vík og Reykjaneskjördæmi ann ars vegar og hinna kjördæm- anna sex hins vegar. Ef flokk ur bætir t. d. við sig í Reykja vík þá eru líkur til, að hann bæti einnig við sig í Reykja nesi, en engar sérstakar líkur fyrir því, að hann auki atkvæða magn sitt úti á landi. Þetta er aðeins reynsla, í mjög grófum dráttum, og það verður auðvit að að taka hana með fyrirvara. En talvan byggir að einhverju leyti á reynslu sem þessari í útreikningum sínum. Ég vil taka undir orð Harðar, talvan er ekki forvitur, hún er aðeins stór reiknivél, sérstak- lcga vel útbúin til flókinna reikninga og mjög hraðvirk. Eftir að fyrstu tölur úr Reykja örður Arinbjarnar við tölvuna, sem notuð verður til útreikninga á kosninganótt. Heigi Sigvaldason vík birtast líða um 2—3 mín. þar til talvan eða reiknivélin hefur gert spá um heildarúr- slit í Reykjavík og skv. reynsl- unni frá 1967 ætti sú spá að vera nokkuð örugg. Við gerum þetta aðeins okkur og öðrum til gamans, sagði Helgi að síð ustu, en vörum við því, að fólk taki spár tölvunnar of alvar- lega, því að allt getur gerzt í talningu ekki síður en í kosn- ingum. HJÓSID LISTANN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.